Þjóðviljinn - 19.04.1959, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.04.1959, Qupperneq 5
Sunnudagur 19. apríl 1959 — ÞJÓÐVILJINN (5 Rúnakeili irá dögum Eiríks rauða iannst nærri bæ hans KæHbcro til söin Amérískt kæiibcrð (iHillJ 4,2 m. að lengd til sýnis ÍHh, i Knattspymufélagið Þróttur 'heldur hlutaveltu í Skátaheimilinu við Snorrahmit. Þúsundir góðra muna. Ekkert Irappdrætti. Ef iþér hljótið stóran \inning getið þér haft hann með yður heim. Knattspyrnutélagið ÞRÓTTUR. Rannsókn oð verSa lokið á rústum bœjar landnámsmanns nœrri BrattahliS Tilboð óskast 'í nokkrar fólksbifreiðar er verða til sýnis á Skúlatúni 4, mánudaginn 20. þ. m., kl. 1 til 3. Tilboðin verða oþnuð í skirfstofu vorri kl 5 sama dag. Nauðsynlegt er að taka fram símanúmer í tilboði. .ikjtXKj um Sölunefnd varnarliðseigna. FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS sími 23691. Drekkið sunnudagskaffið í hinum glæsilega veitingasal okkar. Opið alla sunnudagafrá kl. 3 til 11:30 e.h, DANSAÐ frá kl. 9. — RONDO-kvartettiim leikur. ittunda greinin samþykkt í Genf I gær tókst samkomulag á ráðstefnu kjarnorkuveldanua þriggja'Um áttundu greinina í sáttmálanum um stöðvun til- rauna með kjarnavopn. Rúnakefli frá síöustu áratugum tíundu aldar hefur fundizt í bæjarrústum skammt frá Brattahlíö, land- námsbæ Eiríks rauöa á Grænlandi. Rúnakeflið fannst 1953, þeg- ar Christensen sláturhússtjóri í Narssaq eunnarlega á vestur- j strönd Grænlands ætlaði að; taka mold úr gamaili hústóft í kálgarð. Siðan keflið fannst hafa farið fram fornminjarann- sóknir á staðnum, og þeim lauk í fyrrasumar. Torráðinn Rúnimar á stafnum hafa reynzt torráðnar, en gerð rúnanna og málið hefur komið rúnafræðingum á þá skoðun að þær hafi verið ristar á síðustu áratugum tíundu aldar, um það leyti sem Grænland var numið. Narssaq er í Eiríksfirði, sem Grænlendingar nútímans kalla, Tungdliarfik. Rústirnar sem geymdu rúnastafinn hafa reynzt vera bæjarrústir, og fornminjafræðingamir gera ráð fyrir að þar hafi búið einhver af félögum Eiríks rauða, sem settist að í Brattahlíð innar í firðinum. íslenzkt byggingarlag Við uppgröft hefur komið í 1 jós að bærinn hefur verið byggður á sama hátt og íslenzkir bæir úr hnullungssteinum með torfi á milli laganna í hleðslunni. Þrátt fyrir margvíslega erfið- leika sem fylgja því að grafa upp rústir torfbæja, hefur dönsku fomminjafræðingunum tekizt að komast að raun um upphaflega húsaskipan, og hef- ur það ekki tekizt annarsstaðar á Grænlandi við uppgröft á hí- býlum Grælendinga hinna fomu. Bærinn hefur verið skálabyggður og herbergi fjög- ur eða fimm. Húsið hefur stað- ið í hlíð með miklum vatnsaga Lótusbúðin 1 dag er tízkan Teddy- klæði. og hafa hugvitsamlegir frá- rennslisskurðir undir gólfinu veitt vatninu burt. Ekki er útilokað að vatn til neyzlu hafi runnið í húsið eftir þessum skurðum. Iljalt og örvaroddar Búið hefur verið i bænum svo kynslóðum skipti, það má marka af því að eldstæðið hef- ur verið hækifáð hvað eftir annað eftir því sem gólfskánin Átta krabha- valdar í síga- rettum Tveim bandarískum vís- índamönnum hefur tekizt að einangra úr sígarettureyk tvö efni sem geta valdið krabbameini, í viðbót við önnur sem áður voru kunn. Sloan-Kettering krabba- meinsrannsóknarstofnunin hefur skýrt frá þessu. Efnin tvö era bæði af bensóflúor- enten-flokknum og hafa við tilraunir reynzt valda húð- krabba á músum. Þar með er búið að einangra úr siga- rettureyk samtals átta efna- sambönd, sem sannanlega geta valdið krabbameini. Þau eru öll það sem efna- fræðingar kalla pólisíklísk kolvetni. Visindamönnunum tveim tókst að vinna hreina ben- spíren-kristalla úr reyk af 3000 sígarettum. Þeir segj- ast hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að magn krabba- valda sem myndast við sígarettubruna fari eftir þvi hve hraður braninn er og hitastigið hátt í glóðinni. þykknaði. Bærinn hefur þó farið snemma í eyði. C. L. Vebæk safnverði, sem stjórnaði rannsóknunum, þykir mest koma til tvennskonar gripa úr landnámsbænum, auk rúnastafsins. Annar gripurinn er sverðs- hjalt úr tré, eftirmynd sverðs- gerðar frá 11. ö’d. Annaðhvort hefur þetta verið vefjarskeið eða leikfang einhvers barns, sem ólst upp við Eiríksfjörð fyrir 900 árum. Þarna hafa líka fundizt örv- aroddar úr hreindýrshorni, sem Vebæk telur tvímælalaust til elztu gripa sem fundizt hafa í byggðum Grænlendinga hinna fornu. Þeir afsanna að hans dómi kenningu um að notkun hreindýrshorns sé merki um hnignun. Oddarnir bera með sér að járnskortur var snemma á Grænlandi (menjar um rauða- blástur fundust í bæjarrústun- um í Narssaq) og bera einnig vitni glöggu skyni á notagildi þess efniviðar sem völ var á. Vart er völ betra efnis í örvar- odda en hreindýrshoms. í Narssaq hafa fundizt rústir af ýmsum útihúsum, en ekki hefur fengizt fé til að rann- saka þær til hlítar. Það vorar í verzlun félagsins að Vesturgötu 15. Tilboð sendist á skrifstofu félagsins Skólavörðustíg 12 fyrir 23. þessa mánaðar. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis. er vandlátra val. Vfa?ífnr? U ijy>ry»' |V«J Hafnarfirði. Bidstrup teiknaði t e d d y

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.