Þjóðviljinn - 06.11.1959, Side 9
Föstudagur 6. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Sextíu æfingotímar innanliúss
hfá KE í sjö íþróttagreinum
Fyrsti hópur flugliða Loftleiða
for vestur í fyrradag
Fær bar þiálfun í meðferð hinna nýju
Cloudmasterflugvéla félagsins
Vetrarstarfsemi Knattspyrnufé-
lags Reykjavíkur hófst 1. okt.
sl. og eru iðkaðar á vegum fé-
lagsins 7 íþróttagreinar í þrem
íþróttahúsum, samtals 60 tímar
á viku. Að sjálfsögðu fara flestar
æfingar fram í íþróttahúsi fé-
lagsins við Kaplaskjólsveg.
i
Knattspyrnudeild
Knattspyrnudeild æfir inni 12
tíma á viku, sunnudaga kl 13,00
til 15,00, mánudaga kl. 18,05 til
21.25 og fimmtudagat kl. 18,55 til
23.10 og fara allar þessar æf-
ingar fram í KR-húsinu. Lögð
verður áherzla á að sem flestir
drengir ljúki hæfnisþrautum
þeim sem fram fara á vegum
K.S.f.
Knattspyrnuþjálfarar eru Óli
B. Jónsson, er þjálfar méistara-
flokk, 1. og 2. flokk; Örn Stein-
sen er þjálfar 3. flokk; Guðbjörn
Jónsson er þjálfar 4. flokk og
Gunnar Felixson er þjálfar 5.
flokk. Knattþrautir kennir Sig-
urgeir Guðmannsson.
Frjálsíþróttadeild
Frjálsíþróttadeild æfir í íþrótta-
húsi Háskólans 7 tíma á viku.
Á mánudögum og föstudögum kl.
20,00 til 21.00 er æfð íþróttaleik-
fimi og þrekæfingar. Á mið-
vikudögum kl. 18,15 til 10,00 eru
æfingar sem sérstaklega eru ætl-
aðar fyrir stökkvara. Á fimmtu-
dögum kl. 19,00 til 20.00 eru æf-
ingar fyrir drengi 16 ára og
yngri. Á laugardögum eru 3 æf-
ingartímar frá kl. 15,15 til 17,30
og er hinn fyrsti einkum ætlað-
ur fyrir hlaupara, annar fyrir
stökkvara og hinn þriðji fyrir
kastara. Þjálfari frjálsíþrótta-
manna er eins og1 að undanförnu
Benedikt Jakobsson, nema hvað
Svavar Markússo í þjálfar drengi
16 ára og yngri.
Fimleikadeild
Fimleikadeildin æfir í íþrótta-
húsi Háskólans 6 tíma á viku,
mánudaga kl. 21,00 til 22,00,
fimmtudaga kl. 20,00 til 22,00! og
föstudaga kl. 21,00 til 22,00 fyr-
ir fullorðna. Æfingar fyrir ung-
linga eru á mánudögum og föstu-
dögum kl. 20,00 til 21,00.
Eins og undanfarin ár þjálfar
Benedikt Jakobsson eldri flokk-
inn. Jónas Jónsson annast þjálf-
un unglingaflokksins.
Afrekaskrá í
frjálsíþróttum
Á síðasta ársþingi FRÍ var
talið æskilegt, að hin árlega af-
rekaskrá sambandsins næði fram-
vegis til 20 beztu manna (og
kvenna) í þeim greinum þar
sem þátttaka leyfir (í stað 10
manna áður).
Að gefnu þessu tilefni skorar
stjórnin hér með á þá sam-
bandsaðila, sem hafa enn ekki
sent móta- ög afrekaskrár frá
sl. sumri — að láta það nú ekki
dragast lengur en fram að 10.
nóv. nk., en þá verður gengið
endanlega frá umræddri afreka-
skrá FRÍ.
Handknattleiksdeild
Handknattleiksdeildin æfir í
K.R.-húsinu 9 tíma á viku á
sunnudögum, þriðjudögum og
föstudögum. Æft er í fjórum ald-
ursflokkum karla og tveim ald-
ursflokkum kvenna.
