Þjóðviljinn - 31.10.1959, Side 9
4)' — ÓSKASTUNDIN
Lárétt og lóðrétt
ORÐAÞRAUT
í vor höfðum við í !
b'aðinu létta orðaþraut
fyi ir yngri lesendurna,
það var byrjunarkennsla
í því að ráða krossgát-
ur.
Margir hafa sent okk-
ur orð og óskað eftir að
fleiri slíkar kæmu í
blaðinu. Við viljum
gjarnan verða við óskum
ykkar. Þessi orðaþraut er
talsvert flóknari en hin,
þó eigið þið öll að geta
ráðið hana.
1. Þegar vorið er liðið
kemur....
2. Hann er kærkominn.
3. Það er búið að leysa
hann.
4. Það eru stórar kerl-
ingar, sem búa í hell-
um.
Klippmyndir
Framhald af 1. síðu.
er hvítur með svartan
kjarhma.
Vertu sæl,
Sæbjörg Jónsdóttir, 8 ára.
Þetta var bréfið, en
myndina fáið þið að sjá
seinna. Hún er klippt í
silkipappír innan úr síg-
arettupakka, og er mjög
góð. Við viljum ekki að
svo stöddu segj a neitt
um það hverjir fá verð-
launin, því við vonum að
enn fleiri sendi myndir.
5. Það er merki sem eru
á leiðunum í kirkju-
garðinum.
6. Það er í ánni við fossa
og flúðir.
7. Það er karlmannsnafn
og er ráðningin á
þessari gátu:
Þekkti ég mann á þeirri
braut
þandi kálfa báða.
Vatnaskratti, þjófaþraut,
þú munt nafnið ráða.
Þegar búið er að finna
öll orðin má lesa lóðrétt
fyrstu línuna (fyrsta staf-
inn í öllum orðunum) og
það er nafnið á barna-
riti Sumargjafar, sem selt
er á Sumardaginn fyrsta.
SKRITLUR
Elsa: Það eru tveir
hlutir, sem koma í veg
fyrir að þú getir talist
góður dansari.
Andri; Hverjir eru
það?
Elsa; Fæturnir.
„Hvernig myndi yður
líða, ef þér yrðuð að
hlusta á börnin yðar emja
eftir brauði?“ spurði betl-
arinn.
Heimilisfaðirinn stundi
mæðulega. „Þá myndi
mér líða dásamlega vel“,
svaraði hann. „Það væri
sannarlega tilbreyting,
því þau emja allan dag-
inn eftir súkkulaði".
Viðskiptavinurinn: Fíla-
beinsaskjan, sem ég
keypti hjá yður um dag-
inn, er úr gervibeini.
Kaupmaðurinn: Það er
óskiljanlegt — nema þá
að fíllinn hafi verið með
gervitönn.
»
Hún: Ef við lendum
skipreika, hvort mynd-
irðu bjarga fyrst börn-
unum eða mér?
Hann; Mér!
Laugardagur 31. okt. 1959 — 5. árg. — 35. tbl.
Ritstjóri Vilborg Dagbjartsdóttir — Útgefandi ÞjóSviljinn
CR
KLIPP-
MYNDA-
SAM-
KEPPNINNI
Það er réttur mánuður
þar til samkeppninni lýk-
ur, eða þann fyrsta des-
ember. Verðlaunin verða
hæfilegur jólaglaðningur
handa þeim, sem þau
hreppa. Þátttaka er mjög
góð og við höfum fengið
þegar yfir 30 myndir, þær
koma að austan, vestan,
norðan og sunnan. Enn
eru það börnin í sveitun-
um, sem senda flest bréf-
in. Einkar fallegar .mynd-
ir fengum við j frá stúlku
á Berufjarðarströnd,
einnig skemmtilega mynd
frá 8 ára stelpu á
Blönduósi. Þeirri mynd
fylgdi svo gott bréf.
Kæra Óskastund!
Ég sendi þér mynd, sem
ég klippti út. Mér þykir
voðalega gaman að lesa
Óskastundina.
Systkinin Sigurður
Grétarsson og Sólveig
Brynja Grétarsdóttir á
Skipalæk á Fljótsdals-
héraðí, sendu okkur tvo
klippdúka. Þeir eru ekki
merktir svo við vitum
ekki hvort þeirra gerði
þennan dúk, sem mynd-
in er af, en létum okkur
detta í hug að það hefði
verið Sólveig. Ef það er
rétt, ætti hún að skrifa
okkur.
Systkinin skrifa bæði
undir bréfið og spyrja
hvernig skriftin sé. Þau
geta ekki um aldur og
þess vegna ér ekki gott
að dæma um skriftina.
Ef þau eru 8 og 9 ára
skrifa þau vel.
Við vonumst eftir bréfi
frá þeim.
Það er tík hérna, sem
heitir Kría. Hún á hvolp,
sem heitir Kjammi. Hann
Framhald á 4. siðu.
Laugardagur 31. október 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (9
í
T B RITSTJÓRI^
Sautján drengir í Keflavík
leystu bronsþrautir K.S.Í.
