Þjóðviljinn - 18.12.1959, Qupperneq 11
Föstudagur 18. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (11
i
H. E EATES:
RAIjÐA
SLÉTTAN
ið inn í sjúkrabílinn. Hreyfingar hennar voru festuleg-
ar og markvissar. Þykk, írska efrivörin var ekki lengur
slöpp, heldur yfirlætisleg, næstum fyrirlitleg og þegar
hún hreyfði sig um herbergið, snögg og rösk meðan hún
gerði hinum særðu til góða, bandaði hún eitt sinn út
handleggnum og stuggaði óþolinmóðlega vjð Forrester
og hrópaði næstum: „Fyrst þú getur ekki gert neitt að
gagni, ættirðu að minnsta kosti að hafa vit á að vera
ekki fyrir með þennan þriggja óln’a kropp. Svona. Gerðu
eitthvað! Hjálpaðu starfsmanninum með börurnar“.
Ungfrú McNab og móðirin ráku upp stór augu. Harr-
is einn virtist varla vita hvað gekk á eða standa alveg
á sama.
Forrester lagði bollann frá sér á borðið og gekk út
fyrir. Áður en hann var kominn út á mitt hlaðið heyrði
hann fótatak hennar á eftir sér.
„Maður skyldi ætla að við hefðum alla nóttina til
stefnu eins og þið hangsið“, sagði hún. „í hamingju
bænum!“
Hún stikaði framhjá honum, stórstíg og karlmannleg,
að sjúkrabílnum sem stóð við garðshliðið.
„Út með sjúkrabörurnar!“ hrópaði hún. Hann sá bíl-
stjórann kippast til við stýrið en róast aftur þegar
Burke kallaði á nýjan leik: „Vertu ekki að ómaka þig! Ég
skal ná í þau. Til hvers í ósköpunum heldurðu áð ég sé
hérna?“
Hún reif upp bakhurðina á sjúkrabílnum og fór að
draga út börurnar, var búin að slengja tveimur upp á
öxl sér áður en Forrester gat komið upp orði. Hann tók
þær fernar sem eftir voru upp á öxlina og gekk hægt á
eftir henni. Þegar hann var korninn hálfa leið yfir hiað-
ið, nam hann staðar. Dauft ljós logaði í litlu lyfja-
geymslunni og um leið og hann stanzaði, hugsaði hann
um stúlkuna sem þarna beið, sat í daufri skímu.nni hjá
litlu telpunni undir græna flugnanetinu og honum fiaug
sem snöggvast í hug að fara þangað inn. En meðan hann
var að velta því fyrir sér, tók hann í fyrsta skipti eftir
þögn sléttunnar, síðan hann kom til baka. Nú var !
ekkert sem rauf hana og hann stóð andartak f viðbót!
og lagði eyrun við: Kyrrðin var svo undur djúp og1
mjúk og ekkert lauf bærðist á trénu við húsið. Honum
fannst þetta vera ímynd kyrrðar og víðáttu austurs-
ins, hljóðrar og óendanlegrar. En svo gall Burke við
í þögninni:
„Heldurðu á sjálfum þér á börunum eða hvað?
Komdu þér úr sporunum!11
NÍUNDI KAFLI
Þegar hann loks gat hitt stúlkuna við hliðið var aftur
orðið kyrrt. Hún stóð við kofadyrnar, hallaði höfðinu
upp að dyrastafnum. Bak við hana logaði á olíulampan-
um og bjarminn féll gegnum flugnanetið á gulleitt and-
lit telpunnar.
Hann tók um andlit hennar og vangarnir voru svalir
og mjúkir við lófa hans.
„Þú ætlaðir að segja mér eitthvað“, sagði hann.
„Það var ekki mikið“.
„Segðu mér það“, sagði hann.
„Ég var með dálítið handa þér“, sagði hún.
Hún tók um hendur hans og þrýsti þeim saman. Þeg-
ar hann tók þær aftur sundur var lítill, hvítur pakki
fastur í sveittum lófanum. Hann starði á hann andartak,
vissi ekki hvað hann átti að gera.
„Opnaðu hann“, sagði hún. „Hann er handa þér“.
Hann vafði hægt utan af pakkanum, hallaði sér nær
ljósinu. Eftir andaták sá hann ljósið skína á blóðrauðan
rúbín, lítinn en skæran.
