Þjóðviljinn - 29.04.1959, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.04.1959, Blaðsíða 12
fslenzk málverkasýning í Moskvn Islenzlca málverkasýningin var opnuð í Moskvu 17. apríl sl. í húsakynnum Púskín-listasafns- ins, en það eru veglegustu sýningarsalir þar í borg. Á Ijósmyndinni sjást sýningargestir virða fyrir sér málverk Kjarvals. Auk Moskvu verða málverkin sýnd í Kíeff og Leníngrad. Árásin á orlofslögin hafin á ný Nú ílytur Alþýðuílokksríkisstjórnin írum- varp um breytingu á lögunum! (R.íkisstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins hefur ^kki gefizt upp við að krukka í orlofslögin, að sjálfsögðu án noklkurs samráðs við verkalýðshreyfinguna. Ríkisstjórnin lagði í gær frumvarp fyrir Alþingi um breytingu á orlofslögunum. Felst í frumvarpinu sú breyt- ing „að mönnum er í sjálfs- vald sett hvort þeir taka orlofs- fé. sitt í orlofsmerkjum eða peningum.“ Jafnframt leggja stjórnar- flokkarnir til að kostnaður við framkvæmd orlofslaga verði skorinn niður um hálfa milljón, úr 650 þús. kr. í 150 þús. fcr. Er það gert 1 sameiginlegum breytingartillögum Alþýðu- flokksins og Sjálfstæðisflokks- Lýðræðissvifting í Argentínu ins við þriðju umræðu fjárlag- anna. Vopn frá USA Bandaríkjamenn hafa ,tiú í miklum flýti hafjð vopnaflutn- inga til Panama, þar sem Pan- amastjórn telur sig í hættu vegna uppreisnarmanna. í opinberri ilkynnjngu rikjs- sjómar Panama segir, að 80 vopnaðir menn frá Kúbu hafi gengjð á land í Panama og tek- ið á vald sitt þorp nokkuð, um 50 km vega frá landgöngustað. Þá segir Panamastjórn að her- lið landsins, sem telur aðeins 2000 manns, sé reiðubúið að mæta hverri árás. Fagnaður ÆFR annað kvöld Æskulýðsfylkingin Reykjavík heldur 1. maí- fagnað í Framsóknarliús- inn annað kvöld og liefst ljann klukkan 9 s.d. Dagskrá skemmtunar- innar: 1. vÁvarp. 2. Tvlsöngur. 3. Þjóðdansar. 4. GIsli Halldórsson leikari skemmtir. 5. Iíynnir á skemmtun- inni verður Guðmundur Ágústsson. Fylkingarfélagar, eldri sem yngri eru hvattir til að fjölmenna á skemmt- unina og taka með sór gesti. Að.göngumiðar eru afhentir í skrifstofu ÆFR í Tjarnargötu 20. Stjórn Argentínu hefur bann- að kommúnistaflokk landsins, og öll þau félög, sem taka mál- stað hans eða munu taka hann. OEinnig eru blöð flokksins og öll önnur róttæk blöð og tíma- rit bönnuð. Skrifstofum flokks- ins hefur einnig verið lokað. Mikið öngþveiti ríkir nú í efna- hagsmálum og atvinnumálum Argentínu og fær stjórnin ekki við neitt ráðið. Til þess að lægja óánægjuraddirnar, grípur hún til þess ráðs að afnema stjómmálafrelsið. Þjóðveldisfl. Færeyja mótmæl- ir sérréttindaaðstöðu Breta Eins og skýrt var frá í fréttum í blaöinu í gær, hafa ríkisstjórnir Danmerkur og Bretlands undirritað samn- ing, iþess efnis að brezkir togarar skuli njóta þeirra sér- réttinda að fá að veiða í færeyzkri landhelgi. Þjóðveldisflokkur Færeyja hefur iþegar mótmælt þessum samningi með yfirlýsingu, sem var gefin út í gær. Myndarlegi gufugos Á fjórða tímanum í gær veittu margir eftirtekt mynd- arlegu gufugosi úr borholun- um tveimur í Túnunúm, en eins og kunnugt er hafa þær verið lokaðar síðan hætt var að bora þar. Samkvæmt upplýsitigum Gunnars Böðvarssonar verk- fræðings stóð gosið í sambandi við mælingu á holunum, sem einkum miðaði að því að rann- saka, hvort nokkurt samband væri á milli þeirra. Var önn- ur holan opnuð fyrst og gos- magn hennar mælt, en síðan, var hin holan opnuð líka, til þess að vita hvort gosmagnið 'í fyrri holunni minnkaði nokk- uð við það. Sagði Gunnar, að ekki hefði virzt, eftir þessari tilraun að dæma, vera neitt samband á milli holanna. Um það væri þó e'kki hægt að segja með vissu fyrr en hol- urnar hefðu verið látnar gjósa lengri tíma, en slíkar rann- sóknir væri ekki hægt að fram- kvæma fyrr en lagður hefði verið nýr fráreniTslisskurður frá holunum. í yfirlýsingu Þjóðveldis- flokksins segir að allir færeysk- ir sjómenn mótmæli þessum samningi sem heimilar Bretum einkarétt til að veiða í land-. helgi Færeyja, en öllum öðrum útlendingum, sem stunda veiðar í kringum Færeyjar, er bannað að veiða innan 12 mílna mark- anna. Landhelgin .eigi auðvit- að að vera friðhelg og bönnuð öllum útlendingum jafnt. 