Þjóðviljinn - 23.07.1960, Síða 11

Þjóðviljinn - 23.07.1960, Síða 11
Laugardagur 23. júlí 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (11 Útvarpiö S Flugferðir ★ 1 dag er lauífardafíili'imi 23.1 júlí — Appolinaris — Tungl í hásuðri kl. 12.21 — Nýtt tungl kl. 17.31 — Árdegishi’lflæði kl. 5.18 — Síðdegisháflæði kl. 17.45. Næturvarzla vikuna 23.-29. júli er í Laugavegsapóteki, sími 2-40-46. Slysavarðstofan er opin allan sólarhringinn — I.æknavörður L.B. er á sarrra stað klukkan 18— 8 s!mi 15030. Holtsapótek og Garðsapótelc eru opin alla virka daga klukkan 9— 7 og á. sumnudögum klukkan 1—4 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.40 Tónleikar. — 10.10 Veð- urfregnir). 12.50 Óskalög sjúkl- inga. 14.00 Laugardagslögin. 20.30 Leikrit: „Djöfullinn og Daníel Webster“ eftir Stephen Vincent Bennett. (Þýðandi og leikstjóri Lárus Pálsson). 21,10 Valsar eftir Waldteufel. (Hljómsveitin Fílharmonía“ í Lundúnum leik- ur. — Constant Lambert stjórn- ar). 21.35 Upplestur: „María“ smásaga eftir Jón Björnsson rit- stjóra frá Dalvík (Snorri Sig- fússon les). 22.10 Danslög — 24.00 Dagskrárlok. — Leifur Eiríksson er væntanlegur kl. 6.45 frá New York. Fer til Osló og Helsing- fors kl. 8.15 Edda er væntan- leg kl. 19.00 frá Hamborg, Kaupraannahöfn og Gautaborg Fer til New York kl. 20.30. Leifur Eiriksson er væntanleg- ur kl. 01.45 frá Helsingfors og Osló. Fer til New York kl. 3.15. Millilandaflug: Milli- landaflugvélin Gull- faxi fer til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 8,00 i dag. Væntanleg aftur til Reykjavíkur kl. 22,30 í kvöld. Kaupmannahafnar kl. 8.00 í fyrramálið. MilfilandafjUgvélin Hrímfaxi fer til Oslóar, Kaup- mannahafnar og Hamborgar kl. 10.00 í dag. Væntanleg aftur til Reýkjavikur kl. .16.40 á morg- i<n. Innanlandsflug: í dag er áætl- að að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Húsa.víkur, Inafjarðar, Sauðárkróks, Skógar- sands og Vestmannaeyja (2 ferðir). Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir). ísafjarðar, Sigiufjarðar og Vest- ma.nnaeyja. ^^^33^1611 er væntan- H legt til Kolding 25. þ. m. Arnarfell er vænt- an'egt til Swansea 25. þ,m. Jökulfell er i Reykjavik. Dísarfell er í Stettin. Litlafell er á leið til Reykjavikur. He’gafell er væntanlegt til Fá- skrúðsfjarðar annað kvöld. Hamrafell fór 17. þ.m. frá Hafnarfirði til Batum. Laxá losar sement á Vestfjarða- og Norðurlandshöfnuttn. Langjökull er i Riga. Vatnajökull fór frá Akureyri í gær til Grimsby. Skipaútgerð ríkisins: Hekla fer frá Reykjavík klukkan 18 í kvö'd til Norðurlanda. Esja er á Austfjörðum á norðurleið. Horðubreið var væntanleg til R- víkur í gær frá Austfjörðum. Skjaldbreið er á Skagafirði á leið til Akureyrar. Herjólfur er í Vestmannaeyjum. ir 1 Dettifoss fór frá ■h V) Liverpool í gær til ^______j Grimsby, Gauta- borgar, A>'hus og Gdynia. Fjallfoss er í Reykja- vík. Goðafoss kom til Gdansk 21. þ.m. fer þaðan til Gulifosis fer fr!V Kaupmannahöfn á há- degi í dag til Leith og Reykja- víkur. Lagarfoss fer frá New York um 27. þ.m. til Reykja- víkur. Reykjafoss kom til Ábo 20. þ.m. fer þaðan til Ventspils Hamina. LeningrEnl og Riga. Sel- foss’ fór frá Reykiavtk i gær, titl