Kennarar eru Heinz Steinman
og Bára Guðmannsdóttir.
j
Körfuknattleiksdeild
Körfuknattleiksdeildin æfir í
K.R.-húsinu 6 tíma á viku, á
sunnudögum, miðvikudögum og
laugardögum. Æft er í þremur
aldursflokkum karla og einum
aldursflokki kvenna.
Þjálfun annast Þórir Arin-
bjarnarson og Helgi Sigurðsson,
auk þess sem Sveinn Snæland
aðstoðar við þjálfun fjórða
flokks karla.
Á miðvikudagskvöld sýndu hin-
ir dönsku gestir Tennis og badm-
intonfélagsins listir sinar í KR-
húsinu, fyrir fjölda áhorfenda.
Gestirnir, en þeir heita Jörgen
Hammergaard og Henning Broch,
sýndu leikni sem áður hefur ekki
sézt hér og hafa þó nokkrir ágæt-
ir danskir badmintonleikarar
verið hér í heimsókn að ógleymd-
um okkar ágæta „dansk“-inn-
flutta Walbum eða Vagni Ottós-
syni eins og við köllum hann nú.
Hvað eftir ánnað dundi við lófa-
tak og fagnaðaróp yfir snilli
þeirra og kunnáttu. Gamlir
badmintonleikarar brostu breiðu
brosi er þeir sáu aðfarirnar, og
sannarlega hefði Friðrik í Ási
viljað vera yngri og geta til-
einkað sér eitthvað af því sem
hinir dönsku gestir gátu sýnt,
svo og aðrir af eldri skólanum,
sem þarna voru og létu óspart í
Ijós aðdáun sína.
Viðureign þeirra landanna var
hápunktur kvöldsins, og mátti
þar sjá marga viðureign sem
hreif áhorfendur, og gilti þar
einu hvort barizt var með hár-
fínum sendingum við netið eða
sendingin var löng og há. Hvort
það var „bakhönd" sem kölluð
er, og þar var Jörgen meiri
meistari, en leifturhraði og slag-
öryggi Hennings var líka aðdá-
anlegt. Hér voru heldur engir
smákarlar á ferð, þeir hafa ekki
aðeins orðið meistarar í heima-
landi sínu, sem er eitt hið allra
snjallasta í Evrópu í þessari
grein, þeir hafa líka orðið meist-
arar í mörgum löndum bæði ut-
an og innan Evrópu.
Viðureign þeirra landanna
lauk með því að Jörgen vann,
þó með því .að leika aukaleik.
Hann vann fyrsta leikinn 15:12
en tapaði svo næsta leik með
miklum mun eða 4:15. Aukaleik-
inn vann hann svo með 15:12.
Þeir léku einnig í tvíliðaleik,
og hafði Henning, Vagn Ottós-
son með sér en Jörgen Einar
Sunddeild
Sunddeildin æfir í Sundhöll
Reykjavikur 5 tíma á viku. Sund
er æft á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og föstudögum kl. 19,00
til 21,00. Sundknattleikur er æfð-
ur 2 tíma á viku á sunnudögum
og miðvikudögum kl. 22,00 til
23,00.
Kennari sunddeildarinnar er
Helga Haraldsdóttir.
I
Skíðadeild
Skíðadeildin æfir leikfimi 1
tíma á viku í KR-húsinu, en að
öðru leyti fer starfsemi deildar-
innar fram í Skálafelli við hinn
nýja og glæsilega skíðaskála fé-
lagsins og þar verða í vetur hald-
in skíðanámskeið og munu
þekktir skiðamenn annast þar
þjálfun.
Jónsson. Fóru leikar þannig að
Henning og Vagn unnu með 15:6
og 15:8. Voru oft skemmtileg til-
þrif á báða bóga, þótt þeir Henn-
ing og Vagn sigruðu með yfir-
burðum.
