Þjóðviljinn - 01.09.1959, Side 12

Þjóðviljinn - 01.09.1959, Side 12
RácSsfefna AlþýcSusambands Islands: liKSsynleif að sðiuningum verði $agf upp af þeim félögum sem er það kleift fioðoð sé til nýrrar ráBstefnu með fulltrú- um þeirra félaga sem segja upp samningum „Ráöstefna Alþýðusambandsins haldin í Reykjavík 29. cg' 30. ágúst 1959 teluir nauðsynlegt, að samningum verði sagt upp af þeim sambandsfélögum sem er það kleift á næstunni vegna uppsagnarákvæða samninga. Jafn- íramt telur ráðstefnan rétt, að miðstjórn sambandsins boði til nýrrar ráðstefnu meö fulltrúum þeirra félaga, er þá hafa sagt upp samningum, þegar frekari vitneskja liggur fyrir um verðlagningu landbúnaðarafurða og aðra þróun efnahagsmála þjóðarinnar.“ Smóðviuinn Þriðjudagur 1. september 1959 — 24_ árgangur — 186. tölublað. «■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■"■■ ■ ■ ennur fundur um riðarmálin í kvöld í tilefni af því að liðin eru 20 ár s'íðan heimsstyrj- öldin síðari skall á boðar íslenzka friðarnefndin til almenns fundar í Framsóknarhúsinu (uppi) kl. 9 í kvöld. Dagskrá fundarins verður sem hér segir: Ása Ottesen: Ávarp. Björn Þorsteinsson: Upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari. Eirný Sæmundsdóttir: Viðhorf æskunnar til friðarmálanna. Jónas Árnason: Atlanzhafsbandalagið og landlielgismálið. María Þorsteinsdóttir: Máttur áróðursins. Fundurinn hefst klukkan 9 í kvöld, eins og fyrr segir, og er öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Óhugnanlegur atborður á Akranesi Drukkinn maður brýzt inn til veiklaðrar konu og er að var komið sat hann yfir henni látinni Aðfaranótt sl. sunnudags geröist sá óhugnanlegi at- burður á Akranesi, að drukkinn maður brauzt inn í her- bergi veiklaðrar konu á elliheimilinu. Er að var komið lá konan örend á legubekk en maöurinn sat við höfða- lagið á bekknum. í gærkvöld skýrði bæjarfógetinn á Akranesi Þjóðviljanum svo frá aö krufning hefði bent til að konan hefði veriö kyrkt. Um s'íðustu helgi sátu 38 fulltrúar verkalýðssamtakanna ínnan Alþýðusambands Islands ■víðs vegar af landinu ráðstefnu um kaup- og kjaramál, ásamt jniðstjórn Alþýðusambandsins. Ráðstefnunni lauk á sunnudags. kvöld og var þá einróma sam- þykkt framanskráð ályktun. Ráðstefnan var sett kl. 4 Krústjoff kvaðst vona að Bandaríkjastjórn vaeri sama sinnís og sovétstjórnin í þessu efni. Krústjoff var í heimsókn hjá skáldinu Mikail Sjólókoff í kósakkaþorpi einu nærri Rostoff og ávarpað þorpsbúa. Hann kvað sovétstjórnina staðráðna í að leggja sitt af mörkum til að eyða viðsjám í heiminum og treysta friðinn. Krústjoff vék að svarinu sem Adenauer hefur sent við sein- asta bréfi hans. Lýsti hann ánægju sinni yfir hófsamlegum tón í bréfi Adenauers. Vestur- þýzki forsætisráðherrann hefði iátið í ljós von um bætta sam- Lá við sfysi á Bjarnadal Þegar áætlunarbíll Vestfjarða- leiðar frá Bjarkarhindi var á suðurleið á sunnudagskvöldið vildi það til við Bjarnadalsá að 'neðri vegbrúnin brast undan frámhjólum bílsins. Iýáði hann sér ekkj aftur upp á v'eginn, en