Þjóðviljinn - 03.05.1958, Side 3
Höfundur landráðagreinanna i Vísi
og hinir brezku samherjar hans
Ekki fæst Vísir til þess að
segja frá því í gær heldur
hver sé höfundur landráða-
greinanna um landhelgismálið,
þar sem sókn íslendinga til
aukinna landsréttinda er nefnd
„ævintýri sem gæti orðið mjög
hættulegt“, „skref kommúnista"
og „fyrirskipun frá Moskvu“,
og þar sem blaðið segir að í
þessu máli sé hægt að „beygja
kommúnista, ef þeim er aðeins
sýndur hnefinn“. Hins vegar
er greinilegt að höfundur land-
ráðagreinanna er mjög miður
sín; í gær fyllir hann hálfa
forsiðuna af fúkyrðum og lýk-
ur henni á þessari setningu:
„Barðir rakkar eiga að láta
sér skiljast, að þeim er bezt
að þegja, því að ella skríða
þeir heim með rifinn belg og
ærna skömm“. Hinir börðu
rakkar eru þeir íslendingar
sem bera fram kröfur um taf-
arlausa stækkun landhelginnai
og það er málstaður íslands
sem þeir eiga að þegja um! Það
er ekki von að maður sem
bregzt þannig við stækkun
landhelginnar þori að láta nafn
sitt uppi.
En höfundur landráðagrein-
anna á sér samherja. Þeir eru
að vísu ekki hér á landi; þeir
eiga heima í Bretlandi. Morg-
unblaðið skýrði frá því í fyrra-
dag að enn rigndi ofsalegum
hótunum yfir íslendinga. Þann-
ig komst forseti brezka fisk-
kaupe;ndasambandsins fiannig
að orði fyrir nokkru: „Ef ís-
lenzka ríkisstjómin víkkar
landhelgina í 12 mílur með ein-
liliða ákvörðun, þá ættu okkar
Kappar og
vopn í Rvík
í fyrrinótt voru þrir piltar úti
að aká í bifreið. Höfðu þeir með-
ferðis byssusting sér til dægra-
styttingar. Stakk ein|n þeirra
vopninu niður með buxnastreng
sínum, en varð um leið litið á
hendina á sér og sá að hún var
blóðug. Þóttist hann þá vita að
hann hefði stungið sig á hol
með vopninu, og óku þeir á
slysavarðstofuna í skyndi.
Er þangað kom gekk hinn
slasaði inn og veifaði byssu-
stingnum. Leizt hjúkninarkon-
unni, er þar var á vakt ekki á
komumann og kallaði á bifreið-
arstjórann sér til aðstoðar. Ætl-
aði hann að afvopna sjúklinginn,
en hann brást hart vjð og kom
til átaka með þeim. Fékk bif-
reiðastjórinn haft hann undir. í
því bili komu félagar hins slas-
aða og knúðu dyra, en þær voru
lokaðar. Gerði þá annar þeirra
sér hægt um hönd og braut gler,
er var í hurðinni og ruddist inn
og hugðist skakka leikinn. En
þá sá hann, að hann hafði skor-
izt illilega á annarri hendinni
á glerbrotunum og lagaði úr
henni blóðið. Varð það honum
til bjargar, að hjúkrunarkonan
var nærstödd og fékk lagt hann
,á bekk, þar- sem gert.var að sár-
um hans.
Félagi hans, sá, er með byssu-
stinginn. var reyndist 'hins vegar
ósár með'öllu, en ,var svo óður
að flytja varð hann í -steininn.
menn að mega kalla á hjálp
flotans. Ef flotinn veitir ekki
nauðsynlega hjálp af ótta við,
hvað af því myndi leiða síðar,
þá gætum við alveg eins farið
að viðurkenna að við séum að-
eins þriðja flokks stórveldi og
þá liljótum við að spyrja til
hvers við berum þungar byrðar
vígbúnaðarins. . . . Við höfum
hlýtt ákvörðun íslendinga frá
1952 um 4 mílna landhelgi,
enda þótt við liöfum mótmælt
henni. Ef máli þessu hefur nú
verið vísað til Allsherjarþings
S.Þ.í september n.k., þá er mál-
ið enn óútkljáð. Ef íslenzk varð-
skip reyna meðan svo stendur
á að stöðva togara okkar, sem
eru að veiðum utan núverandi
fiskveiðítákfnarka; þá áettu
herskip • okkar að skerast í
leikinn. Eitt fallbyssuskot yfir
stafniim myndi stöðva það. . .
Sumir Norðursjávarskipstjór-
arnir okkar eru harðgerðir
karlar. Eg er hræddur um að
þeir myndu taka lögin í eigin
hendur og stíma beint á hvert
það skip, sem reyndi að trufla
þá.“
Áreksturinn varð á Suðurlands-
brautinni hjá Múla um kl. 2 á
fimmtudagsnóttina. Var strætis-
vagninn á vesturleið, er fólks-
bifreiðin kom á móti honum.