Keflavíkur, Patreksfjarðar, Sauðárkróks, Siglufjarðar, Ak- ureyu-ar, Isafjarðar, Flateyrar, Faxaflóahafna og ReykjaJvíkur. Tröllafoss fór frá Keflavik 16. þ.m. til Hamborgar, Rostock, Ystad, Hamborgar, Rotterda.m, Antwerpen og Hull. Tungufoss fór frá ísaf. 21. þ. m. til Sauð- árkróks, Sigluf jarðar, Hú: tuvík- ur Dalvíkur og Akureyrar. Húsmæðrafélag Reykjavíkur fer í skemmtiferð þriðjudaginn 26. júli i Þórsmörk. Upplýsingar 3 simum 14442 og 15530. Bústaðaprestakall. Messa í Foss- vogskirkju kl. 11. Séra Gunnar Árnason. Kópavogsbúar. Þeir, sem vi’du gjöra svo vel og vinna í sjálf- boðavinnu við kirkjubygginguna, hreinsun timburs og fleira, eru beðnir um að gefa sig fram við Siggeir Ólafsson, Skjólbraut 4. — Byggingarnefndin. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Minningarspjöld Sjálfsbjargar fási Bókabúðinni Laugarnesvegi 52 1 á eftirtöldum stöðum: — Bókabúð ísafoldar, Austurstræti 8. Reykjavíkurapóteki, Austurstrætl 16. Verzl. Roða, Laugavegi 74, ÆFB Farið verður í Þórsmörk um verzlunarmannahelgina. Tryggið ykkur. far í síma 1-75-13, milli 8 30 og 9,30 síðdegis. Læknar íjarverandi: Arinbjörn Kolbeinsson fjarv. frá 21. jú ii til 2. ágúst. Staðg.: Bjarni Konráðsson. Björgvin Finnsson fjarv. frá 25. júií til 22. ágúst. Staðg.: Árni Guðmundsson. Esra Þétursson fjarv. frá 25. júlí til 30. júlí. Staðg.: Halldór Arin- bjarnar. Ólafuir Jónsson fjarv. fri't 23. júlí til 8. ágúst. Staðg.: Tryggvi Þor- steinsson. Jóhannes Biörnsson fjarv. frá 23. júlí til 20. ágúst. Staðg.: Emil Ais, Hverfisgötu 50 viðtalstími 1.30 til 2.30 sdmi 15-7-30. Björn Guðbrandsson fjarv. frá 18. júli til 16. ágúst. Staðg.: Ghð- mundur Benediktsson. Bergþór Smíri, fjarv. 24. júní — 5. ág. Staðg.: Árni Guðmundsson. Bjarni Jónsson fjarv. í ó kveðinn tíma. Staðg.: Björn Þórðarson. Friðrik Björnsson fjarv. frá 11. júlí um óákveðinn t ma. Staðg.: Viktor Gestsson fyrstu vikuna, Eyþór Gunnarsson eftir það. Guðmundur Björnsson fjarv. til 2. ágúst. Staðg.: Skúli Toroddsen. Grímur Magnússon fjarv. frá 15. júií til 22. ágúst. Staðg.: Gunnar Guðmundsson Klapparstíg 25, viðtalstími frá 5—6. Gunnar Cortes 4. júlí til 4. ágúst. Staðg.: Kristinn Björnsson. Hannes Þórarinsson fjarv. frá 18. júlí í eina til tvær vikur. Staðg.: Haráldur Guðjónsson. Halldór Hansen fjarv. frá 11. júlí til ágústloka. Staðg.: Karl S. Jónasson. Henrik Linnet 4.—31. jú’í. Staðg.: Halldór Arinbjarnar. Kristján Hannesson fjarv. frá 19. júlí til 15. ágúst. Staðg.: Krist- ján Þorvarðarson. Kristján Jóhannesson til 30. júlí. Staðg.: Bjiarni Snæbjörnsson. Karl Jónsson fjarv. frá 20. júlí til 30. ágúst. Staðg.: Jón Hjaltalín Gunnlaulgsson. Oddur Ólafsson 4. júlí til 5. ág. Staðg.: Árni Guðmundsson. Ólafur Tryggvason fjarv. til 27. ágúst. Staðg.: Haraldur Svein- bjarnarson. Ólafur Helgason tii 7. ág. Staðg.: Karl S. Jónasson. Pá’l Sigurðsson yngri fjarv. til 7. ág. Staðg.: Emil AIs, Hvg. 50. Ragnhildur Ingibergsdóttir verður fjarv. til júliloka. Staðg.: Bryn- júlfur Dagsson. héraðslæknir í Kópavogi. Richard Thors verður fjarverandi til 8. ágúst. Stefán Björnsson fjarv frá 14. júlí í óákv. tíma. Staðg.: Magrnús Þor- steinsson sími 1-02-69. Stefán Björnsson læknir fjarv. frt 14. júlí í óákv. t’ma. Stpðg.: Magnús Þorsteinss. Sími 1-97-67. Sigilrður S. Magnússon iæknir verður fjarverandi um óákv. tíma. Staðg.: Tryggvi Þorsteinsson. Snorri Hallgrímsson til júlílöka. Stef! in Öafsson, fjarv. 