Þjóðviljinn - 27.04.1958, Blaðsíða 11
Stmnudagur 27. ímpríl ilö58; — Þ4ÓSXypifi#J;í?íNi —„ (44i
ERNEST GANN:
Sýður á keipum
95. dagur.
að fá 5 ára fangelsi fyyrir að lenda í illum félagsskap,
Connie. Eg aðvaraði þig, en nú skulum við láta það
liggja milli hluta. En einhvern tíma þætti mér gaman
að vita, hvort ég hef getið rétt til um það hvers vegna
þú skrifaðir þetta bréf. Þú skrifaðir meira en þú gerðir
þér ljóst, og þess vegna er ég feginn því að ég gerði
þér ekki erfitt fyrir.
Það var til bátur með nafninu Taage og eigandinn
hét Hamil Linder. Fyrirspurnir hjá hafnarstjóra og
sjómannafélaginu höfðu leitt í Ijós hagstæðar upplýs-
ingar um gamla manninn — hann var virtur af öllum.
Fyrsta flokks rneðmæli. frá, öllum sem til bekktu Son-
urinn — var ekki eins fullkominn. Fékk dóm fyrir
bílstuld fyrir um það bil ári, virtist vera piltungi fullur
af orku sem beindist í ranga átt. Þaö var allt og sumt,
eða því sem næst. Hann hafði verið náðaður og var
í gæzlu gamla mannsins. Og Kelsey, þetta var sami
pilturinn og ók Studebakernum, svo að þú varst ekki
svo langt frá slóðinni eftir allt saman. Var það heppni
eða eðlishvöt?
Stundarkorn rifjaði Kelsey upp allar ferðir sínar á
bátabryggjuna og hugsaöi með sér að 1 framtíðinni
myndi hann leggja meira upp úr hugboðum sínum.
Það yröi auðveldara aö vera hreykinn ef hugboðið
byggðist á einhverju meira en líkum. Sennilega hafði
Felkin tekiö stefnu niður að höfn, vegna þess að hann
hafði ekki um aðra stefnu að velja, vegna þess hvernig
San Francisco var byggð.
Við skulum sjá til, Connie. JÞú gafst þessar upplýs-
ingar ekki vegna ósamlyndis elskenda, ekki sjálfrar
þín vegna. Og ég gizka því á aö þú og Linder ungi
hafið verið farin að uppgötva hvort annaö. Brúnó
féll það ekki í geð og kom með hótanir? Nei .... það
getur ekki staöizt. Þú ert ekki þannig stúlka, að þú
vildir ryöja manni úr vegi til þess að fá annan mann.
En Brúnó hefur hótað einhverju á einhvern hátt, og
þú máttir til aö koma í veg fyrir það_ Þú varst oröin
þreytt á því að leika við villidýr. Þetta er tilgáta
mín, Connie.
Síminn hringdi og Kelsey tók tólið í skyndi. Það
var tími til kominn. Allt annað var klappaö og klárt
og þetta var eflaust símtalið sem hann hafði beðið
eftir. Nú kæmi Brúnó bljúgur eins og lamb eða með
skotvopn á lofti. Það kæmi út á eitt 1 lokin.
„Kelsey hér.“
„Þetta er Elwaith lautinant í hafnarlögreglunni.“
„Gott. Hvað er að frétta?"
„Báturinn sem þú bíður eftir kemur að bátabryggj-
unni eftir svo sem tvo tíma. Þeir voru að tala við okkur
um borð.“
„Ágætt. Við förum þangað undir eins Andartak,
hvernig stóð á því að þeir töluðu viö jdíkur?>! er það
venjan?" !
„Ekki nerna þegar slys hefur ofðiðí ^>j|ð ^.mýi’É^lúr.
Þeir misstu mann fyrir borð. Og meðal anirari-a orða,
á töflunni okkar hefur veriö lýst eftir manni að nafni
Brúnó Felkin í meira en þrjá mánuði.'Er þáð maðurinn
sem þú ert að leita að?“
„Já.“
„Það er hann sem drukknaði. Það er ekkert efamál
að slysið hefur orðið meö þeim hætti sem þeir segja.
Við þekkjum formanninn og honum er óhætt að treysta.
Níu aðrir bátar voru í nauðum staddir um svipaö leyti.
Vindurinn var yfir 60 mílur á klukkustund á þessu
svæði. Eg skal fúslega senda þér veðurskýrslu yfir þetta
tímabil, ef þú vilt.“
„Þú ert viss um aö það hafi verið Felkin?“
„Þaö var nafnið sem formaðurinn gaf upp. Auðvitaö
verður lát hans ekki tilkynnt opinberlega fyrr en eftir
þrjátíu daga. Samkvæmt reglunum; Viltu fá þessa veð-
urskýrslu?“
„Nei ... . nei, ég þarf ekki á henni að halda núna.
Þökk fyrir, lautinant “ Kelsey lagði tólið varlega á
aftur. Hann tók nýjan vindil upp úr vasa sínum, opn-
að'i vasahníf sinn og skar endann af honum. Hann
stakk honum upp í sig og hélt honum milli tannanna
um stund án þess aö kveikja í honum.
