Þjóðviljinn - 11.11.1959, Síða 3

Þjóðviljinn - 11.11.1959, Síða 3
Miðvikudagur 11. nóvember 1959 — ÞJÖÐVILJINN — (3f Formkröfum erfðalaga ekki fylgt við rifun skjaísins og það því ekki erfðaskrá Hæstiréttur kvað sl. mánu- dag upp dóm í máli, þar sem deilt var um gildi skjals sem lögle,grar erfðaskrár Málavextir eru þeir, að í september 1957 andaðist í Landspítalanum Sigurður Þór- arinsson frá Stórulág í Nesja- 'hreppi í Austur-Skaftafells- sýslu. Lét hann eftir sig skrif- legt uppkast, þar sem hann kveður það vera vilja sinn að stofnaður verði minningarsjóð- ur af eftirlátnum ej^um sín- iim, er beri nafn hans. Sé tilgangur sjóðsins að verja ár- legum vöxtum til að verð- launa skepnueigendur í Nesja- Iireppi eftir því sem nánar greinir í skjalinu, og að stjórn sjóðsins sé bezt komin í hönd- um hreppsnefndar Nesja- hrepps. Skjal þetta var ódag- sett með eiginhandar nafni Sigurðar neðarleea vinstra megin, en skialið ber ekki með sér að það sé undirritað 1 viðunúst notarii publici eða tveggja tilkvaddra votta, en óvefengt að það sé með rit- Iiönd Sigurðar. Systir Sigurðar, Sigurborg, mótmælti gildi þessa skjals sem löglegri erfðaskrá og taldi efni þess ekki vera síðasta vilja hins látna bróður sins. Tvö vitni báru að þau hefðu séð Sigurð skrifa fyrrgreint skjal daginn sem hann fór til sjúkrahússvistarinnar í Reykja- ví'k, og virtist hann þá vera heill heilsu og með fullu ráði og rænu. f skiotarétti Skaftafellssýslu var skjalið metið óigilt sem erfðaskrá, þar sem það upp- fyllti ekki hið lögboðna erfða- skrárfonn, Segir svo m.a í forsendum fógetaúrskurðarins: „'Svo sem áður segir, kallar Sigurður sálaugi skjalið „upp- kast“ og virðist samkvæmt framburði vitnanna hafa skrif- að það í flýti. Er ekki öruggt, gegn mótmælum að það hafi að geyma síðasta og endanleg- an vilja hans. Og þar sem skjalið ber hvorki með sér að það sé undirritað í viðurvist notarii publici né tveggja til- kvaddi'a. erfðaskrárvotta, hefur verið gengið í svo verulegum atriðum fram hjá hinum ströngu formkröfum að því er varðar samningu erfðaskrár, sbr. 24., 25. og 26. gr. laga nr. 42/1949, að ekki þykir fært að meta skjalið gilt sem lög- erfðaskrá." Hreppsnefnd Nesjahrepps á- frýjaði málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að úrskurði skiptaráðanda yrði hrundið og skjal það, sem málið fjallar um, dæmt gild erðaskrá. Hæstirétt- ur féllst ekki á kröfur hrepps- nefndar og staðfesti hinn á- frýjaða úrskurð. Segir svo m. a. í forsendum hæstaréttar- dómsins: „Við útgáfu skjals þess, sem í málinu greinir, var ekki gætt ákvæða 24. gr sbr. '25. gr. og 26. gr erfðalaga nr. 42/1949 um áritun votta eða notari; publici á skjalið um undirskrift Sigurðar Þór- arinssonar né um viðurkenn- ingu hans á efni þess. Verður skjalið þegar af þeirri ástæðu ekki metið gild erfðaskrá gegn þeim andmælum lögerfingjans Sigurborgar, sem í úrskurði skiptaráðanda getur. Ber því að staðfesta hinn áfrýjaða úr- skurð." V atnsseymir 'ffsöur i um Vestmanaeyjum. