Þjóðviljinn - 19.04.1959, Side 12
Ameriskur sverfingjakvintett syngur
fyrir blinda
Blindraheimilið við Hamrahlíð á að róma allt
blint íólk á landinu sem þarínast slíks heimilis
Blindrafélagið hefur nú í byggingu fullkomið' blindra-
heimili við Hamrahlíð. Fullbyggt á það að verða nægt
húsnæði fyrir allt það blint fóik á landi hér sem dvelja
þarf á blindraheimili. Félag þetta er fámennt og að
vonum félítið. Það hefur nú íengið amerískan svertingja-
kvintett til að syngja hér, og skal ágóðinn renna til
byggingar blindraheimilisins.
Söngkvintett þessi nefnist
Five Keys, skipaður fimm svert-
ingjum. Hann er talinn einn
hinn vinsælasti söngkvintett
Ameríku nú um stundir. Hann
hefur sungið inn á plötur sem
náð hafa metsölu, en mun þó
vera fremur lítið þekktur hér á
landi. Þeir munu syngja jöfnum
höndum „sígild“ dægurlög og
„rokklög", og ættu því flestir
að geta hlustað á þá sér til á-
nægju.
Hljómleikar þessa kvintetts
hefjast hér á vegum Blindrafé-
lagsins að kvöldi 1. maí í Aust-
urbæjarbíói. Það kvað hafa ver-
'ið tilviljun ein að þeir fengust
"hingað nú, sú tilviljun að húsið
sem þeir voru ráðnir til að
syngja í brann, svo þeir gátu
notað tímann er Þeir voru ráðn-
ir þar til þess að skreppa hing-
að.
Félag blinda fólksins
Blindrafélagið er félag blinda
fól\sins sjálfs, eins og nafn
félagsins ber með sér. Að vísu
eru sjáandi menn í því einn-
ig, blinda fólkinu til aðstoðar,
en stjómina skulu skipa blind-
ir menn að meirihluta. Félagið
er um 20 ára gamalt, stofnað
19. ágúst 1939, og er tilgangur
þess að vinna að hverskonar
hagsmuna og menningarmálum
blindra manna.
í fyrradag ræddu blaðamenn
við nokkra úr stjórn félagsins,
og lét þá Benedikt K. Benónýs-
son, hinn blindi formaður fé-
lagsins í té eftirfarandi upplýs-
ingar um félagið og starfsemi
þess.
Vinnustofa stofnuð
Rúmum tveimur árum eftir að
félagið var stofnað eða 1. októ-
ber 1941 stofnaði það vinnustofu
fyrir blint fólk. Hún var fyrst
í leiguhúsnæði á Laugaveg 97.
Þann 27. desember 1943 keypti
félagið húsið Grundarstíg 11.
Var vinnustofan skömmu síðar
Kvæðalestur Jóns
Helgasonar próf.
Ákveðið er að prófessor dr.
Jón Helgason lesi upp úr
kvæðasyrpu sinni frá 17., 18.
og öndverðri 19. öld þriðjudag-
inn 21. apríl kl. 8,30 e. h. í
hátíðasal háskólans. Hann hef-
ur um margra ára skeið rann-
sakað kvæðahandrit frá þessu
tímabili og skrifað upp það,
sem honum hefur fundizt at-
hyglisvert. Áheyrendur munu
fá að heyra úrval þessara
kvæða.
Öllum er heimill ókeypis að-
gangur.
flutt í það hús og hefur verið
þar síðan.
Á vinnustofunni vinna nú
unnar hefur gengið mjög vel.
Hún hefur vérið rekin með
hagnaði að einu ári undanskildu.
Tekjuafgangur rennur að mestu
til blinda fólksins á vinnustof-
unni sem kaupuppbót þegar árs-
reikningar hafa verið gerðir
upp.
