Þjóðviljinn - 03.04.1958, Qupperneq 6
6) — tfjÖéVTfcJÍNÍÍ — Pitómtudágiir 3. ájiríl 1958 -
Þióðviliinn
ÚtBefandl: Samelnlngarflokkur aiþýSu - Sósiallstaflokkurlnn. — Ritstjórar
Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.). - Préttarltstjóri: Jón
Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson. Ouðmundur Vigfússon,
Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sígurjón Jóhannsson. - Auglýs-
ingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla. auglýsingar, prent-
smlðja: Skólavörðustíg 19. — Síml: 17-500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 25 4
món. í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. - Lausasöluverð kr. 1.50
Prentsmiðja ÞJóðviljans.
J
Stöðvunarstefnan fársælust
A ndstöðuflokkar Alþýðu-
-í*- bandalagsins, og þá ekki
sízt þeir tveir flokkar sena það
á nú sanwinnu við um ríkis-
stjórn, hafa mjög reynt að
koma því inn hjá almenningi
að það sé eitthvert trúar- eða
stefnuskráratriði þess að við-
halda núverandi uppbótarkerfi.
Jafnvel mœtti ætla af skrif-
um blaða þessara flokka að
millifærs’a fjármuna yfir til
framleiðslunnar sé beinlínis
uppfinning Alþýðubandalags-
ins.
etta á sér enga stoð í veru-
leikanum. Það voru þeir
flokkar sem stóðu að ríkis-
stjórn 1951 sem fyrstir fóru
þessa leið. Til hennar var
gripið eftir að gengislækkun-
in 1950 hafði sýnt að hún var
engin lækning á erfiðleikum
efnahagslífsins heldur olli
þvért á móti nýjum og aukn-
um vandkvæðum. íhaldið og
Framsókn stóðu að gengislækk-
uninni 1950 og þeir tóku einn-
ig upp bátagjaldeyriskerfið og
bættu við með toll'aálögunum
miklu í ársbyrjun 1956. Hitt er
svo ekkert leyndarmál að Al-
þýðubandaiagið og verkalýðs-
samtökin hafa ekki hikað við
að taka millifærsluleiðina
fram yfir iækkun krónunnar
og þá framar öðru haft í huga
hagsmuni alþýðunnar. Þýðir
þetta að sjálfsögðu ekki að
þessum aðilum séu ekki ljósir
ágaliar þessa fyrirkomuiags,
En ekki hefur enn verið bent
á aðra leið sem unnt væri að
fara á þann hátt að þeim
tekjulægstu og fátækustu væri
sýnd nauðsynleg hlífisemi.
Samhliða því að núverandi
ríkisstjóm hefur hingað til
fýlgt millifærsluleiðinni hef-
ur hún iagt áherzlu á að
stöðva kapphlaupið milli verð-
lags og kaupgjalds. Árangur-
inn hefur orðið vonum betri
þegar þess er gæt't hvemig
komið var þegar ihaldið
hrökklaðist frá völdum og að
það hefur í stjórnarandstöð-
unni sýnt fádæma ábyrgðar-
leysi og skort á þjóðhollustu.
Vísitalan hefur ekki hækkað
nema um 5 stig í tíð núver-
andi stjórnar en hækkun henn-
ar nam 25 stigum siðustu 15
mánuðina sem Ólafur •• Thórs
lét þjóðarskútuna reka fyrir'
sjó og vindi. Þetta hefur þýtt
að hægt hefur verið að halda
millifærslunni í miklu meiri
skefjum en áður. Þarf t.d. nú
ekki að afla nema örlítils brots
af því sem venja hefur verið
til stuðnings við útveginn, og
eingöngu til að.mæta nauðsyn-
legri hækkun á kaupi sjó-
manna og nokkmm uppbótum
vegna óvenjulegs aflabrests á
árinu.
A Iþýðubandalagið er enn
þeirrar skoðunar að stöðv-
unarleiðin sé farsælust fyrir
íslenzka alþýðu og atvinnulíf
þjóðarinnar. Verðbólguþróun í-
haldstímabilsins með fylgjum
sínum: gengislækkun, báta-
gjaldeyri og stórfelldum tolla-
álögum sem sífellt sköpuðu
nýjan og aukinn vanda leiddi sí-
fellt til vaxandi ófamaðar. Þjóð-
in hefur reynslu af hvoru-
tveggja og þekkir muninn á
glundroða ko|Hateypuitímabils(-
ins og því farsæla jafnvægi
sem fylgt hefur framkvæmd
»
stöðvunarstefnunnar. Þeir sem
vilja brjóta niður varnargarð
stöðvunarstefnunnar taka því
á sig mikla ábyrgð. Með þeim
verknaði væri stofnað til nýrr-
ar verðbólguöldu og harðra á-
taka á vinnumarkaðinum sem
sízt yrði til að treysta efna-
hagskerfið.
