Þjóðviljinn - 11.11.1959, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.11.1959, Blaðsíða 1
 Miðvikudagiir 11. nóvember 1959 — 24. árg. — 247. tölublað Togarinn Brimnes seldi afla sinn í Grimsby í gær, 167 lest- ir fyrir 13.208 sterlingspund, og togarinn Júní seldi í Brem- erhaven í gær 167 lestir fyrir 104 þús. mörk. Tveir íslenzkir togarar munu selja í Bretlandi í dag og 1 í Þýzkalandi. Sjúkrahúsíð á Akureyri rafmagnslaust í 16 klst. Akureyrí í gœr. Enn sitja Akureyringar, sem ekki hafa olíuljós, í myrkrinu og ógerlegt að segja hvenær úr rætist. 011 vinna liggur niðri, allir skólar lokaðir, en búðir þó opn- ar og nóg mjólk kom til bæjar- ins í dag. Erfitt er að svo stöddu að .meta tjón bæjarins af völd- um rafmagnsleysisins. * í dag hefur ekki snjóað mikið; verið hríðarél og bjart á milli. Tvær eða þrjár kindur hefur rekið hér á Akureyri og hafa þær farið í sjóinn úti með firðinum. Fregnir berast af fjártjóni víðs- vegar, en engin nákvæm vitn- eskja um það enn. Sjúkrahúsið fær rafmagn frá vélum síidarverksmiðjunn- ar á Hjalteyri, eins og frá var sagt í gær, en fyrst eftir að Laxárvirkjunin stöðvaðist var sjúkrahúsið rafmagns- Iaust í 16 stundir. Glerárstóð- in — elzta virkjun fyrir Ak- ureyri — sem notuð hefur verið sem varastöð fyrir sjúkrahúsið, var ekki not- hæf þegar til átti að taka, og vélar síldarverksiniðjunnar á Hjalteyri voru heldur ekki í lagi til að fara fyrirvaralaust í gang. íslendingczr hrepptu Heimskringlurnar Fjörugt uppboð á norrænum bókum í London íslenzkir bókasafnarar létu að sér kveða á fjölsóttu bókauppboði i London í fyrradag. Hjá Sotheby’s, öðru helzta uppboðsfyrirtæki IBretlands, voru boðin upp 187 númer bóka frá Norðurlöndum og um Norð- urlönd Jóhannes úr Kötl- um formaður Rit- höfundafálags fsl. Aðalfundur í Rithöfundafélagi íslands var haldinn 1. nóv. sl. Stjórn félagsins skipa nú: Jóhannes úr Kötluin Jóhannes úr Kötlum formaður, Halldóra B. Björnsson ritari, Jó- hannes Steinsson gjaldkeri. Meðstjórnendur: Þorsteinn Jónsson frá Hamri og Jón frá Pálmholti. Endurskoðendur: Sig- urður Róbertsson og Benedikt Gíslason frá Hofteigi. Fulltrúar í stjórn Rithöfundafélags íslands: Friðjón Stefánsson, Björn Th. Björnsson, Einar Bragi og' Jón úr Vör. Gizka á fsland , Fréttaritari UPI í London segir, að því sé haldið vand- lega leyndu hvaðan safn þetta sé 'komið til Sotheby’s. Marg- ir geti þess til að það sé frá íslandi. Fullyrða má að sú ágizkun er röng. jslendingar voru líka með í 'hópnum sem kominn var til að bjóða í,“ segir UPI. „Þeim voru slegin tvö eintök af fyrstu útgáfu Heimskringlu Snorra Sturlusonar. “ Einnig er sagt frá því í skeytinu, að Islend- ingi ihafi verið slegin Heims- kringluþýðing Jóns Rúgmanns á sænsku, sem prentuð var í einkaprentsmiðju Per Brahe greifa árið 1670. Sú bók fór á 100 sterlingspund. Linné á 2,900 pund Dýrasta verkið á uppboðinu Framhald á 10. síðu. Flokkur Peking-óperunnar til Reykjavíkur Fyrsta sýning í Þjóð- leikhúsinu á föstu- \ dagskvöld Um fimmleytið í gær kom hingað til Reykja- víkur með flugvél flokkur ldnversku Peking-óperunnar, sem halda mun nokkrar sýningar j Þjóðlcikliúsinu næstu daga, þá fyrstu á föstudagskvöld. Sala aðgöngumiða að sýningunum hófst í gærdag og var biðröð við miða- söluna, þegar hún var opnuð eftir hádegið og sala ör. — Myndirnar eru frá sýningum Peking-óperunnar. Á stærri myndiipii sést atriði úr „Töfraperlunni