Þjóðviljinn - 31.01.1959, Page 3

Þjóðviljinn - 31.01.1959, Page 3
Laugardagur 31. janúar 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Kauplækkun lögfest Framhald af 1. siðu. > þeirrar greinar. —- Tillagán var Jiannig: FVá sama línia skulu fjöl- skyWubætur skv. 16. gr. al- mannatryggingalaga, nr. 24/1956, liækka sem hér seg- ir: Bætur til þeirra framfær- end!a, sem hafa 40 j’ús. kr. skattskyldar tekjur eða lægri skv. skattskrá yfirstandandi árs, hækki um 100%, til þeirra, sem hafa 40050— 50#00 kr. skattskyldar tekj- ur, um 75% og til þeirra, sem hafa 50050—60000 kr. skattskyldar tekjur, um 50%. Á fjölskyldubætur þessar skal ekki leggja tekjuskatt né útsvar. Fjárhæð þá, sem þessi aukning fjöiskyldubóta nem- ur, skal greiða Trygginga- stofnun ríkisins af tekjuaf- gangi Áfengisverzlunar ríkis- ins. ^ 9 gegn réttlætismáli — 5 kærulausir Þessi tillaga var felld með S atkvæðum gegn 3, en 5 greiddu ekki atkvæði. Þeir sem felldu tillöguna voru þess- ir alþingismenn: Eggert G. Þorsteinsson, Sigurður Bjarna- son, Sigurður Ó. Ólafeson, Frið- jón Skarphéðinsson, Friðjón Þórðarson, Gunnar Thoroddsen, Jóhann Þ. Jósefsson, Jón Kjart- ansson, Páll Zóphóníasson. En þessir sátu hjá: Björgvin Jóns- son, Hermann Jónasson, Karl Kristjánsson, Bernharð Stefáns- son og Sigurvin Einarsson. Eggert G. Þorsteinssyni fannst þó að hann þyrfti að þvo hendur sínar í þessu máli og gerði þá grein fyrir atkvæði sínu að frumvarpið væri „sam- komuIagsmál“ og þó sig hefði persónulega langað til eins eða annars hefði ekki fengizt um það samkomulag (við íhaldið!) En hann teldi „tilgang máls- ins svo mikilvægan" að hann vildi ekki láta sámþykkja nein- ar breytingar við frumvarpið, og yrði því á móti tillögunni um auknar. fjölskyldubætur. tltsvör og skattar í vísitölugrundvöllinn Ein breytingatillaga Alþýðu- bandalagsmanna var við 4. gr. frumvarpsins þar sem svo er fyrir mælt að nýi vísitölu- grundvöllurinn verði tekinn upp. Lögðu þeir Björn, Alfreð og Finnbogi til að síðasta máls- grein 9. greinar frumvarpsins orðaðist svo: Hinn 1. marz 1959 skal taka gildi nýr grundvöllur vísi- tölu framfærslukostnaðar, sam- kvæmt niðurstöðum neyzlu- ranns/óknar þeirrar, er kaup- lagsnefnd hefur framkvæmt í samráði við Hagstofuna. Inn í þennan grundvöll skal bæta út- gjaidaupphæð vegna greiðslu útsvars og tekjuskatts sam- kvæmt mati kauplagsnefiular og Hagstofunnar. Skal út- gjaldaupphæð hins nýja vísi- tölugrundvallar 1. marz 1959 vera sú grunnupphæð, er síðari breytingar vísitölunnar miðast við, og jafngildir því grunntölu 100. Vísitala framfærslukostn- aðar skal reiknuð mánaðarlega miðáð við verðlag í mánaðar- byrjun, eftir grundvallareglum, sem kauplagsnefnd setur. Við þennan útreikning skal sleppa broti úr vísitölustigi, sem er minna en %, en annars liækka í liálft eða lieilt stig. Um þessa tillögu sagði Björn Jónsson m.a.: I síðustu málsgrein þessarar greinar segir svo: „Við þennan útreikning skal sleppa broti úr vísitölustigi hálfu eða meira, en annars hækka í heilt stig.