Aðalíundur
í SAMVINNUTRYGGINGA og
| LÍFTRYGGINGAFÉLAGSINS ANDVÖKU
verður háidinn i Sambandshúsinu í Reykjavík
mánudaginn 5. maí n.k. og hefst kl. 2 e.h.
r Stjórnir tryggingarfélaganna
Aðalf undur
1 FASTEIGNALÁNAFÉLAGS SAMVINNUMANNA
^ . verður haldinn í Sambandshúsinu í Reykjavik
-h mánudaginn 5. maí n.k. að loknum aðalfundi
Samvinnutrygginga og Andvöku. — Stjómih
Freysteinn Þorbergsson:
Skákeinvígi Smisloffs og Botvimiiks
4. skák 13. marz.
Eins og í 2. skákinni opnar
Botvinnik með drottningar-
peðinu, en nú svarar Smisloff
með einni af uppáhaldsvömum
sinum, Griinfelds-vöm, og vel-
ur síðan kerfi sem kennt hef-
ur verið við hann sjálfan. Hef-
ur hann oft beitt því áður
með góðum árangri.
1 10. leik víkur Botvinnik út
af venjulegustu leiðum, en það
er þó einkum 11. leikur hans
sem orkar tvímælis.
Smisloff er hér öllum hnútum
kunnugur og tekst eftir
hvassa miðborðssprengingu að
ná greinilegu forskoti, sem
eftir skemmtilegar sviptingar
breytist í peðsvinning.
Eftir allmikil uppskipti fer
skákin í bið með nokkrum
vinningslíkum fyrir Smisloff.
Biðskákin 14. marz.
Smisloff vinnur annað peð,
en jafnframt koma upp tafl-
lok með mislitúm biskupum.
Botvinnik verst af nákvæmni,
og Smisloff, sem ekki ætíð
finnur hin bitrustu vopnin,
verður að lokum að sætta sig
við þau súru úrslit, að hann
getur ekki unnið með kóng,
biskupi og peði á móti kóngi
Botvinniks einum, þótt peðið
sé ekki á rönd borðsins.
Sjaldgæf og skemmtileg loka-
staða.
Staðan er 3^2 'Vz fyrir Bot-
vinnik.
4. skákin.
Hvítt: Botvinnik
Svart: Smisloff
1. d4 . Rf6
2. c4 S6
3. Rc3 d5
4. Rf3 Bg7
5. Db3 dxc4
6. Dxc4 0—0
7. e4 Bg4
Fyrsti leikurinn í varnarkerfi
Smisloffs, sem einkennist þó
öllu fremur af næsta leik
svarts.
8. Be3 Rfd7
9. Be2 Rb6
10. Dc5
Venjulegast er 10. Db3.
10. --------------- c6
11. Hdl
Nýjung Botvinniks, sem reyn-
ist ekki vel. Venjuiegt er
11. 0—0.
11. ------------- R8d7
12. Da5 e5
13. d5
Ef 13. Rxe5 gæti framhaldið
orðið 13. — Bxe2 14. Kxe2
Rxe5 15. dxe5 Ðh4! og svart-
ur fær sókn fyrir peðið.
13. cxd5
14. Rxd5 Rxd5
15. Dxd5 Be6
16. Dd2 Rf6
17. Dbt a5
18. Db5
Eftir 18. Dxb7 Db8 19. Dxb8
Hfxb8 fengi svartur peðið aft-
ur í betri stöðu.
18. — De8
19. Rd2 Dxb5
20. Bxb5 Bxa2
21. Ke2
Ekki dugar 21. b3 Hfc8 22.
Hal Hc3 23. Hxa2? vegna 23.
— Hclf.
21. — — — Be6
22. f3 Hfc8
23. Hcl Re8
24. Bd3 Rd6
25. Hxc8 Hxc8
26. Hal Ha8
27. Bb6 a4
28. Rbl!
Djúphugsaður varnarleikur.
Það er annars undántekning
að það borgi sig að gefa and-
stæðingnum kost á biskupa-
parinu í opinni stöðu.
