Þjóðviljinn - 09.06.1960, Síða 10
10) _ ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 9. júní 1960
Sami drottinn kennir um heim allan
Framhald af 7. síðu.
kom með Hekluhraunið og
mót og fékk mig til þess að
bræða það með þessum sterka
loga. Það voru krossar, sem
hann var að steypa. Eg hef
heyrt, að liann hafi sagt úti
í bæ, að hraunið hafi komið
svona úr Heklu. Hún var svo
guðrækin.
— Eg hef heyrt sagt, að
þú fáist mikið við að gera
við ekrúfur á skipum. Er það
ekki erfitt?
— Það er alitaf eitthvað
að koma fyrir skrúfurnar á
togurunum. Stundum koma í
þær skörð eða skrúfublað
brotnar af. Þá þarf að sjóða
þær saman. Það sparar út-
gerðinni mikið að taka skrúf-
xina ekki af, ein 6—8 þús-
und. Þá er gert við skrúfuna
á skipinu uppi í slippnum.
Skip, sem ég hafði gert við
skrúfuna á, þurfti eitt sinn
að fá gert við skrúfu úti í
Englandi. Þeir ætluðu að
taka skrúfuna af, en skip-
verjar sögðu, að þess þyrfti
ekki. Það hefði verið gert við
hana hér heima án þess. Þeir
ensku trúðu því ekki, þótt
þeim væri sýnd viðgerðin.
Þeir báðu þá að fara heim til
Islands og Ijúga þar. Um
ágóða af því, sem ég hef
gert ætla ég ekki að tala.
Viðtakendur eru dómbærir
\im það, hvort eitthvert gagn
hefur verið að því.
Þótt Sigurhans sé nú nær
75 ára, lítur hann ekki út
fyrir að vera meira en sex-
tugur, hvikur og snar í snún-
ingum. Eg spyr hann, hvort
hann sé ekki farinn að þreyt-
Adam Rapacki utanríkisráð-
herra Póllands kom i opinbera
heimsókn til Kaupmannahafn-
ar í fyrradag. í gær átti hann
Viðræður við Krag, utanrikis-
ráðherra Danmerkur, og sömu-
ieiðis við Friðrik konung.
Rapacki heldur heim á
sunnudaginn.
ast meira við vinnu en áður.
— Nei, ég þarf bara held-
ur meira að lúra.
— Og þú getur enn tekið
spretti við vinnuna?
— Spretti? Já, það get ég.
Hver maður, sem vinnur með
svona tækjum verður að nota
augnablikið. Annars fær hann
ekkert út úr þeim.
Sigurhans er nú elzti
starfsmaðurinn i Héðni og
mun vera elzti starfandi járn-
smiðurinn á landinu. Hann
hefur starfað mikið að fé-
lagsmálum járniðnaðarmanna,
var m.a. einn af stofnendum
Félags járniðnaðarmanna 11.
apríl 1920 og átti sæti í
fyrstu stjórn þess.
Ungur nam Sigurhans silf-
ursmíði og hefur í tómstund-
um sínum fengizt við að
smiða fánastengur og fleiri
slíka gripi. Hann sýnir mér
eina, sem hann er nýlega bú-
inn að ljúka við, forkunnar-
vandaðan grip. — Eg vil ekki
fella þetta niður, segir hann.
Það er andleg heilsugjöf. —
Logsuðunni og járnsmíðinni
hefur hann þó helgað líf
sitt, enda hneigðist hugur
hans snemma þar að. —
Þegar ég var strákur, segir
Sigurhans, fékk ég að vera
með fóstra mínum við járn-
smíði. Mér leiidist alltaf önn-
ur vinna og var guðsfeginn,
þegar eitthvað brotnaði, sem
þurfti að gera við.
Lengra varð viðtalið ekki
við Sigurhans að þessu sinni,
en hann kann frá mörgu að
segja, sem væri efni í heila
bók. Yfir kaffi og pönnu-
kökum, sem kona hans, Val-
gerður Gísladóttir, hefur bor-
ið fram röbbum við stundar-
korn um daginn og veginn
og Sigurhans er ekki myrkur
í máli um neitt. Svo kveð ég
með þökk fyrir viðtalið og
ósk um drjúgan starfsdag
enn. Það veit ég, að Sigur-
hans myndi helzt kjósa. —
S. V. F.
Dynamo —
J
Framh. af 12. síðu
fá. Helzt var það í fyrri hálfleik,
er Björgvin komst í gott skot-
færi við markteig Rússanna. er
mistök urðu hjá öðrum bakverð-
inum, en það tækifæri var herfi-
lega misnotað. í seinni hálfleik
átti Guðmundur Óskarsson gull-
ið tækifæri, er hann fékk góða
sendingu frá Ragnari, en jafn-
vægið brást þeim góða manni og
knötturinn rann sína ieið til
markvarðar Dynamo. Þrið.ia
tækifærið var, þegar Baidur
Scheving fékk góðan bolta yíir
bakvörðinn, sem ekki gætti mót-
herja síns sem skyldi. Baldur
skaut háum bolta að markinu,
sem skapaði mjög mikla hættu
við markið þar eð markvörður-
inn hafði staðið allt oí framar-
iega i markinu — en í þetta
sinn brást þó vonin um eitt ís-
ienzkt mark gegn þessu snjalla
liði. því markmanninum tókst
með herkjum að ná knettinum
yfir i horn.