seig og hallaðist allmikið, en Frámhald á 11. síðú. Fuchs stjórnar at- ómrannsóknum Klaus Fuchs, sem sat í niu ár í ensku fangelsi fyrir að iáta sovézku leyniþjónustunni í té vitneskju um kjarnorkurann- sóknir Vesturveldanna á striðs- árunum, hefur verið skipaður að- stoðarforstjóri kjarnorkurann- sóknarstöðvar Austur-Þýzka- lands nærri Dresden. Hann veit- ir þar forstöðu rannsóknadeild. Fuchs hélt beina leið til föð- ur síns í Leipzig í Austur-Þýzka- landi, þegar hann var látinn iaus í sumar. síðdegis eftir að henni hafði verið frestað um tvær stundir vegna þess að fulltrúar höfðu< ekki náð í tæka tíð vegna slæms flugveðurs. Forseti Al- þýðusambands íslands, Hanni- bal Valdimarsson hóf almenn- ar umræður er stóðu til kl. 7,30. Kl. 9 hófst fundur aftur er stóð til kl 11 og kaus hann búð við Sovétríkin og vikið að þýðingarmiklum viðfangsefnum. Verði þessum orðum fylgt eft- ir með verkum, getur orðið um verulega framför að ræða, sagði Krústjoff. Okkur leikur hugur á að fá nánari upplýsingar um skoðanir vesturþýzku stjórnar- innar á afvopnun, ráðstöfun á arfi styrjaldariniiar og nánari samvinnu ríkja í austri og vestri. nefnd til að gera drög að á- lyktun. í nefndina voru kosn- ir einróma: Eðvarð Sigurðsson, Óskar Hallgrímsson, Óskar Garibaldason, Hermann Guð- mundsson, Hermann Jónsson og Björgvin Sighvatsson. Fundur hófst aftur kl. 2 e.h. á sunnudag og skilaði nefndin þá störfum. Eðvarð Sigurðsson hafði framsögu fyrir nefndina og Iýsti tillögu hennar að á- lyktun. Ályktun þessi var sam- þykkt einróma síðar á fundin- um. Fulltrúar sjómannafélaganna á ráðstefnunni héldu með sér sérstakan fund þar sem rædd voru kaup- og kjaramál tog- arasjómanna. Samþykkti fund- urinn einróma að rétt væri að segja upp samningum togara- sjómanna í haust og hafa þá lausa. Það virðist nú augljóst að kjör togarasjómanna verði mun lakari í ár en þau voru árið 1958 og veldur því allt I senn, minni afli, lækkun fastakaups og fiskverðs. Framhald á 3. síðu Staðinn að verki Klukkan rúmlega þrjú að- faranótt sunnudagsins hand- samaði lögreglan mann á inn- brotsstað hér í Reykjavík. Hafði hann brotizt inn í kjöt- verzlun á Grettisgötu 64, brot- ið þar upp peningakassa en engu tekizt að stela. Samkvæmt upplýsingum bæj- arfógetans á Akranesi, Þórhalls Sæmundssonar hét konan Sig- ríður Ásta Þórarinsdóttir og var 43 ára að aldri. Var hún van- gefin og hefur síðustu árin ver- ið alger öryrki og mjög heilsu- tæp. Hefur hún dvalizt á elli- heimilinu á Akranesi síðan hún hætti að geta unnið nokkuð. Laust fyrir klukkan 4 aðíara- nótt sunnudagsins varð fólk á elliheimilinu þess vart, að brot- izt hafði verið inn í herbergið til Ástu, en það er uppi á lofti og hafði verið farið inn í skúr bak við húsið. Þegar að var komið lá Ásta örend á legubekk í herberginu, en drukkinn maður sat hjá höfðalaginu á bekknum. Lá konan uppi í legubekknum nema annar fóturinn hvíldi á gólfinu. Þegar í stað var náð í lækni og lögreglu. Þegar læknir hafði skoðað lík- ið, kvaðst hann ekki geta úr- skurðað dánarorsök