Þjóðviljinn - 20.10.1960, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 20. október 1960
Fundur
Framhald af 3. síðu.
koma upp kafbátastöðvum hér
á landi, og fór mörgum orðum
um blessun herstöðvanna og
nauðsyn iþess að fjölga þeim
og stæ'kka.
Ömurlegasta stundin
Þá kvaddi sér hljóðs þekkt-
ur embættaklifrari í Sjálfstæð-
isflokknum, Þór nokkur Vil-
hjálmsson, lögfræðingur, og
virtist skorta á örvgg:stilfinn-
ingu og sagðist sakna mjög í
frumræðu de Lieven uptalning-
ar á herstyrk NATO, og bað
greifann að bæta úr þeirri van-
rækslu.
Hófst nú ein ömurlegasta
stund fundarins.
Greifinn seig niður á bak við
ræðupúltið og feitt, hnöttótt
höfuðið birtist aðeins ofan við
borðbrúnina, stynjandi, más-
andi, púandi og hóf að lesa upp
strategiskar tölur um flugher,
landher og flota og staldraði
lielzt við flugskeytakafbáta
Bandaríkjamanna.
Inn f sjálfu talnaflóðinu kom
allt 'i emu logandi sígaretta
upp fyrir borðbrúnina og þetta
virðulega greifahöfuð fékk sér
,,smók“, reykjarstrókan út í
loftið, hóst, stunur og ræsk-
ingar.
En niðri í salnum sátu slétt
og felld embættismannaandlit
með upphafinn svip og hlust-
uðu með velþóknun á.
Pétur varð klumsa
Þegar nok'kuð var áliðið fund-
ar, sté Pétur Benediktsson í
stólinn. Sagði hann að tveir
menn væru á mælendaskrá, en-
kvaðst vilja segja nokkur orð
éður en þeir tækju til máls.
Hélt hann síðan eina af sín-
um fasistísku ræðum með orð-
færi æpandi strákalýðs. Var
greinilegt að mótmæláaðgerð-
irnar gegn landhelgissamning-
unum undanfarið hafa farið
mjög í taugarnar á bankastjór-
anum. Sagði hann að þar hefði
verið ,,æpandi skríll“ að verki,
í ætt við „dinglandi skoffín eins
og Lumumba frá Kongó“.
Þessi óprúttni strákalýður hefði
viljað stofna „alþingi gö.tunnar“
o. s. frv. Þótti þetta furðuleg
ummæli um hinar prúðmann-
legu en einarðlegu mótmæla-
aðgerðir undanfarið, og það úr
munni manns, sem stóð fyrir
æsingum og líkamsárásum í
fasistískum st'il á Túngötunni 7.
nóvember 1956.
Þegar Pétur var að lýsa á-
nægju sinni yfir samningavið-
ræðum við Breta um landhelg-
Samtök stúdenta
Framhald af 7. síðu.
þess farið á leit, að stúdentar
ræði aðild sína að Samband-
inu, og sendi síðan umsókn
um upptöku, ef þeir hafa
áhuga á því. Stúdentaráð Há-
sdtóla Islands hefur fallizt á að
veita viðtöku hréfum Sam-
handsins, og koma þeim í
réttar hendur.
Nefndin vill hvetja alla ís-
lenzka stúdenta erlendis til
að leggja sitt af mörkum, til
þess að tilraun þessi um
heildarsamtök isl. stúdenta
erlendis verði að veruleika,
svo að þeir megi standa vörð
um hagsmuni s'ina.
Stúdentafélagsins
ina varpaði Ingi R. Helgason
til hans þeirri spurningu, hvort
hann vildi láta semja um 12
mílur eða eitthvað minna. Pét-
ur fórnaði þá höndum og
æpti: „Þið eruð alltaf að tala
um 12 mílur, 12 mílur, 12 mil-
ur — eins og það komi ekki
til aðrar línur en 12 mílur“.
NATO-þjóðunum er skylt ^ð
leysa deilumál sín friðsamlega,
sagði Pétur. Ingi spurði þá,
hvort Bretar hefðu haft það í
huga, er þeir hófu vopnaða ár-
ás á íslenzkt svæði 1. sept-
ember 1958. Varð Pétur þá
algjörlega klumsa, og fékk
e'kki mælt langa hríð. Sneri
hann máli sínu síðan upp í
kjaftæði og kvað undarlegt að
lögfræðingur, sem gæti haft
atvinnu af samningagerð, ’skyldi
ekki vilja láta semja við Breta!
Síðan sleit hann fundi skyndi-
lega og minntist ekki meira á
þá menn sem hann hafði sagt
að væru eftir á mælendaskrá.
| Þannig endaði þessi fundur,
sem varð NATO-sinnum til
| hinnar mestu smánar. Tilraun
Péturs Benediktssonat til að
! nota Stúdentafélagið til að út-
breiða kenningar afturhalds-
, sinnanna ‘í NATO mistókst
herfilega. ísl. menntamenn
sýndu að þeir vilja ekki, frek-
ar en aðrir Islendingar, hlýða
boðskap Atlanzhafsbandalags-
ins, sem bakað hefur þjóðinni
smán og skaða, og gert ísland
að ákjósanlegu skotfæri í kjarn-
orkustyrjöld.
Fimmta franska lýðvaldið að hrynja?
Framhald af 1. síðu.
sem andvigir eru de Gaulle
munu ekki treysta sér til að
heyja kosningabaráttu eins og
I mál horfa nú við í Frakklandi;
þeir munu því heldur ta'ka
þann kost að hleypa frum-
varpinu gegnum þingið.