Rússarnir léku á hægagangi
Þessi leikur Dynamo er lang-
rólegasti leikur liðsins hér. Nær
allan tímann léku þeir hæga-
gang'sknattspyrnu, en höfðu þó,
sökum mikillar knatttækni. öll
ráð í hendi sér. Annars er þessi
leikur langsíztur allra leikjanna,
og er e.t.v. ekki að furða; það
getur vart verið skemmtilegt fyr-
ir snillinga að mæta dag eftir
dag knattspyrnumönnum, sem á
Evrópumælikvarða eru skussar.
Bezt i Dynamo-liðinu var
sem fyrr framlínan með Jurin,
Fedosoff og Korsjúnoff sem beztu
menn. Vörnin er eftir leikina hér-
lendis óráðin gáta, því hún hef-
ur átt eindæma góða daga. Báð-
ir markverðirnir hafa þó sýnt
smátiiþrif.
Framliðið gat ekkert sýnt í
bessum leik, enda vart við því
Varastöðin
Framh. af 12. síðu
að skýra ,,Húsnæðiskostnaðinn“
(1.680 þús.) með þvi að hér væri
um „gamlan hitakostnað að ræða,
sem lengi hefði verið óuppgerður,
en loks ákveðið að færa þannig“
eins og hann komst að orði. í
svarræðu benti G.V. á að málið
væri jafn óupplýst' eftir sem áð-
ur, bæjarfulltrúar væru jafn
nær, eftir svar borgarstjóra.
„Hver er þessi ,,hitakostnaður“
Varastöðvarinnar og hvers vegna
er hann færður sem húsnæðis-
kostnaður í reikningnum, spurði
Guðmundur. En við þvi átti
Geir Hallgrímsson engin svör.
Japanir
Framhald af 1. síðu.
segir í blaðinu að andstaðan
gegn heimsókn Eisenhowers
vaxi stöðugt, og nái hún til
mikils fjölda Japana, ,,sem
hvorki séu vinstri sinnar né
fylgjandi hlutleysi.“
Eisenhower hefur haldið fast
við þá ákvörðun að fara til
Japan hvað sem á dynur. Ful-
bright, formaður öldunga-
deildar Bandaríkjaþings, hefur
sagt að viturlegra væri að
fresta heimsókninni. Fjölda-
mörg bandarísk blöð hafa tekið
í sama streng.
Fram 9:0
að búazt. Helzt var það Geir í
markinu, sem fékk að sýna hvað
í honum bjó. enda sýndi hann
oít á tíðum afbragðsgóðan leik
og má þakka honum að mörkin
urðu ekki mun fleiri.
Dómari í leiknum var Haukur
Óskarsson, Viking, og dæmdi
mjög vei.
— bip —
Gengur illa að
fá kaupið greitt
Einn aflahæsti báturinn á
vetrarvertíðinni, sem gerður
var út frá Reykjavík, var Guð-
mundur Þórðarson. Mun bátur-
inn hafa aflað um 900 tonn og
hásetahlutur orðið um 60 þús.
kr. Þrátt fyrir hinn góða afla
hefur hásetunum gengið erfið-
Jega að fá hlut sinn greiddan
hjá útgerðinni og eiga þeir inni
meira og minna af kaupi sínu.
Otgerðarmaðurinn er Baldur
Guðmundsson einn af stjórnar-
meðlimum L. I. Ú.
Hótelrekstur
Framhald af 4. siðu.
sinni fyrr, enda hefur þegar
verið pantað geysilega mikið
hjá okkur, en eingöngu fyrir er-
lenda ferðamenn, en þar að
auki kemur alltaf á Garðana
mikið af íslendingum en þeir
hafa yfirleitt ekki þann sið að
panta hótelherbergi fyrirfram.
