Þjóðviljinn - 21.05.1960, Side 5
Laugardagur 21. maí 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (5
tilraunin áður e
mrnr
Fyrsti maðurinn sem send-
ur verður út í geiminn frá
Sovétríkjunmn mun fara um-
hverfis jörðina í spútnik. I>að
verða hins ve.gar send mörg
ómönnuð gervitungl umhverf-
is jörðu af sömu gerð og
Spntnik 4. áður en menn
verða látnir fara í þá ferð.
Þetta var helzta niðurstað- :
an í frásögn sovézks geim-!
farafræðings, Armeníumanns-:
ins prófessors Ambartsúmían,
af hinu nýja gervitungli, • en
hann dvelst um þessar mund-
ir í Bretlandi og hefur m.a. |
komið í radíóathugunarstöð-
ina í Jodrell Bank. Prófessor
Ambartsúm’ían á sæti í arm-1
ensku vísindaakademíunni og
einnig í Æðstaráði Sovétríkj-
anna.
1 Jodrell Bank hlýddi hann
á hljóðmerki frá Spútnik 4.
Forstöðumaður athugana-
stöðvarinnar, prófessor A.C.B.
Lovell, sagðist vera sannfærð-
ur um að sovézki risaspútn-
ikinn myndi verða fyrirmynd
geimfarartækja framtíðar-
innar.
Fylgzt með geymslu
matvæla
Vísindamenn á vesturlönd-
um höfðu furðað sig á því að
matvæli skyidu höfð í Spútn-
ik 4. þó að enginn maður væri
með í ferðinni. Prófessor Am-
bartsúmían sagði, að tilgang-
urinn væri sá að fytgjast
með því hvernig þau geymd-
usf úti í geimnum og væru
alls konar mælitæki látin gera
mælingar í því skyni. „Ég
held að þetta hafi verið gert
til að fá sem mesta vitneskju
um allar aðstæður sem geim-
farar framt'iðarinnar þurfa
að búa við“, sagði hann.
Ekki mannaferðir strax
Hann lagði áherzlu á að
menn myndu ekki sendir út í
Herstöðvasamii-
itagur fullgiltur
Neðri deild japanska þingsins1
fullgilti í fyrradag hinn nýja
herstöðvasamning Japans og
Bandaríkjanna. Til ótaka kom
í þinginu vegna þess að nokkrir
þingmenn sósíalista reyndu að
loka forseta deildarinnar inni
svo að hann gæti ekki sett þing-
fund. Lögregla kom honum til
aðstoðar.
Blaðamean boða
til verkfalís
Allir blaðamenn sænskra
blaða og fréttastofnana sem
eru aðilar að félagi útgefenda
hafa boðað verkfall frá 23/5,:
en samningaviðræður sem stað- i
ið hafa yfir að undanförnu eru
farnar út um þúfur. Verk-
fallsboðunin nær ekki til
blaðamanna við málgögn
kommúnista . og sósíaldemó-
krata sem ekki eru í samtökum
útgefenda.
Spútnik fjórði á
nýrri brant?
Prófessor Lovell, forstöðumað-
ur athuganastöðvarinnar í Jodr-
ell Bank í Englandi, sagði í
fyrradag að breyting myndi hafa
orðið á braut sovézka geimfars-
ins Spútniks 4. Hefði geimfar-
ið komið hálfri klukkustund
seinna en buizt var við yfir Bret-
land í gærmorgun. Virtist sem
það færi nú stærri hring en áð-
ur umhverfis jörðu og hefði
braut þess annaðhvort verið
breytt með skeyti frá jörðu,
eða að hið loftþétta hylki hefði
verið skilið frá síðasta þrepi
burðareldflaugarinnar.
Bóluefni gegn
krabbaraeini
Eftir svo sem áratug höfum
við fengið bóluefni gegn
krabbameini og þar með ætti
þessi vágestur að vera lir
sögumii, sagði framkvæmda-
stjóri stærstu lyfjaverksmiðju
Bandaríkjanna, Merck & Co.
John T. Connor í Kaupmanna-
höfn á þriðjudaginn. Tilraunir
hafa verið gerðar undanfarið
ár með bóluefni sem reyn/.t
hefur vel gegn vissum teg-
undum krabbameins í dýrum,
sagði hann, og raimsóknum er
haldið ' tram á þessum grund-
velli.
geiminn frá Sovétríkjunum,
hvorki umhverfis jörðina, til
tunglsins eða annarrra plán-
eta, fyrr en full vissa væri
fyrir því að ná mætti þeim
Iieilum á húfi til jarðar aft-
ur. Hann vildi ekkert fullyrða
um möguleika á að senda
menn til annarra hnatta.
