Þjóðviljinn - 06.11.1959, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 6. nóvember 1959
Bréf
Framhald af 7. eíðu.
ört við því sem útlent er“.
Islendíngar gleypa við mörgu
sem þeicn hyorþi ferst né sæm-
ir. þin þú segir einnig: ,',skáid-
in eins og aðrir eru að gefast
upp við það erfiða hlutskipti
að vera íslendíngar í hugsun
og menníngu".
>'** Þessi fullyrðíng þín er útí |
bláinn fyrst þú ekki reynir að
styðja hana frekar; en þú
hliðrar þér við því einsog hinu:
að svara spurningum mínum
vafníngalaust. Annars getur
vel verið að þú eigir kollgát-
una þarna: allmargir menn
reyna sífellt að svíkja íslenzka
hugsun og menníngu með því
að standa í vegi fyrir eðlileg-
um möguleikum til þroska og
andlegrar frjósemi. Þessir ein-
ángrunarsinnar leitast við að
kæfa allt sem nýtt er og ferskt
t.d. í bókmenntunum. Ef til vill
áttu m. a. við slíka kumpána;
að minnsta kosti vona ég fast-
lega að þú sem málsvari ís-
lenzkrar menníngar fyllir ekki
flokk þeirra sem telja henni
bezt borgið með því að hún
staðni í sjálfri sér, óvitandi
um ferska strauma sem hvar-
vetna leita rásar og gætu gefið
henni aukna fyllíngu og víð-
ari sjónhríng.
Fullyrðíng þín um að skáld-
um þessa tíma hafi ekki lærzt
að, yrkja fyrir nútímafólk á
Islandi, er einsog fleiri slag-
orð þín sögð útí loftið óstudd:
„islensk ljóðlist veltir ekki
þungu hlassi eins og sakir
standa. Þetta er vitanlega
skáldunum að kenna“. Ekki
skal ég neita því að þau eigi
hér mikla sök. En hvað þá um
lesendurna, „nútímafólk á ís-
Iandi“? Méira og minna hata
þeir umræddan skáldskap,
sorglega oft án þess að hafa
Jesið hann. Þeir hafa því tap-
að laungu tímabili úr íslenzkri
bókmenntasögu, eðlilegri og
sjálfsagðri þróun ljóðlistarinn-
— ar (lofsverðri eða lélegri eftir
atvikum). Orsök þessarar stað-
reyndar eru: áðurnefndir ein-
ángrunarsinnar og sú penínga-
kynslóð sem nú færist á efri
ár og eftirlætur börnum sínum
sjoppurnar með Amor og Séð
enn
og lifað í veganesti. Þær bók-
menntir hefðu frekar átt
heima á bekk með Keflavíkur-
menningunni Sveinbjörn minn!
Ég hef nú í hygígju að fara
að enda þetta bréf, en ráðlegg
þér eitt og ræð þér heilt: góði
gættu að pennanum þínum
þegar þú ert einn að pukrast
með aðra merkíngu hugtaka
en almenníngur. Það er illa
gert að blekkja grunlaust fólk.
— Dylgjur þínar um misvizku
og þraungan kunníngjahríng
m.fl. læt ég mig eingu skipta,
enda á það jafnt við um aila
menn.
Með beztu óskum,
Þorsteinn Jónsson
frá Hamri.
Hittast næst heima hjá Krústjoff
Keflavíkurmálið
Félagslíf
Sunddeild KR
Sundæfingar eru af fullum
krafti í Sundhöllinni. Þjálf-
ari er Helga Haraldsdóttir
Æfingatímar eru sem hér seg-
ir á kvöldin:
Yngri félagar: Þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 7
Eldri félagar; Þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 7.30 og föstu-
daga kl. 7,45.
Sundknattleikur; Mánudaga
og miðvikudaga kl. 9,50.
Nýir félagar komi á framan-
greindum tímum,
' Stjórnin.
Framhald af 1. síðu.
liðarnir losnuðu við óþægindi í
flugvallarhliðinu, því að þeir
munu ekki hafa haft leyfi yf-
irmanna sinna til brottfarar af
flugvellinum.
Handalögmál við bifreiða-
stöðina. ‘
Snjókoma var um þetta leyti,
en hermennirnir léttklæddir.
