Þjóðviljinn - 10.01.1959, Page 12
r
A skautum
Laugardagur 10. janúar 1959 — 24. árgangur — 7. tölublað.
Mestu hernaðarútgjöld í scgu
Bandaríkjanna á friðartímum
Boðskapur Eisenhowers forseta til þjóð-
þingsins: 47 milljarðar $ íil hernaðar
Eisenhower flutti þjóðþingi Bandaríkjanna í gær hina
árlegu skýrslu sína um hag og horfur ríkisins. Sagð'i
hann m.a. aö útgjöld til hernaðar á fjárlögum fyrir ár-
ið 1960 myndi nema rúmlega 47 milljöröum dollara, en
þaö er 61% af heildarútgjöldum ríkisins.
-4»
Jónas varð í
16.-18. sœfi
Eins og búizt var við, varð
keppni geysihörð og tvísýn á
áramótaskákmótinu í Þránd-
heimi. Hlutskarpastur varð S.
Johannessen, Osló, með 7 vinn-
inga, 2.—3. urðu P. Ofstad,
Björgvin, sigurvegari á síðasta
móti, og S. Hamann frá Dan-
mörku með 6V> vinning hvor,
4.—5. D. Neukirch, Austur-
Þýzkaiandi, og R. Hoen, Osló,
með 6 vinninga hvor. Jónas
Þorvaldsson varð 16.—18., hlaut
.3Vz vinning úr fyrstu 6 skák-
unum, en tapaði 3 síðustu. Tefld-
ar voru 9 umferðir eftir Monrad-
kerfi; þátttakendur voru 24 frá
Norðurlöndunum öllum, Hollandi
og Austur-Þýzkalandi. Hollend-
ingurinn Langeweg, sem keppti
þarna og varð áttundi með 5
vfnninga, er sennilega sá sami
og nú keppir í Beverbejk-mótinu
í Hollandi ásamt Friðrjki Ólafs-
syni.
Af Þrándheimsmótinu má
ráða áð róðurinn verður þungur
á heimsmeistaramóti unglinga í
skák, sem haldið verður í borg-
inni Bele í Sviss urn mánaða-
mótin júlí-ágúst í sumar. Ald-
urshámarkið þar verður að vísu
20 ár, en var 25 ár í Þránldheimi.
„Þetta er nú meiri kuldinn“,
segja sumir og sjúga upp í
frostbólgin nefin fullir ar-
mæðu. „Svo kalla þeir þetta
hitaveitu — maður situr kapp-
klæddur í eldhúsinu til að
halda í sér lífinu“, segja aðr-^,
ir.
En svo er fjöldinn allur sem
blessar frost og kulda — það
eru börn, og unglingar, og enda
fullorðnir, sem þessa dagana
eyða ölium frítíma sínum á
Tjörniimi og íþróttavellinum
og stunda hina skemmtilegu
skautaíþrótt.
Það var í fyrrakvöld að Ijós-
myndari og fréttamaður blaðs-
ins brá sér suður á íþrótta-
völl.
Mikil kæti og ærsl ríkti
þar. Þarna hafa verið saman-
komin hátt á þriðja hundrað
manns, flest unglingar, en-
stöku sinnum sá maður full-
orðnum manni bregða fyrir og
einn var meira að segja með
hatt á höfði.
Sumir voru ákaflega flinkir
og skautuðu afturábak og
áfram eftir öllum kúnstarinnar
reglum, aðrir hlupu hring eftir
hring á ógnarlegum hraða
með hendur fyrir aftan bak, al-
veg eins og stórmeistarar. En
flestir skautuðu bara af hjart-
ans lyst án þess að hirða um
Framhald á 4. síðu
I ræðu sinni lagði Eisenhow-
er þunga áherzlu á það, að ekki
mætti með nokkru móti draga
úr útgjöldunum til hernaðar-
heldur bæri að styrkja hernaðar-
mátt ríkisins enn að mun. Ut-
gjöldin til hernaðar eru nú líka
mun hærri en á síðustu fjárlög-
urh og þau hæstu í sögu Banda-
ríkjanna á friðartímum.
Samtals eru útgjöld ríkisins
samkvæml áætlun ríkisstjórnar-
innar 47 milljarðar dollara, og
þar af eru liernaðarútgjöldin 61
prósent.
Talið er að demókratar á
Bandaríkjaþingi verði mjög ó-
ánægðir með þessi fjárlög for-
setans, þar sem þau gera ráð
fyrir að dregið verði úr heildar-
útgjöldum ríkisins, og þykir
Eisenhower þannig hafa snúizt
á sveif með afturhaldssömustu
þingmönnum republikana.
Eisenhower ræddi mikið um
aukinn kostnað við hemaðar-
tæki. M.a. sagði hann, að hvert
Atlas-flugskeyti kostaði hvorki
meira né minna en 35 milljónir
dollara. Kjarnorkuknúnir kaf-
bátar kosta um 50 milljónir doll-
ara, og þeir næstu, sem smíðáð-
ir verða munu kosta þrefalt það
verð.
Skákmótið í Hollandi er hafið
Auk Friðriks eru Bent Larsen, Donner, O'Kelly
og Eliskases meðal keppenda í efsta flokki
Skákmótið í Beverbejk í Hollandi hófst í fyrradag og
tefldi Friðrik Ólafsson þá við Hollendinginn Barendregt
og vann. Allar hinar skákirnar í efsta flokki urðu jafn-
tefli.
