Þjóðviljinn - 04.06.1960, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 04.06.1960, Blaðsíða 9
Laugardagur 4. júní 1960 — ÞJÓÐVIL.JINN — (9 KÍÍS33g 11 p ssa 3Kw5ÍS ss 2S t=æ Ki g /g-*sagiit ftiifl gipt i.S Eg 2g liUi ffi 3S: 3g Ritstjóri: Frímann Helgason Spurnitigum svctrað Þróttur vann fyrsta leik inn í 2. deiid. Einhver Jón Ingólfsson leggur fyrir mig fjórar spurningar í Þjóðviljanum 1. þ.m. vegna um- sagnar minnar um ieik Vals og Akurnesinga sl. sunnudag og virðist manninum mikið niðri fyrir. í>að fyrsta sem vekur hneyksl- un mannsins er það, að ekki er minnzt á ólöglega skorað mark. Því er til að svara, að ég hef ald.rei haft fyrir fasta reglu að geta marka, sem skoruð hafa verið og dæmd ólöglega skoruð, og þá sérstakleg'a hafi ég ekki haft aðstöðu til að gera mér íuila grein fyrir aðstæðum. Þeg- ar svo stendur á, læt ég dómara og línuvörð um að ákveða, og Jínuvörðurinn er sá maður sem hei'ur bezta aðstöðu til að fylgj- ast með því, sem rangstöðu snert- ir, eins og þarna var um að ræða. Ég tel ófært að hlaupa eftir sögusögnum áhorfenda um slík atriði og draga af þeim fullyrð- ingar. Ég hef því verið áhorf- andi að mörgum mörkum, sem skoruð hafa verið við ólöglegar aðstæður, og ekki dæmd giid, og orkar það mjög tvimælis, hvort eigi að skýra frá þeim fremur en öðrum ólöglegum atvikum í ieiknum, enda hafa frásagnir af þeim oft verið látnar niður falla. Það verður að vera matsatriði hverju sinni eins og fyrr segir. í annan Stað spyr Jón þessi, hvo.rt ég haíi verið viss um að brotið á 35. mín. hafi'verið inn á vítateig. Já, svo sannarlega. Þar hafði ég rnjög góða aðstöðu og yfir- sýn og ekkert sem skyggði á. Þriðja spurning Jóns Ingólfs- sonar er um það, hvort ég hafi ekkert séð athugavert við fram- komu Gunnlaugs Hjálmarssonar er Val „var dæmt“ annað markið og, hvort ég hafi séð Kastaði 59 m óæfður Á Innanfélagsmóti KR í gær á Melavellinum náðist þessi ár- angur: 100 m hlaup Hörður Haralds- son 11.0. Grétar Þorsteinsson 11,6, 400 m lilaup: Guðmundur Þorsteinsson ÍA 51,4, Þórir Þorsteinsson Á 52.0, Svavar Markússon KR 52,4. Hástökk: Jón Pétursson KR 1.95. Spjótkast: Halldór Halldórs- son ÍBK 59,69. Halldór er sjó- maður, nýkominn af vertíð og hefur ekkert æft og náði þó bezta árangri hér á landi í ár. knöttinn í netinu. í umrætt skipti sneri Gunn- laugur baki að mér og auk þess skyggðu menn að nokkru á hann svo mér var ómögulegt að fylgj- ast með, hvað hann aðhafðist við markmanninn eða aðra. Hefði ég skýrt írá því, hefði ég orðið að hafa sögusögn annarra, og' eins og fyrr segir er það hæpin leið að fara inn á, þvi oft er svo að sitt sýnist hverjum. Dómarinn var þar mjög nærri og því í mikið betri aðstöðu til að taka afstöðu, en hann gerði engar at- hugasemdir við framkomu Gunn- laugs í þetta sinn. Þó ég hafi tekið svo hraustlega til orða, að knötturinn hafi far- ið í netið, þá skal það hreinlega játað, að um það var ég engan- veginn viss, enda í slæmri að- stöðu til að sjá það, og' skiptir það raunar ekki meginmáli, held- I ur hitt, að dómarinn dæmdi mark og línuvörður hafði ekk- ert við það að athuga. Fjórða spurning Jóns Ingólfs- sonar er þannig orðrétt: „Og' að Iokum ættuð þér að upplýsa lesendur blaðsins í hvaða knattspyrnufélagi þér eruð sjálf- ur?