Þjóðviljinn - 01.06.1958, Side 12
Þjóöviljinn hefur fengiö þær upplýsingar hjá Alþýðu-
sambandi íslands, aö um 40 sambandsfélög hafi sagt
upp kjarasamningum sínum og miöaö uppsögnina viö
þessi mánaöamót.
Félögin innan Alþýðusam-
bands íslands, sem sagt hafa
upp samningum sínum nú um
mánaðamótin eru þessi:
A. S. B , félag afgreiðslu-
stúlkna í brauða- og mjólkur-
búðum.
Bókbindarafélag íslands
Félag bifvélavirkja
Félag blikksmiða
Félag íslenzkra kjötiðnaðar-
manna
Félag íslenzkra rafvirkja
Félag járniðnaðarmanna
FéJagið Skjaldborg
Félag starfsfólks í veitinga-
húsum
Hið ís^enzka prentarafélag
Iðja, félag verksmiðjufólks
Málarafélag Reykjavíkur
Mjólkurfræðingafélag íslands
Múrarafélag Reykjavíkur
Prentmyndasmiðafél. íslands
Sjómannafélag Reykjavíkur
Sveinafélag húsgagnasmiða
Sveinafélag pípulagninga-
manna
Sveinafélag skipasmiða
Trésmiðafélag Reykjavíkur
Verkakvennafél. Framsókn
Verkamannafélagið Dagsbrún
Verkalýðsfélag Akraness
Bílstjórafélag Akureyrar
Félag verzlunar- og skrif-
stofufólks, Akureyri
Sveinafélag járniðnaðar-
manna, Akureyri
Verkakvennafélagið Eining,
Akureyri
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar
Verzlunarmannafélag Isa-
fjarðar
Iðja, félag verksmiðjufólks,
Hafnarfirði
Verkakvennafélagið Framtíð-
in, Hafnarfirði
Verkamannafélagið Hlíf,
Hafnarfirði
Verkakvennafélag Keflavikur
og Njarðvíkur
Verkakvennafélagið Aldan,
Sauðárkróki
Verkakvennafélagið Brynja,
Siglufirði
Verkamannafélagið Þróttur,
Siglufirði
Járniðnaðarmannafélag Ár-
nessýslu
Verzlunarmannafélag Árnes-
sýslu
Verkalýðsfélag Stykkishólms.
Verzlunarmannafélag Akra-
ness, sem er ekki í Alþýðusam-'"
bandi íslands, hefur einnig sagt
upp kjarasamningum sínum.
Atburðirnir í Frakklandi
N ámsstyrkur
Ríkisstjórn Spánar hefur heit-
ið íslenzkum stúdent eða kandí-
.da.t styrks til háskólanáms á
Spáni frá 1. október 1958 til 30.
júní 1959.
Styrkurinn nemur 18000 peset-
um nefnt tímabil. Ef námsmað-
nr sækir, mun honum verða út-
vegað húsnæði og fæði í stúd-
entagarði gegn venjulegu gjaldi.
Styrkþegi þarf hvorki að greiða
innritunar- né skólagjald.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þennan, sæki
um hann til menntamálaráðu-
neytisins fyrir 1. júlí næstkom-'
andi. Umsókn beri með sér,
hvers konar nám umsækjandi
hyggst stunda og fylgi staðfest
afrit af prófskirteini, ef til eru.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
H. I. P. frestar
vinnustöðvun
Hið íslenzka prentarafélag
hafði boðað vinnustöðvun á
miðnætti í nótt. Á fundi í fé-
laginu í gær var samþykkt til-
laga frá stjórninni um að
fresta verkfallinu og freista
jþess að ná samkomulagi um
kröfumar, og þá væntanlega
fyrir milligöngu sáttasemjara.
Framhald af 2. -siðu.
innar við málstað lýðveldisins,
kann svo að fara að það reyn-
ist lífseigara en ætla mætti.
líugsjónir lýðveldis og lýðræðis
eiga svo djúpar rætur í frönsku
þjóðinni, að óhugsandi er að
misvitrir, huglausir og svikulir
ráðamenn geti lagt það að velli
með einni saman þingsamþyltkt.
Um gervalit Frakkland hafa
verið stofnaðar nefndir til
varnar lýðveldinu og af tilkynn-
ingum og áskorunum 'þeirra
virðist augljóst að þær ætli
ekki að horfa aðgerðarlausar á
aftöku þess. Það getur því vel
farið svo að dagurinn í dag
verði upphaf nýrrar byltingar
í Frakklandi.
f stuttu luáli
Uppgjafahermenn sem búsettir
eru í Alsír fóru í gær blysför
um götur Algeirsborgar til að
fagna-valdatöku de Gaulle.
