Þjóðviljinn - 21.05.1960, Síða 10
2) — ÓSKASTUNDIN
ÖSKASTUNDIN — :(3
HESTURINN
Hesturinn er oft kall-
aður þaríasti þjónninn,
og það er hann líka. Til
eru mörg dæmi um vits-
muni hans.
Þegar ég var tíu ára
fór ég í sveit. Bærinn
sem ég var á heitir Holta-
staðir, þar voru þrír hest-
ar og hétu þeir Skjóni,
Mósi, sem var elztur og
Léttfeti, hann var foli.
Þetta voru allt mjög góð-
ir hestar. Þeir komu oft
heim að bænum og sníktu
sér brauð. Einn dag um
kaffileyti^ kerriur Mósi
og hneggjar við dyrnar.
Ég fékk brauð handa hon-
um og fór út til hans, en
þegar ég ætlaði að gefa j
honum brauðið vildi hann
það ekki, heldur lagði af
stað upp í fjall. Ég fór
á eftir honum, mætti
Skjóna á leiðinni og gaf
honum brauðið, en hélt
svo áfram upp í fjall á
eftir Mósa, sem stöðugt
hélt áfram þangað til
hann staðnæmdist við dý
eða keldu, sem þar var.
Ég left í kringum mig
og sá þá hvar Léttfeti
var á kafi upp að kvið.
Ég fór að bisa við að
• hjálpa honum en árang'-
nrslaust.
Ég hljóp nú heim og
sagði Ólafi vinnumanni
hvernig komið var fyrir
Léttfeta. Ólafur fór nú
uppeftir með reipi, og ég
með honum, og tókst okk-
ur að draga Léttfeta upp-
úr. Hann var orðinn rriátt-
lítill og fórum við með
hann heim. Þar var hon-
um geiin mjólk og margt
annað.
Ef Mósi hefði ekki
komið heim og ég farið
uppeitir . eftir tilvisun
hans, þá hefði Léttfeti
ekki liíað.
Mósi lifði lengi eftir
þetta og mætti segja
margt fleira um hann.
Brynja Svavarsdöttir
12 ára.
KÖTTURINN HEIMA
Hún kisa mín er svört
á lit, með hvíta bringu
og hvítar lappir. Þegar
ég fékk minn kött var
hann kettlingur. Mig
hafði alltaf langað til að
eignast kött og fékk ósk
mína uppfyllta á eítir-
farandi hátt:
Ég var að vinna í skrúð-
garði síðastliðið sumar.
Einu sinni þegar ég var
Ævintýri regnhlífarinnar
eftir N. Radlov.
1. Gunna er úti að ganga í óveðrinu, en liún á líka
ljómandi fallega, fagurrauða regnhiíf, svo það gerir
ekkert til þó rigni.
3. Honum lízt vel á rauðu regnhlífina, og hann gríp-
ur hana í klærnar og flýgur með hana 1 burtu. Hvað
ætli krummaflón geti gert við regnhlíf?
2. En stormurinn þrífur regnhlifina úr liönduni
Gunnu og feykir henni upp í loftið. Svarti kruinini
er þar fyrir.
4. Sólin er farin að skína, en regnlilífin kemur að
fullum notum. Svarti krummi vissi livað hann var
að gera þegar hann hremmdi regnhlífina.
á gangi um garðinn, sé
ég hvar köttur er að
ieika sér me3
sína, rétt við stóra
spýtnahrúgu. Um þetta
lét ég engan vita þang-
að til dag nokkurn er
ég sé að verkstjórinn er.
ásamt nokkrum strákum..
að rífa spýtnahrúg'una:
sundur. Ég fór til þeirra
og spurði hvað hér væri
um að vera. Verkstjór-
inn sagði að taka ætti
heilu spýturnar frá en
brenna hinum. Þá sagðr
ég honum frá kettinum..
Hann sagði að sá sem>
næði kettling, mætti eiga'
hann. Við strákarnir-
brugðum þá skjótt við og
náðum tveim kettlingum
og er annar þeirra kött--
urinn, sem ég á núna.
Mér hefur alltaf þótt
gaman að Snotru minnir
en svo skírði ég köttinn,
sem er læða. Nú held ég'
að hún eigi von á sínum
fyrstu afkvæmum, og
vona ég að kettlingarnir
hennar verði eins góðir,
skemmtilegir og falleg'ir
og hún kisa mín er sjáif.
Jón Þorsteinsson
13 ára.
Slysalegt
orðalag
Skóladrengur var að
skrifa ritgerð um ..Veg-
farandann í umferðinni'1.
Hann komst svo að orði:
í Reykjavík verða árlega
mörg umferðarslys, sum
eru dauðaslys, en sum
eru hættuleg.
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 21. maí 1960
í
?
