Þjóðviljinn - 08.01.1961, Qupperneq 9
Sunnudagur 8. janúar 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (9'
Þwottgliásið1 SKYiTAN )
Frá or moð áramótum sækjrnn við og sendum. \
MÓTTAKA í: . ]
Efnalauginni Lindinni, Hafnarstræli 18.
Nýju efnalauginni, Lau.gavegi 20B og Fischerssumli.
Hann lyftir 537,5 kílóuni
í blaðinu á föstudag var skýrt
frá vali 266 sovézkra íþrótta-
fréttamanna á lyftingamannin-
um Jurij Vlasoff, ■sem vann hið
Cinstæða aírek á OL í Róm í
sumar að bæta heimsmet og
OL-met Andersons hins banda-
ríska um hvorki meira né
minn.a en um 25 kílógrömm.
Það fór því fyrir þessu OL-meti
sem flestum öðrum sem sett
voru í Melbourne og þar talin
,.ótrúlega'‘ góð, að það var sleg-
ið. Þetta met á þó þá sérstöðu.
að ekkert met var slegið jafn
mikið og þetta.
Með fánann í útréttri hentli.
Jurij .yiasoff icuíræðingurf
frá Moskvu vakti mikla at-
hygli áhorfenda í Róm strax
fyrir keppnina, eða á setning-
arathöfninni, en það var, er
hann gekk í fararbroddi liðs
sins haldandi á landsfána sín-
um likt og um örlitla barna-
veifu væri að ræða, í annarri
hendi útréttri.
Sérgrein Bandaríkjamanna
„rænt“.
Lyftingar voru, og eru raun-
ar enn, sérgrein Bandaríkja-
manna. Davis, Shemansky og
Anderson eru mennirnir, sem
skipzt hafa á um að -bera
heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt. Sagt var eftir afrek And-
•ersons í Melbourne:
:— Þessu áfreki verður aldrei
hnekkt af mannlegum mætti —
'Þó skeði þetta í Róm svo sem
fyrr segir og það allhressilega.
Vlasoff sem er raunar íyrsti
Evrópumaðurinn, sem rýfur
þessa ,.tradisjón“ þeirra
•Bandaríkjamanna er einungis
24 ára gamall Moskvubúi, iðn-
verkíræðingur að mennt.
Fyrsta sinn er alheimurinn
fékk Vlasoff ,,í sigtið“, v.ar, er
hann vann bæði heimsmeist-
ara- og Evrópumeistaratitilinn
í þungavigt í Varsjá.
Áhugamál: íþróttir, bóklestur
og kvikmyndir.
VLasoff stundar heirna fyrir
allerfið störf, sem krefjast oft
langs vinnudags. En þá er
hann dvelur í faðmi fjölskyld-
unnar með konu sinni Natösju
og hinni ungu dóttur Aljónu,
kýs hann að sýsla við aðaitóm-
stundastörf sín utan íþróttanna.
en það er bókiestur og söfn-
un og taka kvikmynda. Bóka-
safn Vlasofis er þegar orðið
mikið að viðum, eða um 1500
bindi og sumar bókanna mjög
sjaldgæfar. Heimsmeistarinn
segist staðráðinn í að gera
dóttur sína að góðri íþrótta-
konu með tímanum og með því
halda nafni íjölskyldu sinnar
á síðum blaða og í hugum á-
hugamanna um iþróttir.
Ekki aðeins i lyftingasalnum.
Vlasofí æí'ir ekki íþróttir
eingöngu með lyftilóðum sín-
um. Hann segir alhliða þjálf-
un sína án efa allan galdur-
inn við hinn ótrúlega góða
árangur. Æfingarnar saman-
standa m.a. af fimleikum,
sundi og oft má sjá þennan
jakalega mann renna eftir
hlaupabrautunum. og allt eru
þetta iiðir í þjálíun heims-
meistarans i lyftingum.
123 kg. á móti 165 kg.
Andersons.
Viasoff er af lyítingamanni
hreint ekki svo mikið flykki,
þvert á móti samsvarar vöxtur
hans sér nokkuð vel. Ilann er
123 kg. og sagt er að á skrokki
hans finnist ekki svo mikið
sem eitt gramm af fitu. ,,Kol-
lega" hans, hinn bandáríski
Paul Anderson getur ekki sagt
hið sama, en hann fékk vogar-
nálina ekki til að stanza fyrr
en á 165 kílóum er hann stóð
á hátindi frægðar sinnar, og á
því hinu mikla kjötfjalli var
mikil fita eins og menn inuna
eflaust eftir af mvndum af
honum.
