Þjóðviljinn - 05.08.1959, Blaðsíða 1
Krústjofí heimsækir Bandaríkin og
Eisenhower fer tii Sovétríkjanna
Krústjoff væntanlegur til Bandarikjanna um miðjan
næsta mánuð, mnn dveljast Jiar í um hálfan mánud
*
, . <
Ekkert Eát á j
bardðgum i Lacs' i
<
Stjórn Laos hefur nú lýst <
yfir neyðarástandi í fimm af J
fylkjum landsins sem liggja <
næst landamærum þess og <
Norður-Vietnams, en þar hgfa
verið háðir harðir bardagar að
un'danförnu milli hersveita
hennar og þjóðfylkingarinnar
Pathet Lao. Stjórnin hefur
einnig sent Hammarskjöld,
framkvæmdastjóra SÞ, érindi
þar sem hún sakar stjórn
Norður-Vietnams um að hafa
veitt uppreisnarmönnum stuðn-
ing.
Það hefur nú verið endanlega ákveðið að Krústjoff,
forsætisráðiherra Sovétríkjanna, komi í opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna í næsta mánuöi, en Eisenhower,
forseti Bandaríkjanna, fari síðar til Sovétríkjanna. Þetta
var tilkynnt í Washington og Moskvu í fyrradag og hefur
tilkynningunni verið mjög vel tekið um allan heim.
Hún kom ekki á óvart því að
undanfarið hafa fréttamenn
þótzt þess fullvissir að Krústj-
off yrði boðið til Bandaríkjanna,
enda sagði Eisenhower forseti að
ákvörðunin um að bjóða honum
vestur hefði „verið verst geymda
leyniarmáhð í Evrópu“.
Um miðjan næsta mánuð
Ekki mun enn hafa verið
fyiliiega ákveðið hvenær Krústj-
off kemur til Washington, en bú-
izt er við að það verði um
miðjan næsta mánuð, 14. eða
15. september Hann mun senni-
lega fyrst dveljast tvo-þrjá daga
í Washington og ræða við Eisen-
hower, en fara síðan í 10 daga
ferðalag um Bandaríkin.
Eisenliower fer fyrst
fil Evrópu
Eisenhower mun fyrst fara ti 1_
Vestur-Evrópu og ræða þar við
leiðtoga Bretlands, Frakklands
og Vestur-Þýzkalands áður en
hann tekur á móti Krústjoff, og
er búizt við að hann komi til
Lundúna 23. ágúst, verði þar í
þrjá daga og ræði við Macmillan
forsætisráðherra, en fari síðan
til Parísar á fund de Gaulle og
dveljist þar í tvo daga. Sennileg-
ast er taiið að Adenauer, forsæt-
isráðherra Vestur-Þýzkalands,
muni nú' gera alvöru úr för sinni
til Bretlands sem skotið hefur
verið á frest í alllangan tíma, og
hitti Eisenhower í leiðinni.
De Gaulle, sem dvalizt hefur
í orlofi í Colombey les deux
Eglises, hefur boðað ráðuneytis-
fund einhvern næstu daga og
verður þar rætt um væntanlega
heimsókn Eisenhowers og við-
ræður hans og Krústjoffs.
Ótti í París og' Bonn
Ákvörðuninni urn væntanlega
viðræðufundi þeirra Krústjoffs
og Eisenhowers hefur yfirleitt
verið tekið mjög vel um allan
heim. Þó segja fréttaritarar að
í París og Bonn verði vart nokk-
urs ótta við að þær viðræður
kunni að leiða til þess að þessi
tvö mestu stórveldi heims geri
með sér samkomulag sem geti
gengið í berhögg við stefnu
stjórng Vestur-Þýzkalands og
Frakklands.
Almenn ánægja í
Bretlandi
í Bretlandi rikir almenn á-
nægja með þessa ákvörðun, sem
stuðningsmenn brezku stjórnar-
innar telja mikinn sigur fyrir
Macmillan og þá viðleitni hans
að auka samskipti og bæta sam-
búð austurs og vesturs, eins og
brezku íhaldsblöðin komast að
orði.
Macmillan hefur látið í Ijós
þá von að viðræður Krústjoffs
og Eisenhowers leiði til þess að
boðaður verði fundur stjórnar-
leiðtoga allra stórveldanna.
Stjórnarandstaðan í Bretlandi
hefur ekki síður fagnað ákvörð-
uninni en stuðningsmenn stjórn-
arinnar.
í Bandaríkjunum eru skoðan-
r næstu vikurnar
Vatn brauzt enn yfir veginn á Mýrdalssandi aðfara-
nótt sl. sunnudags og streymir nú yfir veginn á þremur
stöðum. Verður vegurinn því ófær bílum um ófyrirsjáan-
legan tíma.
Vegurinn austur yfir Mýrdals-
sand rofnaði fyrir nokkrum vik-
um og var ófær um tíma. Var
horíið að því ráði að breyta
stefnu vatnsins og' veita bví vest-
ur á sandinn. Vatnið hefur samt
sem áður ílutt mikið af möl að
veginum, og hefur veginum verið
haldið opnum með Því að hækka
varnarvegginn — sem vegurinn
liggur eftir.
