Þjóðviljinn - 03.12.1959, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 03.12.1959, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 3. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN •— (ð Handknattleiksmótið: KR lék sér að ÍR og vann með 20:10 Það var álit flestra að leikur KR og ÍR mundi verða hinn raunverulegi úrslitaleikur móts- ins. Hvorugt liðanna hafði sýnt sína beztu hlið I mótinu og úrslitin voru því fyrir þá sök enn óvissari. Að vísu hafði ÍR ekki Matthías í liði sínu, og er fjarvera hans þýðingar- meiri en margan mun gruna. Til að byrja með virtist sem allt ætlaði að fara eftir áætl- un. ÍR byrjar að skora og var það Gunnlaugur sem það gerði, en KR jafnar úr vítakasti. Énn er það Gunnlaugur sem gefur IR forustu með mjög góðu skoti. Pétur jafnar nokkru síðar fyrir KR, og Karl gef- ur KR forustu eftir góðan ein- leik með óverjandi skoti. Pétur Sigurðsson jafnar fyr- ir ÍR 3:3. Karl er strax í færi og skorar, og nú er það Her- mann sem jafnar 4:4. En þá var eins og botninn hefði dottið úr leið iR-inga, því að það eru KR-ingar sem gera hvorki meira né minna en 8 mörk í röð: 12:4. Hverjum hefði dottið þetta í hug? Kom þar hvorttveggja til að allt opnaðist skyndilega í vörn IR, og samleikur í sókninni var árangurslaus og óvenjulega sundurlaus. Hinsvegar komu KR-ingar mun ákveðnari en áður í vetur og notfærðu sér hinn sundurlausa leik ÍR-inga. I hálfleik stóðu leikar 11:4 fyrir KR. Síðari hálfleikur var jafnari, hvað mörk isnertir, en ef til vill má fremur kenna um yfirburðum KR og að þeir hafi ekki tekið leikinn eins al- varlega þegar markatalan var orðn svo ójöfn. Sjálfur leikur ÍR-inga var ekkert betri í sjálfu sér, þótt þeir skoruðu hlutfallslega fleiri mörk í þeim hálfleik. iR-ingar hafa sannarlega verk að vinna að finna aftur sitt fyrra „lag“, því að leikur þeirra var í þetta sinn mjög hjáróma við leiki þeirra undan- farin ár. Vegna þessara yfir- burða KR var aldrei sú ,,spenna“ í leiknum sem búizt var við. Þeir sem skoruðu fyrir KR voru Reynir 9, Heins 5, Karl 4 og Pétur 2. Fyrir ÍR skoruðu Gunnlaugur 5, Pétur Sig. 3 og Hermann 2. Dómari var Magnús Pétursson og dæmdi vel. Frarn hafði leikinn í hendi sinni og vann Ármann 17:6 Þó Ármanni tækist að skora fyrsta markið í leiknum, kom það fljótt í ljós að Ármenn- ingar voru ekki eins ákveðn- ir og samstilltir og í leikjum sínum yfirleitt undanfarið. Samleikurinn var reikull og staðsetningar manna óákveðn- ar, bæði í sókn og vörn. Þeim tókst aldrei að ná hinum nauð- synlegu tökum á leiknum. Að sjálfsögðu hefur fjarvera þeirra Stefáns Gunnarssonar og Ingvars haft mikið að segja, því að þeir hafa verið með liðinu um langan tíma og það er enn ekki það mann- margt að það þoli að tveir, af þeim samstilltu séu fyrir ut- an. Er það alkunna að slík fjarvera er oft meira sálræns eðlis en að munur sé svo mik- ill. Ármenningar geta miklu betur en þeir gerðu á mánu- dagskvöldið. Framarar léku allau - tímann með fullu öryggi og náðu yfir- leitt vel saman, þó var leikur- inn aldrei fjörugur eða fjör- lega leikinn. Hann var nær því að vera „staður“ og frem- ur var hann litbrigðasnauður, og langt frá því að vera eins skemmtilegur og fyrirfram var búizt við. Eins og fyrr segir, skoraði Ármann fyrsta markið í leikn- um, var Sigurður Þorsteinsson þar að verki með góðu skoti, | en Rúnar jafnaði. Ágúst tók i . , . . „ j Vikingsstulkurnar sviptar vita- forustuna fyrir Fram, en Ar-|U___K°______. n(nS manni tókst að jafna, og í hálfleik stóðu leikar 7:4 fyrir æfða menn í stað þeirra sem forfallast. Valsliðið var of reikandi í fyrri hálfleik, og náði ekki þeim tökum