“ Því er fljótsvarað: Knatt- spyrnufélaginu Val. Ef Jón Ingólfsson er með spurningu þessari að ákæra mig fyrir hlutdrægni í skrifum mín- um, þegar Valur er annarsveg- ar, get ég upplýst hann um, að þetta er í fyrsta sinn sem mér er borið það á brýn í ræðu eða riti, þegar ég segi frá leikjum Vals. Hins vegar get ég sagt Jóni Ingólfssyni, að ég hef oft orðið fyrir áreitni vegna þess, að ég drægi alltaf taum Akurnesinga, og tæki þá æfinlega fram yfir aðra. Þessu mótmæli ég að sjálf- sögðu, tel mig vera hlutlausan, og hafi verið um góða frásögn um knattspyrnumenn Akurnes- inga að ræða, sé það verðskuld- að, og' g'óðu heilli hefur það oft verið, og á væntanlega eftir að endurtaka sig í framtiðinni. Mér finnst þetta því koma úr hörðustu átt, að Jón Iligólfsson beri mér á brýn hlutdrægni í frásögnum af knattspyrnuleikj- um. Það væri annars fróðlegt að vita, hvaðan Jón Ingólfsson er, og alveg mætti segja mér að hann væri frá Akranesi! Frímann Helgason. Fyrsti leikur 2. deildarkeppn- innar var leikinn á miðvikudags- kvöldið og áttust við lið Þrótt- ar og Víkings. Leikurinn var lengst af frem- ur þvælingskenndur, af og' til brá þó fyrir góðum leik hjá Þrótti, einkum þó í fyrri hálf- leik. Mörkin Fyrstu mínúturnar byrjuðu með gullnum ma.rktækifærum Þróttar, ón þess að mark væri skorað. Víkingur skoraði fyrsla markið á 11. mínútu, og var þar að verki ÓIi Björn Kjærnested, sem fékk knöttinn í góðu færi óvaldaður og fékk skorað auð- veldlega. Þróttarar létu slíkt sem þetta ekki lengi viðgangast, skoruðu á 13. mínútu eftir m'jög gott spil upp miðjuna. Jón Magn- ússon batt endahnútinn á það mark með laglegri hælspyrnu. Jón Magnússon var aftur á ferðinni á 21. rnínútu með ann- að mark Þróttar, skoraði hann það með skalla beint úr horni frá hægri kanti. Fjórum mínút- um síðar skorar Þróttur 3. mark- ið, það skoraði Jens úr þvögu. Þannig lauk hálfleiknum 3:1. „Billega“ sloppið fyrir Víking, sem lá undir allþungri sókn Þróttar, sem oft bauð upp á góð marktækifæri, án þess að skor- að væri. Snemma í seinni hálfleik bjarg- aði annar bakvörður Víkings á línu með hendi, — vítaspyrna á Víking. Haraldur Baldvinsson v.-bakvörður og fyrirliði Þrótt- ar skoraði mjög örugglega úr spyrnunni efst í markhornið. Eftir markið var sem værð færðist yfir Þróttarana og Vík- ingum tókst að fá losað af sér pressuna, sem verið hai'ði á mark þeirra, og tókst a.rn.k. einu sinni að skapa sér virkilegt marktækifæri, sem þá ekki nýtt- ist. 5. og síðasta mark Þróttar sko.raði Guðmundur Axelsson Liðin Eins og áður er sag't var leik- urinn ekki neitt gullkorn að gæð- um. Sú litla knattspyrna sem sást var sýnd af Þrótti. Fram- lina Þróttar og markyörðurinn var betri hlutinn. Vörnin sem venjulega er betri hluti liðsins, var nú allt of opin og lau- i sér. Jón Magnússon var miög góður í fyrri hálfleik og átti stærsta þáttinn i mörkunum. Víkingsliðið var nú, sem og í fyrri leikjum liðsins í vor, lé- legt. Markvörður liðsins var þó ágætur. Dómari var Hreiðar Ársælsson og dæmdi sæmilega. Áhorfendur voru sárafáir, enda þótt veður væri gottt. — bip — Pantið fermiiigarmymJin ar tímanlega. Laugavegi 2. Sími 11-98 - Heimasími 34-890. K.S.I. FRAM ANNAN I HVITASUNNU Rássar ~ K.R. keppa á Laugartlalsvellinum kl. 8.45. — Dómari Magnús Péturss. K.R.R. Islantlsmeistarar Reykjavíkurmeistarar „STERKASIA KNATTSPYRNULIÐ ER HÉR HEFUR VERIB" 1 /f • A VV í)i • * * MJÓLKURIS: Mjolkur & rjoma~is 1 lítri ltr. 19.50 y2 lítri kr. 11.00 FRÁ ÍSBORG ENNÞÁ SAMA LÁGA VERÐIÐ R J Ó M A I S : I HÚSMÆÐUR! — Athugið að mjólkur- og- rjómaís frá Isborg 1 lítri kr. 26.00 i cr ódýrasti eftirmatur sem völ erá — ÍSBORG y2 lítri kr. 14.00 v s—-•» i Hann fær sér fs y

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.