Þjóðviljinn - 29.04.1959, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 29.04.1959, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 29. apríl 1959 Til skiptis í Karlovy VaryogMoskvu Mörg nndanfarin ár hefur verið efnt til alþjóðlegrar 'kvikmyndahátíðar í Karl- ovy Vary í Tékkóslóvakíu, heilsulindaborginni frægu sem ýmsir kannast ef til vill betur við undir þýzka nafninu Karlsbad. Hátíð þessi hefur ja.fnan þótt einn merkasti viðburður hvers árs á sviði kvikmynda og kvikmyndagerðar, enda fjöl- sótt af leikurum, leikstjór- um og öðrum kvikmynda- gerðarmömium hvaðanæva úr heimi. Hér í kvikmjmda- þætti Þjóðviljans hefur há- tíðarinnar margoft verið get- ið og lcynntar þá lítillega" kvikmyndir þær, sem hlotið hafa æðstu , verðlaunin hverju sinni. Nýlega var frá þvi greint i fréttum erlendra blaða, að kvikmyndahátíðin í Karl- ovy Vary félli niður í ár, en hinsvegar yrði efnt til sambærilegrar hátíðar í Moskvu að áliðnu sumri. Ætlunin væri sem sagt sú að halda í framtíðinni kvik- myndahátíð til skiptis í þessum borgum, í sumar í Moskvu, næsta ár í Karl- ovy Vary o. s. frv. Frétt þessi er höfð eftir Boris Malisévskí, ritara und- irbúnings- og framkvæmda- nefndar hátíðarinnar. — Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til alþjóðlegr- ár kvikmyndahátíðar, þar sem sýndar eru leikmyndir, í Sovétríkjunum, segir Boris Malisévský. Við höfum á- kveðið 'að bjóða kvikmynda- gerðarmönnum í 64 löndum að senda verk sin til hátíð- arinnar, þar á meðal mönn- um í Bandaríkjunum, Bret- landi, V-Þýzkalandi, ítaliu, og Frakklandi. Hvað við- víkur þátttökuslkilyrðum höfum við til þessa haldið okkur við þá ákvörðun að frá hverjú einstöku landi megi senda eina langa mynd og eina stutta til verðlauna- samkeppninnar. Kvikmynd- imar verða sýndar í íþrótta- höllinni, sem rúmar 10 þús und áhorfendur í sæti, segir Boris Malisévskí að lokum. Kvikmyndin um Speidel verðlaunuð Kvikmyndagerð stendur með talsvert miklum blóma í Þýzka lýðveldinu, enda þótt við Islendingar höfum haft af henni litil kynni fram til þessa. Meðal verð- launa fyrir kvikmyndir sem einna mest þykir til koma þar í landi era kvikmynda- verðlaunin, sem kennd era við Heinrich Greif. Verðlaun þessi fyrir sl. ár voru veitt þeim hjónun- um Annelie og Andrew Úr heimildarkvikmyndinni um Speidel hershöfðingja. Hér sést þann (til vinstri) í veizlu einni í Fontaineblau-höllinni í nágrenni Parísar á árinu 1940. Með Speidel eru á myndinni fjármálaráðherra nlazista Schwerin Krosigk greifi og liinn illræmdi böðull Frakka, Stúlpnagel liershöfðingi. Thorndike, höfundum og stjórnendum hinnar umtöl- uðu heimildakvikmyndar um Speidel hershöfðingja Hitl- ers og Atlanzhafsbandalags- ins „Áætlunin Germanska sverðið". Var kvikmyndar þessarar getið að nokkru hér í þættinum í fyrra, skömmu eftir að farið var að sýna hana, en sýningar á ihenni hafa hvarvetna vak- ið mjög mikla athygli. Heinrich Greif-verðlaunin 1958 hlutu ennfremur Wern- fried Hiibel leikstjóri og Rudolf Miiller myndatöku- maður fyrir alþýðlega vís- inda- eða