Þjóðviljinn - 21.05.1960, Qupperneq 11
Laugardagur 21. maí 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Útvarpið
FluqferSir
□ 1 dagr er laug-ardagurinn 21. niaí
— Tímótefus biskup — Skerpla
byrjar — Tungl í suðri klukk-
an 9.26 — Árdegisháfkeði kl.
2.29 Síðdegisliáflæði kl. 15.15.
Næturvarzla er £ Reykjavíkur-
apóteki. — Sími 1-77-60.
tíTVARPIÐ
1
DAG:
ir), Egilsstaðá, Húsavíkur. Isa-
fjarðar_ Sauðárkróks, Skógasands
og Vestmannaeyja (2 ferðir). á;
rnorgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja.
12.50 Óskalög sjúklinga. 14.C0
Laugardagslögin. 19.00 Tómstunda-
þáttur barna og unglinga. 20.30
Leikrit: „Marzbúinn“, eftir Frið-
jón Stofánsson. Leikstjóri: Gísli
Halldórsson. 21.10 Tónleikar:
Ljuba Welitsch syngur óperettu-
lög eftir Lehár og Mil öcker. 21.30
Upplestur: „Biskupinn af Vallado-
lid“, gamansaga eftir Hjört Hall-
dórsson (FIosi ölafsson leikari).
22.10 Dans ög. 24.00 Dagskrárlok.
Bræðrafélag Óháða safnaðarins
heldur framhaldsaðalfund að
Kirkjubæ sunnudaginn 22 kl. 3.30
e.h. — Stjórnin.
Snorri Sturluson er
væntanlegur kl. 6.45
f ri 1 New York. Fer
til Oslóar og Helsing-
fors kl. 8.15. Hekla er væntanleg
kl. 19 frá Hamborg, Kaupmanna-
höfn og Gautaborg. Fer til New
York k'. 20.30. Snorri Sturluson
er væntanlegúr kl. 0.145 frá Hels-
ingfors og Osló. Fer til New
York kl. 0.345.
Millilandafiúg: Milli-
landaflugvélin Hrím-
faxi fer til Oslóar,
• Kaupmannahafnar og
Hamborgar kl. 10 í dag. Væntan-
leg aftur til Reykjavíkur kl. 16.40
á morgun.
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akurevrar (2 ferð-
Dettifoss . fór frá1
Reykjavík 19. þ.m. til
Húsavikur, Akureyr-
ar. Sigiufj., Sauðár-
króks, Skagastrandar, Isafjarðar,
Flateyrar, Patreksf jarðar, Faxa-
, flóahafna og Reykjavíkur. Fjall-
j foss fór frtl Hull 18. þ.m. til
I Reykjavíkur. Goðafoss kom til
i Ventspils 18. þ.m. Fer þaðan til
Riga, Rostock og Gdynia. Gullfoss
; fer frá Reykjavík á hádegi í dag.
i til Thorshavn, Leith og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss fór frá
j Reykjavík 17. þ.m. til New York.
! Reykjafoss fór frá Seyðisfirði 19.
; þ.m. til Álaborgar, Gautaborgar,
Odense og Ahus. Selfoss lrom til
Hamborgar 19. þ.m. Fer þaðan til
Reykjavíkur. Trö'lafoss fór frá ‘
New York 12. þ.m. til Reykjavík- j
ur. Tungufoss fór frá Hamina 16.
þ.m. til Daivíkur.
íþróttir
Framhald af 10. síðu.
Hannesson gerði Erni líka lífið
erfitt, og greip oft laglega inn í.
Grétar Guðmundsson náði ekki
verulegum tökum á Þórði, sem
alltof oft komst innfyrir. Hann
er líka of stórbrotinn í spyrnum.
Þóðrur í markinu verður ekki
sakaður um mörkin, og sannar-
lega lofar hann góðu. Varði hann
oft vel.
Dómari var Hannes Sigurðs-
son og dæmdi vel. Áhorfendur
voru um 3000.
_ __ Hvassafell er í Gevle.1
ÍOj Arnarfell er í Vents-‘
pils. Jökulfell fer í
dag frá Keflavík til
Rostock. Dísarfell er væntanlegtj
til Fáskrúðsfjarðar 24. þ.m.j
Litlafeil losar á Norðurlandshöfn-
um. Helgafell er í Reykjavík.