Virðist bifi’eiðarstjóri hennar
hafa sveigt yfir á öfugan vegar-
kant og rekizt á strætisvagninn,
en strætisyagnsstjórinn kveðst
hafa verið búinn að draga mjög
úr hraðanum, er áreksturinn
varð, þar sem hann sá að hverju
fór.
Bifreiðarstjóri fólksbifreiðar-
innar, Andrés Guðjónsson, Eikju-
vogi 24 var einn í bifreiðinni.
Slasaðist hann mjög alvarlega,
hlaut höfuðkúpubrot, lærbrot og
Flugfélagið 20 ára
Framhald af 12. síðu.
hafa reynzt mjög vel í hvívetna
og hefur farþegafjöldinn, sem
ferðazt milli landa á vegum fé-
lagsins, stóraukizt við tilkomu
þeirra. Sérstaklega er athyglis-
vert, hver aukning hefur orðið
á áætlunarleiðum félagsins milli
staða erlendis, þar sem mjög fátt
farþega var áður.
Á þessu fyrsta ári sínu í þjón-
ustu Flu’gfélags íslands hafa
Hrímfaxi og Gullfaxi flutt 19846
farþega milli landa og flogið
1.719.000 kílómetra á 3438
klukkustundum.
í sumaráætlun Flugfélagsins,
sem nú er fyrir nokkru gengin
í gildi, fá þær ærið að starfa,
því að áætlaðar eru tíu ferðir í
viku milli íslands og útlanda,
þegar áætlunin hefur að fullu
komið til framkvæmda hinn 29.
júní næstkomandi.
Hér er nákvæmlega sami
tónninn og í Vísi, tryllingslegar
hótanir. Það er vert að óska
höfundi landráðagreinanna til
hamingju með þann félagsskap
sem hann hefur valið sér. Enda
þótt hann þori ekki að segja
íslendingum til nafns síns kem-
ur hann sér eflaust á framfæri
við hina brezku samherja sína
og þeir munu kunna að launa
greiðann.
Ferðafélag íslands:
Keilir - Reykjanes
Ferðafélag íslands skipu-
leggur tvær skemmtiferðir um
þessa helgi.
Önnur ferðin er gönguferð
á Keili og Trölladyngju, en
þangað hafa Reykvíkingar al-
mennt ekki átt tíðfarið síðustu
árin. Ekið verður suður strönd-
ina þar til gönguferðin hefst.
Hin ferðin verður suður . á
Reykjanes, að Reykjanesvita
og á hverasvæðið. — Lagt
verður af stað frá Austurvelli
kl. 9 á sunnudagsmorgun í báð-
ar ferðirnar.
fleiri meiðsli. Var hann þegar
fluttur á sjúkrahús.
Fólksbifreiðin, sem var R-5168,
mun hafa nálega gereyðilagst.
1. maíhótíð í
Reyðarfirði
Reyðarfirði. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Verkaniannafélag Reyðarfjarðar
minntist 25 ára afmælis síns og
hélt 1. maí hátíðlegan með fé-
lagsfundi og saineiginlegri kaffi-
drykkju 1. maí.
Tómas Bjarnason setti sam-
komuna, en Kristinn Einarsson
stjórnaði henni. Ræður fluttu
Jóhann Björnsson, Guðlaugur
Sigfússon, Sigfús Jóelsson, Helgi
Seljan las frumort ljóð eftir Þor-
björn Magnússon. Samkór Reyð-
arfjarðar söng undir stjóm Jóns
Kjerulfs á Hrafnkelsstöðum. Að
lokum var dansað.
Frá hátíðahöldun-
um 1. maí á
Húsavík
Ilúsavík. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Hátíðahöld verkalýðsfélaganna
1. maí hófust kl. 9 e.h. með sam-
komu í Samkomuhúsinu. Á sam-
komunni hélt Olgeir Lúthersson
ræðu, Njáll Bjarnason las upp,
sýnd var kvikmynd, Sigurður
Hailmarsson las upp og Hilmir
Jóhannesson söng gamanvísur.
Að lokum var dans. Fjölmenni
-var.
Maður slasast alvarlega í
árekstri á Suðurlandsbraut
Höíuðkúpubrotnaði og lærbrotnaði og hlaut
auk þess íleiri meiðsli
Aðfaranótt fimmtudagsins varð alvarlegt umferðarslys
á Suðurlandsbrautinni, en fjögurra manna fólksbifreið
og strætisvagn rákust á.
Föstudagur 3. maí 1958 — ÞJÓÐVIUINN — <3
35 listamemi taka þátt í
almennri listsýningu
í dag kl. 2 verður opnuð fyrir boðsgesti (kl. 5 fyrir
almenning) sýning Félags íslenzkra myndlistarmanna í
Listamannaskálanum, sem kölluð er almenn listsýning
vegna þess, að öllum var gefinn kostur á að senda inn
myndir hvort sem þeir voru félagsmenn eða ekki. Sýn-
ingin stendur til 18 maí.
