Þjóðviljinn - 25.02.1959, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 25. febrúar 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Emest K. Ganna
*
-T
Loftpóstarnir
59. dagur
stefnu á ákvöröunarstaöinn. Ef eitthvað' var a'ð veðri
á leið hans, ef þaö leit út fyrir aö hann þyrfti- aö
skriða meö jörðu og gæti ef til vill ekki snúiö við' —
beygöi hann til baka áöur en í óefni var komið og
sneri aftur til sama flugvallar og hann kom frá. Þeg-
ar hann var kominn niöur á jörðina aftur, virtist
honum alveg standa á sama um hvaö fólk sagöi.
Hann brosti kurteislega og tautaði eitthvaö um aö
hann hefði engan áhuga á tilraunum.
Stubbur Baker tók komu vetrarins ekki nærri sér.
Fyrir tilstilli hans flutti ekkjan frá Chursville til
Buffaló og hélt á honum hita. Hann haföi tekiö á leigu
jólasveinabúning fyrir flugferð sína á jóladag og hafði
nóg að gera viö aö leita aö óbrothættum gjöfum til
aö fleygja niöur til vitavarðarins, bæklaöa drengsins
Geralds Amundsen og margra annarra kunningja meö-
fram leiðinni. Honum kom ekki til hugar aö veöriö
gæti hindraö flug hans, því aö Stubbur hugsaði ekki
um veðrið, hvorki vetur né sumar. Hann flaug alltaf
svo lágt og hafði svo góöar upplýsingar um hver átti
heima á þessum bóndabæ eöa einmitt þarna viö bugö-
una á fljótinu — og hver væri nýbúinn aö byggja
nýtt þak á hlöðuna sína eöa hafði lagt veg eða var
að grafa brunn eöa var seint á fótum á kvöldin —
aö flug hans var eiginlega nokkurs konar flutningur
eftir loftvegi, án hindrana. Flugið var næstum auka-
atriöi, tilgangur til aö ná takmarki, án þess aö þurfa
aö vinna erfiöisvinnu, og honum tókst meira aö segja
líka að sinna mörgum persónulegum áhugamálum, sem
oft voru ótrúlega flókin. Hann haföi ekki minnsta
áhuga á línuritum yfir meðalaldur flugmanna.
Jafnvel hjá bræörunum var munurinn á flugferð-
um mjög áberandi. Colin flaug vél sinni án nokkurra
útúrdúra og sýndi ótrúlega nákvæmni í lendingum.
Hann tók benzíniö frá mótornum alllangt frá flugvell-
inum og renndi sér svo niður á viö án þess að breyta
lendingarhorninu. Hann var vanur aö lenda nákvæm-
lega þar sem hann vildi, hvort sem þaö var yfir há-
spennulínum í Sýrakúsu eða yfir trjánum í Rochester
og keyra síðan án þess að nota meira vélarafl þar til hann
var kominn nokkur fet frá fulltrúanum sem beið hans.
Að vissu leyti var þetta „að sýna sig“, því að til þessa
þurfti mikla leikni — og Colin vissi það. En hvað hann
snerti var þetta ekki mont, heldur dæmi um leikni dug-
legs handverksmanns.
Tad var snillingur. Hann hafði mætur á snillibrögðum,
kadensum og fortissimóum í fluginu. Og hann var fljótt
leiður á tilbreytingarleysi starfsins. Honum datt margt
í hug og hugmyndir hans reyndu oft á þolrifin í mönn-
um á jörðu niðri. Það gerðist allt of oft, þegar þeir stóðu
og störðu á sjóndeildarhringinn og biðu þess að hann
kæmi og voru næstum búnir að missa vonina, að hann
kom þjótandi niður að höfðum þeirra úr einhverri ó-
MINNINGARATHÖFN
s
vegna skipshafnar b/v Júfí, verður lialdin í Hai'nar-
fjarðarkirkju laugardaginn 28. febrúar kl. 2.30 e. li.
Athöfninni verður útvjarpað.
skapa hæð. Aðra stundina komust þeir úr jafnvægi, vegna
þess að Tad Mac Donald hefði nú loks orðið að láta í
minni pokann fyrir náttúruöflunum; þeir voru jafnvel
farnir að ráðgera hvernig þeir ættu að bjarga ílakinu af
vél hans, ræða hverjum þeir ættu að gera aðvart og áætla
hvað leitin myndi kosta. Og í næstu andrá gátu þeir
bölvað Tad Mac Donald og leitað skjóls, svo að Pitcairn-
vélin skipti ekki á þeim hárinu með hjólunum. Stundum
fannst þeim sem þeir heyrðu hæðnishlátur hans bland-
ast hvininum í flugstögunum. Gafferty hafði oftar en
einu sinni áminnt Tad vegna þessa, og það væri eins og
áminningar hans færu inn um annað eyrað og út um
hitt, því að Tad gerði ekki annað en að brosa háðslega.
Roland flaug eins og skapið bauð honum í brjóst
hverju sinni. Stundum þaut hann yfir flugvöll og snar-
venti svo vélinni upp .á við; í annan tíma hækkaði hann
vélina þangað til hún hékk, á hreyflinum. Hann „rúmster-
aði“ oft með vélina sína, en hafði alltaf yfirráðin. Hann
stóð jafnfætis veðrinu. Hann þekkti bellibrögð vetrarins.
Hann var vanur að fljúga samsíða skýmyndun sem var
dimm og ógnandi og virða hana fyrir sér með tortryggni.