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Undirbúningur er hafinn hér &ð byggingu vatnsgeymis viö Skiphella, en þar hefur tek- izt að ná nokkru vatnsmagni sem ætla má að fullnægja muni höfninnj. og fiskvinnslustöðvun- um. Undanfarin tvö ár hefur ver- ið unnið að því að grafa skurð til að safna í vatni, hefur jhann verið grafinn norð- ur með- Fiskhellum, Langa- þergi og Litla-Klifi. Hellisheiði fær Unnið var að því í gær að ryðja Hellisheiðarveginn og var hann fær stórum bílum og gert ráð fyrir að hann yrðj fær öllum bílum seint í gærkvöld. Bílarnir sem tepptust norð- an Holtavörðuheiðar voru á leið að norðan í gær og fór ýta fyrir þeim. I Fornahvammi var ráðgert að ýtan sneri við og •ryddi fyrir bílalest að sunn- an á leið norður. I hraðmyndastofxinni að taúgavegi 68. Á miðri myndinni sést , . i ífi Lr 'lÍJ í <; velin, sem tekur myúdirnar, framk^llar þær, kópíerar og stækk- ar á áðeins ,10 mínútum. Ný Ijósmyndastofa opnuð að Lauga- vegi 68 um síðustu helgi Tekur smámyndir í vegabréí og skólapassa Um sl. helgi var opnuð ný myndastofa að Laugavegi 68, Hraðmyndir h.f. Verða þar einvörðungu teknar smá- myndir, svo sem hvers konar passamyndir og tekur myndataka' og framköllun aðeins 10 mínútur. í stjórn Hraðmynda h.f. eru ^ kopíeringar og stækkunar. Er Sigurður Guðmundsson Ijósmynd- hún fyrst lýst og svo fer mynd- ari, formaður, Björn Pálsson, er verður framkvæmdastjóri, og Hannes Pálsson ljósmyndari. Buðu þeir fréttamönnum að skoða myndastofuna og tæki hennar i fyrradag. Vélin, sem bæði tekur mynd- irnar, framkallar þær og kopíer- ar er þýzk, nýjasta og fullkomn- asta gerð sinnar tegundar. Film- an er á stórri spólu í vélinni og um leið og myndin er tekin klippir vélin hana af spólunni og hún flytzt á nokkurs konar færibandi í gegnum böð og þurrk- ara og síðan skilar vélin mynd- inni framkallaðri, negatívri. Tek- ur framköllunin um bað bil 4—5 mínútur. Negatívunni er síðan stungið í vélina á öðrum stað til in í gegn um böð og þurrkara og' kemur síðan fullbúin út úr vélinni eftir aðrar 4—5 mínútur. Hægt er að kopíera eins margar myndir og óskað er eftir hverri négátívir. Pilmurnar verða þó 'ekki gdyrpdár nema fáa daga og verður ' fólk þýí áð' y5anta strax eftir þeim, ef það æskir að fá fleiri myndir eftir sömu filmu. Myndirnar, sem vélin tekur, eru einkum ætlaðar sem passa- myndir, bæði í vegabréf og fyrir skóla, en öll skólabörn gagn- fræðaskóla eru nú skýTd að bera passa með mynd af sér. Verð þessara passamynda er mjög hóf- legt, 25 krónur fj'rir fjórar mynd- ir og hver mynd, sem tekin er þar fram yfir, kostar 5 krónur, er þetta miklum mun ódýrara og fljótlegra en að láta taká passa- myndir á venjiilegri ÍjoSmynda- stofu. Blaðamennirnir, sem komu að skoða myndastofuna í fyrradag, voru allir settir í vélina og myndaðir frá báðum hliðum og beint framan á. Voru þeir allir ánægðir með myndirnar, enda skilaði vélin þeim eins fallegum og fyrirmyndirnar leyfðu, en þær voru náttúrlega svolítið misfríð- ar frá náttúrunnar hendi. Ekkí er að efa, að hraðmyndastofan að Laugavegi 68 verður vinsæl, einkum meðal barna og unglinga, enda voru skólabörn alltaf að koma meðan blaðamennirnir stöldruðu þar við til þess að spyrja eftir því, hvenær hægt væri að fá teknar myndir. Nemendatónleihar Vincenso Demetz