Jafnframt var fyrir nokkru
haf'izt handa um að gera brú á
Blautukvisl í því augnamiði að
veita vatninu í hana og þar í
gegn. Stöðugt hefur sú hætta
vofað yfir að vatnið brytist yf-
ir veginn áður en brúin kæmist
upp og vatninu hel'ði verið veitt
þangað.
Aðfaranótt s.l. sunnudags
brauzt vatnið yfir veginn aust-
arlega á sandinum, eða móts við
Langasker. Var þá rofið skarð í
veginn vestar á sandinum, til að
Framhald á 2. síðu.
ir nokkuð skiptari, þó að lang-1
flest blöð og flestir stjórnmála-!
menn hafi látið í Ijós ánægju
með ákvörðunina. Einn af þing-
mönnum repúblikana í öldunga-
deildinni kallaði hana „þjóðar-
hneyksli“, en hinir þingmennirn-
ir voru miklu fleiri sem létu í
ljós ánægju sína. í þeim hópi
voru t.d. Johnson, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, Hump-
hrey og Fulbright, tveir mestu
áhrifamenn í utanríkismálanefnd
deildarinnar.
í Sovétríkjunum hefur frétt-
in um þessa fyrirhuguðu fundi
verið birt undir áberandi fyrir-
sögnum og fréttaritarar segja að
almenningur þar eystra fari ekki
dult með fögnuð sinn og geri sér
vonir um að gagnkvæmar heim-
sóknir leiðtoga stórveldanna
tveggja muni leiða til bættrar
sambúðar þeirra og betri friðar-
horfa.
Blaðaummæli
New York Times segir að við-
ræður þeirra Krústjoff og Eisen-
hower verði ekki samningsum-
leitanir og engir samningar
verði gerðir. Hins vegar geti
þær leitt til þess að æðstu menn
stórveldanna allra komi saman
og setji niður deilur sínar með
samningum.
New York Heraid Tribune seg'-
ir að þessi ákvörðun sé „ágæt“,
en varar við of mikilli bjart-
Framhald á 6. síðu
Fundi utanrfkisráðherrg ;
stórveldanna lýkur í dag
Ekki búizt við að nokkur niðurstaða fáist
eða að nýjar viðræður verði ákveðnar
í dag lýkur ráðstefnu utan-
ríkisráðherra stórveldanna í
Genf, en þeir hafa setið á rök-
stólum þar síðan 12. júní, þó
með nokkru hléi. Ráðstefnunni
er slitið að ósk Bandaríkjanna.
Ráðherrarnir sátu á fundum
í gær til þees að ganga frá
lokatilkynningu ráðstefnunnar,
en náðu ekki samkomulagi um
orðalag hennar. Fréttaritarar
segja að Gromi'ko, utanr'íkis-
ráðherra Sovétríkjamia, hafi
viljað leggja meiri áherzlu á
þann jákvæða árangur sem
Framhald á 6. síðu
Nefnd frá öllum þingflokkum semur
um aukna sölu á salfsíld og k@rfa
Horfur á að samningar um sölu á 80.000 fn\
í viShóf fil Sovéfrikjanna verSi gerSir i dag
Ríkisstjórnin hefur skipað sérstaka nefnd til
samninga við Sovétríkin um aukna sölu á saltsíld
og karfa til Sovétríkjanna, og hófust samningar í
gær. Vonir standa til að samið verði um sölu á
80.000 tunnum í viðbót í dag.
Nefndin er skipuð samkvæmt
tilnefningu þingflokkanna, og
eiga þessir menn sæti í henni:
Gylfi Þ. Gíslason frá Alþýðu-
flokknum og er hann formaður
nefndarinnar, Lúðvík Jósepsson
frá Alþýðubandalaginu, Jó-
hann Hafstein frá Sjálfstæðis-
flokknum og Gísli Guðmunds-
son frá Framsóknarílokknum. í
nei'nd Sovétríkjanna eiga sæti
Alexandrov ambassador Sovét-
ríkjanna hér á landi, Stephan-
ov forstjóri þeirrar stofnunar
] Sovétríkjunum sem annast
verzlun með matvæli og Kras-
silnikov verzlunarfulltrúi Sov-
étríkjanna hér á landi.
Seðlabankinn lieldur
við sitt
Nefndirnar hófu viðræður í
gær, og eins og áður hefur
verið skýrt írá hér í blaðinu
eru góðar líkur á þvi að Sov-
étrikin auki kaup sín á salt-
síld og karfa. Fundur verður
hafður í dag' og standa vonir
til þess að þá verði gengið frá
nýjum samningum.
Eins og áður hefur verið raK-
ið hér í blaðinu hefur aðalsér—
fræðingur Framsóknarflokks-
ins í efnahagsmálum, Vilhjálm-
ur Þór, gert sérstakar ráðstaf-
anir til þess að reyna að
stöðva sildarsöltunina með því
að lýsa yfir þvi að Seðlabank-
inn muni ekki endurkaupa ’án
sem veitt eru vegna síldarsölt-
unar, nema sildin hafi verið
seld fyrirfram. Seðlabankinn
heldur fast við þessa afstöðu,
og mun binda lán sín við um
það bil helming af því verð-*.
mæti sem saltað er framyfiyji
samninga samkvæmt ábyiígljg
ríkisins.