Þjóðviljinn - 11.04.1959, Qupperneq 12
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir á miðvikudaginn
Túskildingsóperuna eftir B. Brecht
lón Sigurbjörnsson leikur aðalhlulverkið
Leiicfélag Reykjavíkur frumsýnir næsta miö'vikudags-
kvöld Túskildingsóperuna eftir Berthold Brecht, í þýö-
ingu Siguröar A. Magnússonar.
I>etta er fyrsti leikurinn eft-
lr Berthold Brecht sem sýndur
er hér á landi, en leikur þessi,
sem talinn er fræ.gasta verk
Brechts hefur verið míargsýnd-
ur í helztu leikhúsum ann-
arra landa.
Leikstjóri er Gunnar Eyj-
ólfsson. Aðalhlutverkið leikur
Jón Sigurbjörnsson og önnur
aðalhlutverk leika Brynjólfur
Jóhannesson, Sigríður Hagalín,
Steinunn Bjarnadóttir og Nína
Sveinsdóttir.
Hljómsveit leikur undir
stjórn Carls Billich. Magnús
Pálsson gerði leiktjöldin.
Leikurinn er í þrem þáttum,
tíu atriðum, og leikendur eru
margir, samtals 25. Efni leiks-
ins er sat’íra um Þýzkaland
eftir fyrri heimstyrjöldina, —
og verður nánar skrifað um
leikinn og höfund hans í Þjóð-
viljanum bráðlega.
Dalai Lama hittir
fulltrúa Nehrus
Dalai Lama kom í gær til
indverska bæjarins Bombila,
þar sem fulltrúi Nehrus af-
henti honum boðskap frá for-
sætisráðherranum. Indlands-
stjórn hefur varað fréttamenn
við að reyna að fljúga til
Bombila.
Indversk blöð segja að bár-
dagar haldi áfram milli kín-
verskra hersveita og skæru-
sveita Khampa-ættflokksins
bæði í Mið-Tíbet og vestur-
héruðum Kína,
Sókn oegn
o o
Adenauer
Sósíaldemókratar í Vestur-
Þýzkalandi hafa lýst yfir að
þeir að þeir muni beita öllu afli
til að hindra að Adenauer for-
sætisráðherra takist sú fyrirætl-
un að móta stjómarstefnuna úr
embætti forseta. Blaðafulltrúi
flokksins sagði i gær, að Aden-
auer gældi við þá hugmynd að
brjóta stjórnarskrána.
Flokksforinginn Ollenhauer
sagði í gær, að Adenauer
dreymdi um að verða vestur-
þýzkur de Gaulle, en það væri
ekki hægt að stjórnarskránni ó-
breyttri. Sósíaldemókratar hefðu
þingstyrk til að hindra að
stjómarskránni yrði breytt til
að fullnægja valdagræðgi Aden-
auers.
Úr Túskildingsóperunni, talið
frá vinstri: Árni Tryggvason
sem Matthías mynt, Jón Sigur-
björnsson sem Makkí hnífur og-
Sigríður Hagalín sem PoIIý
Peachun.
^Krossferð”
Billy Braliam
sýnd i KFUM
í lok samkomu, sem haldin
verður í húsi KFUM n.k. sunnu
dagskvöld, verður eýnd kvik-
mynd hins fræga Bandaríkja-
manns Billy Graham, eins
mesta prédikara þessarar ald-
ar. Þetta er alllöng mynd, sýn-
ing hennar tekur þrjá stundar-,
f jórðunga, og fjallar hún eink"
Framhald á 5. síðu
Ríkisarfa-
brúðkaup
Tvær milljónir og þrjú hundr-
uð þúsund manns söfnuðust
saman á götum Tokyo í gær til
að horfa á Akihito ríkisarfa og
brúði hans aka um borgina.
Fyrr um daginn hafði shinto-
prestur gefið þau saman í
hjónaband að engum öðrum við-
stöddum. Drottningarefnið, Mits-
iko Shoda, er af ótignu fólki
komin, og er þetta í fyrsta
skipti í 2000 ára sögu japönsku
keisarafjölskyldunnar sem hún
mægist við aðra en aðalsfólk.
Studentum boðið
til réttarhalda
Austurþýzka dómsmálastjórn-
in hefur boðið fulltrúum stúd-
enta í Vestur-Berlín að fylgjast
með réttarhöldum sem hefjast í
dag yfir stúdentum við tæknihá-
skólann í Dresden. Þeir eru sak-
aðir um að hafa safnað vopnum
með uppreisn í hyggju. Stúdent-
ar í Vestur-Berlín hafa ákveðið
að taka boðinu og senda þrjá
fulltrúa til Dresden.
Spasski vanit
Friðrik
f þriðju umferð á skákmótinu
í Moskva tapaði Friðrik fyrir
Spasskí eftir 39 leiki. Filip vann
Portich en jafntefli urðu hjá
Vasjúkoff og Smisloff og Lút-
ikoff og Bronstein. Aðrar skák-
ir fóru í bið.
REYKVf KINGAR!
Island — Atlanzhafsbandalagið
er fundarefni almenns borgarafundar, sem boðað er
til í Framsóknarhúsinu n. k. sunnudag kl. 2 s. d.
