Þjóðviljinn - 23.12.1959, Síða 9
Miðvikudagur 23. desember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — C9
Állar bira'ðimar seldar
Árgjöld Golfkíúbbs Rvík.
ur
Iþróttasíðunni hefur borizt
eftirfarandi grein:
Undirritaður -skrifaði fyrir
skömmu síðan grein í blöðin
tlm yfirvofandi hækkun félags-
gjalda í Golfklúbb Reykjavík-
ur. Fyrir hönd stjórnarinnar
varð til andsvara Sveinn Snorra
son, en þar sem grein hans
er full af ósæmilegum rithætti
og ástæðulausum dylgjum í
minn garð, leyfi ég mér hér
með að vísa því efni greinar
hans heim til föðurhúsanna.
Sjálfur gerir hann sig sekan
um þá óráðvendni í málflutn-
ingi, að hann gengur fram hjá
sjálfu aðalatriðinu, en það var,
hvort stjórn klúbbsins ætti að
haldast uppi að demba á mikil-
vægum breytingum án þess að
löglega væri að farið.
Nú hefur viðleitni klúbb-
stjórnarinnar borið þann ár-
angur, að hún hefur haft sitt
mál fram um stórkostlega
hækkun félagsgjaldanna, en að
vísu hefur hún fyrst orðið að
100%
viðurkenna yfirsjón sina með
því að halda nýjan aðalfund.
Niðurstaðan er sú, að fé-
lagsgjöldin hafa ekki • aðeins
hækkað um 10%, heldur i sum-
um tilfellum um 15% (gjöld
styrktarfélaga, sem eru 75%
meðlima). Má vera, að hækk-
unnarskriðan hafi orðið stærri
en stjórnin ætlaðist til, en hún
hefur þó hrundið henni af stað.
Eftir er að vita, hvað happa-
sælar þessar ráðstafanir reyn-
ast fyrir Golfklúbb Reykjavík-
ur og golfíþróttina hér í bæn-
um. Gæti ég trúað því, að
klúbbstjórnin og þeir, sem
slysuðust til að samþykkja
þessar stórkostlegu hækkanir,
eigi eftir að sjá það, að hér
hafi verið óhyggilega að farið.
Fyrir alla unnendur golfíþrótt-
arinnar, hlýtur þó aðalatriðið
að vera það, að sem flestir taki
þátt í henni, og fyrir því ber
að greiða með því að stilla fé-
lagsgjöldunum í hóf.
Ót'tar Yngvason.
Sundkeppni framhaldsskólanna
Úrslit hins fyrra sundmóts
skólanna í Reykjavík og ná-
grenni, sem fram fór fyrir
nokkru., urðu sem hór segir:
Stúlkúr, yngri flokkur.
Gagnfræðask. Keflavíkur 5.13.5
Gagnfræðask. Austurb. 5.34.4
Hagaskólinn 5.39.5
Kvennaskólinn 5.40.8
Bikar IFRN vann Gagnfræða
skóli Keflavíkur því í annað
JOLABOK
NORDRA:
Piltar, yngri flokkur.
Gagnfræðad. Laugarnes. 9.28.5
Vogaskólinn 9.38.7
Gagnfr. Austurbæjar 9.49.7
Flensborg 9.53.6
Bikar IFRN vannst af Gagn-
fræðadeild Laugarnesskóla.
Stúlkur, eldri flokkur.
Gagnfr. Flensborg 5.17.2
Gagnfræðask. Austurb. 5.22.1
Gagnfr. Keflavíkur 5.30.5
Gagnfr. Vonarstræti 5.35.3
Piltar, eldri flokkur.
Menntask. í Rvík 8.34.3
Verzlunarskólinn 8.43 0
Vélskóli Islands 8.53.6
Stýrimannaskóli Islands 8.56.4
Menntaskólanemar unnu nú
bikar, sem um var keppt í
fyrsta sinn.
t-----------------——---------
Þjóðviljanum hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá
forstjóra Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar h.f.:
„Út af grein er birtist í
b’aði yðar fimmtudaginn 17.