Skemmtileg var einnig tvend-
arkeppnin þar sem við áttust
Jörgen, sem hafði að félaga Hall-
dóru Thoroddsen, en Henning
hafði Jónínu Niljóníusdóttur með
sér. Var keppnin jöfn og
skemmtileg, og urðu „pörin“ að
leika aukaleik til þess að útkljá
einvígið. Þulurinn gat þess að
Jörgen væri mjög snjall tvend-
arleikmaður og í Danmörku léki
hann með konunni sinni, og væru
bau danskir meistarar. Hann
bætti við að slíkur ,,hjónaleikur“
hér hefði gefizt heldur illa, og
vakti það nokkra kátínu áhorf-
enda.
Jörgen og Halldóra unnu fyrsta
leikinn með 15:8. Næsta leik
unnu svo Henning og Jónína með
15:18. í síðasta leiknum tókst
beim Jörgen og Halldóru veru-
lega upp og unnu nú með yfir-
burðum 15:6.
Á meðan gestirnir voru að
hvíla sig fyrir síðasta atriðið,
einliðaleik beirra sem getið hef-
ur verið, fór fram keppni í tví-
liðaleik karla og áttust þeir við
Vaen og Þórir Jónsson annars
vegar og Einar Jónsson og Ósk-
nr Guðmundsson hins veear.
Fyvri leikinn unnu beir Vaen
og Þórir með 15:1 off síðari leikn-
um lauk einnig með sigri þeirra
15-8.
Næsta keppni þessara dönsku
meistara verður á sunnudaginn
kemur í KR-húsinu. Dagana
þangað til munu þeir mæta á
æfingum badmintonfólksins og
gefa því ráðleggingar og sýna
því hvernig á að standa að frarn-
kvæmd hinna ýmsu atriða.
Heim munu þeir fara á mánu-
dag, því þeir eiga að taka þátt
í opinberri keppni á þriðjudag.
Eins og kunnugt er hafa Loft-
leiðir hf. nú fest kaup á tvcim
flugvélum af Cloudmaster gerð
og vcrður fyrri flugvélin form-
lega afhent félaginu í Miami á
Florida, 9. desember nk.
Um það var samið að seljandi
vélanna, bandaríska flugfélagið
Pan American, annaðist þjálfun
10 flugáhafna Loftleiða, sem ráð-
gert er að fljúgi vélum þessum,
en áætlað er ací félagið láti þær
hefja íerðir á hinum föstu flug-
leiðum í nk. aprílmánuði.
Áhafnir Loftleiða munu verða
þjálfaðar í bækistöðvum Pan
American á Miami í Florida.
Gert er ráð fyrir að æfinga-
tími flugmannanna verði 4 vik-
ur. en flugvélstjóra 6.
Fyrsti hópur flugliða Loftleiða
fór héðan áleiðis til Florida, mið-
vikudagskvöldið 4 þ. m. Voru
það flugvélstjórarnir Baldur
Bjarnasen, sem var fararstjóri,
Alfreð Olsen, Gerhard Olsen,
Gísli Sigurjónsson og Hörður
Eiríkisson.
23. þ. m. fara svo héðan fjórir
flugstjórar og fjórir aðstoðar-
flugmenn og’ verður Kristinn Ol-
sen flugdeildarstjóri, fyrirliði
þess hóps.
Eftir áramótin munu 9 flug-
liðar fara til Miami undir for-
ystu Einars Árnasonar, flug-
stjóra, en þriðji og síðasti hóp-
urinn fer um miðjan febrúar-
mánuð. Eru það 8 flugliðar og
verður Jóhannes Markússon yf-
irflugstjóri foringi þeirra.
Gert er ráð fyrir að um 80
farþegar fái þægileg sæti í far-
þegasölum hinna nýju flugvéla
Loftleiða, en þær geta, sem
kunnugt er, flogið mjög hátt í
lofti. þar sem veður eru oftast
góð. Flughraði þeirra er rniklu
meiri en Skymaster-flugvélanna
eða tæplega 500 km. miðað við
klukkustund og verður flugtím-
inn milli Reykjavíkur og Kaup-
mannahafnar því ekki nema 4y2
klst. og um 9 stundir milli New
York og Reykjavíkur.
Flugþol þeirra ei mjög mikið.
Má í því sambandi geta þess, að
þær gætu flogið í einni lotu frá
Reykjavík og suður fyrir mið-
baug.
