Þjóðviljinn - 16.09.1958, Page 6
j6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 16. september 1958
HlÓÐVIUINN
{heefandl: BameUUniarflokknr albýBn - SöslaUstaflokkuiinn. - Bltstiórars
Maanús KJartansson (4b.). BlaurCur OuCmundsaon. - Préttarltstiórl: Jón
fiiamason. — BiaAamenn: Asmundur SlgurJónsson, OuCmundur Vlgfússom
var H. Jónsson. Masnús Torfl Olafsson, SigurJón Jóhannsson. Sigurður V.
■^CWÓfsson. - Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. - Ritstjórn. af-
AreiðsU, ausrlýsingar, DrentsmiðJa: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5
Unur). — Askriítarverð kr. 30 á mán. í Reykjavík og nágrennl; kr. 27 ann-
arsstaðat. — Lausasöluverð kr. 2.00. - Prentsmiðja DJóðvilJan*.
íslenzk viðhorf
Tilöðin ræða í fyrradag för
< íslenzku sendinefndarinn-
ar á allsherjarþing Samein;
þjóðanna og Tíminn, málgagn
forsætisráðherra, kemst m.a.
svo að orði: ,,Frá sjónarmiði
ísiands kemur ekki til greina,
að rætt verði um landhelgis-
mái þess sérstaklega á þingi
S.Þ. eða neinum öðrum vett-
vangi. Takmarkið er að ná
allsherjarsamkomulagi um
þetta mál. Og innan þess
ramma munu fslendingar ekki
sætta sig við minna en að
þeir fái þá fiskveiðalandhelgi
sem önnur ríki hafa mesta
. . . . er það hins vegar víst,
sð landhelgismál fslands verð-
ur ekki tekið sérstaklega til
meðferðar á þinginu. Á það
mun aldrei fallizt af hálfu
íslands, enda myndi felast í
þvj, áð fsland efaðist um
rétt sinn til að ákveða tólf
mílna fiskveiðilandhelgi.“ Og
Alþýðublaðið segir (þvert of-
an í fyrri frásagnir sínar og
Morgunblaðsins): „Það kem-
ur auðvitað ekkj til mála,
að allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna setji neinar sérstak-
ar reglur uin fiskveiðiland-
helgi fslands, enda er slíkt
a.SIs ekki á dagskrá þess.“
Þarmig hafa þessi tvö blöð
nú staðfest á afdráttarlausan
hátt það sem Þjóðviljinn hef-
ur áður sagt um stefnu ís-
lendinga.
T?n enda þótt Islendingar
" sætti sig ekki við að
stækkun landhelginnar hér
rið land verði tekin fyrir á
þingi Sameinuðu þjóðanna,
hlýtur liana að bera á góma
út frá öðru sjónarmiði. Við
erum ekki neinir sakborning-
ar á þingi Sameinuðu þjóð-
anna, heldur ákærendur.
Brezka stjórnin hefur beitt
hervsldi til árása á Island,
reynt með ofbeldi að koma
í veg fyrir framkvæmd ís-
lenzkra laga, rænt íslenzkum
löggæzlumönnum við skyldu-
störf og fangelsað þá, og nú
síðast einnig skert stjóm-
málalandhelgi Islands á ó-
svjfnasta hátt í skjólf fall-
byssuvalds. Enda þótt ekki
hafi enn verið hleypt af skoti
er hér um ótvíræðar hem-
aðaraðgerðir að ræða, árás
á vopnlausa smáþjóð, ský-
laust brot á sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna. Og að sjálf-
sögðu getur ísienzka rikis-
stjómin ekki unað slíku á-
standj án allra þeirra gagn-
aðgerða sem tiltækar em,
jafnt að því er varðar sam-
búð Islands og Bretlands og
á alþjóðavettvangi þar sem
við getum rekið réttar okk-
ar gegn árásarríkinu.
þió
jóðviljinn liefur spurzt fyr-
ir um það hvemig utan-
ríkisráðherra hugsi sér að
halda á þessari gagnsókn Is-
lendinga. Ráðherrann hefur
verið að þvi spurður hvert
sé viðhorf hang til þeirrar
tillögu, sem fram hefur kom-
ið í einróma samþykktum
bæjarstjórna og félagasamt.
um land allt, að sendiherra
Islands í Lundúnum verði
kvaddur heim, en hann hefur
engu svarað. Og um fram-
komuna á þingi Sameinuðu
þjóðanna hefur hann sagt
það eitt í samtaii við Al-
þýðublaðið að ekki megi
„nota þetta alvarlega mál
til að vekja óþarfar deilur
og úlfúð á alþjóðlegum vett-
vangi.“ Á öllu algerari hátt
mun varla hægt að umturna
málavöxtum en gert er með
þessari yfirlýsingu utanrík-
isráðherra. Þegar við íslend-
ingar emm að ákæra Breta
fyrir lögleysur þeirra og of-
beldi, emm við sannarlega
ekki „að vekja óþarfar deil-
ur“ — við erum að snúast til
nauðvarnar til þess að
tryggja líf okkar og fram-
tíð. Að nokkur Islendingur
skuli kalla slíka nauðvörn
,,úlfúð“ af okkar hálfu er
vægast sagt stórfurðulegt.
