Þjóðviljinn - 05.08.1959, Qupperneq 5
- Miðvikudagur 5. ágúst 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Mestur hluti borgarinnar Napólí á Ítalíu liefur verið
vatnslaus aö undanförnu vegana bilunar á aöalvatnsæö-
um og mikilla þurrka. Tæpa milljón manns skortir vatn.
Mikil ólga er í borgarbúum^
af þessum sökum og hefur
vopnuð lögregla verið sett á
vörð á götum borgarinnar til
að koma í veg fyrir óeirðir.
Vatnið hefur verið að þverra
Smám saman að undanförnu
vegna þess að lindir þær sem
borgin fær vatn frá liafa þorn-
að upp sökuai úrkomuleysis.
Ofan á þetta bættist að skrið-
ur féllu á nokkrar helztu vatns-
leiðslurnar til borgarinnar og
skemmdu þær. Við það var al-
veg vatnslaust í þeim hlutum
borgarinnar sem liggja næst
liafinu og þá einnig í hinu
þéttbyggða miðbiki hennar.
Bæjarstjórnin hefur setið á
rökstólum, en hefur ekki komið
neinu í verk. Hvað eftir annað
hafa orðið óspektir. Fólk hef-
ur hópazt saman á götum úti
til að krefjast aðgerða og ráð-
izt á lögregluna með hnífa,
flöskubrot og annað að vopni
þegar hún hefur reynt að
dreifa mannfjöldanum. Um 20
lögregluþjónar hafa hlotið
meiðsl í þessum átökum.
Það hefur gert illt verra að
övenjumiklir hitar hafa verið
í Napólí eins og víðast hvar
annara staðar á meginlandinu.
Braskarar hafa séð leik á borði
og gosdrykkir eru nú komnir
í hærra verð en vín af beztu
tegurilum.
Forseguleg borg
grafin upp
ítalskir fornleifafræðingar
hafa að undanförnu unnið að
því að grafa upp rústir for-
sögulegrar borgar skammt frá
Poliochoni á eynni Lemnos.
Það er að vísu um 30 ár síðan
uppgröfturinn hófst, en honum
hefur einkum miðað áleiðis upp
á síðkastið og er nú búið að
grafa upp rústir mikils hluta
borgarinnar sem talin er vera
frá árunum 2500—1600 fyrir
Krist. Borgin er því eldri en
Trójuborg. Allt skipulag henn-
ar, skolpleiðslur og húsarústir
sem enn standa bera með sér
að þar hefur búið fólk á háu
menningarstigi, en allt bendir
til þess að borgin hafi lagzt í
eyði af völdum jarðskjálfta.
Mörg verkalýðssambönd í
Bretlandi hafa ákveðið að bera
fram á næstunni kröfu um að
vinnuvikan verði stytt niður í
40 stundir. Sex sambönd verka-
manna í rafmagnsiðnaðinum
sem í eru 120.000 menn urðu
fyrst til þess, en við munu bæt-
ast 39 sambönd verkainanna í
skipasmíða- og vélaiðnaðinum,
en í þeim eru um 3 milljónir
manna. Samband námumanna,
sem í eru 680.000 menn, styður
einnig' þessa kröfu. Ein liöfuð-
krafa prentaranna sem nú liafa
verið í verkfalli í tæpan mánuð
er einmitt 40 stunda vinnuvika.
V «5
mani
Þelrra hefur veriS leifaS i 15 ár en
fleiri liggja enn á hotni vatnsins
Múgur og margmenni streymir nú til Toplitz-vatns í
Steiermark í Austurríki þar sem nokkrum ÞjóÖverjum
hefur tekizt aö finna á botni vatnsins falska fimm ster-
lingspunda seöla sem hljóöa upp á um 40 milljónir kr.
Hundruð þúsunda Moskvubúa
og; annarra sovézkra borgara
hafa þegar séð bandarísku sýn-
inguna í Moskvu, og' er sízt
minni áhugi þeirra að kynnast
því sem Bandaríkjamenn gera
bezt en Bandaríkjamanna að
skoða hina miklu sovézku sýn-
ingu í New York. Myndin er
tekin á bandarísku sýningunni.
Norskir Lappar
viija setjast að
r
a
Hreindýrarækt gefst vel á
Grænlandi, svo vel að margir
Lappar frá Noregi hafa áhuga
á að flytjast þangað og setjast
þar að með ^hjarðir sínar, að
því segir í norska blaðinu Tíana
Blad. Einn hefur þegar gert al-
vöru úr því.
Hinum aðflutta stofni hefur
fjölgað um 300—400 Idýr í
sumar og alls munu nú vera
um 2.000 hreindýr á Grænlandi.
Fyrstu dýrin, 260 talsins voru
fíutt þangað frá Noregi árið
1952, en um 400 dýr hafa verið
skotin síðan.
Það voru þýzku nazistarnir
sem létu falsa þessa seðla á
stríðsárunum og notuðu þá m.a.
til að greiða njósnurum sínum
í löndum bandamanna. Seðlarn-
ir voru svo vel gerðir að jafn-
vel sérfræðingar Englaníds-
banka hafa látið blekkjast af
þeim.
I stríðslok þegar hrun þýzka
herveldisins var fyrirsjáanlegt
lét Gestapo sökkva seðlaforð-
anum niður á botn Toplitz-
vatns og þar hefur hann legið
síðan. Ótal tilraunir hafa verið
gerðar til að hafa upp á seðl-
unum, en að því bezt er vitað
hefur engum tekizt það fyrr en
nú.