23 júní tii 1. ágúst. Staðg.: Ólafur Þor- st'einsson. Valtýr Bjarnason, frá 28. júní I óákv. tíma. Staðg.: Tryggvi Þor- steinsson. Víkingur Arnórsson til 1. ágúst. Staðg.: Axel Blöndal. Victor Gestsson fjiarverandi frrl 18. júlí til 22. ágúst. Staðgengill: Eyþór Gunnarsson. Þórarinn Guðnason fjarv. til 1. ágúst. Staðg.: 'Árni Björnsson Þórður Möller júlímánuð. Staðg.: Gunnar Guðmundsson. Þórður Þórðarson fjarv. frá 20.— 27. júlí. Staðg.: Tómas Iónssou. Listasafn Einars Jónssonar opið daglega frá klukkan 1.30 til 3.30. Trúlofanir Giftinqar C A M E R O N H A W L E Y : stiorinn feiiur 8. DAGUR. um, ekki sízt ef þær stóðu í sambandi við Avery Bullard og flest geðhrif hennar stóðu í ein- hverju sambandi við Bullard. Hún hafði verið einkaritari hans í næstum sextán ár. Átján ára gömul hafði Erica Martin ekki verið sérlega lag- leg stúlka. Sem þrjátíu og átta ára kona var hún falleg. Þegar hún var unglingur hafði hún verið hávaxin og sterklega byggð og andlitsdrættir hennar höfðu verið of festulegir til að samrýmast kröfum þeirra tíma um kvenlega fegurð. Sem full- þroska kona fékk hún nokkra sárabót þótt seint væri, með því að hljóta sífellda aðdáun. Kárlmenn hrósuðu henni eins og bezt er hægt að hrósa konu með því að segja að hún hugsaði eins og karlmaður. Konur, eink- um konur á aldur við hana, litu á hana sem hina sterku, sjálfstæðu persónu, sem þær hefðu sjálfar getað verið, ef þær hefðu ekki fórnað sér fyrir húsverk, bameignir og úmönnun eiginmanns með allrl hans sérvizku og smánöldri. Og þó var sannleikurinn sá, að líf Ericu Martin var ekki svo feikilega ólíkt lífi giftu kvennanna. Enda þótt samband hennar við Avery Bullard væri algerlega platóniskt og bæri engan keim af hlýjum tilfinn- ingum, var það ekki ókeimlíkt sambandi greindrar og hjálp- samrar eiginkonu og dugandi, ráðr’ks og kröfuharðs eigin- manns hennar. Henni var sýnd ögn meiri virðing en tíðkast í hjónaböndum yfirleitt. Hvað snerti erfiðleika og smánöldur eiginmannsins, þá höfðu fæstar eiginkonur fengið að kenna meira á slíku en Eirca Martin, og það hafði komið fyr- ir að húri hafði átt erfitt með að sýna umburðarlyndi. Avery Bullard gat verið mjög þreyt- andi. Hið versta var að þá var einlægt um smámuni að ræða. Dag eftir dag gat hann tekið mikilvægar ákvarðanir, næstum jafnóðum og hún lagði vanda- málin fyrir hann. Betra sam- starf var ekki hægt að hugsa sér. En svo kom eitthvað smá- vægilegt á dagskrá og alveg að tilefnislausu varð hann þrár, eins og hann reyndi vitandi vits að gera henni gramt í geði. Hverja einustu viku síðan Fitz- gerald dó hafði hún gert sitt ýt.rasta til að fá Bullard til að afgreiða málið „aðstoðarfor- stjóra'1. Einu sinni hafði hún meira að segja borið fram beina spurningu, en þrátt fyrir það hafði hann ekki gert neitt. Meira gat hún ekki gert. Ef Avery vildi vera þrjózkur, þá var ekkert við því að gera. Hún gat ekki skrifað á minnis- blaðið hans: „Velja aðstoðarfor- stjóra“ eins og hún skrifaði á hverjum mánudagsmorgni: „Klipping". Avery hafði aldrei haft fyrir því að skilja hvað þessi