28. — Rc4
29. Bxc4 Bxc4f
30. Kel Bf8
31. RaS Bb3
32. Hcl Ha6
33. Be3 Hc6
34. Hxc6 bxc6
35. Kd2 f5
36. Kc3 fxe4
37. fxe4 Kf7
38. Rc4 Ke6
39. Ba7
Hér kom sterklega til greina
39. Ra5 Ba2 40. Kc2.
39. Ba2
40. Bb8 Bli6
Nú fór skákin í bið. Lokin eru
mjög vandtefld. Hér fylgja
skýringar Túlushar, en þeim
er vart að treysta að fullu,
enda gerðar í flýti.
41. Bc7
Peðið á e5 er eitrað sökum
manntáps.
41. Bbl
42. Rd2 Bxd2
43. Kxd2 Bxe4
44. g3 Kd5
Betra vár 44. - - g5.
45. Kc3 Bg2
46. h4 Bf3
47. BbS c5
48. Bc7 Bc4
49. Bb8 Bbl
50. Bc7 e4
51. Bf4 Bd3
52. Be3 c4
53. Bf4 Ke6
54. Kd2 Kf5
55. Bd6 Kg4?
Skyssa. Nauðsynlegt var 55.
— h5! (Túlush).
56. Ke3 Bbl
57. Be5 c3
58. Bxc3 Kxg3
59. Bf6 Kg4
60. Be7 KÍ5
Betri horfúr gaf 60. — og síðan g5. h6
61. Bg5 Ke5
62. Bh6 Bc2
63. Bg5 Bb3
64. Bh6 Bd5
65. Bg5 Kf5
66. Bh6 Kg4
67. Bg5 Kg3
68. Bd8 Kg2 ' • 4
69. Be7 Kfl
70. Bb4 h6
71. Bf8 g5 - i
72. h5! g4
73. Bxh6 g3
74. Bf4 g2
75. Bh2 Bf7
76. Kxe4 Bxh5
77. Itd3 glD
78. Bxgl Kxgl
79. Kc2 Bg6t
80. Kc3 Bf7
81. Kc2 82. b4 Jafntefli. Ba2
Eftir 82. — axb3 e. p. 83. Kb2
verður kóngurinn ekki unninn
sökum sjálfheldu svarta bisk-
upsins.
Tonlcikar í Melaskóla
,,Kámmermúsikklúbburinn“
efndi til annars tónleikakvölds
síns á þessu ári í samkomu-
sal Melaskólans síðastliðinn
sunnudag. Á efnisskránni voru
tvö verk eftir Vínarmeistar-
ana miklu Beethoven og Schu-
bert, hvort um sig fagurt verk
og markað sérkennum höfund-
ar síns. Hið fyrra var Són-
ata í A-dúr (op. 69) fyrir kné-
fiðlu og píanó, ein af fimm
sónötum, er Beethoven samdi
fyrir þau tvö hljóðfæri. Són-
ötuna fluttu þeir Einar Vig-
fússon og Jón Nordal. Þessir
tveir snj"llu hljóðfæraleikarar
sköpuðu hér ágæta heild góðs
og nákvæms samleiks, — Ein-
ar með sinn næma knéfiðlutón
og skilningsríka flutning, Jón
með sinn fallega áslátt og tón-
vísa, , kunnáttusamlega píanó-
leik.
Yfir þessari glæsilegu són-
ötu Beethovens er að vísu
bjart og heiðríkt, en þó skipt-
ast þar á skin og skuggar,
og jafnvel ekki laust við, að
fyrir bregði undirtóni óhugn-
aðar, eins og í öðrum þætti.
Tónverk Schuberts, þríleikur
í B-dúr (op. 99), er hins veg-
ar ljúfur söngur frá upphafi
til enda, oftast glaður, stund-
um ofurlitið angurvær,
streymandi beint frá hjarta-
rótum tónskáldsins góða. Hér
voru þeir Einar Vigfússon og
Jón Nordal einnig að verki og
tókst sízt miður .en hið fyrra
sinnið, en nú hafði Ingvar
Jónasson bætzt í hópinn með
fiðlu sína, og gerði hann
einnig sínu hlutverki góð skil,
svo að hlustendum gaf að
heyra ánægjulegan samleik
þeirra þremenninga.
í hljómleikasalnum voru
flest sætin skipuð, og var
listamönnunum ágætlega fagn-
að.
B. F.
Lausar stöður
Staða vélritara, bókara og fulltrúa hjá lands-
símanum eru láusar til umsóknar.
Laun samkvæmt launalögum.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist póst- og símamálastjóminni
fyrir 1. maí 1958.
Póst- og símamálastjómin, 1. apríl 1958.
.. i