Þjóðviljinn - 12.07.1958, Blaðsíða 3
Laugardagnr 12. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Góður árangur á ÍR mótinu
m skildu da Sfe og Vilhjálm ú
Fyrri dagur
í>ó mestur hluti móts þessa
væri helgaður Meistaramóti ís-
iands í tugþraut, þá voru með
nokkrar aðrar greinar, og
þcátt fyrir kulda, og f.vrir það
slæmar aðstæður, náðist góður
árangur í flestum þeirra
greina, sem keppt var í.
>að virðist sem Hilmar í>or-
björnsson sé að komast í topp-
þjálfun, þvi að hlaupa 100 m
í þessu veðri á 10,5 er mjög
gott afrek. Guðjón Guðmunds-
son var næstur honum á 11,1
og verður varia sagt að Hilmar
hafi haft harða keppni.
Svavar Markússon hljóp 400
m á betri tima en hann hefur
mokkurntíma náð áður, og
bendir það til þess, að hann
sé að auka hraðann, og þá um
leið að hann sé á góðri leið
með að komast i góða þjálfun
•og er þessi árangur hans, eins
og á stóð, mjög góður.
Árangur Husebys í kúluvarpi
var líka mjög athygiisverður,
þar sem hann varpaði kúlunni
J6.00 m og virðist hann vera
orðinn öruggur með köst sem
eru allt upp í 16 m, og er sann-
arlega ánægjulegt að sjá hve
Huseby hefur náð góðum ár-
angri í ár. Enn er langt eftir af
sumri, og á hann ábyggilega
eftir að bæta árangur sinn enn.
>að skemmtilega skeði í há-
stökkinu að Jón Pétursson
stökk 1,90 sem er nokkuð
hærra en hann hefur stokkið
hæst áður. Er Jón í stöðugri
framför, og ekki ólíklegt að
hann nálgist metið, áður en
sumri lýkur, því ekki munaði
sérlega miklu að hann færi
yfir 1,95 þegar hækkað var í
þá hæð.
Heiðar Georgsson og Sigurð-
ur Lárusson fóru yíir 1,80.
Auk þeirra sem nefndir hafa
verið, komu fram nokkrir ung-
ir hlauparar sem lofa góðu og
eru þegar búnir að ná tölu-
verðri kunnáttu og þjálfun, má
þar nefna Þorkel Ellertsson úr
Ánnanni. Verður gaman að
fylgjast með þessum ungu
mönnum í framtíðinni
Á mótinu var einnig boð-
hlaupskeppní 4x800 m, sem er
hluti af Meistaramóti íslands,
þá keppni vann sveit KR með
miklum yfirburðum, enda voru
keppinautamir unglingasveitir
úr KR og ÍR.
Tu gþra utarkeppnin:
5 byrja en 3 hættu
á fyrri degi.
Eins og áður segir var tug-
þraut Meistaramótsins felld
inn i mót þetta og komu 5
menn til leiks: Valbjörn Þor-
láksson, Pétur Rögnvaldsson,
Trausti Ólafsson, Sigurður
Björnsson og Brynjar Jens-
son. Svo undarlega vill til að
eftir fjórar greinar hætta þeir
Valbj. Þorlákss. og Brynj. Jens-
son, Eftir voru því aðeins tveir
menn, er fyrri dag keppninnar
lauk. Gerð var fyrirspum um
það til leikstj. hvort menn
þessir, sem hætt höfðu keppni,
befðu orðið fyrir meiðslum og
af þeim sökum orðið að hætta,
og kvað hann að sér væri ekki
kunnugt um að svo væri. Þá
vaknar spurningin: Til hvers
eru menn að gefa sig' fram til
keppni.og hætta svo rétt þegar
keppnin er að byrja? Ef tii viil
er ekki hægt að þvinga menn
til að halda áfram, ef þeir hafa
tekið það í sig að hætta, en
varla getur það kallast að gera
sitt bezta i keppninni, því það
vita þeir, að tugþrautarkeppni
er ekki lokið, fyrr en allar 10
þrautirnar eru leystar. Það má'
vel vera, að keppendur í frjáls-
um íþróttum geti stokkið frá
keppni, sem þeir hafa byrjað
á, þegar þeim sýnist, þótt ekk-
ert hafi komið fyrir, sem knýr
þá til þess. Það setur- ekki
skemmtilegan svip á keppnina,
heldur verður það að kallast
losarabragur, þar sem slíkt er
gert að list og 'vana, en það
virðist verá beinlínis í tizku,
að þvi er snertir tugþraut,
sem keppt er í á mótum hér.
