Þjóðviljinn - 11.11.1959, Page 4
é) — ÞJÓÐjVILJINN — Miðvikudagur 11. nóvember 1959
DEFÁ-myndir ti! Islands
Atriði úr kvikmyndinni „Carola Lamberti“.
drengi á ungum aldri þó að
kómnir séu til vits og
ára og þeir hafi þegar náð
þeim þroska sem nauðsyn-
legur er til að takast stjórn
fjölleikahússins á hendur.
Ýmsir atburðir ske sem ekki
skulu raktir hér frekar, en
í myndinni er að sjálfsögðu
brugðið upp fjölmörgum
skemmtilegum svipmyndum
úr sýningum fjöllistamann-
anna og atburðum, sem
gerast að tjaldabaki Töku-
rit hefur gert Artur Kuhn-
ert, leikstjóri er Hans
Miiller og aðalmyndatöku-
maður Fritz Lehman Með
aðalhlutverk fara Henny
Porten, Horst Naumann,
Hans Rudiger Renn, Erwin
Marian og Ursula Kempert.
★
Djöfullinn á Mylnuhæð
er litmynd. Kurt Bortfeldt
og Anneliese Probst hafp.
sapaið handritið. leikstjóri er
Herbert Ballmann, mynda-
tökustjóri Götz Neumann,
en aðalleikendur Willy A.
Kleinau, Eva Kotthaus og
Hans Peter Minetti. —
Myndin gerist á miðöld-
um. Ung hjón búa í ein-
angraðri mylnu í skógunum
við rætur Hartz-fjalla.
Hærra upp í hlíðunum býr
malari í mylnu sinni; fé-
gjarn, drottnungargjárn og
ruddalegur náungi, sem öll-
um nágrönnum hans stendur
stuggur af. Enn ofar í hlíð-
unum er kastali greifans,
sem skortir fé. til þess að
standa straum af útgjöldum
sínum við herfarir og víga-
ferli. Hefst nú samblástur
greifans, malarans og æðsta
manns í þorpinu, sem í
grenndinni er, í því skyni að
gera smábændurna undir-
gefna sér. Beita þeir hinum
svívirðilegustu aðförum í
þessu skyni Vonleysi gríp-
ur fyst um sig meðal bænda,
en síðan snúast þeir til
varnar.
★
Ævintýra- og barnamynd-
irnar Litla söngvatréð og
Sagan af Múkk litla eru
báðar í litum, söguþráður-
inn snúinn úr gömlum ævin-
týrum og þjóðsögum. Hand-
rit að fyrrnefndu myndinni
hefur leikstjórinn, Francesco
Stefani, gert ásamt Anne
Geelhaár, myndatökustjóri
er Karl Plintzner en aðal-
leikendur Christel Boden-
stein, Eckart Dux og Charl-
es-Hans Vogt. Tökurit hinn-
ar myndarinnar hafa gert
þeir Peter Podehl, og Wolf-
gang Staudte, en sá síðar-
nefndi, hinn frægi kvik-
myndagerðarmaður er jafn-
framt leikstjóri. Helztu leik-
endurnir heita Thomas
Schmidt, Johannes Maus,
Friedrich Richter.
Undanfarið hefur alloft
verið vikið að kvikmynda-
gerð i Þýzka lýðveldinu (D.
D:R.) og austur-þýzkum
kvikmyndum almennt hér í
þættinum. í dag verða enn
gerðar að umtalsefni fjórar
nýjar myndir austur-þýzka
kvikmyndafélagsins DEFA,
en samkvæmt bréfi, sem
þættinum hefur borizt frá
forstöðumönnum þeirrar
deildar félagsins sem ann-
ast skipti við útlendinga,
hafa kvikmyndir þessar ver-
ið pantaðar hingað til Is-
lands og munu því væntan-
lega verða sýndar í ein-
hverju kvikmyndahúsanna
hér áður en langur tími líð-
ur Ber að fagna því, ef af
þessu verður; austur-þýzkar
kvikmyndir — ekki hvað
sízt barnamyndir og heimild-
arkvikmyndir — þykja hvar-
vetna mjög frambærilegar,
en íslenzkum kvikmynda-
húsagestum hefur aðeins gef
izt kostur á að sjá örfáar
þeirra.
★
DEFA-myndirnar fjórar,
tír ævintýramyndinn i „Litla söngvratréð“.
sem fyrr voru nefndar, eru
allar nýjar eða mjög nýleg-
ar; tvær þeirra eru ævin-
týra- eða barnamyndir, hin-
ar frekar ætlaðar fullorðn-
um áhorfendum og fjallar
önnur um sirkuslif, hin um
atburði á miðöldum. Kvik-
myndirnar nefnast Carola
Lamberti, Litla söngvatréð
(Das singende klingend<3‘.!;’
Baumchen) Sagan um MultK
litla (Die Geschichte von
kleinen Muck) og Djöfullinn
á Mylnuhæð (Der Teufel
vom Muhlenberg).
