Þjóðviljinn - 30.12.1958, Qupperneq 5
Þrið;u<íagur 30. desember 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (5
ísSenzkum fiskflökum illa
tekið í Grimsby
Yfirmenn á fogurum segjasf muni heifa
áhrifum sinum við hrezku sfjórnina
Kampayín æsir óvildareid
B.ezkur dómstóll leyfir að nefna spánskt
ír-.yðivin ,,Champagne"
Enn ein milliríkjadeila er komin upp milli bandamann-
anna Breta og Frakka og snýst sú jm kampavin.
Væntanieg koma Goöafoss til Grimsby um iólin með ina af þessum úifaþyt vegna
50 lestir af íslenzkum íiskflökum varð til þess aö þeir komu Goðafoss til Grimsby, að
aöilar sem beittu sér fyrir löndunarbanninu á islemkan í síðasta mánuðí hafi 2000 vætt-
fisk í Bretlandi sællar minningar fóru á stúfans á ný. um af lsleDzkum freðfiski verið
skipað upp í London.
Kampavín htfur um langan
aldur verið ein helzta útflutn-
ingsvara Frakklands. Það nefnist
á frönskunni champagne og
dregur nafn af héraði einu, þar
Stefnumót Sagan á Norðurlöndum
Síðasta áriö hefnr ballettflokkur frá Frakklandi farið um
heiminn og sýnt ballettinn „Stefnumótið sem fórst fyrir“. Hann
er frumsmið frönsku skáldkonunnar Francoise Sagan í þeirri
grein. í síðasta mánuði kom dansflokkurinn til Kaupmanna-
hafnar og þá var þessi mynd tekin af aðaldansmeyjunum, Toni
Lander (t. v.) og Noelle Aöams. Lander er dönsk og löngu
víðfræg en Adams var með öllu ókunn áður en hán fékk hlut-
verkið í ba'.iett Sagan. Áður en dansfólkið kom til Kaupmanna-
hjafnar var uppselt á allar átta sýningarnar sem þar voru hafð-
ar. Frá Danmörku lá leiðin til Osló, Stoldkhólms, Helsinld og
síðau til Japans og Suðnr-Ameríku.
Einn helzti togaraútgeröarmaöur Bretlands hefur nú
játaö aö togaramir sem hann og stéttarbræöur hans
senda til veiöiþjóínaöar viö ísland komi aftur meö hálí-
tómar ler,tar.
Forustumenn samtaka yfir-
manna á brezkum togurum segj-
ast muni grípa til sinna ráða og
koma á nýju löndunarbannj, ef
haldið verði áfram að flytja
inn til Bretlands fiskflök frá
ísiandj.
Fiskurinn sem GoðafoSs kom
með til Grimsby var til Quay-
side Products, eins af dótturfé-
iögum Ross Group, sem er méð-
al öf’ugustu togarafélaga Bret-
lands. Brezk blöð skýrðu frá
því fyrir jólin, að á annan jóia-
dag væri von á öðru íslenzku
skipi til Grimsby með freðfisk-
farm.
Inn um bakdyrnar
Dennis Welch, framkyæmda-
stjóri félags yfjrmanna á Grims-
Tóbaksbindindis-
menn fá afslátt
Brezkt tryggingarfélag hefur
ákveðið að gefa 5% afslátt af’
bíltryggingum þeim bílstjórum
sem ekki reykja. Athugun hef-
ur leitt í ijós að fimm af hundr-
aði bílslysa í Bretlandi stafa af
því að bílstjórinn reykir við
stýrið.
igeogni á norsk
ffli|refaliast
Síðan landhelgin við ís-
Jand var færð út 1. sept-
ember hefur tala togara
framandi þjóða’ sem fiska
við Noreg þrefaldazt, segir
Nils Lysö fiskveiðiráðherra
í viðtali við Aftenposten í
Osló.
Ráðherrann segist álíta
að ástandið sé orðið í-
skyggilegt fyrir Norðmenn.