“ Hér er um mjög augljósa skerðingu að ræða frá gildandi samningum, en þar segir að hálft stig skuli hækka ií eitt stig í kaupútreikningi en ekki lækka eins og þarna er gert ráð fyrir. Nú ber þess að gæta að eitt vísitölustig skv. nýju vísitölunni jafngildi rúmlega 2 stigum í þeirri sem nú gildir. Möguleiki er því til að með þessari breytingu tapi launþeg- ar allt að einu visitölusti.gi árið um kring. Safnast • þegar saman kemur. Þetta geta gilt 5—600 kr. á ári fyrir verka- mann. En þetta er. þó ekki veiga- mesta atriðið varðandi breyt- inguna á visitölugrundvellinum. Um það eru mjög skiptar skoð- anir og engan veginn fullrann- sakað hvort breytingin er til hagsbóta fyrir launamenn og margir eru á öndverðri skoðun. Um það skal eg ekki dæma hvað rétt er í því. En hitt er augljóst að hér er um samn- ingsatriði að ræða og það eitt hið veigamesta, sem útkljá á með samningum milli atvinnu- rekenda og launamanna. En sé að því horfið að breyta um vísitölugrundvöll tel ég fráleitt að ekki sé tekið inn í nýjan grundvöll allt það sem menn þurfa til lífsframfæris, að öll útgjöld meðalfjölskyldu séu tekin með í reikninginn. En á það skortir hér. I nýja grundvellinum eru t. d. ekki tekin með útsvör eða skattar aðrir en nefskattar, en þessi gjöld nema nvörgum þús. króna. Vásitalan á að gefa sem rétt- asta mynd af lífskjörunum og breytingu á þeim, en það gerir hún ekki nema gjöld sem geta numið mörgum þúsundum og eru óíhjákvæmileg séu tekin með. Miklu hæpnara sýnist mér að taka inn í grundvöllinn neyzlu tóbaks og áfengis í það stórum stíl að það hafi mjög afgerandi áhrif á kaupgjald. Það er með öllu óeðlilegt að ef ríkið telur nauðsynlegt að afla aukinna tekna með hækk- uðu verði á þessum vörum, geti það spennt allt verðlag í landinu uppá við. Hitt er réttmætt og mundi verka sem nokkurt aðliald, sem sannarlega veitir ekki af, *ef hækkuð útsvör og skattar fengjust upp borin að einhverju leyti með verðlagsbótum. Og án þess getur visitalan heldur ekki verið sá hagfræðilega rétti mælir á lífskjörin sem hún á að vera.“ Þessa tillögu felidi stjórnar- liðið með 8 atkv. s'uum. Auk Alþýðubandalagsmanna greiddi Páll Zóyhóníasson henni at- kvæði en aðrir Framsóknar- menn sátu hjá. Vísitölunni kippt úr sambandi Þá fluttu. þeir þingmenn Al- Lundúnaráistef nan um Ráðstefnan hófst 20. þ.m. í London og sátu hana fulltrúar allra aðildarríkja að Alþjóða hafrannsóknar- ráðinu. ísland átti 3 fulltrúa á ráðstefnu þessari, er fjaliaði um möskvastærð, og hafa þeir nú skilað skýrslu um ráöstefnu þessa. Þjóðviljinn fékk eftirfarandi í gær frá utanríkismálaráðu- ney tinu: Árið 1946 var undirritaður í London samningur ura möskva- stærð a botnvörpu og dragnót og lágmarksstærð á fiski. Skyldi samningur þessi gilda fyrir Norðursjóinn og Norðaustur- Atlanzhaf, þ. á. m. svæðið um- hverfis ísland. Samningur þessi kom þó ekki til framkvæmda fyrr en 8 árum síðai þegar öll þau ríki; sem höfðu undirskrifað hann höfðu veitt honum fullgildingu. Öll ríki, sem fiskveiðar stund- uðu á þessu svæði, voru aðilar að þessum samningi, nema Sov- étrikin, en; þau gerðust aðilar isíðarv Vegna aukinnar barfar á raun- hæfum friðunaraðgerðum á fiskislóðum Norðaustur-Aflanz- hafsins hefur verið talið, að þessi samningur væri ófullnægj- andi og nauðsynlegt væri því, að gerður yrðj nýr samningur. þar sem möguleikar væru til víð- tækaii friðunaraðgerða. Undanfarin ár hefur farið fram undirbúningur að slikum samningi og hafa verið