Þjóðviljinn - 19.04.1959, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 19.04.1959, Qupperneq 11
Sunnudagur 19. april 1959 — ÞJÓÐVILJINN —• (11 BUDD SCHULBERG „Fyrst hann fer svona í taugarnar á þér, hvers vegna læturðu hann þá ekki fara í stað þggs að gefa honum kauphækkun?“ sagði ég með miklu miskunnarleysi, þótt ég vissi að samvizkubit myndi ekki halda fyrir mér vöku, því að þúsundir jafnaldra hans hefðu gleypt við starfinu í hans stað, og ég hafði séð nóg af Samma til þess að vera áhyggjulaus um það að hann sylti aldrei í hel. En aðalritstjórinn brosti og sagði: „Nei, ég hata í honum frekjuna engu síður en þú, en ég er ekki að stjórna vinsældasamkeppni; ég rek fyrirtæki og Sammi vinnur á við tíu hlaupastráka.“ „Þú misskilur mig,“ sagði ég. „Eg hata ekki í honum frekjuna. Hann er ekki svo þýðingarmikill að það taki því að hata hann. Hann er ekki annað en einn ormurinn enn, sem maður hefur ekki brjóst f sér til að stíga ofan á. Hvers vegna í fjandanum heldurðu að hann sé nógu merkilegur til þess að ég fari að eyða tíma og orku í að hata hann?“ „Fyrst hann skiptir svona litlu máli, hvers vegna ertu þá að hleypa þér í æsing út af honum?“ spurði hann og ég varð að viðurkenna að hann hafði mikið tilf síns máls. Síðan Sammi ruddist inn á skrifstofuna fyrir rúmu ári, hafði ég reynt allar hugsanlegar aðferðir til að sigrast á honum. Eg hafði reynt föðurlega gagnrýni. Eg hafði sýnt honum ópersónulegt umburðarlyndi eins og fyrirmyndar meistari sýnir lærlingi. Eg hafði upp- örvað hann. Eg hafði haldið yfir honum fyrirlestra um mannúð og hjartagæzku. Eg hafði móðgað hann. Eg hafði beitt við hann kulda og þögn. Eg hafði safnað glóðum elds að höfði hans. Eg hafði beitt fyrir mig sál- fræði og ég hafði reynt að taka háðið í þjónustu mína. Einu sinni hafði ég meira að segja lagt hendur á hann. En eftir tólf mánuði með Samma Glick hafði mér ekkert orðið ágengt. Eg get ekki skýrt það út, en í hvert skipti sem ég horfði á hann nú orðið, fékk ég kjmlega van- máttarkennd, rétt eins og í drykkjudraumum, þegar voða- legt skrímsli eltir þig og því hraðar sem þú hleypur burt, því meira nálgast skrímslið. Eg skildi þetta ekki. í fyrsta lagi var ég ekki búinn að átta mig á honum, og í öðru lagi var mér ekki ljóst, hvers vegna mér var svona nauðsyn- legt að átta mig á ómerkilegum vikastrák, og í þriðja lagi botnaði ég ekkert í hvers vegna ég hirti hót um þetta tvennt fyrrnefnda. Eg veit að þetta lætur brjálæðislega í eyrum, en þannig var mér innanbrjósts. Þegar Sammi var að grafa undan mér. En allir þessir erfiðleikar voru á eina hlið. Sammi virtist dafna og blómgast. Hann hvikaði ekki um hárs- . . „ . , -v , . . Agnes Guðmunda brerdd í styrjoldinm sem hann haði við umheimmn, og Hverfisriitu hann var að þroskast, og verða fullkominn. En það var þó ekki þroski í venjulegum skilningi. Það var einka- þroski Samma Glick. Honum fylgdi ekki aukinn skiln- ingur eða vaxandi umburðarlyndi. Þroski Samma táknaði aðeins ákveðnari og sterkari persónueinkenni,-sem voru farin að trufla alla sem komust í snertingu við hann. Hann virtist sleppa við allar efasemdir hörundsnabba Qg viðkvæmni sem þeim fylgja, innhverfuna, andlega og líkamlega vaxtarverki þessa tímabils, og hann gat fleygt frá sér bernskunni og íklæðst brynju manndómsins jafn erfiðleikalaust og leikmær sem skiptir • um