nema gerð væri krufning á likinu og' var það því strax í gærmorgun sent til Reykjavíkur til krufningar. Drukkni maðurinr; situr nú í gæzluvarðhaldi á Akranesi. Hann er 22 ára gamall sjómað- ur og er ekki búsettur á Akra- nesi en á foreldra þar. Á und- anförnum árum hefur hann viða farið og sætt alls 14 sinnum sektum fyrir ölvun á almanna- færi, en það er í Reykjavík, Keflavík, Vestmannaeyjum, á Akureyri og Siglufirði. Auk þess hefur hann einu sinni sætt all- hárri sekt fyrir líkamsárás. Var það á Siglufirði fyrir tveim ár- um. Maðurinn kveðst sjálfur ekk- ert muna eftir þvi, sem gerðist í herberginu. Hann segist haía þekkt Ástu áður en hún fluttist á elliheimilið, en starfsfóik þar kannast ekkert við, að hann hafi komið þar áður, en þrátt fyrir það rataði hann með einhverj- um hætti á herbergi hennar. Piltur á Akranesi hefur borið, að maðurinn hafi komið til sín um 12 leytið um kvþldið með flösku af víni og sátu þeir heima hjá honum til um klukkan 3 um nóttina. Átti maðurinn eft- ir ofurlítinn slatta í flöskunni er hann fór þaðan og var orðinn alldrukkinn. Er ekki vitað um ferðir mannsins fyrr en hann brýzt siðan inn í herbergi Ástu skömmu fyrir klukkan 4 eins og áður' segir. Þegar blaðið átti tal við Þór- hall Sæmundsson bæjarfógeta á Akranesi í gærkvöld, hafði hon- um borizt skýrsla um niðurstöðu krufningar á líkinu er fram fór á Landsspitalanum i Reykjavík Framhald á 11. síðu Umferðarslys á • Suðurlandsbraut Umferðarslys varð á Suður- landsbraut, skammt frá gatna- mótum Réykjavegar, aðfaranótt s.I. sunnudags. Slysið vildi til um klukkan fjögur um nóttina. Langferða- bifreið, sem var á leið niður í miðbæ, hafði stanzað þarna á Suðurlandsbrautinni og einn farþeganna, Guðjón Einarsspn til heimilis að Kálfafelli í Skaftafellssýslu, farið út og gengið aftur fyrir bifreiðina og yfir götuna. I sama mund var bifreið ekið austur Suðurlands- braut og varð Guðjón fyrir henni, Kastaðist hann upp á vélahlíf bílsins og síðan í göt- una. Hlaut maðurinn slæmar skrámur og marðist illa, en beinbrotnaði ekki. HLUTFALLSLE6 ST/Eftt) mismunandi fiskveiðil a nomel g/ ÍSLANDS Línurit sem sýnir breytingar þær sein gerðar liafa verið á stærð Iandlielginnar. 3 mílna Iandhelgin, sem í gildi var til 1952, var að flatarmáli 24.530 ferkílómetrar, en lengd sjálfr- ar landhelgislínunnar var 1240 sjómílur. 4 sjómilna landhelgin sem þá tók við var að flatarmáli 42.905 ferkílómetrar, en lengd landhelgislínunnar var 934; hún hafði sem sé stytzt vegna þess að grunnlínum var breytt. 12 sjómílna landhelgin, sem nú hefur verið í gildi í eitt ár, er að flatarmáli 68.533 ferkílómetrar, en lengd landhelgislínunnar er svipuð og meðan 4 mílur voru í gildi. Stækkun fiskveiðilandhelginnar síðan 1952 nemur iira 180%; hún hefur næstum þyí þrefaldazt. Einskis látið ófreistað til að bræða ís kalda stríðsins Krústjoff lýsti yfir í gær að á fundum sínum með Eis- enhawer á næstunni myndi hann einskis láta ófreistað til að bræða ís kalda stríðsins.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.