haldnir fjórir óformlegir ftmdir með aðildarríkjum samnjngsjns frá 1946. Haustið 1957 var hinn síðasti óformiegi fundur haldinn en með tilliti til ráðstefnunnar í Genf, sem þá stóð fyrir dyrum, var ákveðið að bíða með frek- ari aðgerðir þar til þeirri ráð- stefnu væri lokið, þar sem gera mátti ráð fyrir, að samþykktjr hennar gætu haft áhrif á vænt- anlegan samning. ;>> Hjnn 20. janúar s.l var svo kvatti; til fundar í London og voru þar samankomnir fulltrúar all.ra aðildarríkja.; sam.njngsins frá 1946, en þau eru: Belgía, Bretland, Darrmörk, Frakkland, Holland, írland, ísland, Noregur. Pólland, Poi’l úgal', Sovétríki'n, þýðubandalagsins einnig breyt- ingartillögu við 6. grein frum-1 Varpsins, að 3. málsgrein þeirr- ar greinar falli niður og um umorðun á 4. málsgrein frum- varpsgreinarinnar. Fyrri tillög- una skýrði Björn Jónsson á þessa leið: „2. málsgrein 6. gr. frv. er afturganga úr gengisskráning- arlögunum frá 1950 og kveður svo á að launamenn skuli ekki fá reiknaða í kaupgreiðsluvísi- tölu þá hækkun á verði land- búnaðarvara sem á rót sína að rekja til breytts verðlags á landbúnaðarvörum vegna hækk, unar eða lækkuna á launum bónda og verkafclks hans, þeirrar, er leitt hefur af greiðslu verðlagsuppbótar á laun almennt frá 1. maí ’59. Hér er um það að ræða að kippa vísitölunni að mjög veru- legu leyti úr sambandi við verð landbúnaðarvara, sem mun leiða til þess að bilið milli landbúnaðarvöruverðs og kaup- gjalds hlýtur sífellt að breikka, launamönnum í chag. Ekki er mögulegt um að segja hversu mikil vísitölu- skerðing og raunveruleg launa- lækkun af þessu leiðir, en það er víst að þetta ákvæði hleður á sig og getur þegar fram í sækir skipt fjölda vísitölu- stiga. Þannig var komið haústið 1956 þegar verðfestingarlögin voru sett að framundan var 11,4% verðlagshækkun á land- búnaðarvörum, sem launþegar hefðu engar bætur fengið fyrir vegna þessa ákvæðis. Þessi verðlagshækkun kom ekki til framkvæmda vegna þess að launamenn töldu sér hagstæð- ara, sérstaklega vegna þessa lagaákvæðis, að afsala sér sex vísitölustigum og losna jafn- fram unidan þessu ósanngjarna kaupskerðingarákvæði í fram- tíðinni. Nú hefur ríkisstjórnin vakjð að nýju upp þennan draug frá stjórnarárum íhaldsins og hyggst með því hafa allmörg vísitölu- stjg áf launþegum. Þetta er gert gegn mótmælum allra sem um málið hafa fjallað, jafnvel minnjhluti stjórnar A. S. í. hef- ur krafizt þess að þetta ákvæði verði fellt njður, en auðvitað ekki fengið við neitt ráðið vegna þess að krafa hans í þessu efnj hefði orðið til hagsbóta launa- mönnum og siikt máttj auðvitað ekki ske. í samræmi við rétt- mætar kröfur m. a. minnjhluta miðstjórnar A. S. í. legg ég til í breytingartillögum minum að þetta kjaraskerðingarákvæði verði fellf niður. Þessi tillaga var felld með 8 atkvæðum stjórnarliðsins gegn 4, og greiddi Páll Zóphóníasson atkvæði með ásamt Alþýðu- bandalagsmönnum. Eggert Þor- steinsson lét sig hafa það að greiða atkvæði gegn þessari til- lögu. ^ Samkvæmt samning- um stéttaríélaga Með sama atkvæðamun var einnig felld bessi breytingar- tillaga þingmanna Alþýðubanda- lagsins, vjð 6. gr. frumvarpsins: „Kaupgreiðsluvisitala sú, sem um ræðir í 2. málsgrein þessar- ar greinar, gildir við ákvörðun