Þjóðviljinn - 05.08.1959, Page 12
Framsókn er ekki andstæðing-
r
ur Ihalds heldur kepplnautur
FramsóknarþmgmaSur saknar daga sam-
stjórnar ihalds og Framsóknar 1953-55
Frumvarp til stjórnarskrárbreytingar, kjördæmafrum-
varpið, var til framhalds þriðju umræðu á fundi neöri
deildar Alþingis í gær. Einn af hinum nýju þingmönn-
um Framsóknarflokksins, Björn Pálsson þingmaður Aust-
ur-Húnvetninga, flutti þá ræðu, þar sem í fullri hrein-
skilni var lýst yfir aö stefna flokksins í kjördæmamálinu
væri sú að koma allsstaðar á einmenningskjördæmum,
líka í Reykjavík, en þessu stefnumáli hafa Framsóknar-
menn og málgögn þeirra lítt haldið á loft að undan-
förnu, — ekki talið þáð ráðlegt.
Ræðumaður taldi að klairfa-
skap FramsóknarforinKjanna
hefði að einhverju leyti mátt
inn kenna að ekki tókst sam-
komulag með Framsóknar-
ffokknum og Sjálfstæðisflokkn-
um um stofn-
un einmenn-
ingskjör.
dæma um allt
land. Harmaði
hann að slitn-
að liefði sam-
starf þessara
flokka um r;ík.
Hreinskilinn . ... .
isstjorn fyrir
þremur árum, því að þjóðar-
búskapurinn hefði að sínu áliti
kannski aldrei gen.gið betur en
þá, árin 1953-55 — á stjórn-
arárum Framsóknaríhaldsins,
þegar æ fleiri landsmenn voru
flæmdir frá framleiðslustörfun-
um í óarðbæra vinnu fyrir
bandaríska hernámsliðið á Suð-
urnes jum!
Skeiðreið til íhaldsins
Þetta var jómfrúræða
Björns á þingi og voru áheyr-
endapallar þinghússins þétt-
setnir meðan hann flutti hana.
Höfðu menn gaman að líkinga-
tali hans — hann iíkti t. d.
þjóðfélaginu ýmist við stóran
búgarð eða plöntu — en öðru
fremur vakti þó athygli hrein-
skilni hans, sem stakk mjög
I stúf við skrif Tímans að und-
anförnu og þingræðu Þórarins
Tímaritsljóra, þar sem hann
hélt því fram að Framsóknar-
flokkuiinn væri orðinn höfuð-
andstæðingur maldsins.
Skúli Guðmundsson talaði
næstur á eftir Birni Pálssyni,
en síðan fiutti Einar Olgeirs-
son langa og snjalla ræðu. Vék
hann fyrst no'kkrum orðum að
ræðu Skúla, en gerði síðan
ræðu Björns Pálssoaar að um-
talsefni. Benti Einar á að Björn
hefði með yfirlýeingu sinni um
að Framsðkn og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefðu átt að leysa
kjördæmamálið saman á grund-
velli einmenningskjördæma vilj.
að gera það sem Tíminn hefur
að undanförnu verið að ráðast
á verkalýðsflokkana fyrir: hafa
samvinnu við Sjálfstæðisflokk-
inn um kjördæmabreytingu.
Samþykkt flo'kksþings Fram-
sóknar um einmenningskjör-
dæmin hefði lítt verið hampað
að undanförnu, þar til nú einn
af svokölluðum fulltrúum
dreifbýlisins hefði lýst þessari
stefnu flokksins hreiiiskilnis-
lega.
Lítil veiði —
Mikið veiðar-
færatjón
Siglufirði í gær.
Frá fréttaritara Þjóðv.
1 nótt varð vart við ofurlitla
síld við Grímsey og komu
nokkrir bátar til Siglufjarðar.
