Þjóðviljinn - 25.10.1958, Qupperneq 3
Laugardagur 25. október 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
List um landið:
Skáldlist - myndlist
MenntamálaráÖ íslands og RíkisútvarpiÖ hafa ákveö-
ið aö reka í sameiningu starfsemi sem hlotiö hefur heit-
iö: „List um landiö“. Tilgangurinn er sá, aö senda hvers
konar lifandi list sem víðast út um bæi og sveitir, skáld-
list, tónlist og myndlist.
Gils Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Menntamálaráðs
skýrði blaðamönnum frá eftir-
farandi í gær.
Með löggjöf frá síðastiiðnu ári
um Menningarsjóð og Mennta-
málaráð voru tekjur þeirra stofn-
ana auknar og þeim fengin ýmis
uý verkefni á sviði menningar-
mála. Meðal þeirra verkefna var
stuðningur við flutning góðrar
listar víðs vegar um land. Al-
menningur utan Reykjavíkur á
þess ekki mikinn kost að njóta
iistflutnings, og á það einkum
við um íbúa dreifbýlisins. Víða
eru þó komin upp myndarleg fé-
lagsheimili, sem hentug eru til
listflutnings. Starfskraftar ís-
lenzkra listamanna eru eigi
nýttir nema að litlu leyti. Þá
skortir beinlínis verkefni. Æski-
'legasti stuðningurinn við þá er í
því fólginn að bæta starfsskil-
yrði þeirra.
Nú hefur verið ákveðið, að
Menningarsjóður verji árlega
■nokkru fé til stuðnings listflutn-
ingi í landinu. Verður tilhögun
væntanlega með tvennum hætti:
f fyrsta lagi: farnar verða ferð-
ir um ýmsa landshluta að frum-
kvæði Menntamálaráðs og Rík-
isútvarpsins, fluttir tónleikar,
lesið úr íslenzkum bókmennt-
um og málverkasýningar haldn-
ar. í öðru lagi: Menningarsjóður
mun eftir föngum styrkja menn-
ingarfélög víðs vegar um land,.
er þau vilja efna til hljómleika-
halds, bókmennta- eða myndlist-
arkynningar. Mun brátt gerð
nánari grein fyrir reglum þeim,
sem þar um verða látnar gilda.
Kirkjuíónleikar
Sú samvinna Ríkisútvarpsins
og Menntamálaráðs um listkynn-
ingu, sem hleypt hefur verið af
stokkunum undir nafninu „List
um landið“, hófst með tónleika-
ferð um Suð-Vesturland, þar
sem flutt var kirkjutónlist. Komu
þar fram listamennirnir dr Páll
ísólfsson, Björn Ólafsson fiðlu-
ieikari og Guðmundur Jónsson
söngvari.
Myndlistarsýning-
Nú um helgina verður opnuð
í Vestmannaeyjum myndlistar-
sýning á vegum fyrrgreindra
aðila. Verða þar sýnd 20 mál-
verk úr Lislasafni ríkisins eftir
jafnmarga listamenn. Eru þar
verk eftir ýmsa hina kunnustu
málara okkar, allt frá Þórarni
B. Þorlákssyni, Ásgrimi, Kjarval
og Jóni Stefánssyni til hinna
yngri manna. Við opnun sýning-
arinnar á sunnudagskvöld mun
Bjorn Th. Bjömsson listfræðing-
ur flytja fyrirlestur um íslenzka
myndlist og sýna skuggamynd-
ir.
Svo er ráð fyrir gert, að sýn-
ingin í Vestmannaeyjum verði
upphaf slíkra myndlistarsýninga'
víðsvegar um Iand.
Óperu- og tóníeikaferð
um Austurland
Þá er að hefjast óperu_ og
tónleikaferð um Austurland, með
viðkomu í Vestmannaeyjum.
Efmsskrá er á þessa leið: Krist-
inn Hallsson syngur einsöng
með undirleik Fritz Weisshappel.
Strengjakvartett leikur „Lítið
næturljóð“ eftir Mozart. Jakob
Thorarensen skáld les úr eigin
Ijóðum. Flutt verður óperan „La
serva padrona“ (Ráðskonuxúki)
eftir Pergolesi. Flytjendur: Þur-
íður Pálsdóttir, Guðmundur Jóns-
son og Kristinn Hallsson.
Stjórnandi: Fritz Weisshappel.