verðlagsuppbótar, eftir því sem ákveðið er í samningum stéttar- félaga og vinmiveitenda á hverj- um tíma um gildistiiku breyttrar kaupgreiðslm’isitölu." ★ Frá ýmsum atriðum varðandi afgreiðslu málsins mun skýrt síðat Félag ísl. mynd- listarnema stofnað Síðastliðinn sunnudag var haldinn liér bæ stofnfundur Félags ísl. myndlistarnema. Á fundinum var félagsstofnunin samþykkt ásamt drögum að fé- lagslögum og kosin bráðabirgða- stjórn. Framhaldsstofnfundur. félags- ins verður í Kaffj Höll sunnu- daginn 8. febrúar kl. 4.30 e. h. Spánn, Svíþjóð og Þýzkaland. Fulltrúar íslands á fundj þess- um voru þeir Hans G. Ander- sen sendiherra, Davíð Ólafsson, fiskimá:astjóri. og Jón Jónsson, forstjóri Fjskideildar. Ló fyrir fundinum uppkast að samningi, eins og frá því hafði verið gengið áður á óformleg- um fundi og ráð var fyrir því gert, að endanlega yrði gengjð frá samningi nú og hann undir- skrifaður. Varð og úr, að fullt samkomu- lag varð um öll atriði samn- ingsins og s.l. laugardag undir- rituðu hann 10 af 14 rikjum, en gert er ráð fyrir, að hin 4 muni skriia undir innan tveggja mán- aða. ísland undirrjtaði samning- irn, en hann getur ekki tekið gildi fyrr en rikin hafa fullgilt hann samkvæmt þeim reglum, sem gilda þar um í hverju landi. I sambandi við samningsgerð þess var af íslands hálfu lögð á það megináherzla, að samn- ingurinn gæti ó engan hátt haft áhrif u ákvarðanir hinna ein- stöku landa um víðáttu. fiskveiði- lögsögunnar. Fékkst að lokum samþykkt sú grein samningsins, sem tryggir þetta atriði á fullnægjandi hátt, en hún er svo í íslenzkri þýð- ingu: . Ekkert í samningi þessum getur haft áhrif á réttindi, kröfur eða skoðanir samnings- ríkjanna að því er varðar víðáttu fjskveiðilögsögunnar“. Samningur þessi tekur til fisk- veiða á öllu Norður-Atlanzhafi og takmarkast svæðið að vestan við austurströnd Grænlands og línu, sem hugsasf dregin eftir 42° v 1. að 36° n. br. og þaðan í Gíbraltar, en þar eru suður- takrnörk svæðisins. Þessu svæði er svo skipt í þrjú minni svæði. Er I svæði norðan 60° n. br. og er hafið umhverfis Færeyjar, ís- land og Noreg, svo og Barents- hai á því svæði. II. svæði er svo- hafið umhverfjs Bretlandseyjar og írland og allur Norðursjór og loks III. svæðið milli 36° n. br. og 48° n. br., þ. e. hafið vesturundan vesturströnd Frakk- lands, sunnan Bretagneskaga, og vestan Pyreneaskaga. Samkvæmt samningnum skal sett upp fastanefnd og skulu öll samningsríkin eiga fulltrúa í nefndinni. Þá skulu einnig sett- | ar upp sérstakar nefndir fyrir | hvert hinna ofanrituðu svæða J og geta þau ríki, sem eiga land að hafi á svæðinu eða stunda j veiðar á einhverju svæðinu orð- ið meðlimir í svæðanefndunum. Hlutverk fastanefndarinnar er að fylgjast með fiskveiðunum á samningssvæðinu, hvort nauðsyn beri til sérstakra ráðstafana til verndar fiskistofnum og hverra og gera tillögur þar um til með- limaríkjanna. Ráðstafanir, sem fastanefndin og svæðanefndirnar geta gert til- lögui um eru eftirfarandi: a) Reglur um möskvastærð b) Reglur um lágmarksstærð á fiski, sem veiða má og landa c) Reglur um bann veiða á á- kveðnum timum d) Reglur ura lokun veiði- svæða e) Reglur um notkun veiðar- færa Framhald á 2. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.