„Mér virðist sem ákaflega
mikill munur sé á því að
senda spútnik á braut um-
hverfis jörðina og koma geim-
skipi til annarra hnatta og
aftur til jarðar“.
„Ein af síðustu
tilraununum“
Annar sovézkur vísindamað-
ur, M.I. Tévljakoff, sem vinn-
ur við stjörnuathuganastöð-
ina í Moskvu, segir í viðtali
við Pravda að nýja geimskot-
ið sé ein síðasta tilraunin!
sem gerð verði áður en hægt j
verður að senda menn út í
geiminn. Hann varaði menn
við að vera með of miklar
grillur um væntanlegar geim-
ferðir, eins og t.d. þá að
menn muni einhvern tíma í
framtíðinni flytjast til ann-
arra hnatta. Hann sagði það
vera „fáránlega" hugmynd.
SÍíslffcyasf _ Vatnaselir eru meðal sjaklgæf-
jaSglgCCS IIyi ustu dýra, en á myndinni sjást
tveir slíkir. Þeir eru frá Bajkalvatni í Sovétríkjunum ea
myndin er tekin í Kaupmannahöfn. Þeir komu við í dýra-
garðinum þar, en eru á leið til dýragarðs í Bandaríkjunum
j Vatnaselurinn er leifar af dýrategund sem var algeng á is-
öld, en varð eftir í Bajkalvatni þegar hlýnaði í veðri og ís-
inn færðist norður á bóginn.
r
Ofriðlegar herlur
í Beigíska Kozigó
i...
klifinn
Brezkir, indverskir og nep-
alskir f j allgöngumenn klifu í
fyrrad. einn hæsta tind heims,
Annapurna II í Himalajafjöllum
7,900 m. Þetta var þriðja hæsta
fjallið sem enginn hafði áður
klifið. Sérpinn Tenzing var í leið-
angrinum.
Bandaríkjamenn skutu í gær
Atlasflugskeyti frá Canaveral-
höfða um 14.000 km leið og kom
það niður í Indlandshaf um 1.000
mílur fyrir suðaustan Höíðaborg. ’orðunni.
Sveréff lætnr af
embætti
Fjármálaráðherra Sovétríkj-
anna, Arsení Sveréff, hefur
beðizt lausnar vegna lieilsu-
hrests. Við embætti hans tek-
ur varafjármálaráðh. Sovét-
ríkjanna Vaselí Garbúsoff.
Sveréff hefur verið fjár-
málaráðherra Sovétríkjanna
síðan 1946. Hann var kjörinn
í miðstjórn Kommúnistaflokks-
ins 1939 og varð varafulltrúi
i forsæti hennar 1952. Hann
gekk í flokkinn árið 1919 þeg-
Miklar óeirðir liafa verið i
Belgísku Kongó að undanförnu
o,g belgíska stjórnin hefur nú
sent her siínum þar liðsauka.
Viðræður hafa staðið yfir að
undanförnu í Brussel um efna-
liagsmál Kongó með tilliti til
þeirrar breytingar sem verður
á stöðu nýlendunnar í sumar,
en ætlunin er að hún öðlist
sjálfstæði 30. júní n.k. en nú
er þeim lokið án þess að ár-
angur næðist.
Kongómenn hafa krafizt þess
að þeir fái þegar í hendur víð-
I,
ar hann gerðist sjálfboðaliði
í rauða hernum. Hann hefur
tvívegis verið sæmdur Lenin-
Enn óeirðir í
Tyrklandi í gær
Enn urðu óeirðir í Tyrklandi
í fyrradag. Stúdentar og- annað
æskufólk söfnuðust þúsundum
saman við minnisvarða stofnanda
lýðveldisins, Kemals Atatiirk,
bæði í Ankara og Miklagarði.
Lögreglan hleypti upp fundinum
og voru a.m.k. 50 menn hand-
teknir.
Eins og við var búizt, hefur
forseti finnska alþýðusam-
bandsins, hægrikratinn Keino
Heinonen, sagt af sér eftir
ósigurinn í atkvæðagreiðslu í
miðstjórn sambandsins.
