Þjóðviljinn - 23.01.1959, Blaðsíða 11
Föstudagun 23. janúar 1959 — ÞJÓÐVILJINN —
Ernest K. Gann:
Kesuplækkunar leiðin er röng
Loítpóstarnir
31. dagur.
í Axnéríku vissu það. Til allrar hamingju hafði hann
ekki drukkið mjög mikiö. Hún fór að hugsa um þessa
stúlku, Poppý; kannski vissi hún ekki aö vínið var
eitrað.
Hún stakk fingrinum langt niður í kok á honum og
þrýsti á magann á honum með hinni hendinni. Þegar
kastið var um garð gengið útbjó hún hægðalyf, þótt
hún væri hrædd um að hann félli í ómegin, og krafð-
ist þess aö hann píndi því ofaní sig. Seint og síðarmeir
leiddi hún hann aftur að rúminu. Hann talaði bæöi
við sjálfan sig og hana, óskiljanlega og mglingslega.
„Ef ég verö sjónlaus. Ef ég verö sjóniaus.” Hann
endurtók þaö hvaö eftir annaö. Svo fór hann að spyrja
um Tad og Roland.
„Þeir eru famir.“
„Nei — þú mátt eklci fara“. Hann rétti út hand-
legginn í örvæntingu.
„Vertu ekki hræddur, góöi minn. Ég verð hjá þér.“
Hún lagði höfuð hans. sem nú var mjög heitt, upp aö
brjósti sér.
„Ef ég missi sjónina . . . get ég aldrei flogiö framar.
Ég get aldrei flogið, Lucille . . . Þeir leyfa mér ekki
aö fljúga.“
„Reyndu nú að hvíla þig dálítiö, Keith. Þú færð sjón-
ina aftur — bráðum.“
„Ertu viss um það?“
„Víst er ég viss um þaö.“ Hún gizkaöi á það. Kannski.
Þaö var undir ýmsu komiö.
„Ef ég get ekki flogið framár . . .“
Hann lét í ljós óttann, sem leyndist meö öllum
flugmönnum, ótta sem liggur eins og hrufóttur stein-
moii diúpt í hugarfylgsnum þeirra. Ótti við eitthvað,
stundum viö hjarta sem er dutlungafullt, nýra, sem
veldur erfiðleikum, stálflís sem stungizt hefur í augaö
— þetta var sjaldan talað um og þá aðeins meö hljóð-
látrí lotningu, eins og þegar talað var um galdra í
gamla daga. Það var ekki einsog dauðinn, bví að þeir
gátu talað um dauðann með eins konar virðingu, hann
þekktu þeir og hann var auðskilinn. En siúkdómur —-
sem þeir yrðu fyrir á jörðu niðri —- var óbekktur, ill-
ur andi, sem gæti breytt þeim í „landkrabba". Það
var skelfileg tilhugsun og Keith hafði talað um hana
gegn vilia sínum. Orðin ólguðu í huga hans.
„É<r get ekki flcgiö framar . . . “
Það var farið að birta af degi þegar hann sofnaði.
Hann kastaöi mörgum sinnum upp um nóttina. Luc-
ille var fegin því, þótt hún yröi að styðia hann fram
og næstum bera hann inn aftur. Og í óráöinu hafði
hann einu sinni hægðir. Iíún þvoði honum og skipti
um lök og boröi 'ekki að fara frá honum til aö hringja
-í sjmann eða vekia frú A. En hinn ungi líkami hans
var að minnsta kosti að losa sig við eitrið og það var
mikilvægt.
Loksins lagðist hún yfirkomin af þreytu útaf í rúm-
ið við hliðina á honum, hálfsofandi lá hún og hlust-
aöi á bungan andardrátt hans. Svo féll hún í órólegt
mók. Þegar hún vaknaði lá höfuð hans enn í övmum
hennar og hávaöinn frá umferðinni var byrjaður.
Tymóthy læknir kom fliótlega eftir að hún hringdi
til hans. Hann raulaði tum - te - dum - de nokkrum
sinnum og var miög alvarlegur. Þau gátu ekki gert
annað en bíða, sagði hann. Hann ákvaö að pumpa
ekki upnúr honum, þegar Lucille sagði honum hvernig
nóttin hefði liðið. Það væri aö minnsta kosti um sein-
an, hugsaði hann.
Þegar hér var komið, var Keith alveg blindur. Hann
lá grafkvrr og hélt fast um höndina á Lucille. Hann
sagði ekkert, nema har.n bað stöku sinnum um vatn.
Lucille gat aðeins getið sér þess til hvað hann var aö
hugsa. Hún bað þess að Colin, Tad eða Roland kæmu
bráðum heim, svo að þeir gætu talaö við hann. Hún
hríngdí í Gafferty og sagði aö Keith gæti ekki flogið í
nokkra daga; hann hafði boröað eitthvað sem honum
varð illt af. Annað sagði hún ekki.