frá brúnni yfir regnbogann", minni myndin er af Sjen Hsiao-mei í „Drukknu fegurðardísiu,ni“. Mynd frá komu Kínverjanna er á 12. síðu. Fundur æðstu manna verð- ur í fyrsta lagi með vorinu Krúsf}off sœkir de Gaulle heim i marz 1 Sýnt þykir aö ekki geti orðiö af fundi æöstu manna Sovétríkjanna og Vesturveldanna fyrr en í fyrsta lagi í maí næsta vor. Þetta kom á daginn í gær, þegar skýrt var frá því í París og Moskva að Krústjoff, for- sætisráðherra Sovétríkjanna, myndi koma til Parísar í boði de Gaulle forseta 15. marz. de Gaulle vill ekki taka þátt í fundi æðstu manna fyrr en hann hefur rætt einslega við Krústjoff eins og þeir Eisen- hower og Macmillan. Hyggur gott til de Gaulle kvað frönsku Þrír menn fórust af báfi á Hofsósi i fyrradag Þrír menn fórust á Hofsósi í fyrramorgun er þeir ætluöu aö bjarga báti í hafrótinu. Mennirnir voru Jón og Haf- steinn' Friðrikssynir og Gísli Gíslason frá Akranesi. Tveir þeir fyrrnefndu voru eigendur bátsins Svans og fóru þeir út í hann þar sem hann lá við bryggjuna í því augna- miði að bjarga honum frá eyðileggingu Fóru þeir út á leguna og voru þar um nótt- ina. Legufæri bátsins munu hafa bilað og honum hvolft, því um kl. 9 rak hann upp í fjöru og voru siglutré þá brotin. Hafsteinn Friðriksson, skip- stjóri á Svan, var 28 ára og lætur eftir sig konu og 1 barn. Jón Friðriksson var 30 ára, ó'kvæntur en lætur eftir sig tvö börn. Gésli Gislason var 3.1 árs. Hann var nýfluttur til Hofs- óss' frá Akranesi. Lætur eftir sig unnustu og 2 börn af fyrra- hjónabandi. stjórnina þess fýsandi að hald- inn yrði fundur æðstu manna. Sovétstjórnin hefði sýnt það, bæði í orði og verki, að henni væri umhugað um að draga úr viðsjám í heiminum. Hún hefði forðazt að hella olíu á eldinn í deilumálum við Miðjarðar- hafsbotn, í Suður-Asíu, Afríku og Mið-Ameríku. Meira að segja hefði hún neitað sér um að beita Vesturveldin þvingunum í Berlín. Sovétstjórnin gerir sér ljóst, að ný styrjöld myndi einungis hafa í för með sér allsherjar eyðingu, sagði de Gaulle. Hann kvaðst einnig telja rétt að taka tillit til persónulegrar af- stöðu Krústjoffs, sem væri svo raunsær að hann gerði sér ljóst að Sovétríkin styrktu mest aðstöðu sína með vax- andi velmegun þjóðarinnar. de Gaulle kvaðst vona, að Krústjoff yrði um kyrrt í Frakklandi til marzloka. Þá kvaðst de Gaulle telja nauðsynlegt að forustumenn Vesturveldanna létu sér ekki nægja fundinn 19. desember til að samræma afstöðu sína á fundi með Krústjoff. Þeir þyrftu að hittast aftur síðar í vetur. Brezka stjórnin er óánægð með fyrirætlun de Gaulle að fresta fundi æðstu manna til vors. Macmillan forsætisráð- herra sagði á þingi í gær, að hann myndi gera allt sem i sínu valdi stæði til að koma því í kring að fundurinn yrði haldinn fljótlega eftir áramót- in. Alþingiverð- ur sett annan föstudag Forseti íslands hefur, að tillögu forsætisráðherra, kvatt reglulegt Alþingi 1959 til fundar föstudaginn 20. nóvember og fer þingsetn- ing fram að lokinni guðs- þjónustu, er hefst í dóm- kirkjunni kl. 13,30. íslenzka mynd- ! listarsýningin ’ opnuð í Kraká Samkvæmt upplýsingum menntamálaráðnneytisins liet'ur íslenzka myndlistarsýningin, sem haldin var í Moskvu ! vor og síðan í Itiev og Lenín- grad nú verið send til Póllands. V’ar hún opnuð í Kraká sl. fimmtudag. Gert er ráð fyrir | að myndirnar verið einnig sýndar í V’arsjá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.