Fyrirhugaðir sýningarstaðir
eru þessir: Vestmannaeyjar 27.
og 28. október, Fáskrúðsfjörður
30. október, Reykjafjörður 31.
október, Eskifjörður 1. nóvem-
ber, Norðfjörður 2. nóvember,
Seyðisfjörður 3. nóvember, Ejðar'
4. nóvember og Hornafjörður 6.
nóvember,
Bókmennta- og tónlistar-
kynning á Norðurlandi
Um 10, nóvember er ráðgert
að hafin verði ferð um Eyja-
fjarðar- og Þjngeyjarsýslur, og
verða þar einkum kynntar bók-
menntir, en jafnframt flutt tón-
list. Munu skáld og rithöfundar
lesa úr verkum sínum og söngv-
ari syngja einsöng. Verður nán-
ar skýrt frá för þessari síðar,
Þótt fleiri ferðir ‘hafi ekki
- lónlisf
verið ákveðnar enn, hafa þeir
aðilaiy sem að listkynningunni
standa, fullan hug á að halda á-
fram því starfi, sem nú er haf-
ið. Munu þeir landshlutar, sem
ekki gefst tóm til að sækja heim
að þessu sinni, verða látnir sitja
fyrir, þegar frainhald verður á
listkynningu, en það verður
væntanlega síðar í vetur og
næsta vor.
Nýr keimspeki-
próíessor
Dr. Alexander Jóhannessyni
hefur verið veitt lausn frá próf-
essorsembætti í heimspekideild
Háskóla íslands frá 1. þ. m. að
telja samkvæmt ákvæðum laga
' um aldurshámark embættis-
manna.
Frá sama tíma hefur dr.
Hreinn Benediktsson verið skip-
aður prófessor í heimspekideild.
(Frá menntamálaráðuneytinu)
Eldur í reykhúsi
Slökkviliðið var kvatt tvisvar
út í gær; fyrra skiptið að
Grettisgötu 50, en þar liafði
komið upp eldur í reykhúsi,
sem var fljótt slökktur og urðu
engar skemmdir. I síðara skipt-
ið fór slökkviliðið að Grensáe-
veg, en þar höfðu krakkar
kveikt í dúfnakofa og brann
hann. Engar dúfur voru í kof-
anum.
Námskeið og
sýfiiikoimsla
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
er nú að hefja vetrarstarfið
með námskeiði í matreiðslu.
Á námskeiði þessu verður
kennt að búa til allan algeng-
an mat, smyrja brauð og baka,
búa veizluborð o. fl. Er nái%
skeiðið aðallega ætlað ungum
stúlkum og konum, sem ekki
hafa haft tækifæri til að njóta
kennslu eða tilsagnar í matar-
gerð. Á fimmtudag og föstu-
dag í næstu viku gengst svo
félagið fyrir sýnikennslu í &erð
allskonar smárétta. Allar upp-
lýsingar um námskeiðið og
sýnikennsluna eru veittar í sím-
um 11810, 15236 og 14740.
Sósíalistafélag Reykjavíkur
Aðalíundur
Sósíalistafélags Reykjavíkur verður haldinn þriðjudaginn 28.
október klukkan 8,30 eftir hád.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin. f
Tveir Norðmenn aðalleiðbeinendur á
námskeiði gagnfræðaskólakennara
Olav Sundet á förum.eftir hálfsmánaðar
leiðbeiningarstarf, við tekur Kay Piene
Um þessar mundir stendur yfir hér 1 Reykjavík nám-
skeiö gagnfræðaskólakennara. Aðalleiöbeinandi á nám-
skeiði þessu undanfarinn hálfan mánuð heíur verið
Olav Sundet námstjúri frá Osló.
Það er Félag gagnfræða-
skólakennara í Reykjavík, sem
haft hefur forgöngu um nám-
skeið þetta og stofnað til þess
í samráðí við fræðsluyfirvöld-
in. Á námskeiðinu hafa verið
haldnir fyrirlestrar, auk verk-
legra kennsluæfinga, og hefur
þátttaka verið mjög góð, sum
kvöldin hafa miíli 60 og 70
kennarar sótt námskeiðin,
flestir úr Reykjavík að sjálf-
sögðu, en einnig úr Kópavogi
og Hafnarfirði.
Eins og fyrr segir, hefur
Olav Sundet verið aðalleiðbein-
andinn á námskeiðinu undan-
farinn hálfan mánuð, en hann
starfar við Pædagogisk Sem-
inar í Osló. Hefur Sundet hald-
ið hér fyrirlestra og veitt leið-
beiningar um kennslu í húman-
ískum fræðum, m.a. haft verk-
lega tilsögn í ensku. og landa-
fræðikennslu. í dag mun Olav
Sundet fljúga heim til Noregs,
en á morgun er væntanlegur
hingað annar Norðmaður, Kay
Piene, sem ta'ka mun við leið-
beiningarstarfinu á námskeiði
gagnfræðaskólakennara. Piene
mun dveljast hér í hálfan mán-
uð eða svo og leiðbeina um
kennslu í stærðfræði og nátt-
úrufræði.