Ii'undarboðendur eru Æskulýðsfylkingin í Iíeykjavík,
Félag róttækra stúdenta og Sósíalisi(aí'élag Keykjavíkur.
Ræðmnenn verða:
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON,
KBISTINN KRISTMUNDSSON,
MAGNUS KJARTANSSON,
JÓN MCTJ ÁRNASON.
Nú eru tíu ár liðin sjðan fsland var fjötrað í Atlanz-
Jiafsbjamlalagimi, og eru Reykvíkingar hvattir til þess
að minnast þess á verðugan liátt með því að fjölmenna
á fundinn.
þlÓÐVILIINH
Laugardagur 11. apríl 1959 — 24. árgangur — 81. tölabiað.
Stöðva ber utvarp og sjón-
varp frá herstöðvunum
Jónas Ámason og Einar Olgeirsson ílylja á
Alþingi tillögu um málið
Jónas árnason og Einar Olgeirsson ilytjja
á Alþingi tillögu til þingsályktunar um a$
stöðva útvarps- og sjónvarpsrekstur I her-
stöðvum Bandaríkjanna hérlendis.
Er tiilagan þannig: Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að stöðva nú þegar utvarps-
og sjónvarpsrekstur í herstöðvum Bandaríkja-
manna hérlendis.
Tillögunni fylgir ýtarleg greinargerð, er
birt verður í heild hér í blaðinu.
Irak krefur Vesturveldin
hlutdelldar i olíufélagi
Ella verður hlutur Frakka þjóðnýttur í
þágu frelsisbaráttu Serkja
Vitnazt hafa kröfur sem íraksstjórn gerir á hendur
olíufélagi Vesturveldanna sem starfar í landinu.
Undanfarna daga hefur brezkur |
fulltrúi olíufélagsins Iraq Petro-
leum Company rætt við Kass-
em forsætisráðherra og fleiri
ráðamenn í írak.
B'öð í Vestur-Evrópu skýra nú
fré því að Kassem hafi tilkynnt
olíufélaginu, að íraksstjórn telji
óviðunandi að landsmenn eigi
engan hlut í olíufélagi, sem haft
hefur einkarétt t'l olíuvinnslu í
landi þeirra. Síðasta ár var írak
sjötta mesta olíuframleiðslu-
land jarðar.
íraksstjórn mun hafa lýst yf-
ir, að hún hafi í hyggju að
þjóðnýta hlut Frakka í olíufé-
Myndir tveggja
málara á Mokka-
kaffi
Tveir ungir málarar, Guð-
mundur Karl Ásbjörnsson og
Þorlákur R. Haldorsen sýna
þessa dagana nokkrar myndir
á Mokka kaffi á Skólavörðu-
stíg. Eru það olíumálverk,
pastelmyndir og teikningar.
Myndirnar eru til sölu og
eru gefnar upplýsingar um
verð og annað á staðnum.
Sprengjuþota
skotin niður
Flugher Pakistans tilkynnti í
gær að orustuþotur hans hefðu
skotið niður ókunna sprengju-
þotu af Canberra-gerð, sem
flogið hefði innyfir landið frá
Indlandi og engu sinnt skipun
að lenda.
Indverski flugherinn tilkynn-
ir að saknað sé Canberra-þotu
hans, sem verið liafi á æfinga-
flugi óvopnuð.
landinu. Evrópsku blöðin segía.
að íraksmenn ætli að verja af-
rakstrinum af þessum hlut til að
styðja sjálfstæðisbaráttu Serkja
í Alsír gegn Frökkum.
Þegar ráðamenn olíufélagsins
hreyfðu mótmælum, á Kassem
að hafa tilkynnt þeim, að einn-
ig komi til greina að alUr nú-
verandi eigendur félagsins af-
sali sér hluta af hlutafjáreign
sinni í hendur fraksstjórnar.
Auk Breta og Frakka eiga Hol-
lendingar og Bandaríkjamenn
hluti í félaginu.
Frönsk og brezk blöð segja,
að íraksstjórn hafi nú sett Vest-
urveldin í slæma klípu. Ann-
aðhvort verði Bretar, Hollend-
ingar og Bandaríkjamenn að
styggja Frakka eða sætta sig
við að missa spón úr aski sín-
um ásamt þeim. Hver þessara
fjögurra aðila á 23% % hluta-
fjár i Irakolíufclaginu.
Hæstu vinningar í
happdrætti Há-
skólans
Dregið var í gær í 4. fl. í
Happdrætti Háskólans. Vinning-
ar voru 896, samtals I millj.
155 þúsund kr.
Hæstj vinningurinn, l®0 þús.
kr. kom á nr. 20355, heilmiða er
seldur var í umboði Guðrúnar
Ólafsdóttur Bandastræti 11. 50
þús. komu á nr. 49348 hálfmiða,
annar helmingurinn séldur í
Bankastræti 11 en hinn i Ólafs-
vík.
10 þús. kr. konni á eftirtalin
nr: 13607 17725 18387 30.683
34629 42933 45270.
5 þús. kr. komu á eftirtalin
nr: 1361 1504 16055 20354 20356
22285 27256 28845 31946 36P38
40355 41942. (Birt án ábyrgðar.)’