Þjóðviljinn - 18.03.1959, Page 10

Þjóðviljinn - 18.03.1959, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagnr 18. marz 1959 ------ ÚPtMl OSHÐ O/D MIPO oaf/ ^LUipimUU, Vi3 vegamót’ FramhaM af 7. síðu köllun né verið stærra í snið- um en yfirstandandi öld. Ó- neitanlega öld óttans, en um leið öld ómælanlegra mögu- leika. Það sem mestu varðar á næstunni er, hversu til tekst um hugkvæmni og hugmynda- auðgi mannkj'nsins i heild í leit þess að lausn hinna mörgu vandamála, sem ör- lögum ráða. En um árangur þeirrar leitar getur brugðið til heggja vona. Margir leggja mikið upp ' úr óttanum. Telja, að hræðsl- an við tortímingu muni nægja til þess að aftra mann- kyninu frá því að æða í glötunina. Og ekki skortir efni til þess að draga upp dökka og ægi- lega mynd af ófriði og eyði- leggingu til stuðnings þessu sjónarmiði. En nægir óttinn einn til þess að aftra mannkyninu frá því að ganga veginn til glötunar? Væri ekki vænlegra til árangurs að draga fram og benda á þá möguleika já- kvæðs eðlis, sem kjarnorku- öldin hefur í sér fólgna? Því skyldu ekki heilir skarar vísindamanna og sér- fræðinga setjast við að draga upp bjarta og jafnframt .á- reiðanlega og rannhæfa mynd af möguleikum á uppbygg- ingu nýs heims, sem skapa mætti með tilkomu kjarnork- unnar. Einkunnarorð slíkrar myndar mættu gjarnar vera: Sjá, þannig ef oss í dag fært að gjöra oss jörðina undirgefna. Mynd þessi, með öllum sín- um ævintýrablæ, yrði jafn- framt að vera þannig úr garði gerð, að hún stæðist gagnrýni, eins og um væri að ræða tilboð í meiri liáttar mannvirki, og mætti raunar líta svo á, að hér væri um tilboð að ræða, sem lagt væri fram fyrir alheim, en að til- boðinu stæði hinn öflugasti og traustasti aðili: Tækni og vísindi nútímans. Ættum vér nú ekki, menn tækni og visinda í öllum lönd- um heims, að leggja á það megináherzlu, að með einum eða öðrum hætti verði því til leiðar komið, að úrval tækni- og vísindamenn taki sér fyrir hendur að draga upp hugmyndariss, er sýni öllum iheiminum í stórum en skýrum dráttum, hvernig heimkynnj megi búa mann- kyni öllu á þessari jörð, þeg- ar tillit er tekið til allra þeirra möguleika, sem mann- kynið hefur nú yfir að ráða. Ættum vér ekki að telja það skyldu vora að leggja fram vorn skerf til þess að koma í veg fyrir, að heimurinn á þessum mikilvægu tímamót- um velji í blindni um hinar öriagaríku leiðir, sem fram- undan eru ? Er það ekki skylda vor að sýna fólki hvarvetna á jörðinni skýra mynd einnig af hinu bjartara hlutskipti, sem bíða kann allra, í skjóli nútímatækni og -visinda, ef mannkynið ber gæfu til þess að velja rétt? Á boðstólum höfum vér að vísu enga paradís á jörðu. Aðeins sæmilega vistarveru öllum mönnum. En jafnvel það á enn langt i land víða um heim. Engri kynslóð hafa nokkni sinni áður staðið opnir slíkir möguleikar sem nú. Aldrei áður hefði raunsæjum mönn- um með ábyrgðartilfinningu verið kleift að draga upp og ábyrgjast gildi jafnglæsilegr- ar framtíðarmyndar. Sú glæsilega framtíðarmynd, sem hér um ræðir, hefur jafn- framt I sér fólgið ómetanlegt siðferðilegt gildi. Bjartari vonir um markvissa viðleitni hugar og handa í þjónustu mannkynsins. Þetta siðferði- lega viðhorf varpar Ijósum bjarma á hina myrku baksýn hins verra hlutskiptis. Það mætti hugsa sér eftir- farandi lokaþátt í sjónleik, þar sem aðalsviðið væri jörð- in, og áhorfandinn væri ein- hversstaðar úti í himingeimn- um: Umhverfis jörðina í rústum, þar sem geislavirkni hefur eytt öllu, sem einu sinni var líf, sveima nokkrir ein- manalegir gervimánar. Hin lífvana jörð ber vitni auðnu- leysi mannanna, sem einu sinni áttu þar iheimkynni — og gervitunglin, sem sveima eftir brautum sínum, mynda einskonar sigurboga til minja« um frábæra — en misnotaða — tækniþekkingu og snilli jarðarbúa. Tjaldið fellur. Harmleikn- um er lokið. En mannkynið óskar ekki eftir slíkum lokaþætti. Það óskar eftir þvi, að örvænt- ing snúist 'í nýja von, að eigi verði lokaþáttur heldur Eftirtektarverð sýning Framhald af 4, síðu málarans og ber teiknikunn- áttu hans órækt vitni. Vel og kunnáttusamlega gerð- ar eru nokkrar temperalita- myndir frá ítaliu (71-81), lík- lega allar gerðar um sama leyti. Mann grunar þó, að þetta sé ekki eimnitt sá stílþ sem Kára hentar bezt. Hann nær betri og frumlegri árangri í mynd- um þeim sem áður voru nefndar. Sérkerinilegar eru myndirn- ar „Mosi“ (11), „Staksteinar“ (17) og „Septembermorgunn11 (24), einfaldar svipmyndir úr náttúrunni og þekkar á að horfa, þó að þær sýni hver um sig aðeins ofurlítinn blett mosagróins svarðar. „Vor“ (53) er þessum myndum eigi óáþekk. 