Fór því svo, að þeir sneru aft-
ur við til bifreiðastöðvarinnar
og báðu um að mega bíða í af-
greiðslusalnum Eftir nokkurn
tíma kom bifreiðastjóri, Björn
E, Jóhannsson, á stöðina, en
hann neitaði að aka þeim fé-
lögum; nokkru síðar 'kom ann-
ar, Einar Einarsson, og féllst
hann á aksturinn með því skil-
yrði að Magnús Þorsteinsson
bifreiðastjóri, sem staddur var
í bifreiðastöðinni, kæmi með.
En skömmu áður en lagt var
af stað bað einn hermannanna
Einar að hinkra við. Steig mað-
ur þessi síðan út úr bifreiðinni,
hvarf bak við stöðvarhúsið og
kom að vörmu spori aftur með
fullt fangið af ullarteppum,
sem hann hafði tekið í svefn-
skála bifreiðastjóranna. Bil-
stjórinn tók teppi þessi af her-
manninum og bar þau aftur
inn í húsið, en er hann var
kominn út aftur var hinn bíl-
stjórinn Magnús kominn í
handalögmál við hermennina.
Árangurslaus bið.
Nú víkur sögunni til Gunn-
ars, bílstjórans, sem fyrst
hafði ékið hermönnunum og
beðið hafði þeirra innan flug-
vallargirðingarinnar, eins og
um hafði verið samið. Beið
hann þar í fullan stundar-
fjórðung, en ók síðan aftur tii
Aðalstöðvarinnar Er hann
kom þangað var Magnús bil-
stjóri í ryskingum við her-
mennina, fyrst utan dyra, en
síðan færðust áflogin inn í af-
greiðslusal bifreiðastöðvarinn-
ar. Leitaði Magnús fulltingis
Gunnars, en sá síðarnefndi
kvaðst ófús til slagsmála.
Varð það úr, að hann ók
Magnúsi heim til Ketils Þor-
steinssonar bifreiðarstjóra til
þess að leita hjálpar hans Er
hér var komið var afgreiðslu-
stúlkan á bifreiðarstöðinni, 17
ára gömul, ein eftir með her-
mönnunum. Um það sem síð-
an fór fram, allf þar til ís-
lenzkir og bandarískir lögreglu-
þjónar komu á vettvang nokkru
seinna, greinir hermennina
annars vegar og stúlkuna hins-
veigar mjög á.
Sýndi stúlkunni áreitni.
Stúlkan skýrði svo frá, að
er hún var ein orðin eftir með
hermönnunum, hafi einn þeirra
yfirgefið bifreiðastöðina, ann-
ar setið frammi í afgreiðslunni
og ekki haft sig í frammi, en
tveir þeirra hafi byrjað að
veitast að henni, þeir Chiq,ue
og Eller. Áreitni þeirra hafi
gengið svo langt, að Chiq,ue
hafi opnað buxnaklauf sína og
tekið út getnaðarliminn. Hafi
hann ekki sýnt sér ofbeldi en
reynt með góðu að fá hana til
að þíðast sig. Hafði stúlkan
skömm á þessu og hrinti mann-
inum frá sér. Benti hún honum
á að salenri væri þarna í nánd
og ýtti honum jafnframt þang-
að inn, en hann kom jafnskjótt
út aftur og eins á sig ikominn.
Flúðj nú stúlkan um stund út
úr bifreiðastöðinni, kom þó inn
aftur.
Réðust báðir að stúlkunni
Þegar Chiq.ue varð ekkert á-
gengt gek'k hann til liðs við
Eller og reyndi að veita hon-
um fulltingi í samskonar við-
leitni gagnvart stúlkunni.
Skýrði stúlkan svo frá, að
Chique hafi í þessu skyni m.a.
notað kústsköft, sem hann háfi
reynt að dángla í hana með.
Hafi hún litið svo á- að Chiqiie
væri með þessu ð hræða hana.
Eller hafj ekki frekar en
Chir.ue beitt hana valdi í við-
leitni sinni til að fá hana til
'að þiðast sig. Hrinti hún hon-
Vim margsinnis frá sér og sló
hann einu sinni kinnhest.