1
{
>
M Æ N USÓTTARBÓL U S E T NIN G
í REYKJAVÍK
Þau börn og unglingar, sem ekki haía þegar íengið
4. bólusetningu gegn mænusótt, geta fengið hana
í Heilsuverndarstöðinni næstu Ivær vikur.
Bólusett verður sem hér segir:
Mánudag
og þriðjudag
mæti harna. og gagnfræðaskólabörn, búsett
i vesturbæ að Snorrabraut.
Miðvikudag
og föstudag
Mánudag
og þriðjudag
25/5
27/5
mæti barna. og gagnlræðaskólabörn, búsett
við og austan Snorrabrautar.
mæti börn innan skólaaidurs (4—7 ára) úr
vesturbæ að Snorrabraut.
Miðvikudag
fimmtudag
föstudag
mæti 4—7 ára börn við og austan
Snorrabrautar
Opið verður fyrir bólusetningar þessar:KI. 9—11 f.h, og kl. 1—4 e.h.
Bólusetningin kostar kr. 15.00
Eörn yngri en 4 ára verða ekki bólusett í þetta sinn.
Þau fá sína 4. bólusetningu síðar í barnadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar.
Hinar venjulegu vikulegu bólusetningar barna-
deildar Heilsuverndarstöðvarinnar falla að mestu
niður þessar tvær vikur.
Einungis verður tekið á móti börnum búsettum í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkar.
íþróttir
Framhald af 9. síðu.
Landsliðift
Eins og landsliðið lék í þessum
leik, er það ekki svipur hjó' sjón
við það lið sem gerði jafntefli
við Dani í, fyrra. Að sjálfsögðu
eru menn ekki komnir i þá þjálf-
un sem þeir voru komnir í þá,
en stórbreyting verður þó varla
á þeim tíma sem er til leiksins
við Norðmenn. Ingvar Elíasson
frá Akranesi var eini nýliðinp í
liðinu, og lék hann í stöðu Rík-
arðar. Til að byrja með hvarf
hann nokkuð, en er á leið fór
hann að finná sig heima op
markið sem hann skoraði var
gott. En því ekki að hafa Ingvar
miðherja og Þórólf hreinlegr
innherja, sem byggir upp? Hann
heldur sig mjög á þeim stað,
hvort sem er. Sannarlega var
Ríkarðs saknað. og því lífi sem
oft skapast í kringum hann eða
af honum einum.
Þórður Jónsson var rrijög frísk-
ur og fljótur, en hann má vara
sig á að halda knettinum éins
og hann gerir. Svioað er að segja
um Þórólf, sem þó átti oft góð-
an leik. Annars virðast það vera
innherjarnir sérstaklega sem nú
vantar. Sveinn Jónsson var ekki
vel íyrir kahaður.
Sveinn Teitsson og Garðar
Árnasön réðu mjög yíir miðju
vailarins, og brutu margt áhlaup-
ið, en reyndu síðan að byggja
upp.
Árni Njálsson er áberandi bezti
maður öftustu varnarinnar.
Hreiðar átti líka sæmilegan Icik.
Blaðaliðið
Ein breyting varð á blaðalið-
inu, og má fullyrða að það hafði
þau áhrif að veikja það. Björn
Iíelgason frá ísafirði komst ekki,
þar sem ekki var flogið. og varð
Guðjón Jónsson, þá að fara í
stöðu framvarðar, en Bergsteinn
Magnússon kom í stöðu innherja.
Tilraunin með Rúnar sem mið-
framvörð tókst ekki eins vel og
margir höfðu gert sér vonir um,
hann var alltaf of aftarlega og
vildi taka þátt í vörninni, og
vaíalaust er hann sterkari varn-
armaður en framherji, þó hann
sé víða vel liðtækur.
Bergsteinn virðist ekki nógu
nákvæmur í sendingum, en
skotið sem hann skoraði úr var
gott.
Gunnar Guðmannsson var
bezti maður framlínunnar og
hefur sjaldan verið eins kvikur
og vel með. Með sama áfram-
haldi getur keppni orðið hörð
milli hans og Þórðar Jónssonnr
um stöðu vinstri útherja, og væri
vel ef svo hörð keppni gæti skap-
azt um hin sætin. og það milli
svo góðra manna. Eller.t Schram.
barðist og vann mikið meðan.
hann lék með, en snemma í síð-
ari hálfleik meiddist hann á
fæti og hætti, en í hans stað
kom Guðmundur Óskarsson-
Baldur Scheving var kvikur og'
skemmtilegur.
Framverðirnir Guðjón og Orm-
ar náðu ekki þeim tökurn á.
leiknum sem framverðir þurfa.
að hafa. Guðjón virtist ekki.
verulega upplagður og Ormar
virtist ekki kunna við sig á
blautu grasinu.
Kristinn Gunnlaugsson slapp
sæmilega frá viðureign sinni við
Þórðlf, en hann er erfiður. Helgi
Framhald á 11. síðu.