Þrengsli tiifinnianleg
Húsið á Grundarstíg 11 hefur
nú á annan áratug verið eins
konar Blindraheimili. Þar búa
nú fjórir blindir karlar og tvær
blindar konur. Því fer þó fjarri,
að hús þetta sé hentugt fyrir
blindraheimili. Það er bæði of
Söngk\intettinn „Flve Keys“
fimm blindar konur og fjórir | lítið og að ýmsu leyti gallað.
blindir karlar. Aðalframleiðslan Því fylgir td. nær engin lóð.
er burstar, bæði handunnir og Þrengsli eru mjög tilfinnanleg á
vélunnir. Blinda fólkið vinnur; vinnustofunni, svo að tæplega
sjálft við ýmsar vélar á vinnu-
stofunni. Starfræksla vinnustof-
er unnt að fjölga þar fólki þó að
Framhald á 3. síðu
Birkikolin frá Bergþórshvoli
reyndust vera frá 840-1040
í byr jun þessa árs voru kolað-, sem ætla mátti um aldur bruna-
ir birkibútar, er fundust við lagsins af legu þess í jarðlögun-
uppgröftinn á Bergþórshvoli
1951, sendir aldursgreiningar-
sfofnun danska Þjóðsafnsins.
íslenzka Þjóðminjasafnið, sem
sendi búta þessa hefur nú feng-
ið niðurstöðu rannsóknar þeirr-
ar og hefur mæling á geisla-
virku koli (kolefni-14) í sýn-
ishorni þessara kolabúta leitt
til þeirrar niðurstöðu, að við-
komandi birkitré hafj vaxið
innan árabilsins 840—1040. Ná-
kvæmari aldursgreining fæst
ekki með þessari aðferð enn sem
komið er. En niðurstaða þessi
kemur mjög vel heim við það
4 ára drengur fyrir bíl
Á ellefta tímanum í gærmorg-
un varð 4 ára gamall drengur,
Gunnar Rúnar Oddgeirsson, fyr-
ir bifreið á Suðurlandsbraut,
inn við Langholtsveg. Mun
drengurinn hafa hlaupið skyndi-
lega út á akbrautina í veg fyr-
ir bílinn, sem ekið var um göt-
una í sama mund. Hlaut dreng-
urinn nokkur meiðsl en þó ekki
alvarleg.
um og hlýtur að auka Hkurnar
fyrir því, að fjósið hafi brunnið
í Njálsbrennu.
(Frétt frá Þjóðminjasafninu)
þJÓÐVILIINN
Sunnudagur 19. apríl 1959 •— 24. árgangur — 88. tölablað.
Stöðugar yíirheyrslur hjá lögregl-
unni út af greiuum „Borgaraa
/
Lögreglustjóri heldur áíram að sanna í verki
að hann er óíær um að gegna embætti sínu
Stanzlausar yfirheyrslur hafa nú verið innan lög-
reglunnar vikum saman í tilefni af greinum þeim sem
birzt hafa hér í blaöinu eftir „Borgara" og hafa yfir-
menn lögreglunnar beitt hinum furö'ulegustu aöferðum
í því sambandi.
I greinum „Borgara“ var emb-
ættisfærsla lögreglustjóra gagn-
rýnd harðlega og rakjn ýms
dæmi sem sýndu að hann er
engan veginn starfi sínu vax-
inn. Svo mikjll kunnugleiki um
embættið kom fram í greinum
þessum að yfirmenn lögreglunn-
ar töldu víst að þær væru skrif-
aðar af starfandj lögregluþjóni.
Og samvizkan var ekki betri en
það að í stað þess að svara
greinunum var farið að njósna
um afstöðu lögreglumanna til
yfirboðara síns, ef unnt væri að
stöðva skriffn með ofsóknum
og hótunum. Hefur Þjóðviljjnn
áður skýrt frá undirskriftasöfn-
un þeirri sem lögreglustjóri
gekkst fyrir til að njósna um
afstöðu lögreglumanna og hvern-
ig lögreglumenn mótmæltu þeim
á eftirmjnnilegan hátt er nær
helmingur þeirra skilaði auðum
seðlum við kosningu stjórnar í
lögreglumannafélaginu, þar sem
Erlingur Rálsson handbendi lög-
reglustjóra var í kjöri.
KÓPAVOm&U^
Sésíalistaiélaj Képavogs
Árshátíð félagsins verður
haldin n.k. miðviluidag —
(síðasta vetrardag) í fé-
lagsheimili Kópavogs. Nán-
ar í Itriðjudagsblaðinu.
Málfuiulaliópurinn kemur
sanfan annað kvöld (mánu-
dag) kl. 9 að Digranesvegi
43. Umræðuefni: Bæjarmál.
Þar sem þetta verður síð-
asti málfundurinn } vetur,
er þess vænzt að allir, sem
verið hafa með, mæti á
fundinum.