★
Uppreisnarforingjarnir í Alsír
segja að komið hafi verið á fót
126 leynilegum „veiferðarnefnd-
um“ um allt Frakkland sem reiðu-
búnar séu að láta • til sín taka
þegar kallið kemur. Útvarpið í
Algeirsborg sendir stöðugt út
ýmsar ieiðbeiningar til þessara
nefnda og eru þær á dulmáli,
eins og t.d.: „Hrísgrjónin eru
komin í pottinn, búið ykkur und-
ir að snæðast", eða „hrísgrjón-
in eru soðin“.
ur til valda af frjálsum vilja
þjóðariunar. Honum hefur ver-
ið þvingað upp á þjóðina af
uppreisnarfovingjiun hersins í
Alsír og á Korsíkn og með ógn-
unum um ofbeldi hersins í
Frakklandi. Þetta er valdarán
og margir þeirra sem átt hefðu
að standa vörð um lýðveldíð
liafa gefizt upp“.
Lífeyrissjóðsfrv.
í neðri dcild
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um lifeyrissjóð sjómanna er nú
komið til neðri deildar. Af-
greiddi efri deild málið frá sér í
gær á tveim fundum.
Eins og skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, lagði heilbrigðis-
og félagmálanefnd efri deildar
einróma til að frumvarpið yrði
samþykkt. Við 2. umræðu máls-
ins í gær hafði Alfreð Gíslason
framsögu fyrir nefndinni og
mælti fyrir þrem breytingartil-
lögum hennar, en aðalbreyting-
in snertir styttingu starfstíma
sem upphæð ellilífeyris er mið-
uð við. Allar tillögur nefndar-
innar voru samþykktar, svo og
tillaga Alfreðs um orðalags
breytingar, og frumvarpinu vís-
að til 3. umræðu með 15 at-
kvæðum gegn 1. Málið var síðan
tekið fyrir á öðrum fundi í
deildinni strax á eftir og sam-
þykkt með 12 atkv. gegn 1 (Páls
Zóphoníassonar). Frumvarpið
verður tekið fyrir á fundi neðri
deildar á morgun.
Valgerður Árnadóttir Hafstað opnaði á fimmtudagskvöldið sýn-
ingu á verkum sínum j Sýningarsalnum við líverfisgötu. Sýn-
ingin er opin daglega til 11. júní íiæstkoniaiuti; í dag kl. 2—7.
Þegar fyrsta kvöidið seldust þrjár myndir á sýningunni.
Fjölbreytt hátíðahöld í dag
- á s j ómannadaginn
Hopgaitoa í miðbænum
böid viS Jlusiurvöll
úiihátiða-
Hinn árlegi sjómannadagur veröur hátíðlegur hald-
inn um land allt í dag. Aðalhluti hátíðahalda sjómanna-
dagsráð’s hér í Reykjavík verða aö þessu sinni við Aust-
urvölL
Hátíðahöldin hefjast kl. 8 á>’-
degis með því að fánar verða
dregnir áð hún.á skipum, en kl.
Snorri Árin-
bjarnar látinn
Snorri Arinbjamar listmálari,
einn af bezta og kunnustu lista-
möimrnn þjóðarinnar, lézt í
gærmorgun. Hann hafði átt við
langvinna vanheilsu að stríða.
Sellótónleikar
Kammermúsíkklúbburinn
heldur fjórðu tónleika sína á
þessu ári annað kvöld kl. 9 í
Melaskólanum. ErJing Blöndal
Bengtsson leikur þá éinleik á
selló: Svítu í D-dúr nr. 6 eftir
Bach og sónötu ópus 8 eftir Zolt-
án Kodály.
M1R
Reykjavíkurdeild MÍR sýnir
kl. 4 síðdegis í dag í salnum
Þingholtsstræti 27 stórmyndina
Konsertlist snillinga.
Dialy Herald, málgagn brezka
Verkamannaflokksins kemst svo
að orði:
„De Gaulle vin.nur sigur, en
hann hefur ekki verið kallað-
Belgískur togara-
skipstj. dæmdur
í fyrradag var skipstjórinn á
belgíska togaranum Van Dyck
frá Ostende dæmdur í 85 þús.
kr. sekt í sakadómi Vestmanna-
eyja og afli og veiðarfæri skips-
ins gerð upptæk. Varðskipið Þór
kom að togaranum að ólögleg-
um botnvörpuveiðum í land-
helgi í Meðallandsbugt á mið-
vikudaginn. Skipstjórinn áfrýj-
aði dómnum.