1 yfirlýsingunni segir enn- fremur að þetta samfcomulag ihafi verið gert að undirlagi dönsku stjórnarinnar ,en þessi rangláta ráðagerð sé alls ekki í samræmi við hlutleysisstefnu Færeyinga. Yfirlýsingin endar á þessum or$um; „Þjóðveldis- flokkurinn óskar ekki eftir að neinni erlendri þjóð séu veitt hlunnindi á kostnað annarra. ÞlÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. apríl 1959 — 24. árgaingur — 95. tölublað. Elning í Reykjavík 1. maí Á fundi 1. maí nefndar verkalýðsfélaganna í Reykjavík í fyrrakvöld varð eining um hátíðahöldin hér í Reykjavík. Undanfarið hefur venjulegt undirbúningsstarf undir 1. ,maí farið fram. Kröfugöngunefnd in setti nefnd í að semja á- varp dagsins og tókst eining um ávarpið á fundinum í fyrra- kvöld. Hátíðahöldin verða með líku sniði og undanfarið: safn- azt samaa við Iðnó og síðan farið í kröfugöngu um götur bæjarins og að henni lokinni verður útifundur. Alþýða Reykjavíkur mun ekki láta standa á sér út á götuna undir merki samtaka siniia 1. maí nú, því mörg eru þau mál sem alþýðan þarf að berjast fyrir og sameinast um. Auk kjaramála.nna verður 1. maí nú dkki sízt helgaður landhelgis- málinu. Alger eining n 1. maí-kátíðaköld ^erkalýðsíélaganna á Akureyri Tekjum dagsins varið til byggingar íélags- heimilis verkalýðsfélaganna á Akureyri Akureyri í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Fullt samkomulag er í 1. maí-nefnd verkalyðsfélag- anna á Akureyri um allan undirbúning hátíðahaldanna og ávarp dagsins. 1. maí-hátíðahöld verkalýðs-' dansleikur á sama stað um félaganna á Akureyri hefjast ^ kvöldið. með útifundi við Verkalýðshús-1 Merki dagsins verða seld á ið kl. 2 e.h. Ræður flytja Guð- götunum. Hagnaður af merkja- mundur J. Guðmundsson frá Reykjavík, starfsmaður Dags- brúnar, Jón B. Rögnvaldsson, formaður Bílstjórafélags Akur- eyrar og Haukur Haraldsson, formaður Iðnnemafélags Akur- eyrar. Að útifundinum loknum verður farið í kröfugöngu. Barnaskemmtun verður í Al- þýðuhúsinu kl. 3.30 e.h. og sölu og samkomum dagsins rennur til byggingar félags- heimilis verkalýðsfélaganna á Ákureyfi. Mikill áhugi er ríkj- andi fyrir því að hafizt verði handa um þá byggngu á þessu sumri. Félagsheimilið verður reist við Smáragötu og er nú unnið að teikningu þess. Sambúð Kínverja og Indverja verði jiegar komið í gott horf Ályktun frá þjóðþingi Kína, sem var slitið í gær Þjóöþingi Kínverja var slitiö í gær, og var haldinn lokaður fimdur um sambúðina við Indland og uppreisn- ina í Tíbet þennan síðasta þingdag. í lokaályktun þingsins er skorað á kínversku þjóðina að halda áfram að vinna ötullega að uppbyggingu sósíalismans í landinu. Skorað er á lands- búa að fylkja sér einhuga til þess að framkvæma áætlunina um að auka iðnaðar- og land- búnaðarframleiðsluna um 40 prósent á þessu ári. I álylctun eru hörmuð óvin- samleg ummæli ýmissa á- byrgra stjórnmálamanna í Indlandi í garð Kínverja und- anfarið. Lögð er áherzla á að nauðsynlegt sé að binda endi á óeðlilega tortryggni milli ríkjanna, og að vinda beri bráðan bug að því að bæta Strontium 90 tvöfaldaðist Macmillan, forsætisráðherra Bretlanids, sagði í brezka þing- inu í gær, er hann var að svara fyrirspurnum, að geislavirk efni í rigningarvatni, einkum hið hættulega efni Strontium 90, haf tvöfaldazt í Bretlandi á siðasta ári. sambúð rikjanna og koma henni í eðlilegt horf. Lýst er yfir því að Kín- verjar muni ekki þola nein erlend afskipti af innanlands- málum Tíbets, og harmað að ýmsir indverskir stjórnmála- menn skuli fjandskapast út í Kínverja, þótt fámennur hópur afturhaldssinna geri uppreisn- artilraun í Tibet. Fara í boði tékkn- esku verkalýðs- samtakanna Þeir Hermann Guðmundsson formaður Hlífar í Hafnarfirði og Þórir Daníelsson varafor- maður Verkamannafélags Ak- ureyrarkaupstaðar fóru héðan í morgun áleiðis til Tékkó- slóvakíu í boði tékkneska Al- þýðusambandsins. Verða þeir í Tékkóslóvakíu 1. maí og munu dvel.ia þar um hálfs- mánaðartíma í boði tékknesku verkalýðssamtakanna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.