Hamrafell fór 13. þ.m. frá Reykja-
vík til Batám.
Drangajökull fór frá
Keflavík 18. þ. m. á
leið til Grimsby og
Hull. Langjökull fór
frá Ventspils 18. þ.m. á leið hing-
að til lands. Vatnajökull fór frá
Reykjavik 18. þ.m. á leið til
Leningrad.
tHekla er í Reykja-
vík. Esja fer væntan-
i lego. frá Reykjavík
klukkan 13.00 í dag
austur um land í hringferð. Herðu!
breið er væntanleg til Kópaskers
í dag á austurleið. Skja'dbreið
fór frá Rsykjavík í gær til
Breiðafjarðar og Vestfjarða. Þyr-
ill er í Reykjavík. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum kl. 21.00 í
kvöld til Reykjavíkur.
Laxá fór 19. þessa mánaðar frá
Riga á leið til Akureyrar.
„Borgari" önnum kafinn
Blaðið vill benda lesendum á, að
„Borgari“ skrifar um lögreglumál
í Þjóðviljann, en aftur skrifar
,.Borgari“ um landbúnaðarmál og
fl. í Vísi í fyrradag. — Vegna
anna hjá „Borgara" eru líkur til
•að næsta grein um óstjórn lög-
roglustjóra birtist ekki fyrr enn
eftir helgina,
Mæðrastyrkftnefnd. Mæðradagur-
inn er á morgun. Mæðrablómin
verða afhent sölubörnum í öllúm
barnaskólum bæjarins og að Lauf-
l isvegi 3. — Mæðrastyrksnefnd.
SÍNINGAR
Sýning Ferrós í Listamannaskál-'
anum er opin frá kl. 1—10 dag-!
lega. Sýningunni lýkur 6. júní.
Hafsteinn Austmann sýnir í Boga-
ss.l Þjóðminjasafnsins til 30. maí.
Sýningin er opin frá 2—10 dag-
lega.
Hörður Ágústsson sýnir teikning- !
ar í sýningarsal Ásmundar við
Freyjugötu. Opið í dag klukkan
5—10 og á morgun 2—10.
A. Rooskens sýnir í salnum á
Týsgötu 1.
Kirkja Óháða safnaðarins. Messa
kl. 2. Séra Emil Björnsson.
LanjvholtsprestakaU. Messa kl. 2.
í SE.ínaðarheimiIinu. Séra Árelíus
Nielsson.
Fr'kirkjan. Messa í Fríkirkjunni
kl. 2. Bænadagur. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Dómkirkjan. Almennur bænadag-
ur. Messa kl. 11. Séra Óskar J.
Þorláksson. Messa 1:1. 5. Séra Jón
Auðuns.
Laugarneslíijk'a Mas a kl. 2. —
Aðalsafnaðc.'fundur a.ð guðsþjón-
ustu iokinni. Séra Garðar Svav-
arsson.
Bústaðaprestakail. Messa í Kópa-
vogsskóla kl. 11. Séra Gunnar
Árnason.
Háteigsprestakall. Massa, í hátíða-
sal Sjómannaskólans klukkan 2.
Séra Jón Þorvarðarson.
Pan American flugvél korn til
Keflavíkur í morgun frá N. Y.
og hélt áleiðis tii Norðurlanda.
Flugvélin er væntanleg aftur
annað kvöld og fer þá til N. Y.
Keppnin harinar
Keppnin um söluverðlaunin í
Byggingarhappdrætti ÆF
harðnar stöðugt í Rv'ík. S’íðast
þegar blaðið frétti í gær voru
skil í fullum gangi og mikið
annríki á afgreiðslu hanp-
drættisins í skrifstofu ÆFR.
í gær var aðalskiladagur og
urðu miklar breytingar á röð
keppendanna. Er auðséð, að
keppnin um söluverðlaunin í
Reykjavík verður bæði tvísýn
og hörð og margir, sem koma
til greina.
Aðrar deildir ÆF munu einn-
ig hafa hækkað allmikið inn-
komið fé fvrir selda miða, enda
að verða hver s'ðastnr. hví a.ð
lokasnretturinn er hafinn.
