Þjóðviljinn - 21.05.1960, Qupperneq 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 21. maí 1960.
• Stærsti togari ís-
' lendinga
Á miðvikudaginn kom til
landsins stærsti togari, sem
íslendingar hafa eignazt. Er
það togarinn Maí, sem Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar hef-
ur látið smíða í Þýzkalandi.
Togarinn er hið glæsilegasta
skip og mjög vel útbúið á
allan hátt. Ýmislegt í útbún-
aði hans má teljast til nýj-
unea, sem væntanlega munu
ryðja sér til rúms. Þannig
er t.d. með útbúnað þann,
sem á að koma 'í veg fyrir
að ísing setjist á skipið, en
það eru bæði tæki til þess
að dæla heitum sjó til þess
að bræða ísinguna og eins
rafmagnshitun í framsigl-
unni. Eins og kunnugt er
stafar hin mesta hætta af
því, er ísing bleðst á skipin
í vondum veðrum og hafa
mörg skip farizt af þeim sök-
um. Er vonandi, að þessi
nýi útbúnaður gefi góða raun
og er þá ekki að efa, að
hann verður settur í fleiri
skip, einkum togarana, sem
oft sækja á fjarlæg mið um
hávetur og í verstu veðr-
um. Margar fleiri nýjungar
eru í útbúnaði togarans og
ber ég ekki skynbragð á
nema fátt af því. Þannig er
skrúfa togarans fullkomnari
heldur en verið hefur áður
á togurum hér, lórantækin
fullkomnari og svo mætti
ýmislegt fleira til telja. Er
ástæða til þess- að óska
Bæjarúgerðinni sérstaklega
til hamingju með þetta
glæsilega skip.
Ein spurning er það þó, sem
vaknar hjá landkraþba eins
og mér í sambandi við þetta
skip og hún er þessi: Er það
i raun og veru heppilegt
fyrir okkur að láta byggja
svona stóra togara úr því að
ekki er þá um verksmiðju-
togara að ræða? Sjálfsagt
geta stórir togarar verið
heppilegir, þegar sótt er á
fjarlæg mið, eins og t.d. til
Nýfundnalands, og Maí hefur
líka svo mikinn ganghraða,
að hann á að vera sólarhring
skemur á leiðinni þangað
heldur en eldri togarar okk-
ar þannig að túrinn þarf
ekki að taka lengri t'íma en
hjá þeim, þótt hann verði
lengur að fylla sig. Mér
finnst aftur á móti, að svona
stórir togarar hljóti að vera
óheppilegri til veiða á heima-
miðum, en það er e.t.v. bara
mín fáfræði. Gaman væri
hins vegar að fá að heyra
álit fróðra manna á þessu
og þá einkum sjómanna, sem
reynslu hafa af veiðum á tog-
urum. Væri póstinum þökk á
að fá bréf um þetta efni.
• Góð kvikmynd
„Bíógestur" hefur beðið
póstinn að vekja athygli for-
eldra á sérstaklega góðri
mynd fyrir börn og unglinga,
sem nú sé verið að sýna í
Kópavogsbíói. Hann sagðist
hafa farið á myndina í
fyrrakvöld með konu sinni
og þau hefðu orðið mjög
hrifin af henni. Aðsóknin
hefði hinsvegar verið heldur
dræm, sagði hann, eins og oft
vill verða hér með góðar
myndir. en það væri synd, ef
menn létu svona góða mynd
fara fvrir ofen garð og neð-
au hjá sér. Pósturinn hefur
ekki s.jálfur séð bessa mynd
en trevstir „Bíógesti" til
þess að fara hér með rétt
mál. Myndin heitir Litli
bróðir.
Skotin niður við Havana “ht
þrjár bandarískar flugvélar verið skotnar niður yfir
Kúbu. Vélarnar höfðu flogið yfir eyna í heimiidarleysi í
erindum gagnbylthigarafla sem vinna að því að steypa
stjórn Fidels Castro. Myndin er af vél þeirri sem skot-
in var niður í síðustu viku rétt utan við höfuðborgina
Havana, Flugmaðurinn, Edward Duke, beið bana, en
fjórir karlar og ein kona sem| ætluðu að flýja Iand með
vélinni voru handtekin. Kúhustjórn segir, að þetta hafi
verið fjórða ferðin af sama tagi sem þessi vél fór.
Bandaríska strandvarðliðið í Flórída viðurkennir að vélin
liafi Iagt upp þaðan í leiðangurinn til Kúbu.
Fnsmvarpi Einars
visað til stjómar
Frumvarpi Einars Olgeirsson-
ar um breytingu á íogunum um
áburðarverksmiðjuna var vísað
til ríkisstjórnarinnar á fundi
neðri deildar í fyrradag, með lf>
atkvæðum gegn 9. Var samþykkt
rökstudd dagskrá meirihluta
fjárhagsnefndar en hún var
þannig rökstudd af framsögu-
manni Jóhanni Hafstein, að
einnig meirihlutinn teldi fulla
þörf að rannsaka málið og ætl-
aðist til að rikisstjórnin geri
það fyrir næsta þing.
