Þjóðviljinn - 06.11.1959, Page 12
Málsvari aivopnunar
fékk friðarverðlaun
Philip Noel-Baker féll samdægurs úr stjórn
; þingflokks Verkamannaflokksins
Nóbelsverðlaunanefnd norskal Stórþingsins veitti í gær
enska Verkamannaflokksþingmanninum Philip Noel-
Eaker friðarverðlaun Nóbels.
Nóbelsverðlaunanefndin
lcveðst veita Noel-Baker verð-
launin fyrir ævilangt starf í
jragu friðar og afvopnunar.
Noel-Baker, sem stendur á
sjötugu, hefur verið sérfræðing
ur Verkamannaflokksins í af-
vopnunarmálum 'í þrjá áratugi.
Hann var einn af aðstoðar-
mönnum utanríkisráðherrans í
stjórn Verkamannaflokksins
1929 til 1931 og einkaritari og
hægri hönd Arthurs Hender-
sons á afvopnunarráðstefnunni
1932. I Verkamannaflokks-
•stjórninni sem mynduð var
1945 gengdi Noel-Baker ýms-
um ráðherraembættum.
Noel-Baker er af kvekarætt-
um og gek'k í háskóla í Cam-
bridge. Á háskólaárunum var
hann mikill íþróttamaður og
keppti fyrir Bretland á Ól-
ympíuleikjunum í Stokkhólmi
1912. Þar varð hann sjötti í
1500 m hlaupi
Margar bækur, einkum um
afvopnun og friðarmál, liggja
eftir Noel-Baker. Hann hefur
samið rit um þátt vopnafram-
leiðenda í að egna til
styrjalda. Nýjasta bók hans
kom út í fyrra og fjallar um
vígbúnaðarkapphlaupið, Þar
gagnrýnir hann hervæðingar-
stefnu A-bandalagsins og hvet-
ur til afvopnunar,
í gær sagði Noel-Baker, að
hann iiti svo á að verðlaunin
væru veitt málefni en ekki
manni. Von sín væri að nú
væri að komast skriður á af-
vopnunarmálið.
1 gær voru birt úrslit í kosn- þingflokksins.
Philip Noel-Baker
ingu á stjórn þingflokks
Verkamannaflokksins, sem fór
fram fyrir nokkrum dögum.
Svo fór að Noel-Baker féll úr
stjórninni ásamt kvenlæknin-
um Edith Summerskill. Meðal
nýrra manna í stjórninni er
Dennis Healy, einn af sérfræð-
ingum þingflokksins’ í utanrík-
ismálum. Harold Wilson fékk
flest atkvæði Þeir Gaitskell og
Bevan eru sjálfkjörnir í stjórn
Nehru lýsir
stefnu sinni
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, sagði fréttamönnum í gær
að stefna sín í landamæradeil-
unni við Kína væri sáttfýsi sam-
fara festu. Hann myndi hér eftir
sem hingað til forðast stór orð,
en vera reiðubúinn til skjótra
athafna ef þeirra gerðist þörf.
Bandaríska herlögreglan
skaut á Panamastúdenta
Komið hefur á daginn aö bandarískir herlögreglumenn
beittu skotvopnum gegn stúdentum í Panama á mánu-
daginn.
Panamastjórn hefur beðið
Bandaríkjastjórn afsökunar ó
því að gerður var aðsúgur að
sendiráði Bandaríkjanna í Pan-
amaborg og stúdentar reyndu að
ryðjast inn á • umráðasvæði
Bandaríkjamanna meðfram Pan-
amaskurði.
Jafnframt segir Panamastjórn,
að hún telji að Bandaríkjamenn
eigi nokkra sök á atburðum
þessum sökum ögrandi fram-
komu. Hún mótmælir þeim að-
förum bandarískra herlögreglu-
manna á skurðarsvæðinu að
skjóta á stúdentana, sem vildu
vekja athygli á kröfu sinni um
að Bandaríkin skili Panama
landræmunni meðfram skurðin-
um.
Bandaríska utanríkisráðuneyt-
ið vísar mótmælum Panama-
stjórnar á bug. Það viðurkennir
að skotið hafi verið á stúdent-
ana, en segir að skotfærin hafi
verið fuglahögl, sem ekki séu
lífshættuleg.
þlÓÐVILIIHN
Föstudagur 6. nóvember 1959 — 24. árgangur — 243. tölublað.
þjðnustu Yilhjálms Þðr
Samþykkir tilboð Seðlabankans um skulda-
bréfalán með hæstu vöxtum til
Sogsvirkjunarinnar
Á fundi bæjarstjórnar í gær var m.a. rætt um fyrir-
hugað skuldabréfalán Seðlabankans til Sogsvirkjunarinn-
ar. Borgarstjóri drap á þann ágreining, sem fram kom
í stjórn Sogsvirkjunarinnar vegna lántöku þessarar. Full-
trúi Alþýðubandalagsins þar, Einar Olgeirsson, lagði til,
að tilboði Seðlabankans um 30 millj. kr. lán með 7%’
vöxtum og 1% lánsþóknun yrði hafnað, en farið fram á
það við fullskipaða stjórn Seðlabankans, að lánið yrði
veitt meö 4% vöxtum og lánsþóknun.
