Þjóðviljinn - 04.11.1960, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.11.1960, Blaðsíða 4
ÞJÖÐVILJINN — Föstudagur 4. nóvember 1960 Sfiórnmál , KrÚBtjofit , hélt mikla ræðu .eftir aö hímn kom heim,fyú' Allslierjarþingmu í New York. Efni hennar var í (Ktufctu máli sem hér segir: -rt- iSósíalistisku löndin lírefjast fulls jafnréttis innan Bameinuðu þjóðanna, og þar (jneð, að Kínverska Alþýðu- lýðveldið fái tafarlaust aðild að samtökunum. Ennfremur l'hafa hin hlutlausu ríki enn j of takmarkaðan rétt innan rfsamtakanna; spurt er: hví í eru England og Frakkland ::Btórve’iIi, en Indland og Indó- : nesía ekki? Við getum ekki f sætt okkur við það að Sam- | einuðu þjóðirnar lúti Vestur- fveldunum í einu og öllu, og | irtunum því berjast fyrir þvi | að skipulagi samtakanna (verði breytt, annars geta þau ekki gegnt hlutverki sínu. ~ — Afvopnun er og verður ; okkar liöfuðbaráttumál, Við vitum að imperialisminn jafn- gildir stríðshættu, en við vit- tim líka að möguleikar hans eru takmarkaðir. Sósíalistisku löndin eru sterk, hlutlausu lonúin voru áður forðabúr imperíalismans í efnahagslegu sett tónlist er flutt greinar iðnaðar kemur í ljcs að bezt gengur framleiðsla allskönar byggingarvöru, þar er frarnleiðslan 116% miðað við sama tímabil í fyrra. BrœSurnsr Það kemur alltaf öðru hvoru fyrir, að við heyrum minningar um ýmis atvik styrjaldarinnar. Stundum er sagt ~frá því, að á óvæntan : hátt hafi komizt upp um menn, sem tóku að sér böð- . ulsstarf fyrir nazista á stríðs- árufium, og eru þá rifjaðir upp málavextir allir. Fyrir 1 skömmu hafðist upp á fyrr- verandi morðstjóra í fanga- búðum einum í Eistlandi, dvaldist hann í Kanada. Varð honum svo mikið um þetta, Nú er vetur í bæ, og því er það réltlátt að þirta þessa snotru ' h t ,''5' " '' ■ - teikningu eftir Galju Edelman, unga kennaraskólastúdáriu liér í Moskvu. Myndin heitir ,,Snjóskaflar“. og hernaðarlegu tilliti; nú fylgja þessi lönd. sjálf- sfcæðri stefnu sem miðar að |>ví að draga úr viðsjám. iÞessvegna eru möguleikar friðaraflanna miklir. En við leggjum áherzlu á það, að friðarmálin þola enga bið: Macmillan sagði í New York, að samningar um afvopnun "•gætu tekið 5-10 ár. En víg- 'húnaðarkapphlaupið heldur- áfram; nú eiga fjögur ríki artómvopn, en hætt er við að J>au yrðu miklu fieiri eftir 5-10 ár, og yrði þá sýnu erfiðara að riá samkomulagi. — Nýlendur: mjög þýðing- armikið að málið skyldi tekið fyrir á Allsherjarþinginu. All- ar nýlendur skulu frjálsar. ÚNánar talað um Alsír og Kon- gó. Sovétstjórnin ítrekar, að ihún hefur de facto viðurkennt alsírsku bráðabirgðastjórnina. ÍÞang orð til Hammarskjölds fyrir frammistöðu hans í VffOngó. ’Áð lokum ræc’dj. Krustjoff um innanlandsmá'þ'um tækni 'og -framfarir. í því sambandi •má' miririast á nýuppgefnar hagskýrslur. Það kemur á •daginn, að á fyrstu níu mán- •uðum þessa árs hefur fram- úeiðs'uplanið verið uppfyllt upp á 103 prósent. Tölur eru nefndar: 2,8 milljón tonn fiskjar, 312 milljón pör leð- ■urskófatnaður, 1,3 milljón sjónvarpstækja, 389 þús. bíl- ar. Þegar litið er yfir heiztu að hann hengdi sig og varð fáum harmdauði. Óg oft er skrifað um ein- bverjar drýgðar 'iáðlr: Máske hafá fundizt einhver sk'jöl, einhver gömul dagbók í húsa- rústum, pða einhver tekið sig til.