vanræksla hans gerði henni erfitt fyrir. Það var hún sem þurfti að kalla á undirfor- stjórana á fundi. En auðvitað hvarflaði það aldrei að honum. Hún leit niður og símskeytið í hendi hennar minnti hana strax á að mínúturnar liðu. Enginn undirforstjóranna vissi að herra Bullard var á leið heim frá New York. Það var föstudagur. Verið. gat að einn þeirra eða fleiri hefðu hugsað sér að taka helgarfrí snemma. Hún yrði strax að hafa sam- band við bá. Avery myndi dansa striðsdans ef einhvern þeirra vantaði á fund og það þyldi hann ekki .... blóðþrýst- ingur hans hafði orðið alltof hár síðast þegar það kom fyrir. Hún flýtti sér út um skrif- stofudyrnar og lagði af stað niður miðaldalega stigann sem tengdi saman þessar tvær efstu hæðir. Um leið og hún kom niður leystist vanda- málið sjálfkrafa, því að beint fyrir framan hana var hurð sem á var letrað: Frederick W. Alderson, undirforstjóri og gjaldkeri. Það var því ofureðli- legt að hún færi þangað inn fyrst. Frederick Alderson sat tein- réttur í skrifborðsstólnum sín- um; hvítt hár hans var vand- lega greitt yfir háu enninu og rjóðu, sléttu andlitinu. Það var eins og úlit hans væri sniðið fyrir snyrtilega skrifstofuna. Bros hans var jafn notalegt og snyrtilegt. „Komið innfyrir, ungfrú Mar- tin.“ ,,Eg var rétt í þessu að fá boð frá herra Bullard um að hann sé á heimleið frá New York. Hann hefur boðað fund klukkan sex.“ Brosið dofnaði andartak, en komst svo fliótt í hið uppruna- lega horf að hún tók varla eftir því. „Eg vona að það sé ekki ó- þægilegt fyrir yður, herra Ald- erson.“ ,,Nei.“ Með þesu eina orði tókst honum að láta. í ljós, að ekkert í einkalífi hans skipti máli þegar Avery Bullard var annars vegar. „Eg er viss um að það er éitthvað áríðandi á dagskrá,“ sagði hún. „Annars hefði hann ekki beðið ykkur alla að mæta“. „Alla?“ spurði herra Alder- son varfærnislega. „Stjórnina.“ „Já, auðvitað. Þökk fyrir, ungfrú Martin.“ Hann stöðvaði hana í dyrunum. ,,Þér vitið náttúrlega ekkert um hvað fundurinn verður langur?“ „Nei, því rniður ekki.“ „Jæja, það gerir svo sem ekk- erf til. Við hjónin erum boðin í kvöldmat klukkan sjö, en ég er viss um að gestgjafar okkar fyrirget'a okkur, þótt við kom- um örlítið of seint. Um' leið og hún lokaði dyr- unum, sá hún að hann tók ný- yddan blýant og teygði sig eftir minnisblokkinni. Það gerðist aldrei neitt. án þess að herra Alderson sk.rifaði um það at- hugasemd með þéttri bókstafa- skrift, sem leit út eins og prent. Á leiðinni fram ganginn var Erica Martin að velta fyrir sér, hvort Avery Bullard hefði nokkurn tíma gert sér Ijósa hina dæmalausu tryggð Frede- ricks Aldersons .... það \Tæri mjög smekklegt af honum að gera Alderson að meðforstjóra s'num ..... þa.ð var engin á- stæða til þess að hann gerði það ekki, allt mælti með því. Herra Alderson var elztur undirfor- stjóranna. Það myndi ekki valda neinum straumhvörfum í skipulagningunfd og hann mjmdi auk þess draga sig í hlé eftir fjögur ár; hann var orðinn sextíu og eins árs. , Hún gekk framhjá hurð sem ekkert spjald kæmi á fyrr en búið væri að útnefna nýjan varaforstjóra. og kom að hurð sem á stóð; Jessie Grimm, uhd- irforstjóri framleiðsludeildar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.