Þjóðviljinn - 23.01.1959, Side 1
INNI í BLAÐINU
Hvernig: breytist kaupmáttur
tímakaups verkamanna? —
7. síða
Einvígi — 6. síða.
Föstudagur 23. janúar 1959 — 24. ár.gangur — 18. tölublað.
LúSvlk Jósepsson, á fundi neSri deildar i gœr:
er rong
Alþýðubandalagið varaííi við hættimni af verðhækkunarstefnu Framsóknar og Alþýðu-
flokksins sl. vor. — Vandinn nú auðleystur án þess að ráðast á kjör verkafólks í landinu
Aðálatriði írumvarps ríkisstjórnariimar er niðurskurður kaupgjalds um tíu*
vísitölustig að minnsta kosti, algerlega bótalaust. Og það heíur aldrei geíizt
vel að setja löq þvert gegn vilja verkalýðssamtakanna í landinu, og svo
kann enn að fara, verði þessi fyrirætlun Alþýðuflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins knúin í gegn, sagði Lúðvík Jósepsson á þingfundi í gær, við 1.
umræðu stjórnarfrumvarpsins um niðurskurð alls kaupgjalds í landinu.
Alþýðubandalagið varaði við verðhækkunarstefnu Framsóknar og Alþýð
uflokksins í vor og hefur bæði þá og nú í vetur sýnt færar leiðir til lausn-
ar á efnahagsvandanum, án þess að ráðizt væri á launakjörin.
1 byrjun ræðu sinnar lagði
Lúðvík Jópepsson áherzlu á að
ekki væri hægt að ræða þann
þátt efnahagsmálanna eem
frumv. ríkisstjómarinnar fjall-
ar um, nema víkja um leið að
efnahagsmálunum sem lieild og
athuga aðrar hliðar vandans
sem verið væri að glíma við.
Fer hér á eftir útdráttur úr
ræðu hans.
Alþýðubandalagið varaði
við verðhækkunar-
stefnunni
í lok maímánaðar 1958 voru
settár nýjar reglur um bætur
til framleiðsluatvinnuveganna.
Breytingin var aðallega skipu-
lagisbreyting, en átti þó einnig
að bæta nokkuð hag framleiðsl-
nnnar frá því sem samið hafði
verið um í ársbyrjun. Aðalorsök
þess að nýjar reglur voru sett-
ar, var sú að árið 1957 hafði
reynzt lélegt aflaár, og urðu
tekjur Útflutningssjóðs og rík-
issjóðs um 100 milljón krónum
minni en orðið hefði, ef inn-
flutningur á hátollavörum hefði
orðið með sama hætti 1957 og
árið áður.
ímsir héldu því fram að full
ástæða væri að búast við betri
aflabrögðum 1958 en 1957,
enda hafði vetrarvertíðin þegar
sýnt það, og voru menn bjart-
sýnir á að útkoman yrði betri
1958, enda liefur reynslan nú
sýnt að svo hefði orðið. En allt
um það var nýtt skipulag tekið
upp í maílok 1958 og kjör út-
vegsíns gerð þar nokkru betri
en ákveðið hafði verið í árs-
byrjén.
Þegar efnahagslögin voru
sett á s.l. vori töldum við Al-
þýðúbandalagsmenn að oflangt
væri gengið í tekjuöflun. Við
höfðtim marg undirstrikað þann
vilja okkar að halda áfram
verSstöðvunarstefnunni. En það
vora samstarfsflokkar okkar í
ríkisstjórninni, sem vildu knýja
fram ennþá meiri verðhækkanir
en þá voru samþykktar.
Það kom fram sem varað
hafði verið við að afleiðing lag-
anna um Útflutningssjóð urðu
aílmiklar hækkanir á verðlagi
í landinu. .Þegar í umræðunum
um málið á Alþingi tók ég
fram að við Alþýðubandalags-
menn teldum líklegt að verð-
hækkanir yrðu meiri vegna
þessarar lagasetningar en
ströngustu útreikningar sýndu,
fara inn á hækkunarleiðina, en
hún hlaut að ýta mjög undir
kauphækkanir almennt.
Vandinn sem lá fyrir nú um
áramótin var tvíþættur. Vísital-
an hafði hækkað um 17 stig 1.
desember, og voru allir sam-
mála um að þau yrðu annað
hvort að hverfa eða auka þyrfti
bætur til útflutningsframleiðsl-
unnar. Grunnkaup hafði hækk-
að um 5—9%, svo augljóst var
að framleiðslan hlaut að krefj-
ast nýrra bóta. En þees ber að
gæta að aðrir þættir höfðu
einnig komið til, sem bættu hag
útflutningsframleiðslunnar veru
lega.
Framhald á 3. síðu.