^og ra.nnsakað betur það sem lítt yar þekkt áður. Það er alltaf unnið að þessum mál- um, því það er margt gert í Sovétríkjunum til að þeir gleymist ekki sem fórnuðu lífi sínu fyrir þjóðir landsins. I þessum málum hafa skól- arnir mikla þýðingu; hafi ein- hver hetja lært í skólanum, eða búið þar um slóðir, þá verður hún nokkurskonar sið- ferðilegur grundvöllur í upp- eldisstarfinu. Unglingarnir kynna sér ævi hetjunnar, skrifa um hana, aðstcða á margan hátt aðstanúendur hennar ef nokkrir eru og svo mætti lengi telja. Eg las um tvo gamla menn, sem nazistar drápu, og þeir festust mér í .minni, því að annar þeirra endurtók af- rek ívans Súsaníns sem iýst er í óperu Glínka. í sveita- þorpi einu í Hvíta-Rússlandi tóku Þjóðverjar höndum tvo bræður, Mikhail og ívan Tsúba, og sk’puðu þeim að vísa á felustað mikils flokks skæruliða þar í grennd. Mik- hail neitaði og var skotinn í snatri; Ivan lofaði öllu fögru, fór með fasista í þveröfuga átt, langt út á mýr- ar og fen og sagði þeim vel- komið að drepast þar úr hungri og vcsbúð, því fylgd- arlaust kæmust þeir aldrei til byggða aftur. Lét Ivan þar líf sitt. Þeim bræðrum verður nú reistur minnisvarði í höfuð- borginni Mínsk. Menslsng Fyrsta frumsýning þessa leikárg'- í Bolsjoj var ópera eftir Prokoféf,-„‘Saga af sönn- um. mánni'1 b'yggð á sögu Polévojs sem komið hefur út á íslenzku. Þetta var síðasta verk Prokoféfs, en hefur ekki verið flutt fyrr en nú, því margir hafa álitið það ófram- kvæmanlegt að setja það á svið. Hér er mikið um gesti eins og fyrri daginn. Norðmenn höfðu hér kvikmyndaviku, sýndu Akú-Akú, Kon-Tiki, Baráttan um þungavatnið og Bergmann fjórar myndir aðrar. Samein- aðir arabar kcmu einnig með siiyir myndir, yfirfullar af ógurlegum viðburðum og furðulöngum söngvum. Ge- orge Londom,am rísku r söngv- ari frá Métrópólitan, var hér á íerð og yon er á Ýmu Súmac. Ballett Kúbumanna er kominn í heimsókn, en ,gm- rískur bállétt er á förum. Þá er kómin hingað mikil sýn- ing mexíkariskrar listar frá elztu tímum fram til okkar daga, en þessi sýning hefur áður farið um margar höfuð- borgir Evrópu. Hér eru risa- stórir og forgamlir sólguðir, og mikilfcnglegar myndir Di- ego Rivera og Oroszco. Allir em ''r^ír «?ipr Virífm'r. Þá er pianósnillingurinn Svjatoslav Richter loksins kominn til Bandaríkjanna, en hann hefur því miður lítið ferðazt áður, nema þá á plötum. Rozína Levína, kenn- ari Van Cliburns og prófess- or við tónlistarháskólann í New York ber mjög mikið lof á Richter og hinn sovézka pí- anóskóla: ,,Ég hef allaf álit- ið- að hver píanóleikari sem vill ná fullum þroska, þurfi að kynnast Moskvu, þurfi að drekka af þeirri lind sem upp sprettur þegar tveir skól- ar mætast. Þetta ráð gaf ég líka á sínum tíma honum Van mínum.“ Sjostakovltsj Var í Dresden ekki alls fyr- ir löngu cg skrifaði músík við kvikmyndina ,,Fimm dag- ar, fimm nætur“. Þar skrifaði hann nýjan kvartett, hinn áttunda í röðimii. Það tók tónskáidið aðeins þrjá daga að semja verkið og þykir þetta mjög furðulegt. Sokolskí skrifar um þetta nýja verk í Izvestía. Hann segir að í hinum fimm þátt- um kvartettins heyrist temu ýmissa fyrri verka tónskálds- ins, ailt frá hinni fyrstu sin- fóníu æskuáranna til hinnar síðustu, elleftu. Þó hljómi þessi temu ekki sem „ívitnan- ir“, heldur gangi þau í fullu samræmi upp í hið nýja verk. Verkið hefur yfir sér létt- leika í ætt v:ð Mozart, vek- ur aðdáun sakir fágaðs forms og tærs einfaldleika, og býr um leið yfir dýpt og heitum