Fréttamenn áttu þess kost
að rabba stundarkorn við Olav
Sundet í gær. Lét hann hið
bezta yfir dvöl sinni hér og
lýsti sérstakri ánægju yfir
hinni miklu þátttöku í nám-
skeiðinu og áhuga kennaranna
fyrir því. Námskeið sem þessi
væru hin þarflegustu, kennur-
um væri jafnan nytsamlegt að
Gerþdikir því ó-
stjóm og einræði
ic Ýmsuin getum liefur ver-
ið að því leitt liverjar væru
fyrirmyndirnar að persómm-
um í hinu sérstæða leik-
riti Itristjáns Albertssonar,
Hausti. Nú hefur hins vegar
verið úr þessum bollalegging-
um skorið af þeim manni sem
gerzt má vita, Bjarna Bene-
diktssyni, fyrrverandi yfirboð-
ara Kristjáns í utanríkisþjón-
ustumii. Aðalritstjórinn kemst
svo að orði í blaði sínu í gær:
★ „Eins og kunnugt er f jall-
ar leikritið um óstjórn og ein-
ræði. Hö'fundur hefur um
margra ára skeið verið í ís-
lenzku utanríkisþjónustunni
og þekkir þ\4 það efni sem
hann f jallar um“.
★ Spurningin er aðeins: —
Hver er Bjarni í leikritinu?
kynnast nýjum sjónarmiðum í
starfsgrein sinni og ætti það
ekki hvað sfzt við um kenn-
ara í gagnfræðaskólunum, þar
sem nemendur væru allir á
gelgjuskeiðinu. Olav Sundet
lauk miklu lofsorði á nýjustu
skólabyggingarnar, sem hann
hefði séð hér í Reykjavík, og
hann kvaðst einnig hafa feng-
ið tækifæri til að fylgjast með
störfum íslenzkra kennara og
hefði sér litizt vel á.
Stofnun sú, sem Olav Sund-
et starfar við i Osló, Pæda-
gogisk Seminar, er einskonar
framhaldsskóli fyrir kennara
við æðri skóla, marltmið hans
fyrst og fremst að gera hina
væntanlegu kennara hæfari í
framtíðarstarfinu.
20 imglingar fá 6-
keypis skólavist
á vegurn NF
Fyrir atbeina .Norræna fé-
lagsins fá 20 ísl. unglingar ó-
keypis skólavist á norrænum
lýðháskó’um í vetur, 8 í Noregi,
1 í Danmörku, 3 í Finnlandi og
8 í Svíþjóð. Fóru flestir ungling-
anna utan i byrjun októbermán-
aðar með m.s. Gullfossi.
Eftirtaldir unglingar fá skóla-
vist í vetur: í Danmörku: H!if
Arnórsdóttir Jensen, Eskifirði.
í Finnlandi: Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Stykkishólmi, Helga
Jónsdóttir, Samkomugerði, Eyja-
firði, Halla Jónsdóttir, Sam-
komugerði, Eyjarfirði. í Noregi:
Álfhildur Jónsdóttir, Víðivöllum,
Fnjóskadal, Arnbjörg Pálsdóttir,
Reykjavík, Björk Sigurðardóttir,
Reykjavík, Dagfríður Óskarsdótt-
ir, Reykjavik, Helga Aspelund,
Ísafirði, Þórunn Jónsdóttir. ísa-
firði, Sólveig Guðbjartsdóttir,
Akureyri, Ragnar Karlsson,
Reykjavík. í Svíþjóð: Guðrún L.
Kristinsdóttir, Reykjavík, Birgir
Guðmannsson, Hafnarfirði, Krist-
veig Baldursdóttir, Reykjavík,
Guðrún Guðmuridsdóttir, Reykja-
vík, Jóhanna S. Einarsdóttir,
Reykjavík, Björg Helgadóttir,
Akureyri, Sigríður Jónsdóttir,
Reykjavík, Ragnheiðuf ísaksdótt-
ir, Reykjavík.
Ðökk gleraugu
í svörtu ihulstri töpuðust
í miðbænum í gær. —
Finnandi beðinn að láta
vita í s3ma 17500, eða
koma á ritstjórn Þjóð-
viljans, Skólavörðustíg 19.
Kaupið miða í Happdrætti Þjóðviljans