Heinonen hefur mánaðar upp-
sagnarfrest, en óvíst er hvort
hann mun sitja í forsetaemb-
ættinu þennan mánuð. Eftir-
maður hans verður eins og
einnig var bú;zt við varafor-
seti sambandsins, vinstrikrat-
inn Vihtori Rantanen.
Nýtt alþýðusamband ?
Hægri kratar hafa þegar
hafið undirbúning að því að
kljúfa alþýðusambandið og
stofna annað. Þeir hafa sett
á laggirnar nefnd sem leggja
mun á ráðin um hvað nú skuli
gera.
Talið er þó að það muni
reynast erfiðara en í fyrstu
var talið að setja á stofn
nýtt alþýðusamband og ekki
er búizt við að úr því verði
á næstunni.
I finnska alþýðusambandinu
eru nú 32 verkalýðssambönd.
Af þeim telja hægrikratar sig
ráða yfir 15. Af hinum 17 ráða
kommúnistar sjö, en vinstri
kratar undir forystu Rantan-
ens 10. Það skiptir þó megin-
máli að sambönd þau sem
hægrikratar ráða eru miklu
fámemiari en hin, og eru í
þeim aðeins um 90.000 af þeim
240.000 verkamönnum og kon-
um sem eru innan vébanda
alþýðusambandsins.
Erlend íhlutun
Aðalmálgagn hægrikrata, Su-
omen Socialidemokraati, segir
í forystugrein að í rauninni
sé nú þegar svo komið að al-
þýðusambandið hljóti að
klofna, þar sem kommúnistar
hafi tekið völdin í því. Vinstri-,
kratar geti ekki haldið meiri-:
hluta nema með stuðningi
kommúnista og verði því að,
gera það sem þeir vilja. Blað-
ið segir að alþýðusamböndin á
öðrum Norðurlöndum hafi þeg-1
ar látið vita að þau geti ekkij
borið neitt traust til finnska
alþýðusambandsins, meðan
kommúnistar ráði þar lögum,
og lofum.
Málgagn vinstrikrata, Pái-
ván Sanomat, segir hins vegar
að miðstjórn sambandsins hafi
tekizt að ráða fram úr mestu
vandamálunum þannig að „nú
sé opin leið til einingar þess“.
tæk völd og það mun vera sú
krafa sem spillt hefur viðræð-
unum í Brussel. Leiðtogi þjóð-
ernishreyfingarinnar, Lum-
umba, hefur krafizt þess að
þegar verði sett á laggirnar
ríkisstjórn Kongó með víðtæk
völd.
Belgíumenn eiga sökina
Leiðtogar Kongómanna segja
að Belgíumenn hafi blásið að
glæðum óvináttu milli hinna
ýmsu ættflokka í landinu og
þannig hleypt af stað þeim
ófriði, sem geisað hefur að
undanförnu millj lúlúa og bal-
úba.
Einn þeirra, Albert Lalondij,
segir í viðtali sem hann hefur
átt við New York Times að
Belg’íumenn hafi æst lúlúa til
árása á balúba, en hann er
sjálfur af þeim ættflokki.
Eitt af þeim málum sem
rædd voru i Brussel var krafa
belgísku stjórnarinnar að fá
að hafa herst.öðvar í Kongó
eftir að landið fær sjálfstæði,
en þeirri kröfu hafa Kongó-
menn vísað á bug.
Belgíska stjórnin segist ótt-
ast um þær 100.000 Belgíu-
manna og annarra Evrópu-
manna sem búsettir eru í
Kongó og hún verði því að
liafa her í landinu til að taka
í taumana ef þörf gerist.
Þegar hefur komið til á-
taka milli belgískrar lögregln
og herliðs og Afríkumanna i
Kongó. Útgöngubann hefur
verið sett í höfuðborginni Leo-
poldville.
Tveir leiðangrar
klífa Everest
Tveir leiðangrar eru nú að
reyna að komast á Evresttind. í
öðrum eru fjallgöngumenn fró
Kína og Sovétríkjunum og klíí-
ur hann tindinn að norðan, en,
sú leið er talin miklu ógreiðfær-
ari en leiðin upp suðurhlíðarnar
Indverjar og Nepalmenn eru á
leið upp fjallið að sunnan. Báð-
um leiðöngrunum miðar ve'.
áfram.