búning. Sí- kvika kattarandlitið hans fór að taka á sig fastara form, þunnar varirnar komust í fastar skorður, nefið stækkaði en var þó enn beint og hvasst og afsannaði með því and- gyðinglegar teikningar af króknefum, og ásamt kvikum, dökkum augunum og spenntu enninu gaf það honum svip yfirlætis og einbeitni, og andlitið í heild minnti á herdeild, öfþaga, sterka, samvirka og hiklausa. Fyrstu öruggu merkin sem ég fann um það að Sammi væri að verða fullorðinn, voru þau að hann kom til mín og tilkynnti að hann væri nú reiðubúinn til að taka að sér að sjá um útvarpsþátt blaðsins. Auðvitað skipti það engú máli fyrir hann, að blaðið hafði aldrei haft neinn út- varpsþátt. „Og af hverju markarðu það, að þú sért reiðubúinn til að gerast sérfræðir\>ur í málefnum Marconis?“ sagði ég. „Hvers vegna taldirðu sjálfan þig sérfræðing í leik- húsmálum?" sagði hann. Eg þagnaði við. „Það kemur ekkert því máli við,“ sagði ég. „Eg hafði margar ástæður.“ „Svo sem eins og hverja,“ sagði Sammi. Eg veit ekki hvers vegna ég lét illa launaðan strák- kettling rekja úr mér garnirnar, en svona var ég. „Tja, í fyrsta lagi,“ sagði ég, „hafði ég alltaf áhuga á leiklist. Eg hef séð mjög mikið af leikritum." „Og ég hef líka hlustað mikið á útvarpið,“ sagði Sammi. „Það er ekkert aðalatriði," sagði ég. „Allir hlusta á útvarpið.“ „Þess vegna vantar einmitt dálk um útvarpið," sagði Sammi. Þetta þótti mér skrýtið. Þarna bessi vikapiltur að sækja um að fá að skrifa útvarosdálk sem var ekki til, og ég var bókstaflega kominn í vörn. „Heyrðu mig,“ sagði ég. „Þú ert oV-; ^rGga banginn að trufla mig í vinnunni til að tala um annað eins og þetta.“ „Allt í lagi,“ sagði Sammi. „Þú skaú Vwa meta meira þína eigin hagsmuni en velferð blaðsirs.11 Það var hæfilega mikið vit í þe'-si til þess að koma mér af stað aftur. Þetta var orðið eitt af eftir- lætisbrögðum Samma. Hann gekk svo langt að forvitni manns vaknaði, því að maður trúði því tæplega að nokk- ur gæti verið svona óskammfeilinn. Ot í stað þess að senda hann út, eins og ég hefði átt að gera, tók ég áskoruninni. „Þykist þú vera þess um- kominn að tala um velferð blaðsins?" sagði ég. „Hvað kemur velferð blaðsins þessu við?“ Fermingar í dag Framhald af 2. síðu. 15, Gísli Jón Helgason Mið- túni 36, Guðmundur Ágúst Aoalsteinsson, Grettisgötu 33B, Guomundur Ágústsson, Sel- vogsgrunni 19, Helgi Baldvins- son, Langagerði 128, Ingimar Sigurðsson, Eskihlið 11, Jens Guðmundsson, Hátúni 9, Jón Emilsson, Bergstaðastræti 21B, Magnús Bergmann Ásgeirsson, Bergstaðastræti 59, Magnús Ingimundarson, Kárastíg 6, Páll Snædal Kristinsson, Rauð- arárstíg 3, Sigurjón Kristjáns- son, Bogahlíð 15, Vilmar Haf- stein Pedersen, Skúlagötu 72, Þórður Skúlason, Skaftahlíð 3, I'orleikur Karlsson, Heiðar- gerði 78, Þorsteinn Magnússon, Granaskjóli 30. Fermingarbörn í Dómkirkjunni, suniuid. 19. apríl kl. 2 (Séra Óskar J. Þorlákson). Bæjarpósturiim Framhald af 4. siðu heppilegast værj að verzlan- irnar sæju sjálfar um að tengja raftækin, sem þær selja.