Á mótinu í Beverbejk keppa
alls um 200 skákmenn og er
þeim skipt í 10 flokka. í efsta
flokknum eru 10 keppendur, 5
Hollendingar og 5 kunnir erlend-
ir skákmenn. Röð þeirra er
þessi: 1. Toran, Spáni; 2. Donner,
Hollandi; 3. Van der Berg, Hol-
landi; 4. Friðrik Ó.lafsson; 5.
Van Sheltinga, Ilollandi; 6. Bent
Larsen, Danmörku; 7. Barendr-
egt, Hollandi; 8. Langeweg, Hol-
landi; 9. O'Kelly, Belgíu; 10.
Eliskases, Argentínu.
Afli er frá 7—10 lestir á bát
Meíns fáir bátar hafa byrjað veiðar
Afli hefur veriö góður, eöa allt uppí 10 lestir á bát
hjá þeim sem þegar hafa haíiö róöra. Hinsvegar hafa
ekki nema fáir bátar hafiö veiöar ennþá.
Sú yfirlýsta stefna ríkisstjórn-
arinnar að ætla að taka aftur
fljótlega fiskverðshækkunina
veldur því að mjög tefst að ver-
tíð hefjist. Sjómannafélag
Reykjavíkur hefur boðað verk-
fall 17. þ. m. 'Hafnfirðingar
hafna fiskverðsákvæðinu, Vest-
mannaeyingar taka ekki afstöðu
til þess að svo stöddu, Sandgerð-
ingar hafa hafnað því, Grind-
víkingar hafa ekki samið enn,
Akureyringar gerðu fyrirvara
og Hólmarar samþykktu í fyrra-
kvöld heimild til verkfallsboðun-
ar 20. þ.m., en róið verður þang-
að til.
Þrír bátar hefja róðra í Stykk-
ishólmi. Einn bátur, Ármann,
hefur byrjað veiðar frá Rifi, og
fékk hann 10 lesta afla í fyrra-
dag. Frá Rifi verða gerðir út
6 bátar í vetur. Veður var ágætt
þar vestra í-gær. Sex bátar voru
á sjó frá Akranesi í gær og
fyrradag og fengu þeir frá iVz
til 10 lestir í fyrradag. í Kefla-
vík hafa 15 bátar hafið veiðar
og aflað frá 7—8 lestir.
í fyrstu umferð tefldi Friðrik
við Ilollendinginn Barendregt
og vann hann, en hinir gerðu all-
ir jafntefli: Toran og Eliskases,
Donner og O'Keliy, Van der Berg
og Langeweg, Van Shelting og
Larsen. Þeir fyrrtö'.du höfðu
hvítt.
I annarri umferð tefla saman:
Friðrik Clafsson
Eliskases og Larsen, Barendregt
og Van Sheltinga, Langeweg og
Friðrik, O’Kelly og Van der
Berg, Toran og Donner. Ilafa
þeir fyrrnefndu hvitt.
Langeweg er núverandi ung
lingameistari Ilollands.
Mikojaii í Detroit
Mikojan, varaforsætisráðherra
Sovétríkjanna, sem nú er á
ferðalagi um Bandarikin, heim-
sótti Ford-bílaverksmiðjurnar í
Detroit í fyrradag.
Ford jr. og fleiri iðjuhöldar
í Detroit héldu Mikojan veizlu,
og í ræðu sem Mikojan hélt
við það tækifæri, sagði ráð-
lrerrann að SovétrMn hefðu
ætíð haft góð sambönd við
Ford-verksmiðjumar og hann
mælti til Ford jr. að afi hans
væri mjög mikils metinn í
Sovétrikjunum.
Mikojan voru síðan sýndar
verksmiðjurnar og hann átti
viðræður við verkamennina.
Mikojan lét í ljós hrifningu yf-
ir verksmiðjunum og starfs-
mönnum þár.
Mikojan skoðaði einnig GMC-
bifreiðaverksmiðjurnar og
Chrysler-verksmiðjurnar.
159 mamis farast
í flóði á Spáni
Talið er að um 150 manns
hafi drukknað og fjöldi slasazt
í þorpinu Riva de Lago á Mið-
Spáni. Þetta hörmulega slys
varð með þeim hætti að stíflu-
garður brast í fljótinu Duero.
Vatnsflaumurinn byltist þegar
yfir þorpið og reif með sér hús,
vegi og vatnsaflstöð.
Bankastjóraskipti
á Ákoreyri
Svavar Guðmundsson banka-
stjóri Útvegsbankans á Akur-
eyri lét af því starfi um síð-
ustu áramót. Svavar hafði þá
gengt því starfi frá því árið
1935.
Júlíus Jónsson er áður var
gjaldkeri Útvegsbankans á Ak-
ureyri liefur verið settur banka-
stjóri fyrst um sinn.
V e ð r i ð
í da" er spáð austan og norð-
austan golu, skýjað. Frost 6 til
10 stig. Kl. 20 í gærkvöldi var
austlæg átt oa él á austur og
suðvesturlandi, frost 3 til 13
stig. í Reykjavík var þá 6 stiga
frost og 5 vindstig.