1 Hðbrögð almennings í land-
* helgismálinu vom ánægju-
legur vottur um það að heil-
brigð íslenzk viðhorf lifa enn
góðu lífi, svo mjög sem þó
hefur verið reynt að fá menn
til að meta alla hluti út frá
viðhorfum kalda stríðsins,
hreykja „vestri“ og „austri“
ofar augljósum íslenzkum
hagsmunum. En eins og um-
mæli utanríkisráðherf'a sanna
eiga sumir menn þó enn erf-
itt með að sjá atburðina af
íslenzkum sjónarhóli. Sama
viðhorfið birtist einnig í leið-
ara Vísis í gær, og hefur það
blað þó verið mjög afdrátt-
arlaust í stuðningi sínum við
12 mílna landhelgina. En í
gær uppgötvar það allt í einu
að nú ætli „kommúnistar“ að
draga Island úr samfélagi
„frjálsra þjóða“ og því reyni
þeir að efla sem mest úlfúð-
ina við Breta! En það eru
hvorki ,,kommúnistar“ né aðr-
ir íslendingar sem hafa hafið
ófrið við Breta,, heldur hafa
Bretar ráðizt á okkur. Þeir
hafa ráðizt á o'kkur án þess
að Atlanzhafs-,,varnarbanda-
lagið“ gerði nokkuð til að
vernda okkur. Þeir hafa ráðizt
á okkur án þess að það ,,vam.
ariið“ sem hér dvelst hreyfði
legg eða lið. Þetta eru stað-
reyndir sem þjóðin hlýtur að
meta út frá lífshagsmunum
síhurn, en þeir menn sem enn
láta stjómast af annarlegum
erlendum sjónarmiðum munu
án efa eiga erfitt uppdráttar
á næstunni.
Gamla ljónið
(Svo hét saga er ég las i
æsku og rifjast hún nú upp
fyrir mér að nýju, af sérstök-
um ástæðum.)
„Þetta gamla og grimma villi-
dýr var orðið farlama og veik-
burða og gat ekki stundað veið-
ar sem fyrrum, en þarfnaðist
ei að síður nýrra fómar-
dýra til þess að viðhalda líf-
inu.
Samkvæmt eðli sínu þráði
það að hlusta á kvalaóp fóm-
ardýranna meðan það drakk
blóð þeirra og muldi beinin;
það var hinn sætasti söngur i
eyrum óargadýrsins.
En nú var hin gamla við-
bragðsharka og flýtir horfin,
en skapið var hið sama og þrá-
in að sýna yfirburði og drottna
var köld og miskunnarlaus.
Það var viðurkenndur kon-
ungur dýranna og það vissu
allir, en tennur þess voru ei
svo hvassar sem fyrr og klærn-
ar lausari á taki.
Það bjó sér bæli í skúta
við alfaraveg merkurdýranna
og boðaði þau á sinn fund —
sérstaklega þau máttarminni
— til skrafs og ráðagerða, en
þau sem voru svo fávís að
gegna kalli, urðu auðfengin
og ljúffeng bráð gamla vemd-
arans, en allt voru þetta fyrr-
verandi vinir og skjólstæíþng-
ar á opinberum vettvangi."
Vel má vera að þessi saga
sé ekki í öllum atriðum sam-
kvæm þeirri er ég las fyrxum,
en mér virðist hún táknrænni
á þennan veg og eiga betur við
ýmsa atburði er sagan geym-
ir frá liðnum tíma og eru .að
gjörast enn í dag í okkar vá-
lyndu veröld.
Hreinræktuð og harðvítug
landvinningaþjóð — hvert nafn
sem hún ber — hefur jafnan
þann háttinn á að gjöra sig
allsstaðar og ævinlega heima-
komna sem hinn eina sanna
útvalinn verndara allra smæl-
ingja, hvar sem er um víða
veröld. Nái þessi óboðni og ó-
velkomni gestur fótfestu í ein-
hverju kotríki verður reynsl-
an ofurlítið á annan veg.
Hnefarétturinn verður hæsti-
réttur í hverju máli; gefin
loforð ætíð svikin ef það borg-
ar sig ekki fjárhagslega að
hafa þau í heiðri; skaflajárnuð
reið yfir öll andleg og efnis-
leg verðmæti smælingjans;
engu er þyrmt.
Slík þjóð er ekki smástíg,
hún. stiklar á heimsálfum hafi
hún grun um einhver verð-
mæti, sem væru þess virði að
klófesta, t. d. olíu, kol, málma,
dýra steina og jafnvel fisk; það
er lítið sem rándýrstungan
finnur ekki.