“ Pósturinn veit ekki hvað er leyfilegt og hvað ekki i þessu efhi, yfirleitt virðist mér það ákaflega mikið á reiki hér, hvað er leyfilegt, hvað fólk hefur rétt til að gera, o. s. frv. En mér fhinst eins og bréfritara, að raf- tækjaverzlanir ættu ékki að selja raftæki ótengd, slíkt leiðir oft til þess, að kunn- áttulausir og rétt miðlungi handlagnir menn fara að fikta við að tengja þau sjálfir, og- það getur hálfeyðilagt dýr tæki. Þá skal ég geta þess, að þegar ég hef keypt raf- tæki, hef ég sjaldnast getað fengið snúru, kló og annað sem þarf til að tengja þaö, í sömu verzluninni og ég’ keypti tækið, og finnst mér það heldur klaufalegt. Ef maður kaupir t. d. raflampa, þá segir sig sjálft, að maður þarf að fá snúrru í hann og kló til að setja harin í sam- band, og auðvitað er eðli- legast, að maður geti keypt þetta allt í sömu búðinni. Stúlkur: Jónsdóttir, 59. Ásta Droplaug Björnsdóttir, Brávallagötu 48. Ása Sólveig Guðmundsdóttir, Hagamel 27. Björk Jónsdóttir, Hraunbraut 8, Kpv. Edda Her- bertsdóttir, Flókagötu 6. Elísa- bet Sigríður Ottósdóttir, Hring- braut 78. Erla Sigrún Sigurðar- ardótir, Veghúsastíg 9. Elsa Smith, Miðstræti 3. Erla Ólöf Ólafsdóttir, Bragagötu 25. Ester Gísladóttir, Selbúð 8. Guðlaug Adolfsdóttir, Túngötu 35. Guðlaug Ragnarsdóttir, Grettisgötu 10. Guðný Eygló Valtýsdóttir, Suðurlandsbraut 98. Guðrún Þorsteinsdóttir, bræðraborgarstíg 31. Hanna B. Jóhannsdóttir, Ásgarði 19. Helga S. Hafsteinsdóttir, Hring braut 90. Ingibjörg S. Gunnars- dóttir, Kaplaskjólsv. 64. Jó- hanna Guðnadóttir, Öldugötu 11. Málmfríður Skúladóttir, Vesturg. 66/ Ragna J. Hall, Réttarhóltsvcgi 29. Ragnheiður Hálfdána rdóttir, 1 Hallveigarstig 10.:.4- Sigurborg Sigurbrandsd., Rauðalæk 37. S grún Á. Þórar- insdóttir, Leifsgötu 23. Stein- unn Pétursdóttir, Hraunbraut 1, Kópv. Svava Þórhallsdóttir, Laufásvegi 45. Unnur Ferseth, Veeturgötu 9. Drengir: Björn Zophónías Ketilsson, Rauðalæk 11. Eiríkur Þorsteins- son, Bræðaborgarstíg 31. Frið- rik Örn Weisshappel, Laufás- vegi 54. Garðar Briem, Tjarn- argötu 28. Garðar Valdimars- son, Heiðagerði 66. Hafsteinn Tómasson, Vesturgötu 68. Hall- kell Þorke’sson, Grettisgötu 31. Heimir Lárusson, Grettisgötu 71. Ingvar Ág. Guðmundsson, Kársnesbraut 45. Jónas Hall- grímsson, Ásvallagötu 4. Krist- ján Hafþ. Helgason, Hverfisg. 92A. Oddur Þórh. Þórðarson, Ilofsvallagötu 15. Pétur Ragn- ar Jónsson, Reynimel 31. Stan- ley Páll Páisson, Hverfisgötu 70B. Sverrir Sæmundss., Holts- götu 37. Þórir Hafberg Stefáns- son, Reykjavikurvegi 27. Ferming í Hallgrímpkirkju sunnudaginn 19. apríl kl. 2. e.h. Séra. Sigurjón Þ. Árnason. Stúlkur: Ásdís G. Þorsteinsdóttir, Laug- arásvegi 47. Ásta Þ. Ragnarsd., Glaðh. 26. Ástríður Hauksdótt- ir, Grettisgötu 69„Rá*a:Gíslad., Snorrabraut 81. Elín Þ. Björns- dóttir, Mánagötu 7 Keflavík. Guðbjörg Jakobsdóttir, Klepps- vegi 4B. Guðrún Egilsson, Auð- arstræti 15. Kristín Guðmunds- dóttir, Miklubraut 5. Margrét Lovísa Jónsdóttir, Mánagötu 7. Drengir: Agnar Friðriksson, Leifsgötu 26. Baldur Valgeirsson, Austur- bæjarskólanum. Bjarni Sigurðs- son, Skúlagötu 52. Gunnar H. Antonsson, Eskihlíð 8. Ragn- ar Kjæmested, Eskihlið 8. Þor- steinn Nielsen, Suðurlandsbraut 75A. öm Hjaltalín, Flókag. 15. N Ý K 0 MIÐ ailt mögulegt fyrír hárið. Hárcreme Hárlanolin Há-'akk ITárj giiingavökvi Ilárlitur Hárspeniiur Hárclips Iíárnet Ilárgreiður Hárspangir Hárilnivöín Rúllur í liár Sliaiiiþoo r— mikið úrval meðal annars Banbox krem Banbox shampoo — fj’rir feitt og þurrt hár Poly colonr — öll númer Höfum nú mikið úrval af varalit, — einnig ekta varalit. i Day De\v — make np. Snyrtivönibúðin, Laug&vegi 76. Sími 1-22 - 75. '

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.