Þjóðviljinn - 24.05.1959, Side 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 24. maí 1959
Um réttarhöld og fleira
Framhald af 7. síðu.
annað erindi gert sér þangað en
að sjá svo um að ekkert yrði
úr íyrirætlunum þeirra kump-
ána, enda leystist samkoman
upp án þess að nokkur tæki til
máls.
• INNANFÉLAGSDEILUR
Einn félagsmeðlimur, Ger-
hart Frey að nafni, hafði með
timanum séð að hópurinn var
á villigötum og vildi hætta öllu
samstarfi við hann. Hins vegar
þvertók hann fyrir að ,,flýja“
til Vestur-Þýzkalands. Þetta
gerðist á fundi hópsins 10. jan.
1959. Og nú fór hópurinn sam-
kvæmt félagslögum að leggja
niður fyrir sér hvernig þeir
bezt gætu komið þessum fyrr-
verandi félaga sínum fyrir katt-
arnef. Fyrst var ákveðið að
skjóta manninn. Attu tveir úr
hópnum að lokka hann með
sér á afvikinn stað og síðan átti
að skjóta hann aftanfrá.
Pístóla þeirra félaga var um
þessar mundir geymd í Leipzig
af eiiphverjum ástaeðum og var
einn náunginn sendur þangað
sérlega sendiför að ná. í i hana
(Brendel). Fyrir réttinum sagði
hann: „Mér var ljóst að vopnið
átti að nota gegn Frey.“ Áður
en til kastanna kom, sáu þeir
að þetta var ekki gott ráð, því
erfitt mundi að koma líkinu í
burtu. Ákváðu þeir því að
sprauta lofti eða insúlíni inn
í æð hans, en þeir höfðu heyrt
í BBC að með þessu móti hefði
enskur læknir kálað konu sinni,
eða þá að gefa honum inn eitur.
Þetta báru þeir fyrir réttinum.
Ekki hef ég frétt hvernig þeir
félagar héldu sig með þessu
móti geta komið líkinu betur í
burtu. En áður en þeir komu
þessu í verk voru þeir hand-
teknir, — sem betur fór.
• ENDALOK
Fasehing er mikil hátíð í
Þýzkalandi. Stendur hún í Sax-
landi í marga daga og endar á
Sprengikvöldi. Þá er alls staðar
mikið um að vera, haldin eru
grímuböll og Þjóðverjar drekka
sig þá fulia hópum saman og
láta eins og Islendingar á sum-
um dansleikjum. Þá er ekki
fallegt siðferðið í landinu. Þetta
ætluðu þeir kumpánar að nota’
sér. Þeir ætluðu á Sprengi-
kvöldi að dreifa miðum og líma
á veggi áskoranir til fóllts að
hópa sig saman og binda endi á
„kúgunina“. Þeir höfðu skipt
borginni niður í hverfi og hafði
hver meðlimur sínu hlutverki
að gegna. Þeir sem áttu að líma
þetta upp á auglýsingasúLur
áttu að vera vopnaðir gasbyss
um.
Þessar gasbyssur eru þannig
útbúnar, að sé skotið á fjögurra
metra færi, þá er sá sem skotið
er á óskaðlegur í nokkurn tíma,
sé skotið á tveggja metra færi
getur viðkomandi hlotið alvar-
lega brunasár og ef skotið kem-
ur í höfuðið getur hann blindazt
gersamlega. Við réttarhöldin
voru þeir sem förina áttu að
fara spurðir: „Hefðuð þér virki-
lega skotið, ef einhver hefði
séð til yðar við að hengja upp
áskorunina og gert sig líklegan
til að hindra yður?“ og ákærðu
svöruðu allir með jái. „Og hefð-
uð þér þá fyrst athugað hvort
færið væri fjórir metrar eða
tveir metrar?" Ekki töldu á-
kærðu sig hafa haft tíma til að
hugsa um slíkt.
Sprengikvöld var 9. 2., hóp-
urinn var handtekinn 4. 2., —
sem betur fór.
Hópur þessi var sérdeilis vel
skipulagður, þeir þóttust vera
undir allt búnir. Þeir höfðu
gert ráð fyrir að einhver eða
einhverjir úr hópnum yrðu
handsamaðir. Og þá átti að
grípa til örþrifaráða. Fyrst átti
að skrifa lögreglunni hótunar-
bréf: ef þeim yrði ekki sleppt
mundi hópurinn sprengja ein-
hverja brú í Dresten í loft upp.