Hann vissi það, að lægi flatt skýlag fyrir framan aðal-
skýjaþykknið eins og þétt vafin rúlla af kryppluðum
rúmfötum var hann við framhliðina og flygi hann vest-
ur á bóginn, færi veðrið áreiðanlega versnandi. En ef
þetta' gráa bákn hlóðst snögglega upp og dró ef til vill
fáein regnský og lægri ský á eftir sér, þá var hann
bak við froptinn á,- skýmynduninni. Ferðin vcstur á bóg-
inn vrði þægilegri 5og hann gæti hallað sér aftur, á þak
og tckið það rólega — að minnsta kóSti þangað tiÍ á
morgun eða næstu nótt, þegar hann neyddist til að fljúga
gegnum frontinn austur á bóginn. Roland fór oft fram-
hjá sömu skýmynduninni allt að fjórum sinnum á tveim
dögum. Þannig varð hann miklu fróðari um hana, útlit
hennar og hraða, en veðurstofurnar á jörðu niðri.
„Það eru þessar vetrarlægðir, sem ekki er hægt að
fljúga undir“, sagði hann við Fleska Scott, sem var ný-
lentur í Buffaló í krapa og forarelg. „Það sem við þurf-
um er einhvers konar tæki, sem við getum nokkurnveg-
inn treyst, og eitthvað sem getur sagt okkur hvar við
erum. Þá getum við kannski flogið ofaná hverju sem
vera skal“
Það gutlaði hátt í stígvélum Fleska. Bakhlutinn á bux-
unum hans var rennvotur og hann var helblár í framan,
svo aumur var hann. Hversu hrifinn sem hann kann að
hafa verið af flugi yfirleitt og hinum miklu víðáttum,
þá hafði öll hrifning hripað af honum þennan desember-
dag.
„Eg hef engan áhuga á að fljúga yfir skýfronta, þótt
það væri hægt. Eg hef ekki áhuga á að fljúga undir þá
eða í gegnum þá — núna eða í framtíðinni eða um alla
eilífð“, sagði hann einbeittri og angurværri röddu. Feit-
ar hendur hans skulfu, þegar hann rótaði 1 umfangs-
miklum flugbúingnum eftir sígarettu. „Eg hef fært þér
flugvél, Roland Eg hef líka meðferðis fjóra póstpoka
til íbúanna í Buffaló og þar fyrir vestan — og ég leyfi
mér að segja að innihald þeira er minna virði en poll-
urinn sem ég sit á“.
„Það var ekki svo slæmt þegar ég flaug í gær. Gaztu
komizt framhjá skýlögunum?"
„Nei, ég skreið undir þau á fjórum fótum, og ég veit
ekki hvers vegna. Þú hefur þínar hugmyndir og ég mín-
ar. Og fyrst og fremst er það hugmynd mín að losna úr
þessu svínaríi. Eg get ekki sagt þér, hvar skýfronturinn
er, því að hann er alls staðar — rigning og snjór héðan
og til Newark, aðallega snjór. Hefði ég haft þokulúður,
hefði ég blásið í hann. Bara til að skemmta sjálfum mér“.
„Ef við hefðum bara tækin — réttu tækin. Og ef við
vissum hvernig .......“
„Hefurðu ekki skipt um skoðun, eða misheyrist mér?“
Roland leit niður á gölfið. Þegar hann tók aftur til
máls, talaði hann mjög hægt. „Jæja .... allt frá því að
Keith .... Eg er alltaf að hugsa um að eitthvað þurfi
að gera“. Roland hugsaði mikið um Keith þessa daga.
í hvert skipti sem hann flaug yfir flugvöllinn í Albany
sá hann fyrir sér andlit drengsins. Hann hafði aftur og
aftur velt fyrir sér hugsanlegum orsökum slyssins. Plann |
hafði spurt Sweeney spjörunum úr hvað eftir annað. Á
sinni eigin vél hafði hann flogið sömu leiðina og Keith
hafi farið í síðustu ferð sinni, eins nákvæmlega og hann
gat ímyndað sér hana og reynt að átta sig á, hvað hafði
orðið að hjá drengnum. Hann var búinn að fá það á heil-
ann að þetta mætti aldrei koma fyrir aftur. Hann var
kominn á þá skoðun að hann ætti Keith. þá skuld að
gjalda að koma 1 veg fyrir að þetta endurtæki sig.
„Eitt er víst“, sagði Fleski og yppti öxlum. „Framtíð
okkar er takmörkuð hér“.
BÍLLINN
Sími — 18-8-33
T I L S Ö L U :
FORD - FMRLINE
1955
CHEVROLET 1955
DODGE 1955
Minni aerð ,
DODGE 1956
BUICK 1955
Roadmaster
SKODA 1958
HUDSON 1949 i
M0SCVIT6H 1957 1
CMEVROIET 1955
Stadion
FORD 1953 2ia dy.ra
FIAT 1400 1957
PLYMOUTH 1942
POBETA 1954
FORD - FMRLINE
1959 !
CIIEVRÖLET 1958
EDSEL 1959
MSH 1952
RENAULT 1947
VAUXHALL 1958
RÚSSA-IEPPA 1957
CHEVROLET 1946
VOLKSWAGEN 1953
'55 '56
0LDSM0BILE 1956
DODGE 1958
LANDROVER 1955
MERCHURY 1957
AUSTIN 1955
Sendiíerðabíll
FORD - PREFEKT '58
G-M-C 1953
Vörubíll 4ra tonna
WILLYS - JEPPI 1946
'47
Ennírerr’ur höfum við
kaupendur að
VOiKSWAÖEN 1959
MÖSCVITCH '58 '59
CHEVROLET '53 '54
TAUNUS 1948
Höfum ávallt til ílest-
ar tegundir bifreiða.
Hagkværair gieiðsiu-
skilmálair
Ömgg þjónusta
BÍLLSNN
v&BS&BHDsnnj vís
Kalkofnsveg —
Sími — 18-8-3,3