Við héldum að aðsókn yrði
fremur lítil í júnímánuði og
studdumst þar við reynslu fyrri
ára, en þá hefur þetta verið
lél«gasti tíminn . En síðan
Hótel Garður var opnaður hef-
ur hvert einasta tilbúið herbergi
verið leigt og orðið að vísa frá
fjölda manns. Áformað var að
opna Nýja Garð ekki fyrr en
15. júní og starfsfólk var ráð-
ið frá þeim tíma, en ljóst er
að opna verður þann garð svo
fljótt sem auðið er. Okkar
fyrsti gestur var finnski spjót-
kastarinn Rautavaara og núna
höfum við rússneska knatt-
spyrnuliðið Dynamo. Ástæða er
til að vekja sérstaka athygli á
því að á meðan Hótel Garður
starfar er það stærsta hótel
landsins og hefur bezta aðstöðu
til að taka á móti stórum hóp-
um.
— Er nokkuð sérstakt sem
þú vildir taka fram að lok-
um?
— Já, Garðarnir eru á ýmsan
hátt vistlegri nú en áður og
tekin hefur verið upp sú ný-
ung, að hótelgestir geta fengið
keyptar veitingar allan sólar-
hringinn.
-— Ég er viss um. að hótel-
reksturinn mun skila góðum
ágóða og það kemur öllum
stúdentum vel, sem á Garði búa
í framtíðinni því að okkar
ágóði verður notaður til við-
gerða á þeim tveim görðum,
sem til e.ru, og ef til vill að
reisa nýjan garð.
— Er einhver vafi á því, ég
hélt að það væri ákveðið?
— Við höfum tekið Garðana
á leigu aðeins í sumar og það
er náttúrlega ekki öruggt, að
stúdentar muni halda áíram
að reka hótelið, en vonandi
verður það. —vli.
Eyjólíur syntí
í Gufunes í gær
1 gær synti Eyjólfur Jóns-
son, sundkappi, frá Lofts-
bryggju í Reylcjavíkurhöfn að
bryggjunni í Gufunesi. Er
þetta í fyrsta skipti sem Gufu-
nessund er jircytt.
Eyjólfur lagði af stað !
sundið kl. 2.23 síðdegis og tók
lar.d í Gufunesi kl. 5.07 eða
2 klst. 44 min. síðar. Sjávar-
hiti var mestan hluta leiðar
12 stig, kaldur áll þó við Við-
ey. I upphafi sundsins tók
Eyjólfur 32 sundtök á mínútu
hverri, en eftir klukkustundar.
sund 34 tök. Fylgdarmenn
voru Guðmundur Eggertsson,
formaður og eigandi Vestfirð-
ings, bátsins sem fylgdi sund-
manninum eftir, Hákon Jó-'
hannsson, Jóhann sonur hans
og Pétur Eiríksson þjálfari
Eyjólfs. Einnig var ljósmynd-
ari Þjóðviljans, Ari Kárason,
með í förinni og birtast í blað-
inu á morgun myndir a,f sund-
inu.
Þegar Eyjólfur Jónsson
steig á land í Gufunesi í gær
var hið bezta tekið á móti hon-
um og bauð Þorleifur Gunn-
arsson, skrifstofustjóri Áburð-
arverksmiðjunnar sundkappan-
um og fylgdarliði til kaffi-
drykkju.
Bandarískur ráð-
herra í heimsékn
Verklýðsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, James P. Mitcheil, er
væntanlegur liingað í heimsókn
í næstu viku. Mun liann halda
fyrirlestur fyrir almenning í
hátíðasal háskólans n.k.
finuntudag, 16. júní.
Kona ráðherrans verður í
fylgd með honum, einnig tveir
af fulltrúum í bandaríska verk-
lýðsmálaráðuneytinu, þeir Jos-
eph Judge og Saul Moskowitz,
og Louis Wissner frá utanrík-
isráðuneyti Bandaríkjanna.
Mitchell hefur gegnt störf-
um verklýðsmálaráðherra í
Bandaríkjunum frá árinu 1953.
Meðan ráðherrann dvelst hér
í fteykjavík mun hann ræða
við embættismenn, fulltrúa
verklýðssamtaka o.fl. Hann
mun heimsækja Finnland áður
en hann snýr aftur heim til
Bandaríkjanna.
Gestir ASÍ
heSeía heim ■'
Meliska miðstjórnarmaður í
tékkneska alþýðusambandinú
og Zizka starfsmaður flutninga-
verkamannasambandsins, tékk-
nesku verkalýðsleiðtogarnir
sem hér hafa dvalizt að und-
anförnu í boði Alþýðusam-
bandsins héldu heimleiðis í
fyrrdag. Þeir ferðuðust um náT
grenni Reýkjavíkur, skoðuðu
m. a. Sogsvirkjunina í boði
bæjarstjórnar, heimsóttu Hafn-
anfjörð í boði fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna þar og
fóru einnig til Akureyrar. Létii
þeir mjög vel af dvölinni hér.
4» •
Oryggi - sparneytni
Themobloc
loíthitunarkatlar
Ceyser
Miðstöðvarkatlar
Sun^Ray
Olíubrennarar
Haskvæmt verð
hitun
Laugaveg 176 — Sími 36-200