Þjóðviljinn - 01.10.1960, Page 5

Þjóðviljinn - 01.10.1960, Page 5
Laugardagur 1. október 1960 ÞJÓÐVILJINN — (5 Ondirskriftirnar voru markleysa Framhald af 1. síðu dag. Skýrsla þeirra er svo-; hljóðarjii: „Við undirritaðir höfum samkvæmt ákvörðun miðstjóm-; ar Alþýðusambands íslands farið yfir undirskriftaskjöl þau, sem stjórn Dagsbrúnar; voru afhent af Jóni Hjálmars- sjmi o.fl.,* varðandi áskorun um að alisherjaratkvæðagreiðsla yrði látin fram fara um kjör fulltrúa félagsins á 27. þing Alþýðusambandsins. Við mættum þessara erinda í skrifstofu Dagsbrúnar nú í; morgun. Þar voru mættir auk | okkar Eðvarð Sigurðsson, rit- ari félagsins og Jón Hjálmars- son. Einnig voru mættir þeir Guðmundur J. Guðmundsson og Gísli Marinósson, starfs- menn félagsins. Eftir að farið hafði verið yf- ir undirtskriftalistana, 73 að tölu, og þau nöfn á þeim, sem stjórn Dagsbrúnar hafði gert athugasemdir við, höfðu verið borin saman við félaga- og aukafélagaskrá og íbúaskrá Reykjavíkur urðu niðurstöður þessar: Nöfn 572 manna voru skráð á listana. Af þeim reyndust 141 nafn ógilt sem slíkt. Á listum eru því aðeins 431 nafn gilt. Þrír menn meiasi Um kl. 23.30 í fyrrakvöld varð það slys við Hólmsá á Suðurlandsvegi, að bifreið með þrem mönnum ók á brúarhand- riðið cg hlutu þeir allir mildl meiðsli. I bifreiðinni, sem er 6 manna amerísk fólksbifreið, vosu Jóhaím Karlsson for- stjóri Magna í Hveragerði, kona hans, Unnur Ólafsdóttir og sonur þeirra, Karl Eggert, sem ók bifreiðinni. Voru þau öll flutt í sjúkrahús, Jóhann í Landakotsspítala og mæðgin- in í Landspítalann og liggja þau þai’ öll enn. Er líðan þeirra eftir atvikum. Karl Eggert segist ekki hafa séð brúna. Var hann að mæta bifreið og ók út á veg- arb.rúnina og lenti bifreiðin fyrst á trégrindverki, sem er við brúna, og síðan á brúar- handriðinu. Bifreiðin er talin gereyðilögð. Svörum ásaiii Framhald af 1. .síðu atyrða þá aðila sem krafizt hafa að hvergi verði hvikað frá 12 mílna fiskveiðilögsögunni. For- sætisráðherrarnir Ólafur Thors og Macmillan ræddust við á Keflavíkurflugvelli á sunnu- daginn en fengust ekki til að láta neitt uppi um það sem þeim 'fór á milli. Bjarni Benediktsson, ráðherrann sem fer með land- helgismálin, sagði foringjaliði Sjálfstæðisflokksins á þriðjudag Af þeim nöfnum, sem ó- gild eru á listunum eru: 1) ekki á félagaskrá, en eru á íbúaskrá Reykjavíkurbæjar 31 nafn. 2) ekki á félagaskrá og eliki á íbúaskrá Reykjavíkur 25 nöfn 3) ekki heimilisföng við 6 nöfn < 4) 51 nafn aukafélaga 5) nöfn manna yngri en 16 ára 9 6) nöfn manna, sem skulda árgjöld fyrir árið 1958 og meir eru 7 7) nöfn 4 manna, sem gefið hafa yfirlýsingu um að vera í öðru félagi en Dagsbrún ; 8) nöfn 8 manna sannanlega | fölsuð. Við þessa athugun leiðrétt-: ust (heimilisföng og nöfn) 2 nöfn er Dagsbrúnarstjórn hafði sett undir lið 2) og 1 nafn er stjórnin hafði sett undir lið 3). Með skýrslu þessari teljum við þessu verkefni okkar lokið. Reykjavík, 29. sept. 1960. Sigfús Bjarnason (sign) Snorri Jónsson (sign).