Reyndar voru þeir ekki búnir
að gera upp við sig hvort þeir
ættu að sprengja brú yfir Sax-
elfi í Dresden, eða hvort þeir
skyldu sprengja úr klettabelti
á milli Dresden og Bad Schan-
dau og stöðva þannig alla um-
ferð milli Tékkóslóvakíu og
DDR. En sprengiefnið höfðu
þeir.
Ef þessi hótun ekki dyggði,
þá ætluðu þeir að ráðast al-
vopnaðir á fangelsið og frelsa
þannig þessa vini sína. En þeir
voru teknir allir í einuí — sem
betur fór.
Reyndar þóttust þeir hafa séð
við þessum möguleika líka. Þá'
ætluðu þeir að taka blásýru
eins og Göring í Núrnberg forð-
um. En líklega hafa þeir
gleymt blásýrunni heima, •—
sem betur fór.
• VIÐTAL VIÐ SAKSÓKN-
ARANN:
Eg hafði tækifæri til að tala
við saksóknarann eftir mála-
ferlin og leggja fyrir hann
nokkrar spurningar:
„Mér er kunnugt um að blöð
á Vesturlöndum hafa haldið því
fram að sakborningar þessir
hafi verið dæmdir fyrir skoð-
anir sínar eingöngu. Getið þér
sagt mér eitthvað um þetta“
„Hér í DDR mega allir hafa
sína skoðun, hverja sem þeir
vilja, og enginn verður dæmd-
ur fyrir skoðanir sínar, hverjar
sem þær kunna að vera. En hér
var ekki aðeins um skoðanir að
ræða, hér tala verkin. Þessi
hópur hafði safnað að sér vopn-
um, skotfærum, sprengiefni og
eitri, sem þeir voru albúnir að
nota. Við það hefðu margir sak-
lausir borgarar sem af tilviljun
hefðu verið nærstaddir ,getað
misst líf og limi. Að þessi við-
leitni þeirra var vonlaus frá
upphafi er ekki þeim að þakka.
Hvarvetna er slíkur verknaður
talinn til landráða og svo er
einnig hér.“
„Hvernig stóð á því að málið
gegn þrem meðlimum hópsins
var niður fellt?“
Þeir höfðu að nokkru leyti
séð að sér áður en þeir voru
handteknir og voru að reyna
að losa sig úr hópnum. Auk
þess viðurkenndu þeir hrein-
skilnislega brot sitt strax og
hjálpuðu þannig mikið til við
að skýra málið. Auk þess segir
í iögum að ef sakborningur
geri sér ljósa grein fyrir af-
broti sínu og iðrist gerða sinna,
þá er hægt að láta hann sleppa
við málssókn. Brotlegir menn
sem gefa sig fram af fúsum
vilja og játa afbrot sitt, geta
sloppið við refsingu. Þessi laga-
grein var notuð í þessu tilfelli."
„Mér virðist af réttarhöldun-
um að hér hafi verið um sam-
ansvarinn hóp að ræða. Getið
þér gefið mér skýringu á því
hvernig á því stóð að allir und-
antekningarlaust viðurkenndu
brot sitt fyrir réttinum og voru
ekki með nein undanbrögð?1
Saksóknarinn kímir við þess-
ari spurningu og segir:
„Þeir höfðu lagt trúnað á þær
frásagnir vesturþýzkra útvarps-
og áróðursstöðva að lögreglan
beiti hinum hryllilegustu að-
ferðum við að fá menn til að
játa. Þessvegna ætluðu þeir
líka að taka inn eitur, ef þeir
yrðu handsamaðir. Líklega hef-
ur þeim fallið allur ketill í eld
þegar lögreglumennirnir fóru
að rökræða við þá í samræðu-
formi í stað þess að pína þá.
Svo var heldur ekki gott fyrir
þá að neita, þegar hinir þrír
höfðu meðgengið."