1 henni er vorleg grænka, en þessari vorhygð er gjörspillt með aukaformum, sem ekki er sýnilegt, að hafi neinn sérstakan tilgang. Svip- að á sér stað um fjölda ann- arra mynda, sem þarna eru, og oft í ennþá ríkara mæli. Mikið af þeim má víst kalla nokkurs konar athuganir á yfirborðsáferð landsins. Mál- arinn tekur sér til fyrirmynd- ar lítinn flöt grassvarðar, hrauns, mels eða moldarbarðs og gerir að uppistöðu í mynd. Þetta er í sjálfu sér ágæt og einkar skemmtileg hugmynd, sem Kári ætti að geta gert sér miklu meira úr en þarna hefur tekizt. Flestar þessara mynda verða í rauninni að hálfgerðum óskapnaði fyrir þá sök að reynt er að teygja og toga þessar eðlilegu jarðvegs-' myndanir út í alls kyns ónátt- úrleg og lífvana abstrakt- form. Mynd eins og „Klofn- ing“ (46) verður til dæmis lítils verð sem listaverk þrátt fyrir kunnáttusamlegt hand- bragð, vegna þess að tengslin við náttúruna, sem myndin er sýnilega upp úr sprottin, verða þar ekki nógu sannfær- andi, en formin hins vegar allt of handahófs'eg til þess að geta út af fyrir sig veitt listmæta fullnægingu. Svipuðu máli gegnir um „Urð og grjót“ (57), „Haust“ (1), „Terra“ (3) og margar fleiri myndir. 1 myndum eins og „Fantasíu“ (60) eru öll tengsl við nátt- una úr sögunni, að því er séð verður. Þetta eru í raun og veru algerar „abstraktíónir“, lieldur ófróðJegar á að horfa og ruglingslegar í formum, þó að þær beri vitni um meiri leikni í meðferð pentils en reglustikumálverk þau, sem vér höfum átt að venjast hér í seinni tíð. Þessar og þvítim- líkar myndir kunna að hafa haft persónulegt gildi fyrir málarann, sem nokkurs kon- ar æfingariss, en þær eiga lítið erindi á opinbera mynida- sýningu. — Það, sem gerir þessa sýningu Kára Eiríkssonar svo lærdómsríka, er fyrst og ný byrjun. Vér, sem höfum helgað störf vor tækni og vísindum, höfum hlotið þá skyldu og köllun að sýna ‘heiminum hið fvrirheitna takmark, sem veitir lifinu tilgang. Vér erum þess megnugir að hefja upp merkið, sem glætt getur von- ir um nýja dagrenning. fremstþað, hversu hún leiðir manni tiltakanlega skýrt fyr- ir sjónir gæðamun náttúru- mynda og abstraktmynda eins og sama málara. Þegar Kári leyfir ásköpuðu listamannseðli sínu að fara sinna ferða, nær hann að skapa falleg og sér- kennileg listaverk, sem marg- ur ágætismálari gæti verið fullsæmdur af, þó að eldri væri í hettunni, en þegar hann fér lengra en góðu hófi gegnir í því að gjalda tízk- unni tollinn, þá er eins og honum vilji ekki verða neitt úr sínum góðu hæfileikum. Það má skilja, að ófrjó ab- strakt-stefna verði þrautaleníd- ing margra þeirra, sem ekki hafa hæfileika til annars, og hafa þó líka hæfileikamenn stundum orðið henni að bráð. Kári þarf áreiðanlega ekki á þessari þrautalendingu að halda, því að hann hefur neistann í sér. Og beztu myníd- ir hans sýna líka og sanna, að hægt er að vera nútíma- legur í myndgerð án þess að útskúfa sjálfu hinu lifanda lífi úr listaverkinu. Það, sem ég átti við, er ég fullyrti í upphafi, að þessi ungi málari ætti sigur vísan, ef hann reyndist sjálfum sér trúr, var einmitt það, að hon- um myndi vel farnast, ef hann gætti þess ávallt að hlusta eftir og hlýða hinni hljóðlátu rödd listeðlisins í brjósti sér, en láta hávaða- hróp tízkustefnunnar sem vind um eyru þjóta. Björn Franzson. KjördæmamáliS Framhald af 6. síðu ingur um það að ný kjördæma- skipun þurfi ,að tryggja full- komlega áhrif strjálbýlu hérað- anna á alþingi og landstjóm — aðeins ekki það að Framsókn- armenn í þeim héruðum fái alræðisvald! Hvað segja vinstrisinnað- ir menn um afturhalds- tillögurnar Innan Framsóknarflokksins eru sem kunnugt er til vinstri- sinnaðir, frjálslyndir menn. Ó- gæfa flokksins er hins vegar sú að þessi vinstrisinnuðu öfl hafa eftki fengið að ráða neinu heldur hefur hægrisinnuð klíka undir forustu Eysteins Jóns- sonar og með peningavald SIS að bakhjarli ráðið lögum og lofum. Það var hægri klíkan sem algerlega neitaði að semja við verklýðsflokkana um kjör- dæmamálið í tíð fyrrverandi stjórnar þvert ofan í hátíðleg loforð sín, og sú skammsýni olli mönnum miklum áhyggjum á flokksþingi Framsóknarflokks- ins. En í stað þess að flokks- fuJltrúar lærðu af reynslunni, hefur hægri klíkan auðsjáan- lega verið látin vaða uppi á flokksþinginu með svo fráleita afturhaldsstefnu að sJíks eru fá dæmi, og birtist það gleggst í hinum einstæðu tillögum um kjördæmamálið. Er ekki kom- inn tíma til að vinstrisinnaðir menn sem fylgt hafa Fram- sókn að málum læri af þessari reynslu?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.