“ Sigfús Bjarnason skýrði frá j því að Jón Hjálmarsson hefði lýst yfir að hann teldi rann- sóknina fullnægjandi og viður- kenndi niðurstöðu hennar. Eftir að miðstjórn hafði; rætt skýrslu rannsóknarnefnd- arinnar gerði hún svohljóð-: andi ályktun um málið: „Miðstjórn Alþýðusambands Islands hefur á tveim fundum tekið til meðferðar kæru þeirra Jóns Hjálmarssonar og Jóhanns Sigurðsson út af fulltrúakjöri Verkamannafé- lagsins Dagsbrúnar, er fram fór á félagsfundi þann 18. þ. m. í lcærunni er þess krafizt að fulltrúakjörið verði ógilt og allsherjaratkvæðagreiðsla lát- in fram fara um kjör fulltrúa félagsins. Kærendur upplýsa að þeir hafi lagt fram áskorunar- skjöl með nöfnum 573 manna, sem þeir töldu fullgilda Dags- brúnarmenn, og hefðu menn þessir krafizt allsherjarat- kvæðagreiðslu um fulltrúakjör- ið. Miðstjórnin hefur átt þess kost að kynna sér málið og ennfremur falið tveim mið- stjórnarmönnum að yfirfara uniiirskriftaskjölin. Hefur þannig verið gengið úr skugga um, að tala fullgildra félags- manna á þeim er ófullnægjandi og því ekki skylt að verða við kröfunni um allsherjarat- kvæðagreiðslu. Miðstjórnin úr- skurðar því að synja beri kröf- unum um ógildingu fulltrúa- kjörsins og um allsherjarat- kvæðagreiðslu. Samkvæmt þessu eru fulltrúar þeir, er kosnir voru á félagsfundi Dags- brúnar þann 18. þessa mánað- ar fullgildir fulltrúar félagsins á 27. þing Alþýðusambands Is- lands. Nýtt glœsilegt útlif Áferðarfallegur með dýrum málmum ... goð gjoi handa öllum! Frá framleiðendum eftirsóttustu gjafa heims, koma nú þessir glæsilegu nýju kúlu- pennar. Parker hefur sameinað hið vel þekkita útlit og gæði sins fræga T-Ball kúlupenna með áferðarfallegu skrauti og bezta efni til framleiðslu þessara kunnu kúlupenna, Og . . . s'kriftin er jafn áferðarfalleg þeim sjálfum, því þeir hafa allir hinn tfræga T-Ball odd og mjög stóra fyllingu. A—Parker „V.I.P.“ T-BALL kúlu- penni fyrir karlmenn Með 12K -gullhúðaðri hettu og 12K gullhúðuðu skapti. Með hinni heims- kunnu Ör-laga hettuklemmu. B—„Minim“ Fyrirmyndar Parker kúlu- penni Kúlupenni, sem er nýtízkulegur og hentúgur í vasa og töskur. Með 12K gullhúðaðri hettu og skapti. C—Parker „Princess" kúlupenni fyrir konur Með handunnu blómskrauiti á hettu og gullhúðuðu skapti. Með hvítu eða svörtu s'krauti á hettu. D—Parker „Debutante“ kúlupenni fyrir konur Fíngerðir litlir, með þrem mismun- andi stærðum glitsteina á hettu, og fagurlaga skapti. Fimm Mitir. Sjáið þessar og aðrar gerðir hinna glæsilega útlítandi T-BALL kúlupenna Framleiðsla THE PARKER PEN COMPANY 9-G142 að ríkisstjórnin gæti fallizt á að hleypa Bretum inn í landhelg- ina norðanlands og austan um nokkurra ára skeið. Hvcrjum manni má því vera ljóst að ríkisstjórnin þarf allt það aðhald sem almenningur getur veitt nú þegar viðræður við Breta hefjast. Fyrsta skref- ið til að veita það aðhald er að sækja útifundinn á Lækjartorgi í dag. Miðstjórnin kemst ekki hjá a.ð átelja harðlega þær marg- víslegu misfellur, er komið ha.fa í Ijós í sambandi við und- irskriftasöfnun þessa. Er með- al annars ljóst, að á undir- skriftaskjölin hafa ritað menn, sem: 1) ekki eru finnanlegir á fé- lagaskrá Dagsbrúnar ' 2) eru innan 16 ára aldurs, og hafa þannig eigi öðlast fé- lagsréttindi í Dagsbrún 3) eru aukafélagar í félaginu 4) skulda meira en tvö árgjöld til félagsins 5) eru tvífærðir á undirskrifta skjöUn 6) eru í öðram verkalýðsfélög- um, en Dagsbrún. En út yfir tekur þó, aðl nöfn átta manna eru sannanlega fölsuð á undirskriftaskjölun- mn. Harmar miðstjórnin slík vinnubrögð, sem þessi, hvort sem þau verða rakin til manna innan verkalýðssamtak- anna, eða þar eru að verki ó- viðkomandi aðilax.“ Allir miðstjórnarmenn töldu rannsóknina fullnægjandi og var ályktunin samþykkt með 6 samhljóða atkvæðum en 3 greiddu ekki atkvæði um hana. Rannsókn sem Sigfús Bjarnason og aðrir samherjar Jóns Hjálmarssonar fram- kvæmdu hefur þannig leitt í ljós að undirskriftasöfnun hans var markleysa ein og beinlinis falsanir.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.