1 gulleitu kvöldhúminu sat Maddama Mosella á þrep--
inu & rauða vagninum sínum og horföi á ljósin sem
Framhald af 3. síðu,
ræðst. ja.fnframt á kaupið.
Við þetta bætist, að ríkis-
stjórnin virðist enn ekki hafa
neina tryggingu fyrir þvi að
hún geti komið fram þeim til-
lögum sem allt plan hennar
byggist á. Hefur Sjálfstæðis»
flokkurinn lofað þingfylgi til
'að skera niður útgjöld fjár-
laga um 40 milljónir króna eins
og forsætisráðherra talaði um?
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn
samþykkt að hægt sé að hækka
tekjuhlið fjárlaganna um 80
milljónir með því að áætla lið-
ina hærri? Eg hef talið að fært
værí áð hækka nokkra liði, en
það kæmi mér á óvart ef hægt
væri að hækka tekjuáætlunina
yfir 80 milljónir. Sé það liins-
vegar ekki hægt er heildará-
ætlun ríkisstjórnarinnar botn-
laus.
Það var hœgt að leysa
vandamál atvinnuveg-
anna án kauplækkunar
Eins og ég minntist á áður
mun greiðsluafgangur ríkis-
sjóðs árið 1958 nema nm 60—
70 milljónum króna. Þetta fé
hefur ríkið oftekið og þar með
va'iiið óþarfa verðhækkun sem
þessu nemur.
En það var meira oftekið
með efnahagsmálalöggjöfinni
frá í vor. Vegna yfirfærslu-
skattsins féllu til 63 milljónir
króna, sem fyrrverandi ríkis-
stjórn, eða öllu heldur ráðherr-
ar Alþýðuflokksins og Fram-
eóknarflokksins ráðstöfuðu rétt
áður en stjórnin fór frá, gegn
atkvæðum okkar Alþýðubanda-
lagsráðherranna.
Fé þessu var ráðstafað þann-
ig:
Til Sementsverksmiðjunnar 17.0
— Ræktunarsjóðs 18.5
— Fiskveiðisjóðs 14.5
— Raforkuplansins 13.0
Samtals 63.0
Greiðsluafgangur ríkissjóðs
og þessar 63 milljónir nema
120—130 millj. króna og hef-
ur þetta fé raunverulega allt
verið oftekið og valdið hækkun
verðlags í landinu.
Þessar tölur sýna, að það
var rétt sem þingmenn Alþýðu-
bandalagsins héldu frain í maí
í vor að verið væri að tal-Ja
allt of mikið af fólkinu, að með
því væri verið að kalla á stór-
hækkandi verðlag og þar með
alinenna liækkun kaupgjalds.
Þegar þessar afleiðingar koma
í ljós segja þeir sem ábyrgð-
ina bera, að ráðið sé að kippa
vísitölunni úr sambandi, og
leggja byrðamar á bak laun-
þegum.
Reynslan hefur sannað að
það var liægt að trygg.ja út-
flutningsframleiðslunui jafn.góð
kjör og s«mið var um í árs-
hvrjun 1958, án þess að ráð-
ast á launakjör fólksins.
Kauplækkunar-
írumvarpið
Eg vík þá með nokkrum orð-
um að því frumvarpi rílds-
stjórnrrinnar sem hér liggur
fyrir. Efni þess er í ra.uninni
einfalt, þó að miklar mála-
lengingar scu settar upp í
greinúm frumvarpsins.
Kjarni þess er að lcgbinda
ksuplækkun. Samkvæmt grein-
argerð frumvarpsins er því
haldið fram að bein bótalaus
kauplækkun nemi tíu vl sitölu •
stigum, eða 5,4% í launum.
En vegna þess hve frumvarpið
er gert flókið og margslungið
er hætt við því að kaunlækk-
unin samkvæmt frumvarpinu
verði allmiklu meiri, enda varð
forsætisráðherra raunverulega
að viðurkenna í ræðu sinni að
svo gæti farið.
Mér sýnist augljóst eftir
orðaiagi fnimvarpsins að bóta-
laus kauplækkun muni verða
14—15 stig í febrév.rmánuði.
E>i Iiins ve.gar þykir mér senni-
legt að kauplækkiuiin verði 12
—13 stig frá 1. apríl til 1.
september.
Ýmis atriði í frumvarpinu,
auk sjálfrár kauplækkunarinn-
ar, eru vægast sagt mjög vafa-
söm. Er þar sérstaklega að
nefna ákvæði um að breyta
nýlega gerðum samningum við
sjómenn um fiskverðið. Það er
hættulegt að leika þann leik
að ógilda samning, sem full-
Notið hraðsuðupottinn á réttan Iiátt
Kjöt sem soðið er í hraðsuðu-
potti þarf aðeins þriðjung af
venjulegum suðu- eða steiking-
artíma, ef um stór stykki er að
ræða, en ef það er skorið í smá-
bita t.d. gullasch og þess hátt-
ar, nægir að steikja í 6 minút-
ur.
