Þjóðviljinn - 24.07.1960, Blaðsíða 9
Sunnudagur 24. jólí 1’960 -r- ÞJÓÐVILJINN — (9
nií
æé
m
igjS
Sati
Ritstjóri: Frímann Helgason
Vísindastörf Kusnetsoffs hafa
dregið úr íþróttahæfni hans
Hann vereSur varla skeinuhœttur á OL
14 á 10,2 og betur í
100 metra hlaupi
Ein af þeim greinum, sem ekki
hvað minnstur spenningur verður
í á Olympíuleikunum í Róm, er
100 metra hlaupið, sem fram til
þessar hefur verið „bandarísk
grein“, þar eð það hafa nær
alltaf verið Bandaríkjamenn, sem
hafa staðið á efsta þrepi verð-
launapallsins á OL eftir 100
metrana, og oft einnig sitt til
hvorrar handar við sigurvegar-
ann.
Nú lítur hins vegar svo út sem
Bandaríkjamenn séu ekki ein-
ráðir lengur.-’Þjóðverjar, Kanada-
menn, Rússar, ítalir og Frakkar
eiga nú mjög góða hlaupara, sem
án efa geta sigrað á leikunum
í sumar. Hary frá Þýzkalandi og
Jerome frá Kanada hafa náð
bezta tímanum. 10 sekúndum
sléttum. Bandaríkjamennirnir
Tidwell og Norton, báðir á 10.1
sek. eru taldir aðalkeppinautar
Harys og Jerome. Þeirra stærsta
tromp er reynsla þeirra í harðri
keppni, sem Evrópumenn aftur á
móti skortir tiifinnanlega.
Hér kemur listi yfif þá sem
hafa hlaupið 100 metrana á 10.2
og betra:
10.0 sek.: Hary og Jerome
10.1 sek.: Tidwell og Norton
10.2 sek.: Jeffrys, Morrow. Wood-
— house, Berutti, Dave, Sime,
— Weaver, Germar. Winder,
— Seye og Bartanieff.
Á meistaramóti Sovétríkjanna í
frjálsum íþróttum, sem einnig er
úrtökumót fyrir OL í Róm, setti
stangarstökkvarinn Krasovskei
nýtt Evrópumet, stökk 4,65 m.
Fyrra metið átti landi hans
Vladimir Buiatoff 4.50 m.
Tugþrautin vakti mesta
athygii
Sú grein, sem langmesta at-
hyglina vakti, var tugþrautin,
þar sem fyrrverandi heimsmeist-
arinn, Kusnetsoff, tók þátt. Eft-
ir fyrri dag keppninnar má það
Ijóst vera að Kusnetsoff verður
varla skeinuhættur á Olympíu-
leikunum, til þess er hann ekki
nógu vel þjálfaður, en hann hef-
ur nær eingöngu helgað sig vís-
Brasilía tapaði
fyrir Uruguay 1:0
í Suður-Ameríku er keppt um
svonefndan Atlantik-bikar í
knattspyrnu og er fylgzt með
þeirri keppni þar syðra af mik-
illi athygli. Flest Suður-Ameríku-
ríkin taka þátt í keppninni og
koma þar oft fyrir óvænt úr-
slit.
Nú um daginn kom það fyrir
að Brasilía tapaði fyrir Uruguay
með einu marki gegn engu. Var
mikið um dýrðir í Montevideo í
tilefni af þessum sigri, því fátt
er eins eftirsóknarvert þar og
sigur yfir Brasilíu.
Aftur á móti tóku Brasiiíu-
menn sig á, þegar þeir léku við
Argentínu, því þá sigr.uðu þeir
með 5:1.
Fetað í fótspor
Ingemars
í hinni alþjóðlegu knattspyrnu-
keppni í New York, fór fram s.l.
mánudag ieikur milli Sampdoria
frá ftaiíu og Norköbing frá Sví-
þjóð. Leiknum sem var í harð-
ara lagi, lauk með sigri ftal-
anna 6:4.
Leikurinn fór fram á Polo
Grounds, sama stað og Ingemar
Johansson var rotaður fyrir mán-
uði síðan. Einnig nú fór það
svo að Svíi var sendur inn í
draumalandið. Að þessu sinni
ekki af Floyd Patterson, heldur
af æstum áhorfanda, sem óð inn
á völlinn og gaf Svíanum Arne
Lind vel útilátið högg, svo að
bera varð Svíann útaf vellinum
Steinrotaðan.
indastörfum í sumar. Þetta hafa
orðið Rússum mikil vonbrigði,
þa.r sem þeir bjuggust jafnvel við
að Kusnetsoff gæti náð aftur í
heimsmetið af hinum snjalla
svertingja Rafer Johnson, en
metið sem hann setti á dögun-
um er hvorki meira ná minna
en 8683 stg. Eftir fyrri daginn
var Kusnetsoff aðeins í öðru
sæti með 4158 sig, en Yuri
Dyachkoff var fyrstur með 4163
stig.