Fyrr á tímum var tíðum ráð-
ist inn í hinar dökku heims-
álfur, fjarri alfaraleið, auðvit-
að undir því yfirskini að þar
byggi fátæk og fáfróð þjóð sem
endilega þyrfti .að manna og
mennta; en þezt að hafa biblí-
ur og brennivín með í förinni,
til þess að koma ekki alveg
. tómhentur.
En þegar þessum heimsókn-
um lauk og öll verðmæti voru
uppétin og engu leift, v.ar hin
viðkomandi vesæla þjóð fá-
tækari en nokkru sinni fyrr, að
því undanskildu að hún hafði
öðlast rándýra þekkingu á
falsi, grimmd og fáfræði hinna
svokölluðu siðmenntuðu hvítu
manna, sem höfðu rænt og stol-
ið öllu sem nokkurs var virði,
að því viðbættu að þeir oft og
einatt höfðu á brott með sér
hina vöskustu landsbúa sem
nauðsynlegt fallbyssufóður á
væntanlegum arðránsvígvöllum,
eða ánauðuga þræla í heima-
landinu.
Þjóð með slíka sögu að baki,
er þegar fræg að endemum.
Nafn hennar skiptir ekki máli,
allir þekkja hana 02 verk henn-
ar tala betur en nokkur orð
fá skýrt. Blóðug spor hennar
liggja um víða veröld og
verða ekki afmáð meðan
heimurinn stendur. Hin óbrot-
gjama saga geymir þau trú-
lega, engu er þar gleyrnt. Þar
geymast jafnt dyggðir sem ó-
dyggðir, stærri sem smærri,
þjóða og einstaklinga.
Sagan sjálf er óhlutdræg,
hvort sem hinum- eða þéssum
líkar betur eða ver; hún er
æðsti dómari hér megin grafar,
en handan hennar er ekkert
vopnavald og ofbeldi til að
skera úr málum og hagga stað-
reyndum.
Hinn einkennilegasti fífla-
leikur sem sagan getur um,
er nú háður af hálfu Breta, á
fiskimðum íslands þessa dag-
ana, en x gegnum skrípalætin
blasir við ægileg stálgríma
þess svartasta. íhalds sem
nokkru sinni' hefur byggt
þessa jörð.
Á söguöldinni voru rán og
þjófnaður á sjó og landi, all-
vænlegur atvinnuvegur, en með
vaxandi siðmenningu friðelsk-
andi þjóða var slíkt fordæmt
og lagt niður með öllu.
,En nú virðist þessi iðngrein
vera að ryðja sér til rúms á
nýjan leik, þó með þeirri breyt-
ingu að áður fyrr leituðu
gömiu kappamir venjulega
jafningja sinna, en þótti sví-
virðing að ráðast á lítilmagn-
ann. En nú er sá háttur hafð-
ur á, að ráðist er á lægsta
garðinn, þar sem vopnlaus er
valin sem tilraunadýr. Það ér
hættuminna fyrir árásarmann-
inn og ef til vill fáir til eftir-
máls.
Einn Þrándur er Þó í Götu
ójafnaðarmannsins, og það e'r
hinn óumflýjanlegi dómur al-
þjóðar, um hvað sé siðmennirig'
og hvað siðleysi í þjóðavið-
skiptum. Þeim dómi verða nll-
ir að svara, nauðugir viljugír,'
fyrr eða síðai', hanii verður
ekki umflúinn.
Nú eru engir felustaðir fyrir
ræningjaflokka, engin leyni-
vogur að skýla sér í.
Kains rnerkið er augljóst öll-
um heimi, en sannleikurinn ér
sá, að það rnunar ekki mikið'
um einn háðungarblettinn enn,
það sér ekki á svörtu þar.
Þessa dagana ber okkar
frægu fiskimiðalögregíu hæst
allra. Allir dá þá að verðleik-
um og .aliir þakka þeim.
Þeir eru hægt og bítandi að
draga tennur úr kjafti óarga-
dýrsins.
Þeir eru sverð og skjöldur
okkar allra í dag.
J. G.
JÓN KRISTÓFER:
Að oefnu tilefni
„Ó, grœna jörð, par Shakespeare forðum fór“,
sem flón og dólga elur pér á barmi,
sjá, niðrun pín og smán er nœsta stór
og nístir margan fornan vin pinn harmi.
Þin saga greinir margt um dýra dáð —
um dug og por, er börn pín sýndu í verki.
Þó verður hverri œttslóð íslands tjáð
um alla smán, sem tengd er pínu merki.
Þú hefur margan skœðan óvin átt,
og eflaust finnst pér skipta litlu máli,
pó ennpá gangirðu á gerða sátt
fyrst gnœgtir áttu af föntum, blýi og stáli.
Sá dagur rennur — roðar pegar ský —
er reiknisvörin birta pér hið sanna:
Við sverjum öll að álíta pitt „V“
sem einslags kennimerki blauðra manna.
Hið rétta sigrar — sanna bara til!
— VOR saga gleymir aldrei klækjum pínum,
Hvert íslenzkt barn skal á peim kunna skil
og aldreí gleyma hefnirétti sinum.