Þess vegna er hraðsuðupott-
urinn þægilegur þeim sem hafa
lítinn tíma til matartilbúnings.
En það verður að fara eftir
leiðarvísinum ef maturinn á að
verða bragðgóður. T. d. verður
að stöðva suðuna, ef búa á til
rétti með bæði kjöti og græn-
meti. Kjötið er sett yfir fyrst,
og nokkrum mínútum áður en
það er meyrt er potturinn kæld-
ur í flýti. Þegar þrýstingurinn
er horfinn er grænmetið sett í
og lokið við að sjóða réttinn
með þrýstingi.
Mjög lítill vökvi er nauðsyn-
legur þegar soðið er i hrað-
suðupotti, en þó verður að gæta
þess að þurrsjóða ekki pottinn.
Tíu mínutna suðutími útheimt-
ir að minnsta kosti desilítra
af vökva, 20 mínútna suðutími
4 desilítra.
Að sprauta stíískjört
Þau eru orðin býsna mörg
heilræðin í feambandi við lin og
læpuleg stífskjört, sem marg-
búið er að þvo. Hér er enn ein
aðferð:
Setjið upplausn af eilífðar-
sterkju í plastflösku, eina af
þeim sem senda frá sér mjóa
bunu þegar ýtt er á botninn.
Skjörtið hengt á herðatré og
síðan er sprautað duglega með
plastflöskunni. Þegar skjörtið
er þurrt ætti það að vera orð-
ið stíft og akrjáfandi
trúar ríkisstjómarinnar hafa
undirritað við samningaborð
með sjómönnum, nokkrum dög-
um eftir að hann er gerður.
Hætt er við að erfitt geti
reynzt að ná samningum fram-
vegis þegar þannig er á málum
haldið.
Þá tel ég það mjög vafa-
samt að ætla sér eins og gert
er ráð fyrir í frumvarpinu að
binda bætur til útgeröarmanna
við vísitöluhreyfingu og þurfa
þul oft á vertíð tað breyta
rekstursgrundvellinum.
Heríileg blekking í grein-
argerð írumvarpsins
1 greinargerð frumvarpsins
er því haldið fram að kaup-
máttur launa muni ekki rýrna
heldur fremur aukast, frá því
sam var í október 1958, eftir
að aðgerðir frumvarpsins hafi
náð fram að ganga. Margir hafa
orðið undrandi að sjá þessa
fullyrðingu í frumvarpi, sem
þó er flutt til þess að lækka
kaupið. En þetta er sett upp
í greinargerð frumvarpsins á
þennan hátt til þess að draga
athygli frá þeirri lcjaraskerð-
ingu sem í frumvarpinu felst.
Blekkingin liggur í því að
miðað er við okl 'bermánuð, eri
þá var eim greidd á laun kaup-
gjaldsvísitalan 185 stig. Hins
vegar var örðin allveruleg
hækkun á vörum í öktóbermán-
uði, en þá verðhækkun fengu
launþegar ekki bætta sam-
kvæmt gihlandi lögnm f.vrr en
með nýrri Ijfaupgjaldsv* sitölu
1. desembcr.
Segja má því að kaupmáttur
launa í október hafi verið
minni en samningar stóðu til,
því bætur samkvæmt samning-
um út á orðna verðhækkun
voru ekki komnar inn í ;kaup-
gjaldið.
Sé borinn saman kaupmáttur
laui4a 1. deseinber 1958 og 1.
marz n.k. þegar ákvæði frum-
varpsins væru orðin að lögiun,
þá íiti dæmið þannig út; Kaup-
máttur launa 1. desember 1958:
109,9, en 1. marz 1959: 103,9,
— eða kanomátturim lu'fði
rýr"að i’in 6%.
Hér er bví um algera blekk-
ingu varðandi kaupmátt laun-
ama að ræða, og 4 sízt við
í f'"n'mvarni sem raunveimleg'a.
f,r ptfo-tTf utan um ákvörðun um
launnlækkun.
>v
Það ‘-'"n a!varle‘,'ast er við
ketta fns'"varn ríídsstjórnar-
innar er að það gerir ráð f.yrir
að skerða samningsrétt laun-
þegasamtakanná, að breyta lög-
lega gerðum saiuningum með
lögum og lögbinda þannig
kauplækkun.
Hvort kauplækkun samkvæmt
frumvarpinuu er 6% eða 8%
eða jafnvel enn meir er ekki
aðalatriði málsins. Það sem
hættulegast er, er leið lögbund-
innar kauplækkunar.
Slík leið liefur verið reynd
mörgum sinnuin áður af lög-
gjafarvaldinu. Hún hefur aklrei
náð tilætluðum árangri og all-
ar Ukur benda til þess, að það
verði ekki heldur að þessu
sinni.
Umræðu imv frumvai'plð
verðujv kaldið váfrrjn- í dag',
klukkan 1,30,