Aftenposten telur um-
mæli ráðherrans benda til
að ríkisstjórnin hafi í
hyggju að færa landhelgi
Noregs út með einhliða að-
gerð. Blaðið segir að á
þessu stigi málsins verði
ekki sagt um hvort út-
færslan verði í sex mílur
eða tólf.
Fiskimenn í Norður-Nor-
egi halda uppi stöðugri
hríð að ríkisstjórninni með
kröfum um tafarlausa út-
færslu landhelginnar.
Stjórnin vildi helzt bíða
nýrrar haflagaráðstefnu, en
ákvörðun þings SÞ um að
ný ráðstefna komi ekki
saman fyrr en síðla árs
1960 hefur gert þá íyrir-
aðtlun lítt framkvæman-
lega.
V ---------,---------------------
bytogurum. sagði blaðamönnum
að félag hans liti það mjög al-
varlegum augum að íslendingum
skyldi látið haldast uppi að
lauma fiski inn í Bretland „um
bakdyrnar“.
,,Eg veit hvað aumingja menn
irnir frá okkur sem eru að fiskr
við ísland halda um þetta“,
sagði Welch. „íslendingar meine
þeim meira að ségja að leggjr
sjúka menn á land eða leita í
var í stormum.
Þessi löndun á freðfiski er svik
við mennina sem bera hitanr
og þungann af fiskveiðideilunni
sem -nú er háð, fiskimenn okk-
ar og sjóliðana sem vernda þá.
Með þessu er allur árangur af
þrengingunum sem þeir leggja
á sig að engu gerður og ónýtt-
ur“.
Áhrifin við utanríkis.
ráðuneytið
Welch minnti á að enn væri
í gildi samþykkt samtaka yfir-
manna á brezkum togurum um
að hefja verkfall ef iandanir á
íslenzkum fiski í Bretlandi yrðu
ekki stöðvaðar í hefndarskyni
fyrir útfærslu landhelginnar í
tólf mílur. Þegar brezka stjórnin
bauðst til að láta flota sinn
vernda veiðiþjófnað brezkra tog-
ara við ísland, var ákveðið að
láta þá samþykkt ekki koma til
framkvæmda að svo stöddu.
„Við erum ekki að hugsa um
að leggja niður vinnu“, sagði
Welch, „en við munum beita á-
hrifum okkar við utanríkisráðu-
neytið til að fá þessar „bakdyra-
landanir“ stöðvaðar“.
Brezk blöð bæta því við frétt-
1,6 billjónir
Framkvæmdastjórn A-banda-
Iagsins hefur Iagt saman hern-
aðarútgjöld allra aðildarríkja
bandalagsjns á árinu sem nú er
senn á enda. Niðurstaðan er
60 milljarðar dollara eða 1,62
billjónir króna. (Billjón er
milljón milljónir). Þetta er
230 mjlljónum dollara lægri
upphæð en í fyrra.
MáiitiiiMenii á
Spáni dæindii*
Herréttur i Madrid hefur dæmt
31 kolanámumann frá Astúríu í
fangelsi fyrir kommúnistiska
starfsemi. Fangelsisvistin er frá
tveim árum upp í 20 ár.
Mennirnir voru sakfelldir fyr-
ir að hafa stofnað kommúnist-
iskar flokksdeildir i námunum
og fyrir að hafa styrkt kommún-
j istiska starfsemi með fé.
„Margir Grimsbytogaranna
koma nú heim af íslandsmiðum
með ekki nema hálfan afla á við
það sem eðlilegt má teijast" het
ur biaðið Evenjng Telegi-aph i
Grimsby eftir Jack Vincent, að
alframkvæmdastjóra útgerðarfé-
lagsins Ross Group. Vincent við-
hafði þessi ummæii í ræðu sem
hann flutli í árlegri jólaveizlu
einhvers sem nefnist „The
Grimsby Christmas Fatstock
Show“.