Að undanförnu hefir verið
mjög annríkt hjá Loftleiðum og
Námsstyrkur
í tilefni 30 ára
afmœlis
H.f. Egill Vilhjálmsson hef-
ur í tilefni 30 ára afmælis fyr-
irtækisins ákveðið að veita
námsstyrk einum efnalitlum og
efnilegum stúdent í viðskipta-
fræðum hér í háskólanum.
Styrkurinn verður veittur til
þess að ljúka prófi í viðskipta-
fræðum hér innan eins árs og
til þess að ljúka prófi í erlend-
um háskóla í sömu fræðigrein
á næstu þremur árum.
Styrkurinn er alls 70.000
krónur og greiðist með 10.000
kr. 1959—1960 og síðan árlega I
20.000 kr. næstu þrjú ár.
hafa flugvélarnar oftast verið
þéttsetnar. Bendir nú allt tifr'
bess að árið 1959 verði hið
hapondrýgsta í sögu félagsins' og
standa vónir til þess að kaupin
á m'iu flugvélunum muni verða
Loftleiðum mikill styrkur í auk-
inni sókn inn á hina miklu og
sívaxandi markaði farþesa-
straumanna milli Evrópu og Am-
eriku.
(Frá Loftleiðum V
Bæjarstjómin í þjónustu
Framhald af 12. siðu.
höfnuðu bæði ríkisstjói’nin og
bæjarstjórn að kanna mögu-
leika á útvegun lánsfjár frá
Sovétríkjunum 1956 til þess-
ara framkvæmda, en þá taldi
Alþýðubandalagið unnt, að fá
þar lán með aðeins 2%%
vöxtum, enda hefði það síða’’
komið á daginn, er tekið var
þar lán til byggingar fiski-
skipa.
Lagði Guðmundur fram eft-
irfarandi tillögu fyrir höncl
fulltrúa Alþýðubandalagsins:
„Bæjarstjórnin telur eklrt
fært að samþykkja þá skii-
mála, sem fyrir li.gg.ia uin 30
miilj. kr. skuldabréfalán hiá
Seðlabankanum, vegna virki-
unar Efra Falls, og leggur til
að vextir séu ákveðnir 4%,
en lánsþóknun y2 %. Óskar
bæjarstjórn eftir því að til-
laga um þessa breytingu á
lánskjörunum verði að nýju
lögð fyrir fullskipaða stjcrn
Seðlabankans.
Nokkrar umræður urðu um
tillöguna, en við atkvæða-
greiðslu hlaut hún aðeins
stuðning bæjarfulltrúa A'-._
þýðubandalagsíns. íha’di^,
kratinn og Framsóknarfui1-
trúinn sátu hjá og hlaut 1H-
lagan því ekki stuðning, hff"
sem ekki tók tilskilinn fjö'di
fulltrúa þátt í atkvæða-
greiðslu
Álvktun um fyrm°f ct
skuldabréfalán htá Seð'a-
bankanum var síðan sam-
þykkt með 12 atkvæðum r-
halds, krata og Framsók»ar
.gegn 3 atkvæðum Alþýðu-
bandalagsins. Bæjarst.iórnar-
íhaldið er með þéssu að þ.ión-i
undir Vilhiálm Þór og aðra
slíka f jármálaspekúlanta, se»n
liagnast eiga á þessum h-> u
vöxtum, en almenningur
borgar brúsann.
Ahíkum@nn
Framhald af 1. síðu.
ekki þolað lengur ok nýlendu-
stjórnarfars. í Afríku eru nú
að verki sjálfstæðisöfl, sem eng-
inn mannlegur máttur megnar
að stöðva.
Touré kvað óhugsandi, að 201
milljónir manna í einum hluta
heims byggju við ófrelsi til
langframa, jafnframt því að aðr-
ar þjóðir nytu frel.sis,
Þjóðir Afríku þarfnast aðstoð-
ar annarra, sagði Touré, en þær
vilja ekki kaupa hana því verði
að sætta sig við kúgun og ný-
lendustjórn.
Jörgen Hammergaard og Henning
Bordi sýndu snilli sína á miðvikudag