Hér er samanburður á afrek-
um Rafers Johnsons, þegar hann
setti metið, og Dyachkoffs og
Kusnetsoffs á rússneska meist-
aramótinu:
100 metrar 10.9 11.2 10.6
Langstökk 7.03 7.18 7.55
Kúiuvarp 14.13 13.90 15.98
Hástökk 1.84 1.93 1.78
400 metrar 50.4 50.9 48.6
Olympíunefnd ftalíu býður 6
Chilemönnum til Rómar
Eins og frá var skýrt hér fyr-
ir nokkru tilkynnti Olympíu,
nefnd Chile, að enginn íþrótta-
maður mundi fara til Rómar sem
þátttakandi í leikjunum þar. Var
ástæðan sú, að ákveðið va.r að
þeir peningar, sem safnazt höfðu,
skyidu fara til hjálpar þeim
mörgu, sem misstu ailt sitt í
jarðskjálftunum í vor. Olympíu-
nefnd ítalíu iét þau boð út ganga
að hún myndi sjá um að Chile
ætti þar fulltrúa, og yrði boð
um það sent áður en langt um
liðið.
Nú hefur verið ákveðið af hálfu
Olympíunefndar Ítalíu að bjóða
6 íþróttamönnum til leikjanna, 2
frjálsíþróttamönnum, 2 skot-
mönnum og 2 hneíaleikamönn-
um.
Nefndin greiðir aiian ferða-
kostnað og upþihald þessara
ínanna.
Sumarblém
Begoniur
Dahliur
Animonur
Liljur
Garðrósir
■VT r r 1 ..|i I borginni Kíeff j tJkraínu er verið að byggja þessa íþrótta-
-L ’ y iprottalion holl. Hún verður 138 m á len,gd og 78 m breið og rúmar 11.000
áhorfendur. 1 höllinni er hægt að keppa í 10 greinum íþrótta samtímis. Á sumrum er hægt
að setja kælítæki í samband og iðka skautalilaup og íshokkí.
Gróðrarstöðin við Miklatorg.
Símar 22-8-22 og 1-97-75.
Keppendur á OL í Róm fluttir
til og frá í þyrilvængjum?
í Róm hefur það komið til
umræðu að flytja keppendur
•nilli keppnisstaðanna og dval-
arstaða þei.rra með þyrilvængj-
um. Eru það yfirvöldin í Róm,
sem eru að velta þessu fyrir sér,
ef svo kynni að fara, að umferð-
in verði svo mikil, að hún tefji
keppendurna í því að komast til
keppnisstaðanna.
Hugmyndin um þyrilvængjurn-
ar á þó að vera vararáðstöfun,
fyrst á að gera ráðstafanir til
þess að létta á umferðinni með
ýmsum ráðum. Er m.a. talað um
að takmarka bifreiðastöður í
inn.
miðborginni, að banna þar
þungaflutning, .að öll torgsala
byrji klukkutíma fyrr á morgn-
anna, og hætti fyrr.
Ríkisstarfsmenn eiga að hefja
vinnu fyrr og hætta fyrr, eða
áður en umferðin nær hámarki.
Þá verður bannað að efna til
þjóðmálafunda, eða annarra
fundahalda meðan á Olympíu-
leikunum stendur.
Opinberum skrifstofum á að
loka um miðjan daginn til þess
að draga úr umferðinni, verða
menn því að hafa lokið erindum
sínum á skrifstofur fyrr um dag-
Leikir í dag
í dag fara fram tveir leikir
í knattspymu í I. deild: —
Fram — Valur á Laugardals-
vellinum kl. 8.30 sd. — Kefla-
vík — Akranes í Njarðvíhum
kl. 4 sd.
Knattspyrimdagurinn er í dag
Hinn árlegi Knattspyrnudag-
ur, sem efnf er til að tilhlut-
an Unglinganefndar KSÍ, er í
dag. Verður hann með svip-
uðu sniði og áður hefur ver-
ið, þannig að leikirnir eru
leiknir í yngri flokkunum,
leystar eru sérstakar þrautir
sem drengir í þriðja og fjórða
flokki taka þátt í, og er það
toæði flokka- og einstaklings-
keppni.
Hér í Reykjavík mun keppn-
in um þessar sérstöku þrautir
hafa farið fram í gær, en ann-
arsstaðar á landinu munu þær
fara fram í dag.
I Reykjavík er sú tilhög-
un á leikjunum að aðeins er
keppt í fimmta flokki og þá
fá þeir að keppa sem ekki
'hafa leikið með á mótum í
sumar.
Eiga þessir ungu menn að
leika á KR-vellinum og Fram-
Ivelli, og heimsækja Valsmenn
KR en Víkingur Fram, og fara
leikimir fram fyrir hádegi.
Eftir því sem formaður Ung-
linganefndarinnar tjáði Iþrótta-
síðunni, verða leikir háðir á
Isafirði, Akureyri, Altranesi og
þá hafa Hafnfirðingar og
Keflvikingar komið sér saman
um að leika þennan dag í þrem
flokkum, og fara þeir leikir
fram !í Keflavík.
Upphaflega var til þess
ætlazt að leikið yrði á öilum
völlum landsins í yngri flokk-
unum og á þann hátt yrði
dagurinn verulegur áróðurs-
dagur fyrir knattspyrnura.
Vonandi kemur að því að
knattspyrnumenn og forustu-
menn hennar skylji þýði’'gu
þess að hrifa hina ungu
drengi með í leikinn.
Þess má að lokum geta, að
allir þeir sem taka þátt í leikj-
um dagsins fá sérstök skjöl
til minningar um þátttökuna. ,