HlöÐVllJINN
Sunnudagur 1. júní 1958 — 23. árgangur — 121 tölublað
Enn neitar Alþýðublaðið að
birta landhelgissamninginn
Ber nú fyrir sig kuríeisisástæður!
Enn í gær birtir Alþýðublaðið
ekki samning stjórnarflokkanna
um landhelgismálið — enda
þótt ráðherrar Alþýðuflokksins
hafi undirritað hann fyrir rúmri
vikix og því væri hátíðlega lof-
að að hann skykli birtur tafar-
laust.
Þetta brot á samkomulaginu
(sem sýnir öllu betur hvernig
leiðtogum Alþýðuflokksins er
innanbrjósts) reynir Alþýðu-
blaðið í gær að afsaka með því
að skjóta sér bak við forsætis-
ráðherra. Blaðið segir: „er það
hlutverk forsætisráðherra að
birta niðurstöður máisins orð-
réttar og gerir hann það vænt-
anlega strax og þeim viðræðum
milli þingflokkanna, sem nú
fara fram, er lokið. Slíka sjálf-
sagða kúrteisi við forsætisráð-
herra stjórnar, sem þeir styðja
að kalla, kunna Þjóðviljamenn
ekki.“
Það er sem sé af kurteisisá-
stæðum sem Alþýðublaðið birt-
ir sanminginn ekki! En mætti
benda Alþýðublaðinu á að sjálft
inálgagn forsætisráðherrans,
Tíminn, hefur þegar birt samn-
inginn orðréttan, og verður það
þó varla vænt um að vilja sýna
æðsta leiðtoga sínum ókurteisi.
Enda er það vægast sagt lítil
kurteisi að reyna að fela það
fyrir Islendingum og öðrum
þjóðum sem hagsmuna hafa að
gæta, að þegar hefur verið tekin
fullnaðarákvörðun um stækkun
íiskveiðiIandhelginHar í 12 míl-
ur, um öll efnisatriði nýrrar
reglugerðar og landhelgislín-
una eins og hún verður.
10 hefst hátíðamessa í Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna; prest-
ur séra Árelíus Níelsson. Kl. 1
safnast sjómenn og aðrir þátttak-
endur til hópgöngu. Hálftíma sið-
ar leggur gangan af stað með
Lúðrasveit Reykjavíkur í íarar-
broddi og verður gengið um
Skólabrú, Pósthússtræti, Hafnar-
stræti, Hverfisgötu, Laugaveg.
Bankastræti, Austurstræti og að
Austurvelli, en þar mun lúðra-
sveitin og fánaborg taka sér
stöðu.
Kl. 14.00 hefjast útihátíðahöld
við Austurvöll. Biskup íslands,
hr. Ásmundur Guðmundsson.
minnist drukknaðra sjómanna.
Samstundis er lagður blómsveig-
ur á leiði óþekkta sjómannsins í
Fossvogskirkjugarði. Guðmundur
Jónsson, óperusöngvari syngur
með undirleik lúðrasveitarinnar.
Síðan flytja ávörp Lúðvík Jós-
epsson, sjávarútvegsmálaráð-
herra; Þorsteinn Arnalds, skrif-
stofustj. Bæjarútgerðar Reykja-
víkur og Andrés Finnbogason,
skipstjóri. Lúðrasveit Reykjavík-
ur leikur á milli.
Að lokum afhendir Henrý Hálf-
dánarson heiðursmerki Sjó-
mannadagsins.
Kl. 15 30 hefst kappróður riiilli
skipshafna og keppni í björgun-
ar- og stakkasundi við Reykja-
víkurhöfn.
Sjómannakonur gangast fyrir
kaffiveitingum í Sjálfstæðishús-
ínu frá kl. 14 og á að verja ágóð-
anum til kaupa -á vinnutækjum
fyrir sjómannakonur í Hrafnistu.
Um kvöldið verða skemmtanir
í húsum bæjarins og standa yfir
til kl. 2.00.
Sjómannablaðið og merki dags-
ins verða seld á götum bæjarins
í dag.
Þjóftviljíum vantar börn
til blaöburðar á
Seltjarnarnes
Talið við afgreiðslmia
sími 17-500,