„ .... lát hans ekki tilkynnt opinberlega fyrr en
eftir þrjátíu daga . .. .“ Já, eftir þrjátíu daga manstu
varla eftir því að til hafi verið maður sem hét Brúnó
Felkin! Þá veröuröu Kelsey fyrrum lautinant .... í
nýju húsi í Sacramento. Þú verður komimi á nýja
skrifstofu við nýtt skrifborð þakið skjölum og senni-
lega verðurðu kominn með nýjar áhyggjur í hlutfalli
við nýju launin.
Kelsey kveikti í vindlinum og tottaði hann hugsi.
Hann horfði á reykinn liðast upp í loftið, sem hafði ekki
verið málaö síðan hann kom á þessa skrifstofu fyrir
12 árum. Jæja, Connie litla, ég ætla að gera þér dálítinn
greiða. Þsð skiptir engan nema þig neinu máli hvort
sem er. Eg ætla ekki aö rannsaka skýrsluna um lát
Brúnó-s. Þaö er verkefni strandgæzlunnar og við treyst-
um henni. Eg ætla ekki að koma nálægt báti sem
heitir Taage .... og ég ætla að gieyma því að þú hafir
nckkurn tíma skrifaö mér bréf. Tilgáta mín er sú, að
þaö verði þér talsverður léttir.
Kelsey tók miðann af skrifborðinu og blés á hann
reyk Svo vöðlaði hann honum saman 1 þétta krilu og
fleygði honum í bréfakörfuna.
Fréttir — þjófnaöur á laxavog, koma nýs báts, lát
ættingja, verðlækkun á fiski, fæðing sonar, fundur
nýrra túnfiskmiða — bárust fljótt um bátabryggjuna.
Og Barney Schriona varð því ekkert undrandi þegar
hann sá Hamil ganga hægt eftir bryggjunni í áttina til
Capellu. Það var von á honum, það haföi meira að segja
verið búizt viö honum í nokkra daga.
Þegar Barney sá Taage fyrst við bryggjuna og tók
eftir athafnaleysinu um borð, datt honum fyrst í hug
að vélin hefði eyðilagzt eða jafnvel aö Hamil væri
veikur. Það var engu lagi líkt að liggja svona lengi
í höfn, þegar túnfiskurinn var upp á sitt bezta og
fréttir bárust um firnin öll af fiski úti fyrir. Hamil var
ekki eins og margir hinna, einn þeirra sem veiða vel
í eitt skipti og halda síðan heppnina hátíðlega í landi,
þar til hver eyrir var uppurinn. Ef nokkur fiskur var
eftir í sjónum, þá færi hann strax til baka að leita aö
honum.
Barney hafði farið um borð í Taage hvað eftir annað
fyrsta daginn, þótt hann hefði getað sagt sér það
sjálfur að enginn yrði til að svara kalli hans. Ðymar
að stýrishúsinu voru lokaðar og læstar. Túnfisklínurn-
ar héngu líflausar niður. Hann leit út eins og bátur sem
hefur veriö yfirgefinn í flýti. Barney langaði til að
spyrja Hamil hvernig honum hefði gengið í storminum
— það hafði verið rokhvasst í skjólinu í Drake vík
— og hann langaöi til að segja Hamil að hann yröi aö
gera einhverjar ráðstafanir með talstöðina sína. Hún
Léreft nýkomið
90 sm breitt. Tvær tegundir.
Poplineíni, þrír litir.
UMBOÐ5* & HEIÚDVERZLUN
HVERFISGÖTU 50 * SÍM I 10 4 8 5
■ - | ■
T
A MANUDAG
Ný sending
Hafnarstræti 4. — Sími 1-33-50.
Foreldrafélag
Laugarnesskóla
heldur aðalfund og jafnframt
skemmtifund, þriðjudaginn 29.
maí 1858 kl. 8,15 í Laugar-
nesskóla.
Dagskrá’.
1. Börn úr 8 ára bekk Laug-
arnesskóla leika nokkur log
á blokkflautu undir stjórn
kennara síns, Magnúsar Ein-
arssonar.
2. Skýrsla stjórnarinnar:
a) Skýrsla formanns.
b) Skýrsla gjaldkera.
e) Garðyrkjuráðunautur bæj-
arins hr. Hafliði Jónsson skýr-
ir frá ræktun, tiihögun og
framkvæmdum á skólalóðinni.
3. Stjórnarkosning: a) þrír
menn i aðalstjórn og fimm j
varastjórn.
4. Sýnd verður litkvikmynd um
listamanninn Ásgrim Jónsson.
Þúlur er Kristján Eldjárn.
Myndina tók Ösvald Knudsen.
Allir foreldrar og konnarar
úr skólahverfinu eru velkomn-
ir á fundinn.
liapur !ei?:a
LÁTI8
DRI-BRITE
erfiða fyrir yður.
Dreifið þvi á dúkinn.
Þurrkið það síðan af,
og „bóningin er búin“