Aflahæst var Freyja ÍS með
500 mál, Heimaskagi AK fékk
350 og Einar Hálfdánarson ÍS
350. Fjalar VE, Akraborg EA,
Vörður TH, Þorsteinn GK og
Helguvík KE voru öll með
nokkru minni afla
•
Framhald á 9. síðu
Einar Olgeirsson drap einnig
á þau ummæli Björns, að kenna
mætti að einhverju leyti klaufa-
skap Framsóknarforingjanna
um að ekki tókst samkomulag
við íhaldið um þessa ,,lausn“
kjördæmamálsins. Klaufaskap-
urinn, sagði Einar, var fólginn
í þv'í, að Framsóknarforingj-
arnir vissu jafnan ekki hvort
þeir áttu heldur að semja til
vinstri eða hægri, í sama far-
inu var staðið. Eg er liinsveg-
ar sannfærður um, sagði Ein-
Framhald á 6. síðu.
fMÚÐVIUINN
Miðvikudagur 5. ágúst 1959 — 24. árgangur — 164. tölublað
Nixon rædd! í 6 stundlr
?ið Gomulka í Varsjá
Honum heíur verið mjög fagnað í Póllandi,
fer þaðan heimleiðis í dag
Ricliard Nixon, varaforseti
Bandaríkjanna, kom til Varsjár
á sunnudaginn, en heldur þaðan
lieimleiðis fyrir hádegi í dag.
Nixon var vel fagnað þegar
hann kom til höfuðborgar Pól-
lands á sunnudaginn. Að sögn
fréttaritara var mikill mann-
fjöldi saman kominn til að
hylla hann þegar hann ók frá
Meðal farþega frá London með Hrímfaxa sl. inánudagskvöld,
voru sjö blaðameun frá brezkum blöðuín. Á myndinni eru eftir-
taldir blaðamenn: Alastair Burnet frá The Economist, Harry
Dunn frá The Scotsman, Kingsley Martin frá The New States-
man, Adam Fergusson frá The Glasgow Herald, Eric Stevens
frá The News Chronicle, Michel Stevens frá The Manchester
Guardian og Guy Rais írá tlie Daily Telegraph. Blaðamenn
þessir munu dvelja hér í boði Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna í eina viku og halda utan þann tíunda þessa mánaðar.
Ljósm. P. Thomsen.
flugvellinum inn í borgina.
Hann hefur skoðað sig um
i Varsjá og næsta nágrenni
hennar. I gær heimsótti hann
þannig háskólann, dómkirkjuna
og stáliðjuver fyrir utan borg-
ina, og lagði blómsveig á minn-
isvarða sem reistur hefur verið
í gyðingahverfi börgarinnar
sem Þjóðverjar lögðu í rúst á
stríðsárunum. Hann ræddi um
hinar miklu hörmungar sem
gengu yfir pólsku þjóðina í síð-
asta etríði og sagði að þær
mættu aldrei endurtaka sig.
I háskólanum ræddi hann um
nauðsyn aukinna menningar-
tengsla milli Póllands og
Bandaríkjanna og minntist sér-
staklega á að ríkin ættu að
skiptast á kennurum og stúd-
entum.
Nixon ræddi við Gomulka,
framkvæmdastjóra Sameinaða
Verkamannaflokksins pólska, í
sex klukkustur.Gir í fyrradag
og í gær sat hann hádegis-1
verðarboð hjá Cyrankiewicz for^
sætisráðherra. Ræddust þeir við
í tæpar þrjár klukkustundir og
sagði Cyrankiewicz að viðræð-
unum loknum að þær hefðu
verið mjög gagnlegar.
Kvöldfundur
í neðri deild
Kvöldfundur var í neðri deild
Alþingis í gær og var kjördæma-
frumvarpið til framhalds 3. um-
ræðu. Var ætlunin að ljúka um-
ræðunni þá.
Frá skákmétinu
í Örebro
1 6. umferð á Norðurlanda-
mótinu í skák, er tefld var í
fyrradag, ifóru leikar svo í
landsliðsfl., að Stáhlberg vann
Liljenström og Haahr vann
Fron, Olsson og Nyman, Nie-
melá og Patterson gerðu jafn-
tefli. Biðskák varð hjá Inga
R. og Reeise.
I meistaraflokki vann Ólafur
Magnússon sína s'kák en Jón
Þorsteinsson gerði jafntefli.