tilfinningum. Sokolskí skrifar ennfremur, að verkið segi frá mannlegri þjáningu og harmi, en um leið frá ósáttfýsi mannsins og harðri mót- spvrnu gegn valdi þjáningar og sorga'r. Beethovenkvartettinn hefur þegar leikið hið nýja verk Sjostakovítsj bæði í Lenín- P'rciii ~fr Moskvu. Við heyruni öðru hvoru minnzt á ýmis at\ik styrjaldarinnar. Ungur myndhöggvari, Néíz.véstni að nafni, hefur gert margar myndir undir samheitinu „Fangabúðir“. Þetta er ein þeirra; hún nefnist ,,Tár“. Fisksöiumálin ] Framhald gf 1, síðu..- Bláðiriuó'tíaTfst i %&r svohljóð- andi greinargerð um málið frá Sjávarafurðadeild SÍS: í Alþýðublaðinu 3. þ.m. er forsíðufrétt um það, að S.Í.S. undirbjóði Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna á Bandaríkjamark- aði. Frétt þessi er úr símskeyti frá Björgvin Guomundssyni, fréttastjóra. sem er í hálígerðu hnattferðalagi í boði Sölumið- stöðvarinnar ásamt fleira stór- menni. Segir í fréttinni, að for- stöðumenn S.H. hafi boðað blaðamenn á sinn fund og tjáð þeim, að S.Í.S. undirbyði S.H., einkum ó beztu markaðssvæðum S.H. Aíleiðingin væri svo hörð samkeppni þessara tveggja að- ila og þar af leiðandi lækkað verð á íslenzka fiskinum og' milljónaskaði fyrir ísland. Sjávarafurðadeild S.Í.S. undr- ast það mjög, að S.H. skuli verða fyrst til að kasta steinin- um í þessu máli. Flestum, sem við fiskútílutninginn hafa unn- ið, hefur verið það full kunn- ugt, að undanfarið hafa S.H. og S.Í.S. bitist á um nokkur markaðssvæði vestra. Er hér raunar aðallega um eitt svæði að ræða, en þar setti S.Í.S. ein- mitt á stofn verksmiðju og dreil’ingarstöð fyrir nokkrum ár- um. Viðskipti í Bandaríkjunum eru mjög frjáls og verðlagsá- kvæði óþekkt eins og öllum er kunnugt, og því ekkert undar- legt, þótt S.Í.S. gæti selt fisk- inn á örlítið lægra verði í næsta nágrenni Við verksntiðju sína heldur en S.H., sem er með verksmiðju sína í öðru fylki. S-H. ;flytur líka Um ’8Ö% af öll- utn • íslenzkum íreðfiski til Bándar.'kjanna og má vel vera, áð sölukostriaður sé all miklu meiri én hjá S.Í.S., og sé það þvi nauðsyn fyrir S.H. að selja fiskinn eitthvað hærra til að hafa upp í þann kostnað. Víst er um það, að S.Í.S. hefur ekki greitt frystihúsum þeim, sem það sélur fyrir, lægra verð fyr- ir Ameríkufisk heldur en S.H. greiðir sínum húsum. Væri jafn- vel hægt að nefna dæmi um það í tölu, sem hér skal þó látið ógert að svo komnu máli. í eina tíð var fullt samstarf milli S.Í.S. og S.H. vestan hafs í sambandi við verðlagningu á fiskinum. Samstarf þetta fór út um þúfur einfaldlega vegna þéss, að S,H., sem er stóri aðilinn á þessum markaði, iðkaði það allt of oít, að lækka verðið, gera síðan stóra sölusamninga, en tilkynna S.Í.S. svo um lækk- unina, þegar búið var að selja. Mörg fleiri dæmi mætti hér til- færa, en þetta verður látið nægja. Þess er sannarlega óskandi, að hinn fríði hópur, sem nú ferð- ast um Bandarikin á vegum S.H. þurfi ekki að líða skort sökum þess að ekki sé hægt að greiða ferðakostnað hans vegna lækk- andi verðs á S.H. fiskinum vest- an hafs. Það er þó alltaí hugguri að vita af því, að frystihúsin innan S.H. munu með glöðu geði léggja út þennan kostnað, en öllum er kunnugt um það, að frystihúsareksturinn stendur nú með hinum mesta blóma, og munu frystihúsaeigendur því ekki telja eftir sér ávona lítil- ræði.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.