þ.m., ásamt með mynd úr
mjölskemmu verksmiðju vorr-
ar að Kletti, vil ég mega gefa
eftirgreindar upplýsingar:
Allar birgðir verksmiðjunn-
af af mjöli, að undanskildum
nokkrum tonnum af þorsk-
mjöli, eru seldar og skulu af-
hendast í þessum óg næsta
mánuði.
Lýsisbirgðir eru litlar, þar
eð útskipað var síðastliðinn
laugardag ca. 900 tonnum til
Noregs.
i
Það er því fjarri öllum
sanni, að Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan hér sé að
safna birgðum og geyma til
þess að hagnast á, ef gengi
íslenzkrar krónu j'rði lækk-
að.
Svo til öllum birgðum verk-
smiðjunnar verður búið að út-
skipa í janúar samkvæmt þar
um gildandi sölusamningum.
Þetta er hér fram tekið
vegna þess, að fyrrnefnda
grein mátti skilja á þann veg
að eigendur verksmiðjunnar
væru að reyna að hagnazt á
væntanlegri gengisbreytingu.
Varðandi það atriði í grein-
inni, að flutt hefði verið mjöl
til gejnnslu út í bæ, svo sem
í skemmu á Reykjavíkurflug-
velli, þá er þetta rétt og er
ekkert nýtt. Þetta hefur verið
gert í nokkur ár af illri nauð-
syn, vegna þess að mjöl-
geymslan við verksmiðjuna
tekur aðeins sem nemur tíu
dagá framleiðslu, þegar verk-
smiðjan er í fullum gangi.
Það þarf því engan að undra,
þó flj'tja verði framleiðsluna
frá verksmiðjunni til gejrmslu
annarstaðar.
Annað mál er svo það, að
ekki hefur fengizt að bj-ggja
nauðsynlegar gej’mslur frek-
ar en annað við verksmiðj-
una þar sem hún er, og vita
víst flestir ástæðuna fyrir
því.
pr. pr. Síldar- og fiskimjö’.s-
verksmiðjan h.f. Reykjavík.
Jónas Jónsson.“
Trúlofunarhringir, Stein-
hringir, Hólsmen, 14 og
18 kt. gull.
tgniCKiAVINNUSTOFA
OC VffilAXUSAU
Laufásvegi 41a. Sími 1-36-71
■M
Guðmimdur G. Hagalín:
FÍLÁBEINSHÖLLIN
— — — En það mun óhætt að segja, að liúu
(Fílabeinsliöllin) gæti varla verið meira spennandi
• aflestrar, þótt skáldsaga væri.-
— — 1— Það er ininn dómur, að þe*tta sé mjög vel
gerð bók og margir kaflanna snilldarverk. Yfir henni
er bæði hægt að hlæja og gráta.
I Jón Helgason í Frjálsri • þjóð, 19. des.
□
U Þetta mun vera ein snjallasta bók Ha,galíns.
□
446 bls. Kr. 225.00 ib.
Jóns
Helgasonar, prófessors
RitgerðcEkorn
ræðustúlor
,,Hafi vienn ekki vitað pað áður œtti pessi ðók að fœra
peim heim sanninn um að ekki stingur Jón niður penna
um almenn mál öðru vísi en úr verði ritsmíð sem á
erindi til hvers hugsandi íslendings“.
M.T.Ó. í Þjóðviljanum 21. nóv. sl.
,.Jón Helgason, prófessor í Kaúpmannahöfn er eflaust
cinn skemmtilegasti stílisti sem nú skrifar á íslenzka
tungu. Mál hans er kjarngott, orðfærið lipurt og lát-
laust og stíll hans prunginn hinni léttu kaldhæðni, sem
gerir í senn að ylja lesandanum og styggja hann til um-
hugsunar“.
Sigurður A. Magnússon I Morgunbl. 21. nóv. sl.
ííú er tækifærið til að eignast fjölda af ritgerðum
og ræðum Jóns í einni bók. — Hún fæst, í bóka-
verzlunum.
Félag íslenzkra s!úder>ta í Kaupmasmaltöfn
Ritgerðasafn