Stúlkan kvað hermennina
tvo hafa gert margítrekað-
ar tilraunir til þess að koma
sér afsíðis, o.g hafi þeir í
því skyni haft mestan á-
huga á kompu inn af af-
greiðslusalnum. Stúlkan
gerði ítrekaðar tilraunir til
að ná í hjálp um síma bif-
reiðastöðvarinnar. Náði hún
tali af Sigtryggi Árnasyni,
yfirlögregluþjóninum í
Keflavck, en hann vísaði á
lögregluna á Keflavíkurflug-
velli, þegar hann frétti að
um hermenn væri að ræða.
Slitu hermennirnir einn sím-
ann úr sambandi og brutu
hann. Einnig brotnaði í á-
tökunum hurð.
Sem fyrr ségir höfðaði fáðir
stúlkunnar 1 mál' gegn nkis-f
Skýrt hefur verið frá því að Harry Bridges, foringi hafnar-
verkamanna á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, hafi þegið boð
um að heimsækja Sovétríkin. Bridges sést til vinstri liér á mynd-
inni ræða við Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna (t.h.),
í San Francisco í liaust. í tvo áratugi hafa bandarísk yfirvöld
reynt árangurslaust að fá Bridges gerðan landrækan vegna
róttækra stjórnmálaskoðana hans.
sjóði til greiðslu skaðabóta að
fjárhæð 41.860 kr. I héraði var
ríkissjóður dæmur til greiðslu
10.650 kr. bóta, auk máls-
'kostnaðar. Segir svo m.a. í for-
sendum héraðsdómsins:
„Þótt nokkuð sé óljóst,
hverju fram fór á bifreiða-
stöðinni, eftir að stúlkan
var orðin ein eftir með lier-
mönnunum, þykir nægilega í
ljós leitt, að liún.liafi orðið
fjrir óviðurkvæmilegri á-
reitni af hendi þeirra eins
eða fleiri. Stúlkan var, er
þetta gerðist, aðeins 17 ára
gömul, og þykir sýnt, þegar
virt eru læknisvottorð ... að
hún hafi orðið fyrir allmiklu
“andlegu áfalli af þessuni
sökum“.
Hæstiréttur taldi bætur
vegna heilsutjóns stúlkunnar
hæfilega metnar 2Ö þús. krón-
ur (tvöfalt hærri en 'í héraðs-
dómi). Enginn vafi var á að
ríkissjóður var fébótaskyldur
vegna. athæfis hermannanna
Þjóðnýting oiíufélaganna
Framhald af 1. siðu.
árum — á sama tíma og þau
hafa kveinað undan því að
verið væri að rýja eigendur
þeirra inn að skyrtunni með
of lágri álagningu.
Myndi færa stórfelldan
hagnað.
Ef ríkið tæki alla olíuverzl-
unina í eigin hendur myndi
ekki aðeins bundinn endir á
lögbrot og svik, heldur mynidi
sú ráðstöfun færa þjóðarheild-
inni stórfelldan hagnað. Þá
myndi gróði sá sem olíufélögin
hirða nú renna til ríkisins og
auk þess yrði þá hætt þeirri
efnahagslegu lokleysu að hafa
þrefalt skrifstofubákn og þre-
falt dreifingarkerfi í landinu
Og láta o’íuflutningabíla 3ja
ölíufélaga elta hvérn annan
um landið, eins og nú er gert,
Þann hagnað sem þannig feng-
izt mætti annað tveggja nota
til að iækka verð á olíum og
benzíni eða til að iækka gjö'd
á almenningi og stuðla að
framgangi nauðsynjamála.
Framsóknarráðherrar
vernduðu smyglarana.
Alþýðubandalagið krafðist
þess æ ofan í æ í tíð vinstri-
stjórnarinnar að olíuverzlunin
yrði þjóðnýtt og tillögur um
það efni voru fluttar bæði inn-
an ríkisstjórnarinnar og á Al-
þingi. Það mál strandaði hins
vegar gersamlega á ráðherrum
Framsóknarflokksins; þeir
héldu vemdarhendi yfir olíufé-
lögum sínum, gróða þeirra og
smygli. Skyldu ekki býsna
marg'r Framsóknarmenn skilja
nú að afstaða ráðherra þeirra
í þessu máli var óheiðarleg og
skammsýn — einnig út
frá hagsmunum Framsóknar-
flokksins og samvinnuhreyf-
ingarinnar ?
Auglýsið í
hiáðvilianum
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
DregiB verSur á þriSjudaq i 11. flokki
1102 vinningar aS upphœð kr. 1.405.000.00
ASeins 2 heilir cndurn ýfunardagar eftir