Þeir menn, sem gefa sig fram
til þess að keppa i tugþraut,
eiga að vita útí hvað þeir eru
að fara og halda áfram þar til
keppninni er lokið, annars er
tæpast hægt að segja að þeir
geri „sitt bezta“, en það er
lagaleg og siðferðileg krafa,
sem gera verður til þeirra.
Þetta setur líka leiðindasvip
á frjálsíþróttamótin, og ekki
veitir af að hafa sem skemmti-
legastan svip yfir þeim, en
svipur þeirra hefur aftur þau
áhrif að hæna áhorfendur að
eða fæla frá.
Árangur Péturs Rögnvalds-
sonar eftir fyrri daginn var
góður eða 3412 st., en annar
var Sigurður Bjömsson úr KR
og hafði hann 2834 stig.
Sleggjukast:
Þórður B. Sigurðsson KR 49,67
100 m hlaup:
Hilmar Þorbjörnsson Á 10,5
Guðjón Guðmundsson KR 11,1
Björgvin Hólm ÍR 11,5
40 m lilaup:
Svavar Markússon KR 50,1
Hörður Lárusson KR 51,8
Björgvin Hólm ÍR 52,0
Langstökk:
Einar Frímannsson KR 6,75
Helgi Bjömsson ÍR 6,44
Ólafur Unnsteinsson HSK 6.42
Hástökk:
Jón Pétursson KR 1,90
Heiðar Georgssón ÍR 1,80
Sigurður Lárusson Á 1,80
4x800 m boðhlaup:
A-sveit KR 8,16,6
Unglingasveit KR 8,58,8
Unglingasveit ÍR 9.01,2
Síðari dagur
Aðalkeppnin síðari daginn
var milli þeirra da Silva og
Vilhjálms Einarssonar i þri-
stökkinu. Hafði fjöldi fólks
komið til að sjá viðureign
þessa..
Áður en keppnin hófst flutti
formaður ÍR ávarp, þar sem
hann rakti nöfn margra- írægra
manna, sem komið hefðu á ÍR-
mótin undanfarið, ög nú væri
hér enn einn frægur gestur,
ef til vill sá frægasti sem
hingað hefur komið.
Var da Silva ákaft hylltur^
af hinum möi'gu áhorfendúm.
Hann þakkaði fyrir hlýjar
móttökur, sem hann hefði
fengið og alla þá hlýju sem
honum hefði mætt i þessu
kalda landi. Vilhjálmur Ein-
arsson þakkaði da Silva einnig
fyrir þá aðstoð, sem hann hefði
persónulega fengið hjá da
Silva.
Þó da Silva næði ekki eins
góðum árangri eins og hann
hefur náð beztum, var ekki um
að villast, að þar var glæsileg-
ur þrístökkvari á ferð. Sérstak-
lega voru fyrstu tvö skrefin
glæsileg í stökkum hans. en
það er eins og manni íinnist að
hann gæti teygt sig meir fram
er hann kemur niður.
Fyrir áhorfendur var það
æfintýri að horfa á hann og
það er mikill iþróttaviðburður
að hann skuli hafa keppt hér
hjá okkur. Stökk hans voru
yfirleitt jöfn og mun jafnari en
stökk Vilhjálms, og bezta stökk
hans var það fjórða. Annars
voru stökkin þannig: 15,55;
15,41; 15,47; 15,62; 15.30; 15,12.
Vilhjálmur átti bezta stökk
sitt í fyrstu tilraun, eða 15,42
m. Stökk hans voru nokkuð
misjöfn, sem bendir til þess að
hann hafi ekki verið vel fyrir
kallaður eða ekki í eins góðri
*
þjálfun og hann hefur gert ráð
fyrir. Þrjú stökk hans eru yfir
15 m en þrjú undir. Lengdin á
stökkum hans var.: 15,42; 14,73;
15.21; 15,16; 14,92; 14,95.