Það er kunnara en frá þurfi
að segja, að drengir frá Kefla-
vík hafa staðið sig vel í knatt-
spyrnunni í sumar og það læt-
ur að líkum, að það eé enginn
tilviljun. Unglinganefnd KSÍ
var um daginn hjá þeim og
varð sannarlega vör við áhug-
ann sem þar logaði. Mun sú
heimsókn sennilega hafa ýtt
undir síðasta afrek þeirra á
sviði knattspyrnunnar. Þeim
voru sýnidar kvikmyndir frá
því hvernig sænskir drehgir
leystu knattþrautir, sem eru
eins og þær sem KSl hefur hjá
sér. Drengirnir í Keflavík létu
ekki við það eitt sitja að horfa
á þær. Þeir tóku til óspilltra
málanna að æfa þrautirnar, og
létu vætuna og veðurhaminn
ekkert á sig fá. Og árangurinn
lét ekki á sér standa. Nú í
þessari viku höfðu hvorki
meira né minna en 17 drengir
lokið við bronsþrautirnar, en
áður höfðu fimm lokið þeim,
svo nú eiga Keflvíkingar 22
bronsdrengi.
Það verður varla langt liðið
á næsta sumar þegar fréttir
fara að berast af Suðurnesjun-
um að „silfurdrengir“ komi
þar fram og. eíðan „gulldreng-
ir“.
Hér fara á eftir nöfn þeirra
sem leystu þraútimar:
Ölafur Marteinsson 15 ára.
Guðni Skúlason 15 ára.
Jóhann Ölafsson 15 ára.
Kjartan Sigtryggss. 15 ára.
Sveinn Pétursson 15 ára.
Geirmundur Kristinsson
15 ára.
Magnús Torfason 14 ára.
Karl Hermannsson 14 ára.
Rúnar Júlíusson 14 ára.
Sigmar Hallgrímss. 14 ára.
Stefán Bergmann Matthías-
son 13 ára.
Gunnar Þórðarson 13 ára.
Bragi Eyjólfsson 13 ára.
Ragnar Skúlason 13 ára.
Stefán Haraldsson 13 ára.
Einar Gunnarsson -12 ára.
Kristján Ingibergss. 12 ára.
Nú er aðeins fyrir þessa
ungu menn að halda áfram að
æfa og iná meiri og meiri full-
komnun. Og hina eldri að
sinna þeim, aðstoða og leið-
beina.
Þá ætti framtíð knattspyrn-
unnar í Keflavík og á Suður-
nesjum að vera borgið í fram-
tíðinni.
Þetta afrek drengjanna j
Keflavík er líka örvun fyrir
drengi í öðrum byggðalögum.
Þar eru líka efni, aðeins ef
Reykjavíkurmótið í handknattleik:
Sfö leikir í kvöld
Meistaramót Reykjavíkur í
handknattleik heldur áfram í
kvöld og þar er það meira
ungdómurinn, sem kemur
fram, bæði í karla- og kvenna-
flokkum.
Þó mikil tilfærsla sé í þeim
flokkum frá ári til áns, eru
þó sömu keppendur og voru í
síðasta íslandsmóti í fyrravet-
ur, ef þeir eru annars með.
Mörg liðin og einstaklingar
þeirra lofuðu þá góðu og stað-
festu að: áhugi er mikill meðal
unga fólksins fyrir handknatt-
leik. Vafasamt er að það sé,
þegar komið í góða æfingu,
en vafalaust verður barizt af
kappi um hvert stig í hverjum
leik.
Þeir eem gaman hafa af,
handknattleik geta skemmt
sér ekki síður við að horfa-
á sum liðin í ungu flokkunum
en í þeim eldri.
Leikirnir sem fara fram í
kvöld eru þessir:
2. fl. kv. A. Ármann—Fram.
2 fl. kv. A. Víkingur—KR.
3. fl. k. A.a. Þróttur—Fram.
3. fl. k. A.b. Víkingur—ÍR.
2. fl. K. A.a. Víkingur—Þrótt-
ur, 2. fl. K. A.a. Valur—KR.
2. fl.K. A.b. Fram—Ármann.
Eins og venjulega hefjast
leikirnir klukkan 8.15.
þeir hafa áhuga og að þeim
sé isinnt.
Víkingur í afmælisleik
við UMFK
S.l. sunnudag fór fram
knattspyrnukappleikur í Kefla-
vík, sem mun vera sá síðasti
hér um slóðir á þessu keppnis-
tímabili.
Var það Meistaraflokkur
Vikings sem lék þar afmælis-
kappleik við Ungmennafélag
Keflavíkur í tilefni af 30 ára
afmælinu. Leikar fóru þannig
að afmælisbarnið vann með
2:0. Voru bæði mörkin skoruð
á síðustu 15 mínútum leiksins.
RAFMAGNS-
PERUR
smáar og stórar
Framleiðsla okkar byggist á
margra ára reynslu og
hagnýtri þekkingu.
I
Framieiðsla okkar mun geta
gert yður ánægðan.
ifJ«~ .
; <::J£:
^VIB B E R 11 n E R GLUHLRmPEIl * UlERHjJ
Berlin O 17, Warschauer Platz 9/10, Teiegramm: Gluh-
lampen—IVerk, Berlin. Deutsche Demokratische Republik.
Einkaumboðsmenn: EDDA H.F. — Pósthólf 906, Reykjavík.