Þjóðviljinn - 07.10.1960, Blaðsíða 1
fiGkkunnn
Deild&fundunum, sem áttu að
vera n.k. mánudag er frestað
um eina viku.
Spilakvöldinu sem átti að
vera á sunnudag er frestað.
Sósíalistaí'élag Reykjavíkur.
MOTMÆLAGANGA HEFST KL.
Einbeitt mófmœli aimennings
gefa enn komið í veg fyrir
smónarsamninga við Breta
Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær efna samtök
hernámsandstæöinga til mótmælagöngú í dag til þess
iaö leggja áherzlu á andstöðu íslendinga gegn samning-
um við Breta um landhelgismálið. Hefst gangan við Arn-
■axhól kl. 6 síðdegis og henni-lýkuir við ráðherrabústaðinn
við Tjarnargötu þar sem samningaviðræöurnar fara
•fram. Hefur þess veriö óskaö bréflega að Ólafur Thors
forsætisráðherra og Hans G. Andersen formaður íslenzku
samninganefndarinnar verði þar viðstaddir.
Jafnframt munu samtökin gangast fyrir því að stað-
inn verði mótmœlavörður fyrir framan ráöherrabústaöinn
við Tjarnargötu, þar til Alþingi íslendinga kemur sam-
an, verði samningaviðræðum ekki slitið eða þeim lokið
fyrr.
Safnazt verður saman á Arn-
ariióli og þar verður flutt á-
varp áður en gangan hefst.
Hefst hún kl. 6 síðdegis og
verður gengið um eftirtaldar
götur:
Upp Hverfisgötu, Klappar-
stíg, niður Skólavörðustíg,
Bankastræti, Kalkofnsveg, yfir
Skúlagötu, beygt til vinstri og
gengið meðfram höfnimii, upp
Gróf, Vesturgötu, Garðastræti,
niður Túngötu, um Suðurgötu,
Vouarstræti, suður Tjarnar-
götu og staðnæmzt við ráð-
herrabústaðinn.
1 ráðherrabústaðnum verða
forsætisráðherra og formanni
íslenzku samninganefndarinnar
afhent mótmælaályktun gegn
samningunum við Breta frá
Samitökum hernámsandstæð-
inga. Einnig verður þar flutt
ávarp.
Bréf til forsætisráðherra
Bréf það sem Samtök her-
námsandstæðinga sendu for-
sætisráðherra er svohljóðandi:
„Hr. forsætisráðherra Ólafur
Thors.
Miðnefnd Samtaka hernáms-
andstæðinga samþykkti á fundi
'sínum miðvikudaginn 5. þ.m.
mcimælaályktun til íslenzkra
stjórnarválda vegna samninga-
viðræðna sem nú standa yfir
í Reykjavík við - brezka erind-
reka um landhelgi Islendinga.
Orðsendingu þessari óskum vér
áð koma á framfæri við yður,
hr. forsætisráðherra, og for-
mann 'islenzku samninganefnd-
arinnar, hr. Hans G. Andersen
sendiráðherra. Miðnefndin mun
efna til mótmælagöngu föstu-
daginn 7. október milli kl. 18
bg 19 að ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu. Það eru itil-
mæ'.i vor að þér ásamt formanni
íslenzku samninganefndarinnar
verðið til viðtals í ráðherrabú-
staðnum þegar mctmælagangan
kemur þangað og veitið þar
viðtöku fyrrnefndri mótmæ’a-
álykitun sem fulltrúar mið-
nefndar munu færa yður.
Virðingarfyllst, í framkvæmda-
nefnd Samtaka hernámsand-
stæðinga
Valborg Bentsdóttir, Guðni
Jónsson, Þóroddur Guðinunds-
son, Jónas Árnason, Kjartan
Ólafsson, Þorvarður Örnólfs-
son, Stefán Jónsson, Ása Otte-
sen, Einar Bragi, Ragnar Arn-
alds.“
Mótmælavörður við ráð-
herrabústaðinn
Jafnframt munu samtök her-
námsandstæðinga beita sér fyr-
ir því að staðinn verði stöðug-
ur mótmælavörður við ráð-
Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu, þar sem sjálfskipaðir valdsmenn hafa að undanförnu
verið að þinga. Það er tími til kominn að íslendingar heiinsæki þann stað.
herrabústaðinn þar til Alþingi
kemur saman n.k. mánudag,
verði samningum við Breta ekki
slitið eða þeim lokið fyrir þann
tíma. Skora samtökin á alla þá
sem hafa tök á að taka þátt
í mótmælaverðinum' að gefa
sig fram við skrifstofuna
Mjóstræti 3, síma 2-36-47.