Munurinn á beztu afrekum
þeirra er þvi 20 sm, sem er
ekki svo mikið, og nærri hálfur
16 meter er góður órangur í
þrístökki, eftir ekki meiri
keppnisæfingu en Vilhjálmur
hefur haft í sumar. Það lakasta
er hve stökkin eru misjöfn og í
samanburði við da Silva ey þar
mesti munurinn. Vilhjálmur
virtist Hka nokkuð þungur í
stökkum sínum, að visu var
brautin þung eftir vætuna, og
regnið.
Eins ogVilhjálmur hefur sagt
sjólfur er ekki að efa að þessi
keppni verður honum mikils
virði sem undirbúningur undir
þær keppnir sem hann á fyrir
höndunr erlendis i sumar.
Skilyrði til að keppa voru
allgóð þó hiti væri ekki mikill
eða um 12 stig, en það var al-
veg Jogn á vellinum.
Vafalaust hafa áhorfendur
gert róð fyrir nokkuð jafnari
keppni en raun varð á, og þá
vitnað í keppnina í Melbourne
og Moskva, svona með sjálfum
sér. í því sambandi má á það
benda að vissulega hvíldi á
Vilhjálmi mikil „pressa“ i ein-
vígi þessu sem hæglega getur
hafa haft neikvæð áhrif á ár-
angur hans i þetta sinn. Og
ekki kærni mér á óvart þótt
næsta keppni þeirra yrði jaín-
ari og munu margir hlakka til
þeirrar viðureignar.
Góður árangur í 1500 m og
400 m grindalilaupi
Svavar Markússon náði góð-
um árangrj í 1500 m hlaupi og
var ekki langt frá meti sinu á
þeirri vegalengd, voru aðeins
tveir keppendur, hann o« Krist-
leifur Guðbjörnsson. Kæmi mér .
ekki á óvart þó hann bætti
metið á þessari vegalengd í
sumar.
Árangur Guðjóns Guðmunds-
sonar í 400 m grindahlaupi var
líka mjög góður en hann var
aðeins 0,3 úr sek frá meti Arn-
ar Clausen, og er hann líkleg-
ur til þess að hnekkja því i
sumar með sama áframhaldi.
Það óhapp vildi til að Hilm-
ar Þorbjörnsson varð að hætta
í 200 m hlaupinu rétt i byrjun
hlaupsins, var í fyrstu talið að
um slæma tognun væri að
ræða en læknir taldi að eins
gæti verið um mjög slæman
vöðvasamdrátt að ræða, en
ekki var haágt að fá örugg’a
umsögn um það hvað hefði
skeð, og er vonandi að um al-
varleg meiðsli sé ekki að ræða.
Hilmar virtist vera að kom-
ast i mjög' góða þjálfun og
verður góður fulltrúi íslands á
E.M. verði hann heHl heilsu.
Þórir Þorsteinsson vann 20Ö
m hlaupið á 23,1.
Það fór svo að Jóel Sigurðs-
son vann spjótkastið, en það
var nokkuð almenn skoðun að
Gylfi Snær Gunnarsson mundi
sigra, því hann hefur sýnt góða
-framför í sumar, en honum
tókst ekki upp, og náði sjaldan
góðum tilraunum hvernig sem
á því stóð.
Friðrik vann kringlukastið
með nokkrum yfirburðum án
þess að ná sínu bezía.
Úrslit i einstökum gTeinum:
Þristökkið: 1. da Silva 15,62;
2. Vilhjálmur Einarsson 15,42;
3. Helgi Björnsson 13,05.
1500 m hlaup: 1. Svavar
Markússon KR 3:53,5; 2. Krist-
leifur Guðbjörnsson 3:51,4.
200 m hlaup: 1. Þórir Þor-
steinsson Á 23,1; 2. Guðjón
Guðmundsson KR 24,2.
400 m gnndahlaup: 1. Guð-
jón Guðmundsson JCR 55,0; 2.
Daníel Halldórsson ÍR 55,5; 3.
Björgvin Hólm ÍR 56,0.
Kringlukasl: 1. Friðrik Guð-
mundsson KR 46,86; 2. Hall-
grímur Jónsson Á 45,64; 3.
Þorsteinn Löve ÍR 45,40.
Stangarstökk: 1. Valbjörn
Þorláksson ÍR 4,20; 2. Heiðar
Gsorgsson ÍR 3,90; 3. Valgarð-
ur Sigurðsson ÍR 3,80.