Við atkvæðagreiðsluna (nafna-
kall) vakti athygli að Framsókn
hafði þrennskonar afstöðu í
málinu, sumir móti rökstuddu
dagskránni, aðrir með henni en
nokkrir sátu hjá!
Ingólfur Jónsson reynir að
hefna þess með illyrðum í
Morgunblaðinu í gær s.em hall-
aðist fyrir honum á Alþingi,
en þar hefur hann staðið varn-
arlaus í vörii fyrir Imeykslis-
málununi varðandi áburðar-
verksmiðjuna og mjög aðþrengd-
ur.
Myndarlegt 50 ára afmælisrit
Búnaðarsambands Suðurlands
Búnaðarsamband Suðurlands hefur gefið út myndar-
legt rit til að minnast fimmtíu ára afmælis síns í
liitteðfyrra.
Bókin nefnist „Afmælierit
Búnaðarsambands Suðurlands"
og er 358 blaðsíður i stóru
broti. I henni eru 189 myndir
og töflur.
Umfangsmestu kaflana í rit-
inu skrifar Páll Lýðsson í
Litlu-Sandvík, og er þar fjall-
að um sögu Búnaðarsambands-
ins og einstök félög bænda á
Suðurlandi. Eru þessir kaflar
til samans 163 blaðsíður. Þá
eru í bókinni 17 styttri ritgerð-
ir um ýmis efni eftir 14 höf-
unda og þrjú kvæði.
Hjalti Gestsson ráðunautur
skrifar. um stjórn og starfs-
hætti Búnaðarsambandsins, til-
raunastöðina í Laugardælum
og búfjárrækt. Kristinn Jóns-
son ráðunautur skrifar um
búnaðarhagi á Suðurlandi fyrr
og nú og Einar Þorsteinsson
ráðunautur um -vélar og verk-
færi.
Páll Sveinsson sandgræðslu-
stjóri skrifar um eandgræðsl-
una, Klemenz Kristjánsson til-
raunastjóri um kornræktina og
Ingólfur Þorsteinsson áveitu-
stjóri um áveitur.
Páll Diðriksson, Búrfelli
skrifar formála og um afurða-
söluna, Þórarinn Helgason,
Þykkvabæ, um rafvæðingu
Skaftfellinga, Steinþór Gests-
son, Hæli, um hestinn. Greinar
almenns efnis um búskap og fé-
lagsstarf eru eftir Þórð Tóm-
asson, Þorsteinn Sigurðsson
Vatnsleysu og Stefán Hannes-
son, Litla Hvammi. Kristján
Kristjónsson forstjóri skrifar
um búnaðarsýninguna á Sel-
fossi og ræða er eftir Sigur-
jón Sigúrðsson í Raftholti.
Bókin er prentuð í Prent-
smiðju Suðurlands á Selfossi.
UfanlandsferS á rsi n s - ó d ý r - spennandi
f
I
I
3. — 10. júlí í sumar verð-
ur haldin alþjóðleg kynn-
ingai’vika á hinni fögru bað-
strönd Rostockhéraðs við
Eystrasaltið í Austur-Þýzka-
landi.
Þátttakendur verða frá
Þýzkalandi, Danmörku, Nor-
egi, íslandi, Svíþjóð, Finn-
landi, PóJlandi, Sovétríkjun-■
um o.fl- löndum.
Þáttfaka ei öllum
heimil, yngri sem
eldri.
FJÖLB REYTT DAGSKRÁ:
ií.þróttamót — listsýningar
þjóðdansar — leik- og
óperusýningar — tónleikar
-— kappsiglingar og reið-
hjólakeppni — iðnaðar- og
Iandbúnaðarsýning — dans-
leikir og útiskemmtanir á
baðstöðum við ströndina —
heimeóknir í verksmiðjur,
EYSTRASA
ÞÁTTTÖKUGJALD (ferðir og uppihald innifalið)
7500 kr.
skipasmíðastöðvar, fiskiðju- Hópurinn mun búa á góð-
ver og útgerðarstöðvar í um hótelum.
Rostockhéraði.
Einstakt tækiíæri til
að kynnast Austur-
Þýzkalandi.
íslenzki hópurinn fer með
flugvélum 1. og 2. júlí til
Kaupmannahafnar. Þaðan
með lest og ferju til Wame-
miinde. — Flogið heim frá
Kaupmannahöfn 12. og 13.
júlí.
Þátttaka tilkynnist undir-
búningsnefnd Eystrasalts-
vikunnar, Tjarnargötu 20,
sem gefur allar nánari upp-
lýsingar.
Tilkynnið þátttöku
sem fyrst.
UNDIRBÚNINGSNEFND
EYSTRASALTSVIKUNNAR
Tjarnargötu 20—Sími 17513