Tökum öll þátt í mót-
mælaaöngunni
Andstaðan gegn samninga-
Framhald á 2. síðu
Si
©••
á Akranesl
Framboðsfrestur tál fulltrúa-
kjörs á Alþýðusambaiulsþing
í Verkalýðsfélagi Akraness
rann út í gærkvöld. Aðeins
einn listi kom fram, listi
stjórnar og trúnaðarráðs og
urðu fulltrúarnir því sjálf-
kjörnir.
Fulltrúarnir eru: Herdís
Ólafsdóttir form. kvennadeild-
ar, Hreggviður Sigríksson for-
maður verkamannadeildar og
Skúli I>órðarson. Varafulltrú-
ar: Einar Magnússon, Jó-
hann Jóhannsson, Sigríður ÓI-
afsdóttir.
Þessi úrslit á Akranesi eru
mikil tíðindi, þar liefur Al-
þýðuflokkurinn til þessa talið
vera eitt sterkasta vígi sitt.
Taxtabrot og uitglingaþrælkun viðgengst
óótalið undir verndarvæng Iðjustjórnar
f stórri verksmiðju hér í bænum vinnur fólk 14 stunda
næturvaktir langt undir kaupi því sem samningar heim-
ila, en stjórn Iðju fæst ekki til að hafast neitt aö í
málinu.
Undir íhaldsstjórn Guðjóns
Sigurðssonar og félaga hans
í Iðju eru kjör iðnverkafó’ks
komin í slíkt ófremdarástand
að engu lagi er líkt. Dæmi
þess er vinnutilhögun cg kjör
í Hampiðjunni.
Unglingar á 14 tíma
næturvalit
Þarna er unnið allan sólar-
Seð yfir hluta at vélasal Hampiðjunnar.
hringinn á tvískiptum vöktum,
aðra vikuna frá sjö á morgn-
ana til fimm síðdegis, hina
vikuna frá fimm síðdegis til
sjö á morgnana.
Fyrir þessa 72 stunda vinnu-
viku fá stúlkur á fullu kaupi
1150 krónur á viku að með-
altali, meira fyrir næturvakt-
arvikuna en minna fyrir dag-
vaktiea.
Þetta kaup er langt frá því
sem vera ætti samkvæmt samn-
ingum fyrir' þann. vinnutíma
sem fólkið viniiur.
í Hamp ðjunni hefur í sum-
ar unnið fjþidi unglinga und-
ir 16 ára a\'.'i-.osg gengið sömu
vaktir og fuiltáða fólk. Slik
unglingaþrælkun er skýlaust
lagabrot.
! V’.vaði pg ryk
Við allt þetta bæt:st að
vinnan í Hampiðjunni er mjög
óholl. í vélasalnum er hávaði
‘afskaplegur og mikið ryk. Má
geta nærri hvaða áhrif það
hefur á heilsu unglinga innan
við 16 ára aldur að ganga 14
stunda næturvakt við slík
vinnuskilyrði.
Kaupið sem unglingarnir fá
fyrir 72 stunda vinnu á viku
er 1003 krónur.
Fyrir næturvaktina er kaup
reiknað þannig að fyrir fyrstu
átta stundirnar (klukkan fimm
s.d. til tvö að morgni) er
reiknaður dagvinnutaxti, sið-
an eftirvinna hálfan annan
tíma og næturvinná úr því.
Skella skolleyrum
Þetta er ekki í neinu sam—
ræmi við gildandi kaupsamn-
inga Iðju, og hefur verlð kvart-
að yfir því við félagsstjórn-
ina, en Guðjón og fiokksbræð-
ur hans létu kvartanirnar sem
vir.d um eyru þjóta.
Fyrir slíka farmmistöðu í-
haldsforustunnar í. Iðju og ó-
viðunandi kjör kvittar iðn-
verkafólkið með því að kjósa
A-Iistann í fulltrúakosning'um
Iðju til Alþýðusambandsþinga
á morgun og sunnudag. j