Skák Björns Jóhannessonar fór
í bið.
Jón Hálfdánarson vann skák
sína í unglingaflokki.
Innflutningur okkar frá Tékkóslóv-
akíu skertur um rúman fjórðung
AfleiSíngin: Tékkar hœfta Wð oð kaupa af okkur ýmsar
afurSir sem Wð eigum erfjff að finna markaS fyrir
Fyrstu fimm. mánuði þessa árs hafa stjórnarvöldin
skert innflutning okkar frá Tékkóslóvakíu um 12,5 millj.
króna eða rúman fjórðung. Afleiðing þeirrar ráðs-
mennsku hefur orðið sú að Tékkar hafa ekki séð sér
fært að kaupa af okkur ýmsar afurðir sem þeir höföu
hug á aö kaupa og okkur vantar markað fyrir.
Fyrstu fimm mánuði ársins
1958 nam innflutningur okkar
frá Tékkóslóvakíu 46.5 milljón-
um króna, en á sama tíma í ár
hefur innflutningurinn orðið 34
mihjónir króna. Þessi niður-
skurður hefur verið framkvæmd-
ur með því að innflutningsyfir-
völdin og bankarnir hafa tak-
markað innfiutning á ýmsum
ágætum tékkneskum vörum. svo
sem vefnaðarvörum skófatnaði,
vélum og verkfærum o.s.frv. Allt
eru þetta vörur sem íslenzkir
innflytjendur hafa hug á að
kaupa og næg eftirspurn er eft-
ir hér innan lands.
Vildu auka kaup sín hér
Á þessum sama tíma hafa
Tékkar haí't hug á því að kaupa
af okkur ýmsar afurðir sqm okk-
ur vantar markaði fyrir. Má þar
t.d. nefna nautakjöt. saltsíld og
niðursuðuvörur. Höfðu íslenzkir
útflytjendur mikinn hug á að
gera samninga við Tékkóslóvak-
íu um kaup á þessum afurðuin,
en vegna hins skerta innflutnings
frá Tékkóslóvakíu hafa tékknesk
stjórnarvöld ekki séð sér fært
að gera bessa samninga og keypt
vörurnar í staðinn annarstaðar.
Þaðan er leyít að
flytja inn
Þær vörur sem ekki hafa feng-
izt fluttar inn frá Tékkóslóvakíu
hafa í staðinn verið keyptar í
öðrum löndum, t. d. í Vestur-
þýzkalandi. Innflutningur okkar
þaðan nam 51,7 millj. kr. fyrstu
fimm mánuði þessa árs. en við
íluttum þangað vörur fyrir að-
eins 17,7 milljónir. Frá Bretlandi
keyptum við á sama tíma vörur
fyrir nær 50 milljónir króna, en
útflutningur okkar þangað nam
aðeins 28.4 milljónum. Útflutn-
ingur okkar til Tékkóslóvakíu
nam hins vegar 33,6 miljónum á
sama tímabili, og hefði verið
hægt að auka hann til muna
eins og áður er sagt.
Ákveðum sjálfir
útflutninginn
Fyrir nokkrum dögum vitnaði
Þjóðviljinn í ummæli Finnboga
Guðmundssonar útgerðarmanns í
Gerðum. Hann benti á þá stað-
reynd að við ákveðum sjálfir hve
mikið af afurðum okkar við get-
uin selt í vöruskiptalöndununi
með því hversu mikið við kaup-
um þar. Þegar innflutningur
okkar frá löndum eins og Tékkó-
slóvakíu er skertur eru stjórnar-
völdin jafnframt að skerða út-
flutning okkar þangað, og birt-
ast hinar háskalegu afleiðingar
þeirrar stel'nu rpjög greinilega
einmitt um þessar mundir.