í Gamla híói á morgun, fimmtndag Tónleikarnir íórust íyrir í vor vegna inílú- enzuíaraldursins er þá gekk í bænum ítalski söngkennarinn, Vincenso Demetz, efnir til nem- endatónleika á morgun í Gamla bíói, þar sem fram koma bæöi nemendakór og margir einsöngvarar. Nemendatónleika þessa átti að halda á síðastliðnu vori, en þeir fórust þá fyrir vegna veikinda- Vincenso Deinetz forfalla af völdum inflúenzufar- aldursins, er þá gekk hér í bænum. Á hljómleikunum munu koma fram nemendakór undir stjórn Ragnars Björnssonar söngstjóra, en undirleik annast Fritz Weiss- happel píanóleikari. Einsöngvar- ar á hljómleikunum verða alls 9, þau Sigurveig' Iljaltested, mezzoalt, Inga Hjaltested, alt- sópran, Snæbjörg Snæbjarnar, sópran, Eygló Viktorsdóttir kol- oratursópran, Jón Sigurbjörnsson bassi, Guðmundur Guðjónsson, tenor, Bjarni Bjarnason læknir, tenor, Hjálmar Kjartansson, bassi og Erlingur Vigfússon, tenor. Á hljómleikunum verða flutt óperulög eítir Verdi, Puccini, Giordano, Brahms, Schubert o. fl. Einnig verða sungin lög eftir íslenzk tónskáld. Hljómleikarnir verða í Gamla bíói nk. fimmtudag og hefjast kl. 7 e. h. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaverzlun Lárusar Blöndals á Skólavörðustíg og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar í Vesturveri. Djúpárdrengir — Syngja hér næsta miðvikudag. Deep River Boys syngja í Reyhjavík í Ansturbæjarbíéi næsta miðvikudag Hinn heimsfrægi söng-kvartett Deep River Boys kemur hingaö til lands eftir helgina og mun efna til hljórn- leika í Austurbæjarbíói á vegum Hjálparsveitar skáta. Deep River Boys-kvartettinn er orðinn tuttugu ára, hefur hann á þessum árum aflað sér mikilla vinsælda, innan heima- lands síns, Ameríku, sem utan. Undanfarin tíu ár hafa þeir farið í hljómleikaferðir á sumri hverju til Evrópu, og oft og tíðum komið fram á Norðurlönduunum, en væntan- leg heimsókn þeirra til Isiands mun verða h:n fyrsta. Hafa þeir þá heimsótt öll lönd Vest- ur-Evrópu. Ilingað koma Deep River Boys frá Spáni, þar sem þeir hafa sungið frá 1. nóvember. Þar ha°a þeir jafnframt not- að tímann til að læra íslenzkt lag, sem þeir munu syngja á hljómleikum sínum hér. Á efnisskrá þeirra verða fyrst og fremst þekkt amersík lög eftir höfurda eins og Co'e Porter, Irving Berlin og Gerswhin, þó má jafnframt búast við, að þe'r svngi eitthvað af lögum eftir Norðurlandahöfunda, þyí þeir hafa sungið nokkur lög inn á hljómplötur á norsku og einnig á sænsku. Fyrstu hljómleikar þeirra hér verða miðvikudaginn 18. nóvember kl. 7 e.h. og svo aft- ur kl. 11.15 sama kvöld. For- sala aðgöngumiða á hljómleika þessa mun hefjast í Austur- bæjarbíói fimmtudaginn 12. nóvember. ÆFR að hefja málfundastarf Eir.s og undanfarna vetur mun ÆFR lialda uppi mál- fundastarfsemi í vetur, þar sem ungu fólki gefst kostur á að æfa sig í framsögn og rökræðum. Tekur málfunda- hópurinn til starfa n.k. fimmtudag kl. 9 e.h. í Félags- he:mili ÆF í Tjarnargötu 20. Þeir, sem hafa í hyggju að taka þátt í þessari starfsemi í vetur geta einnig látið skrá sig til þátttöku • í skrifstofu ÆFR, sími 1-75-13.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.