Borgarstjóri lagði til að
samþykkt yrði lánstilboð
Seðlabankans, og taldi ekki
unnt að fá lán með betri
kjörum,
Fulltrúar Alþýðubandalags-
ins, Guðmundur Vigfússon og
Alfreð Gíslason deildu hart á
íhaldið fyrir meðferð þess á
þessu máli. Guðmundur Vig-
fússon rakti ýtarlega, hvernig
staðið hefði verið að útvegun
lánsfjár til þessara fram-
kvæmda undanfarið. Þannig
Framhald á 9. síðu
iH
Kristinn Guðmundsson.
Sigmundur
búðarborðið í nýju búðinni
Kristinn Guðmundsson
aftur sendur til Bretlands
Utanríkisráðherra játar í verki að heimköll-
un hans hafi aðeins verið kosningabragð
Kristinn Guömundsson sendiherra fer í dag til Lund-
úna og tekur þar á nýjan leik upp aðsetur sem sendi-
herra íslands 1 Bretlandi.
Ný fiskbúð opnuð í Kópavogi
' Fyrsta fullkomna fiskbúðin í vesturbænum
Sl. laugardag opnaði Sigmundur Eyvindsson nýja fisk-
búð að Borgarholtsbraut 44 í Kópavogi.
Fiskbúð Sigmundar er fyrsta
fullkomna fiskbúðin, sem opn-
uð hefur verið í vesturbænum
í Kópavogi, því að áður hefur
fisksala þar aðeins farið fram
í ófullnægjandi skúrum. Er því
mikið hagræði að því fyrir
þennan hæjarhluta að fá
þessa nýju og vistlegu fiskbúð.
Fiskbúð Sigmundar er 50
fermetra hús og hefur hann
unnið sjálfur að atlri innrétt-
ingu búðarinnar síðan hann
kom af síldinni í sumar, en
hann hefur stundað sjóinn í 30
ár og alltaf verið matsveinn.
Er búðin hin smekklegasta í
hvívetna. Inn af húðinni er
stórt geymslu- og vinnslupláss
og einnig er þar kæli og frysti-
klefi, sem ekki er enn alveg
fullgengið frá. Ætlar Sigmund-
ur í framtíðinni að vinna
sjálfur fiskinn eftir því sem
hann getur, reykja hann o.s.
frv.
Sigmundur mun hafa á boð-
stólum í búð sinni allar fáan-
legar fiskvörur og fær hann
allan fisk frá Fiskhöllinni i
Reykjav'ík. Bjóst hann við, að
svo yrði þar til hann hefði
sjálfur fengið sér bifreið til að-
drátta.
Kristinn Guðmundsson kom til
íslands snemma sl, vor og hefur
síðan mestmegnis dvalizt hér á
landi og ekki komið til Bret-
lands fyrr en nú. Guðmundur f.
Guðmundsson utanrikisráðherra
gaf þá skýringu á þeirri ráð-
stöfun að með henni væri verið
að mótmæla ofbeldi Breta hér
við land. Hann kvaðst með þessu
í verki hafa framkvæmt kröfur
þeirra manna sem vildu slíta
Átta hestar
fóru í sjóinn
Utvarpið skýrði frá hví í gær-
kvöldi, að átta hestar hefðu far-
ið í sjóinn hjá Hjörsey á Mýr-
um á mánudaginn. Fimm hafa
fundizt reknir.
Stórfióð var á mánudags-
kvöldið og haugabrim, og er tal-
ið að hestana hafi fiætt í skerj-
um á Hjörseyjarsundi.
stjórnmálasambandi við Breta!
Nú — eftir kosningar — sér
utanríkisráðherra ekki ástæðu
til að halda þessum leik lengur
áfram. Hvað kemur næst?
Bsstlsr lét
hengja Podola
Gunther Podola var hengdur I
gærmorgun í Wandsworthfang-
elsi í London. Butler innanríkis-
ráðherra hafði neitað að náða
Podola, sem dæmdur var til
dauða fyrir að skjóta lögreglu-
þjón til bana. Fyrir réttinum
vottuðu læknar að Podola hefði
misst minnið, en úrskurðað var
að hann gæti engu að síður staðið
fyrir máli sínu.
X-15 hlekkist á
í reynsluflugi
Bandarísku eldflaugaflugvél-
inni x-15 lilekktist á í reynslu-
flugi í gær. Rétt eftir að vél-
inni hafði verið sleppt undan
B-52 sprengjuflugvél sem bar
hana á loft, varð sprenging í
öðrum eldflaugarhreyflinum.
Flugmanninum tókst að nauð-
Ienda, en vélin skemmdist veru-
lega.
Ætlunin er að koma manni í
þessari flugvél upp í efstu lög
lofthjúps jarðarinnar. Smíði
hennar er búin að standa árum
saman. Tvö reynsluflug hennar
höfðu tekizt vel.
Rafeindalungað ber
af stállunganu
Tekizt hefur að smíða rafeindalunga sem talið er taka
stállungum fram í hvívetna viö aö bjarga lífi fólks með
lamaða þind.
Brezka fyrirtækið PYE
skýrði í gær í Cambridge frá
þessu nýja tæki. Rafeindalung-
að mun kosta 400 sterlings-
pund, en stállungu koeta 900
þund.
Þá er rafeindalungað miklu
léttara en stállungað, vegur að-
eins 28 kíló, svo að auðvelt
verður að flytja sjúklinga milli
sjúkrahúsa.
Rafgeymar í rafeindalung-
anu endast í 20 klukkutíma.
Slöngur liggja frá því til sjúk-
lingsins, svo að hann þarf ekki
að vera innilokaður einsog í
stállunganu. Farið verður að
framleiða nýja tækið i stórum
stíl í janúar.