Undirskriítasöfnun Birgis stöðvnð
Harðvítugar deilur í
íhaldsins í Reykjavík
flokksklíkum
Eftir þau málalok slumaði
nokkuð í lögreglustjóra um
skeið. En síðustu vikurnar hefur
hann enn færzt í aukana, og
hafa yfirheyrslur farið fram svo
til daglega, svo klukkutímum
skiptir á dag. Hafa Ólafur
Jónsson fulltrúi og Erlingur
Pálsson yfirlögregluþjónn fram-
kvæmt yfirheyrslumar og hafa
reynt að fá lögre|;luþjóna þar
til að vitna hvem gegn öðrum,
beitt hótunum og hvers kyns ó-
sannindum. Þrátt fyrir allan
fyrirganginn hafa þeir þó auð-
vitað ekki orðið neins vísari.
Þessjr ofsóknai-tilburðir eru
enn eitt dæmi um þáð að lög-
reglustjóri er gersamlega óhæf-
ur til að gegna starfi sínu. Of-
sóknjr hans eru brot á öllum
þejm reglum sem gilda urn rétt-
indi opinberra starfsmanna, og
lögreglumenn eiga ekki að þola
að þeir séu þannig leiknir. Hafi
eitthvað rangt verið í greinum
þeim sem Þjóðviljinn birti bar
lögreglusljóra að leiðrétta það.
Hafi greinamar að einhverju
leyti brotið í bága við lög, er
aðejns einn maður ábyrgur lög-
um samkvæmt: ábyrgðarmaður
Þjóðviljans. Lögreglustjóri hef-
ur hjns vegar forðazt að ræða
nokkuð við ritstjóra Þjóðviljans.
Lögreglu^tjói'i telur (Síig ekki
varða um nildand j lög; ætti
hann þó að minnast þess að hon-
um og félögum hans í nazista-
flokknum mistókst að koma hér
á þeiitri einræði^löggjöf sem
hann dáði og dáir.
V1
Eins og Þjóðviljinn skýrði
frá fyrir nokkrum dögum hóf
Birgir Kjaran ujndjrskriÉa-
söfnun þar sem skorað var á
forustu Sjálfstæðisflokksins að
tryggja honum öruggt sæti á
listanum í Reykjavík. Beitti
hann einkanlega fyrir sig Óð-
insmönnum, og var m. a. safn-
að undirskriftum hjá Eimskipa-
félagi íslands — en rætt hef-
ur verið um Birgi sem væntan-
legan framkvæmdastjóra þess!
Var svo mikið kapp í söfnun-
inni að meira að segja póli-
tískir andstæðingar Sjálfstæð-
isflokksins vt)ru grátbeðnir að
verklýðsfulltrúann
-styrkja
Birgj.
En þegar Þjóðviljinn skýrði
frá þessari iðju varð mikið
fjaðrafok innan Sjálfstæðis-
flokksins. Andstæðingar Birgis
urðu ævareiðir og kröfðust
þess að þegar yrði bundinn
endir á söfnunina. Eftir mikjl
fundahöid í innstu klíkunni,
heitingar og skammir urðu
þeir ofan á og undirskrifta-
söfnunin var bönnuð. Hafa list-
arnir nú verið kallaðir inn, en
agentar Birgis verið teknjr til
yfirheyrslu og hlotið harðar á-
kúrur.
55 milljónir -
förnum vegi”
Undanfarið hefur Gestur Þor-
grímsson o. fl. verið með í út-
varpinu þáttinn: Á förnum vegi.
Hefur hann fjallað um umferð-
armál, orsakir umferðarslysa og
afleiðingar þeirra. Þátturinn
hefur vakið almenna athygli, —
og vonandi hafa margir af hon-
um lært. —
Á sl. ári greiddu tryggingafé-
lögin 28 millj. kr. í bætur fyrir
bifreiðatjón. Er þá otalið það
sem þeir er í árekstrum lentu
hafa þurft að greiða sjálfir. Er
því varlega áætlað að landsmenn
hafi á s.l. ári þurft að greiða
um 55 millj. kr. fyrir bifreiða-
tjón. Mikið af þessari upphæð
er í erlendum gjaldeyri, og tug-
ir manna eru teknir frá lífræn-
iim störfum til þess að bæta
fyrir óaðgæzlu og skeytjngar-
leysi, en þær munu langoftast
orsakir bifreiðaárekstra.