Emil Jónsson: Engra góðra
kosta völ, en þessi skósfur
Hugsjón Framsóknar: Að kippa vísitölunni
úr sambandi
Emil Jónsson forsætisráðherra
flutti í'ramsöguræðu fyrir frum-
varpi stjórnarinnar um niður-
færslu kaupgjalds- og verðlags
á fundi neðri deildar í gær en
hafði lítið nýtt um málið að
segja, taldi engra góðra kosta
völ, en þennan skástan. Boðaði
hann að frumvarp um breyting-
ar á lögunum um Útflutning; -
sjóð yrði flutt nú öðru hvoru
megin við helgina . til að lög-
festa breytingar til samræmis
við þá nýju samninga sem
gerðir hefðu verið við hinar
ýmsu greinar útflutningsfram-
leiðslunnar. Skýrði hann frá
nokkrum atriðum þeirra samn-
inga og hvernig ríkisstjórnin
hugsaði sér að afgreiða fjárlög,
og mun vikið að þeim upplýs-
ingum í næstu blöðum.
Emil játaði að aðalefni frum-
varpsins væri niðurfærsla vísi-
tölunnar í 175 stig. Myndi rík-
stjörnin reyna að koma því svo
fyrj,- að ekki yrði nema um tíu
stiga „eftirgjöf1* að ræða hjá
l^unþegum, en játaði þó að hún
gæti orðið meiri í febrúar.
Eysteinn Jónsson talaði a£
hálfu Framsóknar. Taldi hann
kauphækkanirnar sl. sumar
undirrót alls ills, og harmaði
mjög að ekki hefði náðst um
það samkomulag að kippa vísi-
tölunni úr sambandi. Framsókn-
arflokkurinn hafi ekki trú á að
þessi ríkisstjórn nái neinum
heildartökum á efnahagsmálun-
um í landinu. Hins vegar sé hún
samþykk því að niðurfelling tíu
Framhald á 12. siðu.
Lúðvík Jósepsson
og almennar verðhækkanir
hlytu að leiða af sér almenna
kaupgjaldshækkun.
Það reyndist rétt, verðhækk-
anirnar reyndust allmiklu meiri
en reiknað hafði verið með, og
þeim fylgdu allmiklar kaup-
hækkanir, 5—9% hjá allmörg-
um stéttarfélögum.
Vandinn sem lá íyrir
1. desember s.l.
Það er því auðgert að finna
aðrar orsakir til vandans sem
nú er glímt við en grunnkaups-
hækkanirnar. Allveruleg orsök
hans er ákvörðunin í vor að
K@kk.onen Finnlandsforseti
ræddi við Krústjoff í gær
ViÓrœÓur jbeirra komu á óvarf, en kunna
að róða miklu um sambúÓ jb/óða jbe/Vra
Þeir Urho Kekkonen, forseti Finnlands, og Nikita
Krústjoff, forsætisráöherra Sovétríkjanna, ræddust vió'
í Leníngrad í gær, og kom fréttin um fund þeirra mönn-
um mjög á óvart.
Eekkonen og frú hans höfðu
komið til Leníngrad í fyrradag
og hafði verið skýrt frá því
að þau færu þangað í einkaer-
indum, sér tjl skemmtunar og
hressingar. Grunur lék þó á að
erindið væri annað og meira,
en ekki höfðu menn búizt við
að Kekkonen myndi hitta
Krústjoff að máli, enda ekki
vitað til þess að hann væri í
Leníngrad.
Snemma í gær fréttist hins
vegar.að Krústjoff heíði kom-
Dagsbrúnarmenn! Fjölmennið á
fundinn í Iðnó í kvöid kl. 8.30
Dagsbrúnarfundurinn er í
kvöld í Iðnó og hefst kl. 8.30
Á fundinum í kvöld verða
rædd þau mál scm verka-
mönnuin liggja nú þyngst á
hjarta og' mest eru rædd
maniia á meðal. Á fundinum
i kvöld gefst kauplækkunar-
flokkunum, sem nú biðla á-
kafast til verkamanna um að
kjósa sig, kostur á að svara
fyrir stefnu sína og- gerðir.
Allir Dagsbrúnarmenn sem
láta sig liag og heill félags
síns og liag síns sjálfs nokkru
skipta þurfa að fylgjast ineð
því sem sagt verður á þess-
um fundi.
Dagsbrúnarmenn! Fjöl-
mennið á fúndinn! Mætið
stundvíslega!
ið til Leníngrad þá um morg-
unin, og þóttust ménn þá vita
hvað í bígerð væri.
„Vinátta og gagnkvæmt
traust“.
Tassfréttastofan sovézka gaf
út tilkynningu um fund þeirra
Kekkonehs og Ivrústjoffs að
honum loknum. Sagt var að
auk þeirra hefðu tekið þátt í
viðræðunum Andrei Gromiko
utanríkisráðherra og Nikolaj
Patoliséff, framkvæmdastjóii
viðskiptadeildar sovézka utan-
ríkisráðuneytisins.
Fréttastofan sagði að viðræð-
urnar hefðu farið fram í vin-
semd og gagnkvæmu trausti og
snúizt um sambúð Sovétríkj-
anna og Finnlands og' ýms al-
þjóðleg vandamál.
Kætt um viffskiptamál.
Talið er að auk almennra
mála sem varða sambúð Finn-
lands og Sovétríkjanna hafi sér-
staklega verið rætt um við-
Framhald á 5. siðu