á leiknum, sem hefði mátt búast við. Það var því ekki fyrr en í síðari hálf- leik að Valur fór að ná veru- legum tökum á Þrótturum, og var leikur þeirra með köflum nokkuð góður, enda mótstaða ekki mikil. Þeir sem skoruðu mörkin fyrir Val voru: Jóhann 5, Sveinn og Geir 4 hvor, Sig- mundur, Þráinn og Hilmar 3 hver og Bergsteinn 2. Fyrir Þrótt skoruðu: Grét- ar 4, Hörður og Axel 3 hvor og Jón, Guðmundsson 2. Dómari var Karl Jóhannsson og dæmdi mjög vel. Ármann vann í öðrum flokki kvenna, vann Víking 5:4 Þetta var töluvert skemmti- legur leikur. Ármannsstúlkurn- ar voru stærri og líklegri til sigurs, hvað kraft og leik snerti úti á gólfinu, en þær voru þó heppnar að vinna, þvi að tvö mötkin komu á þann hátt að skot fór í Víkings- stúlku og óneitanlega voru GÖLFTEPPI fallegt úrval GANGADREGLAR margar mjög fallegar tegundir 65- GÖLFMOTTUR -90 cm GÚMMÍMOTTUR STÖRES - STREKKJARAR ALUMINIUM - ÞURKGRINDUR Fram. 1 síðari hálfleik breikk- aði bilið enn nokkuð. Síðustu mörkin fjögur skor- aði Fram, og var sem Ár- menningar fengu ekkert að gert. Þeir sem skoruðu mörkin fyrir Fram voru: Rúnar 6, Ágúst, Ölafur og Karl 3 hver og Guðjón og Hilmar eitt hver. Fyrir Ármann skoruðu: Sig- urður Þorst. 3, Karl, Hannes og Kristján 1 hver. Dómari var Daniel Benjamíns- son, og dæmdi vel. Þróttur hafði úthald í einn hálfleik, og tapaði fyrir Val 24:13 Valur byrjaði betur og komst um skeið og það fljótlega upp í 4:1. Leit út fyrir að Valur ætlaði að leika sér að Þrótti. Þróttur kom líka fram með lið sem ekki hefur verið í fremstu röð undanfarið og mátt leita eitt til tvö ár aftur í tímann til þess að sjá það á mótum, því að nú var Hörður Guð- mundsson með í liðinu, og einnig ,voru þar Gunnar Pét- ursson og Jón Guðmundsson sem að jafnaði eru ekki i lið- inu. En svo tókst til að þetta lið stóð sig með ágætum í fyrri hálfleik, en vantaði sýnilega úthald, þrátt fyrir að vera komið 3 mörk undir, tókst því að ná 4:5 og litlu síðar 7:8, en aldrei tókst liðinu að jafna. I hálfleik stóðu leikar 12:9 fyrir Val. I síðari hálfleik náðu Valsmenn betri leik og svo þegar þol Þróttara gaf eftir voru úrslitin ráðin og varð markamunur meiri en búizt var við. Það er eins og Þrótti gangi illa að koma sér upp öruggu liði, þrátt fyrir að þar eru að koma fram ungir og efnilegir menn. Að þessu sinni vantaði nokkra þeirra sem undanfarið hafa leikið með liðinu, og enn vant- ar „hreiddina" til þees að fá ,' kasti, og tekið aukakast í stað- inn. Um skeið í síðari hálf- leik stóðu leikar 5:2 fyrir Ármann en lokasprettur Vík- inga var mjög góður. Þessar ungu stúlkur sem þarna voru að leik lé’ku ótrú- lega skemmtilega og munu þær síðar láta til sín taka meira. Fram—Valur 10:1 í þriðja flokki B Þetta var hinn svokallaði Framhald á 10. síðu. margar tegundir GEYSIR H.F. Teppa- og Dregladeildin Aðalsaf naðarf undu r } Hallgrímsprestakalls verður haldinn í kirkju safn- ’ aðarins sunnudaginn 6. desember kl. 17. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Kosning 3ja manni 'í sóknarnefnd. 3, Önnur mál. — SÖKNARNEFNDIN. Auglýsið í Þjóðviljanuni aðeíns tiu krónur VINNINGÆSKRfl HflPPDRSTTIS HðÐVIUANS 1. Volkswagenbíll að 9. — — 1.000,00 verðmæti 90.000,00 10. — — 1.000,00 2. Vörur eftir 11. — — 1.000,00 eigin vali 5.000,00 12. — — 1.000,00 3. — — 5.000,00 13. — — 1.000,00 4. — — 2.000,00 14. — — 1.000,00 5. — — 2.000,00 15. — — 1.000,00 6. — — 2.000,00 16. — — 1.000,00 7. — — 2.000,00 17. — — 1.000,00 8. — — 2.000,00 18. — — 1.000,00 Alls kr. 120.000,00 Dregið 23. |un. Drætti ekki frestað KAUPIÐ MIÐA STRAX - GERIÐ SKIL : J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.