Ótti þeirra er skiljanlegur.
Ástandið er viðsjárvert. Ann-
ars -vegar búa nú samtök al-
mennings, félög stúdenta, kenn-
ara og annarra mentamanna
og verkalýðshreyfingin, sig
undir stórfelldar mótmælaað-
gerðir gegn stefnu de Gaulle í
Alsírmálinu. Hins vegar er það
á allra viðorði að hægriöfga-
menn eru reiðubúnir að rísa
gegn de Gaulle og velta honum
með stuðningi hersins.
Soustelle fer á kreik.
Soustelle, sem á sínum tíma
átti einn mestan þátt í að
koma de Gaulle til valda en
hrökklaðist úr stjórn hans
vegna tengsla sinna við fas-
istaöflin í Alsír, er kominn á
kreik. 'Hann hélt fund með
^blaðamönnum í gær og boðaði
j stofnun samtaka um allt land
til að tryggja algera innlimun
Alsír í Frakkland. Hann sagði
að stefna eða öllu heldur
stefnuleysi de Gaulle í Alsír-
Síian „viðreisninu
Framhald af 12. síðu.
tals 753,6 milljónum króna og
munu þó vart öll kurl komin
til grafar, þar eð vörukaupa-
skuldirnar eru t.d. miðaðar
við 1. júlí í þessu yfirliti og
auk þess óvíst, hvort skýrsl-
an síðan er tæmandi, enda
sagði Gylfi, að þetta væri að-
eins það sem sér væri kunn-
ugt um.
Rétt er að geta þess hér, að
þessar 753,6 millj. króna eru að
sjálfsögðu ekki allt hrein skulda-
aukning. Þannig gaf Gylfi þá
yfirlýsingu, að yfirdráttarskuld-
ir bankanna hefðu á þessu
timabili lækkað um 442,6 millj.
króna frá 23. febr. sl. án þess
þó að gera nánari grein fyrir
útreikningi þeirrar tölu. Var
hann mjög hreykinn yfir þeirri
lækkun og virtist mjög ánægður
með ástandið yfirleitt, þótt töl-
ur þær, er hann fór með sönn-
uðu, að skuldir landsmanna er-
lendis hefðu á þessum fáu „við-
reisnar“mánuðum aukizt' um
hundruð milljóna króna.
málinu myndi aðeins leiða til
þess að Frakkar glötuðu Alsír
og þar yrði dreginn að hún
hinn rauði fáni í stað hins þrí-
lita.
Banclaríkin svara cle Gaulle
De Gaulle er þannig orðinn
vinfár heima fyrir, en hann
hefur einnig stuggað frá sér
bandamönnum sínum í Atl-
anzbandalaginu. I gær bárust
fréttir af því að Bandaríkja-
stjóm hefði nú ákveðið að
svara fyrirætlunum hans um
sjálfstæðan kjarnavígbúnað
með því að láta Atlanzbanda-
laginu í té kjarnavopn, en
hingað til hafa Bandaríkjamenn
verið með öllu ófáanlegir til
að afsala sér einkayfirráðum
yfir kjarnavopnum sínum.
Vesturþýzka blaðið Ber Mif-
tag, sem stendur nærri vest-
urþýzku stjórninni, skýrði frá
þessu í gær, en blaðið Frank-
furter Allgemeine Zeitung stað-
festi fréttina með viðtali við
Franz-Josef Strauss landvarna-
ráðherra, sem sagði að rétt
væri frá hermt. Óformlegar
viðræður hefðu þegar farið
fram milli vesturveldanna um
að fá herstjórn Atlanzbanda-
lagsins 'kjarnavopn og myndi
málið sennilegá rætt nánar á
ráðherrafundi bandalágsins 'í
desember.
FAZ kunni einnig að skýra
frá því að ósamkomulag hefði
verið um þetta mál milli Hert-
ers utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og Norstads, hins
bandaríska yfirhershöfðingja
NATO. Hefði Herter aðeins
viljað láta flota Atlanzbanda-
lagsins fá kjarnavopn, en Nor-
stad að bæði floti, landher og
flugher þess fengju þau, og
myndi sjónarmið Norstads hafa
orðið ofan á.
fsland sat hjá
í viðtali við Thor Thors sendi-
herra sem flutt var í útvarpið
staðfesti hann að Island^ hefði
rofið samstöðu Norðurlandanna
á allsherjarþingi SÞ þegar
greidd voru atkvæði um aðild
Kína að SÞ. Öll Norðurlönd
nema ísland greiddu atkvæði
með því að málið ýrði tekið
fyrir á allsherjarþinginu, en
fulltrúi íslands sat hjá.
£
>2
Hh
'Tn
/ i i; í
ILj-jJ
Vinningur
Fokheld íbúð í
Stóragerði 8
að verðmæti kr. 180.000.00
Aukavinningur 1
5000.00 króna vöru- íjfr?® J§|^|
úttekt fyrir næsta « 9
númer fyrir ofan og
næsta númer fyrir Xpft ■»
neðan vinningsnúmerið
íbúðin |H| ^ mlÍÉ ilr ® ðil
er um 93 fermetrar
auk stigahúss, geymslu llk* ÍlÍÉiÍ
og sameignar í þvotta- Hl? ® JliiP Hi ®
húsi, reiðhjóla- og barna-
vagnageymslu, göngum ||||8 <
o.þ.h. í kjallara
íbúðin er með vatns- WM& *
geislahitalögn. m*i®m §11.® tiili
Dregið 23. desember.
Þjóðviljinn frestar ekki
happdrætti.
Miðinn kostar 20 krónur.