Sýningin er óvanalega fjöl-
breytt, enda taka 35 listamenn
þátt í henni, 29 málarar og 6
myndhöggvarar.. Verkin grein-
ast þannig eftir tegundum: 44
málverk, 14 höggmyndir, 7
vatnslitamyndir, 7 gouache-
myndir, 7 teikningar, 3 mál-
ver<k á gler og 2 flosofin teppi
eða samtals 84 verk..
Þeir sem ekki hafa tekið
þátt í samsýningum félagsins
áður, eru málararnir Borgþór
Jónasson, Einar Pálsson og
Margrét Jónatansdóttir, og svo
myndhöggvarinn Ólöf Páls-
dóttir.
Síðasta samsýning ‘félagsins
var haldin 1955. En það hefur
lengi vakað fyrir félaginu, að
gera þessar sýningar að árleg-
um viðburði, þar sem fram
kæmi þverskurður þess bezta
sem framleitt hefur verið á
liðnu ári í myndlist, þar sem
eldri menn sýndu sín meistara-
verk og nýir menn kæmu fram
í fyrsta skipti.. Hér er að vísu
enginn listaháskóli ennþá, en
það er samt engin ástæða til
að halda ekki árlega almenna
listsýningu eins og á sér stað
í öllum menningarborgum.
Þörfin fyrir það er orðin enn
brýnni vegna þess, hvað það
er dýrt að halda sýningu í
Reykjavík, svo dýrt að það er
orðið fjárhagslegt áhættuspil
jafnvel fyrir vel þekkta lista-
menn. Plássið er að vísu tak-
markað í þessum gamla skála
því listamönnunum fjölgar með
hverju árinu sem líður. Auk
þess er skálinn á fallanda fæti.
Nú er það næsta og stærsta
viðfangsefni félagsins og ann-
arra listamanna, að koma upp
vönduðum óg varanlegum sýn-
ingarskála, sem hugsaður er
allt að því 2—3 sinnum stærri
en þessi er. Þegar að því kem-
ur væntir félagið fastlega öfl-
ugs stuðnings ríkis og bæjar
og alls almennings. Þegar sá
skáli er risinn af grunni, vonar
félagið að þessar sýningar geti
orðið að árlegum viðburði, sem
eigi sinn drjúga skerf í menn-
ingarlifi landsins. .
Sýningarnefnd Félags ís-
lenzkra myndlistarmanna skipa
málararnir Hjörleifur Sigurðs-
son, Jóhannes Jóhannesson,
Karl Kvaran, Sigurður Sigurðs-
son og Þorvaldur Skúlason,
sem er formaður nefndarinnar;
og myndhöggvararnir Ásmund-
ur Sveinsson, Magnús Á. Áma-
son og Sigurjón Ólafsson.
Uk finiist í
filafnarfirði
1 fyrradag fannst líkið af
Eyjólfi Stefánssyni sem hvarf
í Haf na-rfirði aðfaranótt 27.
jan. síðast liðinn.
Tveir þýzkir söngvarar á tónleikiim
Hljómsveitar Rikisótvarpsms
f gærdag komu hingað til lands tveir þýzkir óperu-
söngvarar, Kerstin Anderson sópran og Julius Katona
tenór, sem munu syngja á tónleikum Hljómsveitar Rík-
isútvarpsins í Þjóðleikhúsinu
Hljómsveitinni stjómar Hans-
Joachim Wunderlich, en við-
fangsefni eru einvörðungu úr
óperum og óperettum. Á fyrri
hluta efnisskránnar eru aríur
og dúettar úr óperunum Aida,
La Traviata, Othello og Vald
örlaganna eftir Verdi og Cavall-
eria Rusticana eftir Mascagni. Á
síðari hiuta tónleikanna verða
fluttir þættir úr ýmsum óperett-
um, þ.á.m. Leðurbiökunni eftir
Strauss, Betlistúdentinum og Die
Dubarry eftir Millöcker og Pag-
anini eftir Lehár.
Einsöngvarar með hljómsveit-
inni eru fjórir; Guðrún Á.
Símonar, Guðmundur Jónsson og
hinir þýzku gestir sem fyrr eru
nef ndir.
Kammersöngvarinn Julius Kat-
ona er mjög þekktur söngvari í
Þýzkalandi, þar sem hann syng-
ur nú við ríkisóperumar í Ham-
borg og Berlín. í viðtali við
blaðamenn í gær, kvaðst Katona
hafa sungið með Einari Kristj-
ánssyni í óperum í Stuttgart og
Hamborg, en aðallega færi hann
með hlutverk í óperum Mozarts.
. Kerstin Anderson stundaði
á morgun..
söngnám í Svíþjóð um sama leyti
og Guðmundur Jónsson var þar,
en hún er einkum kunn fyrir
Julius Katona
söng sinn í útvarp víða í Þýzka-
landi. Hún hefur sungið í ýms-
um kunnum óperum: Aidu,
Rigoletto, Carmen, Cavailéria
Rusticana o.fl.
Hinir þýzku gestir eru hing-
að komnir fyrir milligöngu sendi-
ráðs Sambandslýðvelds Þýzka-
lands í Reykjavík.