Carola Lamberti er nefnd
eftir aðalpersónunni, ekkju
einni sem' stjórnað hefur
vinsælu fjölleikahúsi allt frá
dauða manns síns, Syni
sína þrjá hefur hún æft í
loftfimleikum og eru
þeir einhverjir vinsælustu
skemmtikraftanna í sirk-
usnum. Samband móður og
sona er þó ekki eins og bezt
verður á kosið, því að hún
umgengst þá enn eins og
Þegar Fischer og Gligoric ætl-
uðu að vinna Tal og Keres
27. umferð 26.—27. október.
Fischer—Tal 0 — 1
Friðrik—Smisloff 0 — 1
Gligoric—Keres 0 — 1
Benkö—Petrosjan %—%
Spenningurinn í mótinu náði
hápunkti þennan dag, þegar
Fischer og Gligoric höfðu á-
kveðið að vinna Tal og Keres.
Uppúr sauð í tvöþúsund manna
áhorfendasalnum, þegar Fischer
tók að fórna mönnum á Tal
iíkt og hráviði og fékk gjör-
unna stöðu. En þar er ekki
öll sagan sögð, því síðar lagði
Fischer út í ranga leikfléttu, og
Tal, sem reiknað hafði lengra,
kom út úr flækjunum með
manni meira gegn tveim peð-
um. Þótt kóngur Tals væri illa
varinn gegn stórskotaliði and-
st.æðinffsins, tókst þeim djarfa
að smjúga gegnum allar hætt-
ur, og Tal fékk að lokum unnið
endatafl. Skákin vakti enn
meiri athygli áhorfenda fyrir
þá sök, að blaðamenn þóttust
hafa það eftir Fischer, að hann
hefði tapað hinum skákunum
þrem gegn Tal, einungis vegna
þess, að Tal hefði truflað hann
yfir skákinni. Ekki var þess
getið nánar, hvort um dáleiðslu-
tilraunir eða annað væri að
Fréttabréf frá Frey-
steini Þorbergssyni
ræða, en svo mikið er víst, að
Fischer var grimmur í hefnd-
arhug, kom við pálmann með
fingurgómunum, en svona fór
þó um sjóferð þá. Eftir þennan
sigur nægði Tal jafntefli í síð-
ustu umferð til að tryggja sér
efsta sætið í mótinu.
Gligoric var heldur ekki í
friðarhug þennan dag. Fyrst
flaut skák hans við Keres í
farveg skákar þeirra frá 13.
umferð í Bled, en í 9. leik brá
f skugga þessara atburða
tefldust skákirnar Friðrik—
Smisloff og Benkö—Petrosjan.
Smisloff tókst að lokum að ná
betra tafli gegn „Englendingi“
Friðriks, þar sem Rússinn kom Keppendur o,g skákstjóri á Áskorendamótinu. Petrosjan, Golom-
þungaliði sínu í öfluga skot- heck (skákstjóri), Tal Gligoric, Smisloff, Benkö, Fischer, Frið-
stöðu. Seinna setti tímaþröng- rik og Keres.
Gligoric útaf. Seinna fórnaði
Júgóslavinn peði til að flækja
taflið og ná sókn. En Keres
varðist af góðri tækni og stakri
ró. Þegar báðir kapparnir áttu
aðeins 10 mínútur fyrir tíu
leiki í flókinni stöðu, gekk Ker-
es hægt um gólf að vanda, og
þótt hann ætti sjálfur leikinn,
leit hann aðeins rólega á sýn-
ingarborðið, þar sem hinn nýi
leikur andstæðingsins kom í
Ijós, gekk svo jafn hægt að
borðinu, settist hægt á stólinn,
lagfærði sig í sætinu og fékk
sér síðan kaffisopa. Keres lét
ekki sprikl andstæðingsins
koma sér úr jafnvægi, heldur
beið færis að þvinga fram
drottningarkaup, með því að
gefa aftur eitt peð sem and-
stæðingurinn hafði áður verið
svo örlátur að fórna. Síðan ýtti
Keres öðru frípeði sínu fram,
og eins og hann hafði séð fyrir,
var staða hans unnin, þegar
skákin fór í bið.
in mark sitt á skákina, þegar
Friðrik missti af góðri gagn-
sókn, sem hefði getað fært hon-
um skiptan hlut eða meira.
Eins og tefldist gekk færið úr
greipum, og skákin fór í bið
í tapstöðu fyrir Friðrik.
Benkö fékk sem oft áður
ekkert út úr byrjuninni með
hvítu mönnunum, en tilraunir
Petrosjans til að ná yfirhönd-
inni báru heldur ekki árangur.
Miðtafiið varð að lokum hag-
stætt fyrir Benkö, en þegar
skiptist í endatafl þar sem
Benkö hafði peði meira, voru
báðir keppendur komnir í
mikla tímaþröng. Petrosjan átti
tæplega mínútu fyrir síðustu
ótta leikina, og Benkö víst lítið
meiri tíma. Ekki var nú lengur
hirt um neina pappíra eða
önnur formsatriði, heldur voru
hendur látnar standa fram úr
ermum. Svo mikill og harður
var atgangur á borði þeirra
tvímenninganna að hlegið var
um allan salinn. Fyrst eftir að
báðar klukkurnar voru fallnar,
Framhald á 10 síðu