,,Mér heyrist á fólki, svo og
sé ég það í blöðum hér að þessir
dómar eru taldir tiltölulega
vægir. Hvaða aðrar refsingar
gátu komið til greina og hvern-
ig voru dómarnir ákveðnir?“
„Dómarnir, þetta frá fimm og
upp í tiu ára tugthús sýna
tvennt. Þeir sýna hversu hættu-
legur hópur var hér á ferðinni
og sýna jafnframt að tekið var
tillit til æsku sakborninganna,
sem flestir eru rúmlega tvítug-
ir. Þetta eru að vísu engin
börn og þeir vissu vel hvað þeir
voru að gera. Þannig hafði
Bauer fest kaup á réfsiréttinum
og hafði á fundi sagt kumpán-
um sínum hvaða refsing mundi
bíða þeirra ef upp um þá kæm-
ist, fimmtán ára fangelsi og líf-
lát foringjans. Þetta gerði hann
í þeim tilgangi að þjappa hópn-
um betur saman. Þá var tekið
tillit til þess að allt prógramm
hópsins var byggt á áróðri vest-
rænna útvarpsstöðva, rétturinn
tók tillit til þess að þessir ungu
menn höfðu verið æstir upp af
þeim fjandmönnum ríkisins,
sem um þessar mundir sitja í
valdastólum í Vestur-Þýzka-
landi. Þeir dæmdu eru ekki að-
alsakborningarnir í þessu máli.
Þeir raunverulega seku sitja
þar sem ekki næst í þá og hafa
það náðugt. Það er ekkert unn-
ið með því að dæma þá smáu
í tvöfalda refsingu fyrir það
að ekki næst í aðaisakborning-
ana. En ég held að þessi refs-
ing sem þeir nú hafa fengið sé
nóg. Þeir fá nógan tíma til að
hugsa sig um. Það er von mín,
að þegar þeir koma út aftur í
fyllingu tímans, þá verði þeir
orðnir aðrir og betri menn.“
„Þeir voru semsagt dæmdir
til tugthúsvistar. Hvað bíður
þeirra þar? Hafa þeir t.d. mögu-
leika á að hafa bækur undir
höndum, geta þeir kannske
haldið áfram námi sínu í tukt-
húsinu?“
„í DDR er lögð höfuðáherzla
á uppeldi fanganna með þeim
tilgangi að reyna að bæta þá
og gera að nýtum borgurum.
Aðaluppeldisaðferðin er þar
vinnan. Þessi vinna er þó ekki
eins og áður tíðkaðist þannig,
að hver saumi póstpoka eða lími
saman pappírsöskjur í sínum
klefa. Hér vinna fangarnir átta
tíma á dag í stórum verksölum
með nýtízku vélum, ekki hver
fyrir sig, heldur í verkflokkum.
Tilgangurinn með því er að ala
upp hjá þeim tilfinninguna fyr-
ir samvinnu og samhjálp (Koll-
ektiv). Hér er ekki til það sem
hét „upp á vatn og brauð“. All-
ir fangar eru vel haldnir í mat.
Fangar fá borguð full laun fyr-
ir vinnu sína, þar frá dregst
fæðis- og gæzlukostnaður. Ef
um fjölskyldumann er að ræða
og þurfi hann að sjá fyrir fjöl-
skyldu sinni, fær hann útborg-
að jafnóðum. Annars er ekki
borgaður út nema hluti laun-
anna strax, hitt er greitt þegar
fanginn kemur aftur út, þó ekki
allt í einu heldur smátt og
smátt. Tilgangurinn er að skapa
föngunum við útkomuna fjár-
hagslegt öryggi.
í fangelsinu er stórt bókasafn
sem fangarnir geta notað að
vild. Auk þess er hverjum
fanga heimilt að taka með sér
og fá sent það sem hann vill
af kennslu- og fræðibókum. Þó
mega þeir ekki taka þær með
sér út aftur, þær verða eign
fangelsisbókasafnsins. Þess eru
dæmi að menn hafi lokið há-
skólanámi úr fangelsinu.
En fangavistin er samt áreið-
anlega engin skemmtivist. Eg
óska engum að sitja inni í fimm
vikur, en það er sem kunnugt
er minna en fimm ár.“
• LOKAORÐ
Saksóknarinn gat þess að
starfsemi hópsins hefði verið
vonlaus frá upphafi. Þetta er
að mínu áliti hárrétt. Svo virð-
ist sem tilgangur þeirra hafi
verið að byrja einhvers staðar
með æsingafund eða uppsteit
og mundi ekki þurfa meira til
að koma fjölda manns af stað.
Þarna skjátlaðist þeim hrapal-
lega að mínu viti. Þeir hefðu
aldrei getað komiá neinu slíku
Fyrsta frjáls-
íþróttamót sum-
arsins í dag
Vornxót iR, fyrsta írjáls-
íþróttamót sumarsins, hefst á
Iþróttavellinum gamla kl. 2 síð-
degis í dag.