Fjórir drepnir
Ævintýramenn og glæpalýður
frá ýmsum löndum, og þó að
sjálfsögðu einkum frá Vestur-
Þýzkalandi, en þar búa enn
sumir þeirra Gestapómanna
sem sökktu séðlakössunum í
vatnið, hafa á undanförnum 15
árum reynt að hafa upp á þeim.
Hefur gengið á ýmsu, því að
enginn hefur unnt öðrum að
finna „fjársjóðinn1 og hafa a.m.
k. fjórir menn beðið bana með
dularfullum hætti. Þeir hafa
fundizt drukknaðir í vatninu.
Lögreglan hefur látið sér nægja
þá skýringu að þeir hafi orðið
fyrir slysi, en sterkur grunur
leikur á að þeim hafi verið
drekkt.
Hótunarbréf
Þeir sem nú hafa haft heppn-
ina með sér hafa síðustu daga
fengið hvert hótunarbréfið af
öðru, og talið að þau komi frá
þeim SS-mönnum sem sökktu
seðlakössunum. Er þeim hótað
öllu illu ef þeir hætti ekki leit-
inni.
Gull á botninum?
Enn eru a.m.k. 12 staðir í
vatninu sem líkur eru taldar á
að kössunum hafi verið sökkt
á en ekki hafa verið kannaðir
enn. Á einhverjum þeirra er bú-
izt við að finnist myndamót
þau og önnur tæki sem notuð
voru við prentun seðlanna.
Þá þykir víst að Gestapó hafi
auk hinna fölsku pundseðla
sökkt þarna gullforða þýzku
njósnaþjónustunnar, en grunur
leikur á að hann hafi þegar
verið slæddur upp.
Ekki verðlausir
Hinir fölsku pundseðlar eru,
eins og áður segir, svo vel gerð-
ir og hafa auk þess geymzt ó-
skemmdir í vatninu þessi 15 ár,
að erfitt er að þekkja þá frá
ófölsuðum. Þeir eru þannig ekki
taldir verðlausir, því að hægt sé
að selja þá auðtrúa fólki á
Rósfur á Kýpur
Róstur urðu í þorpi einu á
suðvesturhluta Kýpur ’í fyrra-
kvöld. Lögreglan hafði ætlað
að handtaka grískættaðan
mann sem grunaður var um að
hafa unnið skemmdir á vatns-
leiðslu þorpsins, en þorpsbúar
snerust til varnar og komu í
veg fyrir handtökuna. Þeir réð-
ust á lögregluna með öllum
tiltækum vopnum. Liðsauki var
sendur til þorpsins í gær.
svörtum markaði í löndum þar
sem skortur er á erlendum
gjaldeyri.
Hvað verður gert við seðlana?
Talið er að allmikið sé enn
í umferð af fölskum seðlum
sem nazistar létu framleiða á
stríðsárunum, en víst þykir að
fimm punda seðlarnir sem nú
hafa fundizt verði aldrei gjald-
miðill. Austurrísk stjórnarvö’d
hafa fylgzt með leitinni og þess-
ar 40 milljónir króna eru nú
undir þeirra lás og slá. Senni-
legt er að þeir verði afhentir
Englandsbanka sem að líkind-
um mun greiða þeim sem þá
fundu einhverja þóknun fyrir
að firra bankann þeim vandræð-
um sem hlotizt hefðu af ef seðl-
arnir hefðu farið í umferð.
épíymreykingiam
1 löndum Suðaustur-Asíu er
nú hafin herferð gegn ópíum-
reykingum og annarri sþi'lingu
Ópíumreykingar hafa- verið
bannaðar í Thailandi og öllum
ópíumbælum í höfuðbcrginni
Bangkolc hefur verið lokað.
Þegar fyrstu daga banns'ns
lagði lögreglan hald á 9.000
ópíumpípur sem verðlagðar eru
á samtals um 2 milljónir króna.
Á næstunni mun lögreg’an heim-
sækja um 60.000 ópíumreyk-
ingamenn til þess að fylgjast
með því hvernig þeim gengur
að venja sig af lestinum. Geri
þeir það ekki af sjálfsdáðum
verða þeir lagðir í sjúkrahús
með valdi.
Átta kítiverskar stiílkiir setja
heimsmet í fjallgöngu kvenna
Kliíu íjallstind, sem Sven Hedin gaíct
upp við fjórum sinnum
Átta kínverskar stúlkur settu hinn 7. f. m. nýtt he'ms-
met í fjallgöngu kvenna með því að klífa upp á tindinn
á fjallinu Muztagh Ata í Pamírfjallgaröinum, en tindur-
inn er 7546 metra hár.
Hinn frægi sænski landkönn-’
uður Sven Hodin reyndi fjór-
um sinnum að klífa þennan
tind, fyrst árið 1894. Honum
heppnaðist aldrei að komast
upp, en kínversku stúlkunum
er ekki fisjað saman enda
munu þær hafa haft góðan út,-
búnað.
Hedin komst aldrei hærra en
í 6800 metra hæð í tilraunum
sínum. 50 árum seinna tókst
Englendingnum Erico Earl
Shipton að komast upp fyrir
7000 m línuna, en fyrstir til
þess að klífa þennan tind urðu
kínverskir og rússnesk'r fjall-
göngumenn, en þeim tókst það
árið 1956.
Kínverska fréttastofan Nýja
Kína, segir að stúlkurnar átta
hafi verið þátttakendur í 47
manna leiðangri Kínverja. Af
þelm komust 33 alla leið upp
á tindinn og meðal þeirra voru
stúlkurnar.