„Þú átt að eiga hann“, sagði hún.
Menn og listir
greinar Indriða Einarssonar. Flestar
greinanna fjalla um fyrirmenn þjóðar-
innar í listum og stjórnmálum á sam-
tíma höfundar. — „Þær hitta í mark“,
segir próf. Alexander Jóhannesson um
mannlýsingar hans. Greinarnar glitra
af sögnum, orðtækjum og lifandi lýsingum samtímans. Bókin
er hvorttveggja í senn sögulegt heimildarrit og einstakur
skemmtilestur.
Pennaslóðir
Rit kvenna —
11 sögur eftir 11
höfunda.
íslenzkar konur kunna
að segja skemmtilega
sögu, svo sem áður fyrr.
Bækur barnanna:
Vísnabókin
Útgáfa Símonar Ágústs-
sonar með myndum Ilall-
dórs Péturssonar.
Hin sígilda bók barn-
anna. Bókin sem börnum
er jafnan gefin fyrst bóka.
Seld mansali
eftir Janet Lim.
Endurminningar liinnar
austrænu hjúkrunarkonu
sem nú fara sigurför með-
al lesenda Vestur-Evrópu,
og eru þar metsölubók.
Sögusviðið spannar forn-
eskjulega lífshætti, mjög
frumstæðs bændaþorps til
stórborgarlífs á véla- og
hernaðaröld.
Þetta er saga mikilla at-
burða, sem mætt er af
skapstyrk og festu fá-
gætrar konu.
Þýðitig- Ragnars Jóliann-
essonar.
JólaVísur
Ragnars
Jóhannessonar
Myndir eftir Halldór Pét-
ursson.
Visurnar sem börnin
syngja við jólatréð.
Kr. 22.00.
Stúdentavísur
Stúdentasöngbókin frá
1319 í Ijósprentun. —
Ánægjuieg jólabók fyrir
stúdenta.
Verð kr. 38.00.
H L A Ð B O Ð
Dagur er liðinn
Framhald af 7. síðu.
völl undir lífsafkomu eína
og framtíð.
Þó sjórinn heillaði Aðal-
stein ungan, átti hann fleiri
áhugamál. 1 bernsku sinni
hafði hann kynnst búskap
og fjármennsku og hafði af
því yndi að umgangast skepn-
ur. Strax og hann komst yfir
fjármuni keypti hann sér tún
og bústofn og rak fjárbú,
þó í smáum stíl væri, í fé-
lagi við föður sinn. Og hverja
stund, sem hann var í landi,
helgaði hann þessu hugðar-
efni sínu. Það var hans
dægradvöl mitt í önnum líð-
andi stundar.
Aðalsteinn Árni var lífs-
glaður og þróttmikill æsku-
maður, gæddur góðum gáf-
um og meiri félagsþroska en
títt er um menn á ’hans
aldri. Því ber ekki að leyna,
að við hann, iífsstarf hans
og framtíð voru tengdar
glæstar vonir, ekki einungis
af eiginkonu hans og nán-
ustu ættingjum, heldur og
líka af öllum sem hann
þekktu og nutu samvista
hans til lengri eða skemmri
tíma.
En nú hafa örlögin hagað
þessu á annan veg, um það
verður ekki dei't við neinn.
En ein er sú gjöf, sem aldrei
verður frá neinum tekin, en
j það er minningin um fagurt
mannlíf. Og minningin um
Aðalstein Árna Baldursson
er minning um góðan hjarta-
hlýjan og hugljúfan dreng,
sem var elskaður og virtur
af öllum sem hann þekktu.
Guð blessi þig fyrir þessa
gjöf, hjartkæri frændi minn
og vinur.
Valdimar Iíólm líallstað.
Kaupi hreinar
prjónatuskur
á Baldursgötu 30.
OTVARPS-
VIÐGERÐÍR
Op t •»efc* kJ ciS3ÍS
1. Sími 19-Bno
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
---------------------—)
Til sölu
Allar tegundir BÚVÉLA.
Mikið úrval af öllum teg-
undum BIFREIÐA.
Bíla- og
Búvélasalan
Baldursgötu 8. Sími 23136.
JÓLASÖFNUN
Mæðrastyrksnefndar, Laufás-
vegi 3 er opin 2—6 daglega.
Móttaka og afhending fatnaðar
jr->