Keppendur eru um 30 að tölu
og meðal þeirra Hallgrímur
Jónsson og Þorsteinn Löve í
kringlukasti, Valbjörn Þorláks-
son í stangarstökki, Þórir Þor-
steinsson í 400 m hlaupi,
Björgvin Hólm í 110 m grinda-
hlaupi og spjótkasti, en í síð-
astnefndu greininni er Gylfi
Gunnarsson einnig meðal kepp-
enda.
Byggingafélag
verkamanna
stofnað á Höfn í
Hornafirði
Höfn, Hornafirði. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Fyrir nokkru var stofnað
byggingafélag verkamanna hér
á Höfn.
Ekki er enn vitað hver verð-
ur formaður, þar sem félags-
málaráðuneytið á að skipa
hann, en ekki hefur það enn
gert það svo vitað sé, þótt
beiðni um það hafi verið send
fyrir meir en mánuði.
Hér er nokíkuð af ungu fólki
sem vantar húsnæði og er því
mikil þörf fyrir starfsemi slíks
byggingarfélags hér; ef hægt
er að fá einhver lán úr bygg-
ingarsjóði, því þau eru veitt
með þeim kjörum er gera fá-
tæku, ungu fólki fremur kleyft
að ráðast í byggingu íbúðar,
er myndi því að öðrum kosti
algerlega ofviða.
ÚTBREIÐIÐ
ÞJÓÐVILJANN
af stað af þeirri einföldu még-
inástæðu að almenningur ér
yfirleitt harla ánægður með
kjör sín hér, gagnstætt þvi
sem var 1953. Að vísu murt
það málefni staðreyndar að lífs-
kjör í DDR eru ekki enn eins
góð og kalla má í Vestur-
Þýzkalandi. En þau fara stöð-
ugt batnandi, gagnstætt því sem
er í Vestur-Þýzkalandi. Stjórn
DDR hefur sett sér það mark-
mið að láta lífskjörin í þessu
landi fara fram úr lífskjörum
vestra fyrir árið 1961, það er að
segja á tveim árum. Þetta er
eins og málin standa mikið
verkefni og stórhuga takmark,
en fullkomlega raunhæft að
þeirra dómi. Þetta er Öllum al-
menningi ljóst. Þess vegna hef-
ur fólkið enga ástæðu til að
gera uppsteit eða stofna til æs-
inga .
Allra sízt á þetta við um
stúdenta, en ca. 90% þeirra fá
stýrk sem nægir þeim til lífs-
framfæris. Þess vegna finnst
mér það mikið, þótt ekki sé
það hlutfallslega rnikið, að
Bauer og félagar skýldu ná
saman 14 af 14000 stúdentum
hér við háskólann.
11. 5. 1959
Tryggvi Sigurbjamarson.
Maður slasast
er reykháfur
f ellur á hann
í fyrrakvöld vildi það slys til
að reykháfur brotnaði í hús-
inu nr. 20 við Vatnsstíg og féll
ofan á einn mannanna, sem var
við vinnu sina þar í húsinu.
Slasaðist maðurinn, Valdimar
Vigfússon Laufásvegi 20, all-
mikið og var fluttur í sjúkra-
hús.
Vinsamlegur tónn
um Genf í London
og Moskvu I
Selwyn Lloyd, utanríkisráð-
herra Breta, kom til Lundúna í
gær £rá Genf. Við heimkomuna
lagði hann áherzlu á að mik-
ill munur væri á ráðstefnunni
í Genf og öðrum ráðstefnum
stórveldanna áður. Samskipti
fulltrúanna væru vinsamleg og
þeir virtust allir hafa fullan
hug á að ráða fram úr vanda-
málunum. Hann kvaðst vongóð-
ur um árangur, þótt mikið bæri
enn á milli.
Fyrirlesari í Moskvuútvarp-
inu sagði að það væri uppörv-
andi að þótt svo hefði mátt
virðast fyrstu viku ráðstefn-
unnar að „dauðir menn hefðu
ræðzt við“, hefðu aðra vikuna
verið gefnar yfirlýsingar sem
borið hefðu þess vitni að að-
ilar vildu ná sáttum.
íslandsmeistara-
mótið í bridge
íslandsmótið í bridge (sveita.
keppni) hefst í Tjarnarcafé í dag
kl. 2 síðdegis. Tólf sveitir taka
þátt i keppninni, þar á meðal
sveit Halls Símonarsonar, ís-
landsmeistara 1958. Spilaðan
verða 7 umferðir eftir svo-
nefndu Monradkerfi.
m (oiAa vfiW \{ja$Wiir TruUwused T&6bi