Dapurlegt ástand
Vincent sagði ennfremur að
sögn blaðsins, að ástandið væri
,.dapurlegt“ og búast mætti við
að leggja yrði hluta flotans.
Ekki var Vincent þó á þeim
buxunum að láta af ránskap
og hernaðaraðgerðum við ísland.
Hann spáði í ræðu sinni „löngu
stríði“ Útgerðarmenn og sjó-
menn væru staðráðnir í „að láta
ekki reka sig af miðum sem þeii
hafa sótt í 50 ár eða lengur —
áður en íslendingar höfðu hug-
mynd um að þar væri fisk að
finna“.
I sömu veizlu sagði M. Larmo-
ur, borgarstjóri Grimsby, að
borgarstjórnin myndi styðja út-
gerðina af öllum mætti, borgin
lifði á fiski.
sem jarðvegurinn á vínekrunum
veitir vininu sérstakt bragð og
aðra eiginleika. Frönsk yfirvöld
gæta þess vandlega að freyðivín
frá öðrum vínræktarhéruðum í
Frkaklandi, sem ekki hefur þessa
eiginleika, sé ekki seit undir
nafninu champagne. Með þessu
hyggjast Frakkar gæta þess að
virðingin sem kampavínsnafnið
nýtur verði ekk fyrir hnekki af
lélegum eftirlíkingum og varð-
veita þannig markað sinn.
Stolt Frakka af vandaðri vöru
sinni og kaupsýsluhagsmunir
þeirra urðu fyrir þungu áfalli í
fyrri viku, þegar dómstóll í
London úrskurðaði að vínkaup-
manni þar i borg væri heimilt
að seija freyðivín sem hann flyt-
ur inn frá Spáni undir nafninu
champagne, Vínkaupmenn sem
flytja inn ekta kampavín höfðu
krafizt þess að kaupmanninum
yrði bannað að villa heimildir
á vöru sinni með þessum hætti.
Þessi dómur hefur vakið
þjóðarreiði í Frakklandi í garð
Breta. Frakkar taka það sem
beina móðgun og fjandskap, að
opinber aðili í Bretlandi skuli
leyfa það að spánskt freyðivín
sé kallað kampavín. Þá mætti
eins kalia heimabrugg koníak að
þeirra dómi.
Franskir vínbændur og vín-
kaupmenn hafa borið fram reiði-
þrungin mótmæli og þess er
krafizt að franska ríkisstjórnin
taki málið upp við brezku ríkis-
stjórnina.
Annars var sízt á' ýfingarnar
milli Bretlands og Frakklands
bætandi, því að þau eiga nú í
illdeilum innan A-bandalagsins,
Efnahagssamvinnustofnunar Evr-
ópu og á enn fleiri sviðum.
Flugmenn við
stýrið í roti
Leiguflugvél norska flugfélags-
ins Fred Olsen var á flugi með
sjómenn frá Osló til Amsterdam
í síðustu viku, þegar flugfreyj-
an kom inn í stjórnklefann og
varð þess vör að flugstjórinn
T. W. Simonsen, og aðstoðar-
flugmaðurinn, K. S. Holum, sátu
meðvitundarlausir í sætum sín-
um. Sjálfvirk stjórntæki, sem
notuð eru á langleiðum, stjórn-
uðu vélinni.
Það kom í ljós að leki á hita-
leiðslu hafði eitrað loftið í
stjórnklefanum, án þess að flug-
mennirnir yrðu þess varir.
Flugfreyjan sótti vélamanninn,
sem tókst að vekja flugmenn-
ina með súrefnisgjöf. Farþegarn-
ir 35 komust á áfangastað án
þess að vita nokkuð um hættuna
sem þeir höfðu verið staddir í.
MM léí fósÉri
Marilyn Monroe missti fyrir
jólin fóstur í annað skipti eftir
að hún giftist leikritaskáldinu
Arthur Miller. Marilyn er 32 ára
gömul, þrígift og barnlaus.