Cannes
Framhald af 1. síðu.
með sér verðlaunum fyrir
bezta leik, en ekki þótti á-
stæða til að sæma neinn leik-
ara verðlaunum.
Síðasta mynd mexíkanska
kvikmyndastjórans Luis Bunu-
els hlaut sérstaka viðurkenn-
irtgu, og sovézka myndin
„Saga hermannsins" var verð-
j launuð sem bezta myndin
handa ungu fólki.
THEODORE STRAUSS:
11. D A G U R .
og reyndi að hafa ekki hátt.
Af efsta þrepinu sá hann inn
í stofuna gegnum stóra glugg-
ann, en hann sá engan þar
nema Jessie frænku sem sat
í stóra ruggustólnum við fiska-
kerið. Hún var enn í sunnu-
dagafötunum sínum. Ilún sat
álút og hann sá ekki, hvort
hún var að hugsa eða hvort
hún var sofandi. Hann beið
þangað til hann gat aftur and-
að rólega. Svo fór hann inn fyr-
ir og lokaði varlega á eftir sér.
Það gerðist ekkert. Gegnum
dyrnar milli andyrisins og
stofunnar heyrði hann rödd
Jessie frænku: — Daníel, ert
það þú?
— Já, frænka.
— Þú kemur seint. Jessie
frænka var þreytuleg þar sem
hún sat í stólnum. Augu henn-
ar voru dökk eins og alltaf,
þegar hún hafði áhyggjur af
einhverju.
Hann gekk gegnum stofuna
að fiskakerinu. Fiskarnir fóru
að veifa uggunum og renna til
í vatninu. Honum fannst allt-
af sem þeir horfðu á eitthvað
fyrir aftan hann.
— Ég var úti að ganga, sagði
Danni.
— Til klukkan eitt? Jessie
frænka leit svo á, að fólk, sem
var ekki komið heim til s.n
fyrir klukkan ehefu, væri
annað hvort að veiða þvotta-
birni eða á vegi glötunarinnar.
— Ég fór yfir til Mósa að
gá að hundunum. Það er bráð-
um kominn tími til að fara á
veiðar.
Jessie frænka brosti ögn og
rödd hennar var blíðleg, þegar
hún tók til máls, — Þér þykir
garaan að fara á veiðar, er það
ekki Daníel? Leita að þvotta-
björnum og íkornum i skóg-
unum og fjöllunum — alveg
eins og þegar þú varst heima
hjá ömmu í Chinamook?
Hann vissi ekki hvað hún var
að fara og honum leið ekki vel.
— Af hverju segirðu það, Jessie
frænka? spurði hann. — Jú,
ég kunni vel við mig heima í
fjöllunum. Þau áttu vel við
mig, hugsa ég. En nú hef ég
ekkert að gera þar lengur,
nema kannski að vera í návist
ömmu. En ég kann líka ágæt-
lega við mig hérna.
— Ætli það? Jessie frænka
hikaði ögn áður en hún bar
fram næstu spurningu. — Hef-
urðu frétt nokkuð frá brautar-
lögninni — ég á við, hvort þú
fáir vinnu bráðum aftur?
—• Það verður ekkert handa
mér að gera fyrstu þrjár vik-
urnar að minnsta kosti, sagði
Danni. — Ertu að hugsa um
húsaleiguna?
— Nei, Daníel, sagði Jessie
frænka stillilega. —• En karl-
maður verður að hafa eitthvað
að taka sér fyrir hendur. Þess
þurfa allir karlmenn. Þá gera
þeir . ekkert af sér.
— Áttu við einhvern sérstak-
an?
Jessie frænka leit snöggt á
hann og brosti dálítið. — Þig,
Daníel.
— Nú, og hvað um það? Hef
ég gert eitthvað af mér? Hann
reyndi að vera léttur í máli, en
það tókst ekki vel, því að háls-
inn á honum herptist saman.
1— Seztu, Daníel. I-Iérna hjá
mér.
— Ég vil heldur standa.
Hún leyfði honum að standa.