Árangur Péturs Rögnvalds-
sonar í tugþrautinni var góð-
ur og með þessum árangri náði
hann þeim lágmarksárangri
sem FRÍ hefur sett til farar á
E.M. Árangur hans í einstök-
um greinum var þessi: 11,3;
6,68; 13,15; 1,70; 54,0; 15.2;
38,65; 3,20; 51,83; 4,43. sem
gera 6116 stig. Sigurður Björns-
son sleppti einni grein og fékk
4272 stig og Valbjörn Þorláks-
son sleppti 4 greinum og fékk
4005 stig.
Stórstúkuþingið 1958
Stórstúka íslands I.O.G.T. hélt 58. þing sitt í Hafnar-
firöi, dagana 20-23. júní. Þingiö hófst meö guöþjónustu
1 fríkirkjunni í Hafnarfiröi.
fylktu liði til Góðtemplarahúss-
ins í Hafnarfirði og þingið sett.
Þinginu stjórnaði Benedikt S.
Bjarklind, stórtemplar.
Mættir voru 66 fulltrúar frá
46 stúkum. Á þinginu ríkti mik-
ill áhugj fyrir að hefja nýja og
öfluga sókn gegn hinú sívaxandi
áfengisböli, sem segja má að nú
ógni tilveru og framtíð þessarar
fámennu þjóðar. Harmaði þingið
að. háttvirt Alþingi skyldi ekki
samþykkja bann við áfengisveit-
ingum ríkisins og ríkisstofnana,
og skorar á framkvæmdanefnd-
ina að beita sér fyrir því, að
málið verði tekið upp á næsta
Alþingi. Einnig var samþykkt
áskorun á bæjarstjórn Reykja-
víkur og aðrar bæjarstjórnir að
vei.fa ekki áfengi á kostnað al-
mennings.
Þar sem reymslan hefur sýnt,
að allar tilslakanir varðandi
sölu áfengis, hafa aukið vín-
neyzlu í landinu, skorar stór-
stúkuþingið á ríkisstjórnina og
aðra þá aðila, sem hér eiga
hlut að máli, að veita ekki leyfi
til nýrra áfengisstaða hvorki i
Reykjavík né annars staðar á
landinu. Þá telur þingið eftir-
litinu með smygli og leynivín-
sölu ennþá stórlega ábótavant.
Stórstúkan skorar á ríkis-
stjórnina að beita sér fyrir því,
að sett verði á næsta Alþingi
lög eða lagaákvæði um skipun
, áfngisvamarlæknis.
Skal hann fara með yfirstjórn.
drykkjumannahæla i landinu i
læknisfræðilegum efnurn, svo og
annarra stofnana, sem styrks
njóta af opinberu fé og starfa
fyrir drykkjusjúklinga.
Stórstúkuþingið skorar einnig
á fjárveitinganefnd hins háa Al-
þingis að veita fé til framhalds-
byggingar góðtemplarahúss í
Vestmannaeyjum, vegna brýnnar
nauðsynjar á sjómannastofu, sem
ætlað er rúm í húsinu.
Þá lýsti stórstúkuþingið á-
nægju sinni yfir fjölgun tóm-
stundaheimila í landinu og telur
æskilegt, að sem flest félags-
samtök stuðli að þessari þróun.
I framkvæmdanefnd stórstúk-
unnar voru þessir menn kosnir:
Stórtemplar: Benedikt S. Bjark-
lind, lögfræðingur, Reykjavík.
Stórkanzlari: Ólafur Þ. Kristj-
ánsson, skólastjóri, Hafnarfirði.
Stórtemplar: Ragnhildur Þor-
varðardóttir, frú, Reykjavík.
Stórritari: Jens E. Níelsson,
kennari, Reykjavík. Stórgjald-
keri: Jón Hafliðason, fulltrúi.
Reykjavík. Stórgæzlumaður ung-
mennastarfs: sr. Árelíus Niels-
son, sóknarprestur, Rvik. Stór-
gæzlumaður unglingastarfs: Giss-
ur Pálsson, rafvirkjameistari
Rvík. Stórgæzlumaður löggjafar-
starfs: Haraldur S. Norðdahl
tollvörður, Rvík. Stórfræðslu-
stjóri: Eiríkur Sigurðsson, skóla-
Framhald á 6. siðu.
:r.4
:.. .ilfluU '
JlllL •v'íjC.i .ithlL
: .IVX.Cv . v'þú't