fræðslumynd, sem nefnd er „Á þröskuldi lífs- ins“. Einnig voru verðlaun- in veitt þeim Lisu Honing og Witb Eichel fyrir frá- bært starf á sviði tónupp- töku ogf tals. Heinrich Greif-verðlaunin vora afhent við hátíðlega athöfn i menntamálaráðu- neyti Þýzka lýðveldisins af menntamálaráðherranum Al- exander Abusch. Á myndinni sjást Francoise Rosay og prófessor A. M. Brousil, sem sæti áttu í dómnefndinni á séðustu kvik- myndahátíð í Karlovy l7arjy Brousil var formaður dóm- nefndar. Frá Karlovy Vary. i Undirritaðir mótmæla árás- i um þeim, sem enn er stöðugt • haldið uppi gegn forvigis- manni höfundaréttar hér á landi, Jóni Leifs, tónskáldi. í Jón Leifs hefur nú í mörg • undanfarin ár borið uppi ' varnir fyrir höfunda og eig- ' endur höfundaréttar og leit- azt við að auka gildi réttar þeirra og eigna, án þess þó 1 að ganga á hlut nokkurs manns. Fyrir þetta frum- kvæði sitt hafa nú um langt ■ skeið beinzt gega honum tíð- ar árásir, sem oft hafa verið felandaðar ósannindum og út- úrsminingum, er ekki verða þolaðir lengur án ákveðinna og mjcg eindreginna mót- mæla. Það er misSkilningur, ef menn vilja halda því fram, að þessi brautryðjandi höf- undaréttarins standi uppi einn í baráttu sinni fyrir vernd andlegra eigna. A bak við hann standa um 300 íslenzkir höfundar og höfundarétthafar .STEFs, ásamt fjölskyldum þeirra, og allt að þrjú hundr- uð félagsmenn Bandalags ís- lenzkra listamanna, ásamt fjölskyldum þeirra. Á bak við hann standa ennfremur allir þeir, sem unna andlegum sköpunarmætti þjóðarinnar ís- lenzkum og vilja stuðla að vexti og viðgangi þessa mátt- ar, þjóðinni til öryggis og sjálfstæði hennar til álits- auka. Á bak við hann standa loks um 150 þúsund erlendir höfundar og höfundarétthaf- ar, sem ihann fer með umboð fyrir, en það eru fulltrúar þeirra krafta, sem ráða heims- áliti og jafnvel úrslitum 'í aliþjóðamálum, sem Island, frelsi þess og öll hagsæld í framtíðinni er svo mjög háð. Hinu gleyma og flestir þeir, sem gera sér far um að veit- ast að Jóni Leifs, að hann hefur fórnað því, sem fyrir frumskapandi iistamann er mest um verc — meira en nokkuð annað, en það er tími hans og eigin kraftar, — til þess að bæta vinnuskil- yrði og alla afkomu starfs- bræðra sinna. Vér undirritaðir færum hon-" um þakkir fyrir ótrauða frammistöðu í mecf. málefna vorra, svo og fvrir óbilandi þol hans gegn öllum árásum, og lýsum fullum stúðiiingi við 'hann og hinn sameigin- lega málstað höfunda og ann- arra listamanna. Reykjavík, 9. apríl 1959. Dr. Hallgrímur Helgason, framkvæmdastjórí Tónskálda- félags Islands, (sign). Guðmundur Gíslason Haga- lín, formaður Rithöfundasam- bands íslands (sign). Sigurður Reynir Pétursson, varaforstjóri STEFs (sign). Snorri Hjartarson, forseti Bandalags íslenzkra lista- manna (sign). & _ _ Sh!PAÍlfGtH» HIKISINS Skjalireí ' fer til Ólafsvíkur, Grundar- fjarðar, Stykkishólms og Flat- eyjar mánudaginn 4. maí. Vörumóttaka í dag og árdegis á laugardag. Farseðlár árdegis á laugardag.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.