Svo spennti hún greipar í
kjöltu sér. Það leið nokkur
stund áður en hún sagði: — Ég
er hrædd um að ég hafi verið
þér lítil stoð, Daníel.
— Af hverju ertu að hugsa
um það? Hann skildi ekki enn
hvað hún var að fara eða hvað
hún vissi eða hvernig hún
hafði fengið að vita það.
— Ég veit víst ekki mikið
um drengi, Daníel. Hvernig' á
það líka að vera um mann-
eskju, sem aldrei hefur átt
börn sjálí'? Rödd Jessie frænku
var dálítið afsakandi og dálit-
ið hrygg. — Síðan amma sendi
þig hingað, til þess að þú gæt-
ir lært eitthvað, hef ég reynt
að gera mitt bezta. Og' þegar
ég fer að hugsa um þetta ein-
stöku sinnum — já, þá þekki
ég þig næstum ekki. Þú kemur
og ferð og stundum líður næst-
um heil vika, án þess við bjóð-
um hvort öðru góðan daginn.
Að Mósa undanskildum veit
ég alls ekki hverjir vinir þín-
ir eru eða hvað þú tekur þér
fyrir hendur. Stundum finnst
mér næstum sem ég gæti eins
haft ókunnugan leigianda.
— Það hefur aldrei neinn
spurt mig hvert ég væri áð
fara eða hvað ég væri að gera,
Jessie frænka. Ég hef aldrei
vanizt að tala um það.
—■ Ég ætlast ekki til þess.
Daníel. Það er dálítið annað,
og ég veit varla hvernig ég á
að koma orðum að því. Það er
ekki gott fyrir dreng að hafa
aldrei þekkt sina nánustu. . . .
Rödd Jessie frænku var dálítið
vándræðaleg, eins og það væri
eitthvað sem hún skammaðist
sín fyrir að tala um. . . hafa
aldrei þekkt föður sinn og móð-
ur. .
— Af hverju segirðu það
ekki með berum orðum?
Jessie frænka leit upp, þega.r
hún heyrði reiðina í rödd
Danna.
— Um pabba — að hann hafi
skotið mann og verið hengdur
fyrir það. . . Orðin voru beizk
í munni hans.< Jessie frænka
sat kyrr andartak og' andlit
hennar var gráfölt í lampa-
ljósinu. Hún sléttaði kjólinn
sinn vandlega og sagði: •— Ég
hef aldrei talað um það.
— Af hverju ekki? Nú
streymdu orðin frá Danna. —
Af hverju eru allir hræddir
að tala um það. Það er eins
og þeir vilji segja að það hal'i
verið honum að kenna allt
saman, að pabbi hafi verið sek-
ur og ástæðulaust að ræða það.
Og þú segir það líka með því
að þegja — þú segir að pabbi
hafi átt skilið sína refsingu,
að það hafi verið rétt að þeir
hengdu hann.
■—• Jeb var bróðir minn,
sagði Jessle frænka lágri
röddu. — Ég býst við að hann
haíi að nokkru leyti haft rétt-
inn sín megin. En samt braut:
hann af sér. Hún hikaði andar-
tak áður en hún hélt áfrarn.
— En það er gömul saga, Daní-
el, hún gerðist fyrir þitt minni.
Nú er það þitt Tf sem ég er
að tala um. Þú hefur alltaf
verið dálítið einrænn ■— eins
og þú værir hræddur við fólk
eða treystir því ekki. Eí mað-
ur á að lifa innan um fólk,
Daníel, verðu.r maður að bera
traust til þess.
Allt í einu mundi Danni eft-
ir dimmu götunum, gluggunurií
og lamandi óþægindakenndinnf
í maganum. — Af hverju færðrt
svona hugmyndir, Jessia,
frænka? Af hverju segirðu ann-
að eins og þetta?
— Það er bara vegna þesá
— jú, sjáðu til, þegar þú komsti
hingað varstu svo stilltur og
feiminn drengur, en nú hefurðu
breytzt án þess að ég hafi átt-
að mig á því. Þú ert orðinrí
fullorðinn. Fólk segir mér þacL
Það segir að þú sért villtur. . .
Fiskarnir í kerinu voru hætt-
ir að synda; nú flutu þeir
lireyfingarlausir í vatninu. —*