- bip -
Fyrsta Miillersmótið er liáð
við Sldðaskálann í dag;
b
Skíðamót það, sem kennt er
við brautryðjanda skíðaíþrótt-
ariimar L. H. Muller, og er
svigmót, í'er fram á vegum
Skíðafélags Reyltjavíkur í dag
við Skíðaskálann í Hveradöl-
um og liefst kl. 2 e.h. Mótiðj
mun standa yfir í rúmlega 2
tíma.
Keppt verður í fjögra manna
sveitum og munu tvær sveit-
ir verða frá hverju félaganna,
Ármanni, ÍR og KR.
Samtals verða því 24 kepp-
endur sem fara tvær ferðir
•hver.
Sú sveit sem her sigur úr
býtum fær afhentan farandbik-
ar þann, „Miillersbikarinn“,
sem gefinni var af fjölskyldu
L. H. Miillers í tilefni 45 ára
afmælis- Skiðafélags Reykja-
víkur, fyrir tæpum tveimur
árum. Þegar fé.lag hefur unn-
ið bi'kar þennan fimm sinnum
fær það hann til eignar. Þátt-
Látið okkur
myuda barnið.
frUjfU^dý
Laugavegi 2. Sími 11-580.
Heimasími 34-890.
L. H. Muller
Q RIGINAL-^^DHNER
SAMLAGNINGARVÉL
handdrifnar og ralknúnar.
MAIGFÖLDUNARVÉL
handdrifnar.
■ Garðar Gíslason hi.
Reykjavík.
I
I
!
Starf KR í skíðaniálum
I ársskýrslu KR segir svo
um frainkvæmdir og starf fé-
la,gsins í sldðamálum:
„I Skálafelli var haldið á-
fram framkvæmdum við sldða-
skála félagsins, sem vígður var
á 60 ára afmæli félagsins í
marz 1959, og var unniið við
gufubað í kjallaranum og unn-
ið að lagfæringum og jöfnun
á svæðinu umhverfis skálann.
Er þar nú kominn fullstór
handknattleiksvöllur. Þá var
ráðist í það stórvirki að koma
tipp 560 m skíðalyftu við
skíðaskálann og er henni senn
lokið. Er þetta ein fullkomn-
asta skíðalyfta landsins. Skíða-
menn félagsins urmu mjög mik-
ið sjálfboðaliðsstarf við bygg-
jngu lyftunnar, eða alls 1860
klst. auk aðkeyptrar vinnu.
Skíðadeild. Vegna snjóleysis
var litið um skíðamót og
skiðaferðir og einnig tóku
byggingarframkvæmdirnar í
Skálafelli upp mikinn tíma frá
skíðaæfingum. Á Reykjavíkur-
mótinu átti K.R. no’kkra sigur-
vegara en þetta mót var liið
! eina, sem tókst að ljúka hér
í nágrenni bæjarins. íslands-
mótið var lialdið á Siglufirði
og náði Karórina Guðmunds-
dóttir beztum árangri K.R-
inga, varð nr. 2 í 4 greinum.
5 skíðamenn félagsins dvöldu
erlendis við æfingar og keppni
s.I. vetur, 1 í Bandaríkjunum
og 4 í Austui-Þýzkalandi.
Formaður skiðadeildarinnar
var Þórir Jónsson.“
takendur í fyrstu sveitinni fá
aukaverðlauri.
Ennfremur stendur til að
sá keppandi sem fær be^ta
samanlagðan brautartíma, fái
sérstök verðlaun sem gefin
verða í tilefni þessa fyrsta
„Mullersmóts“.
Sl. tvo vetur varð eigi af
keppni þessari vegna snjóleysis
við Skíðáskálam þegar mót-
ið skyldi fara fram. — Búast
má við harðri keppni þár
sem állir eða flestir beztu svig-
menn Reykjav’ikur leiða hér
saman hesta sína.
I slikri sveitakeppni þarf
keppandi sérstaklega að gæta
öryggis til þess að sveitin verði
eigi úr leik auk þess sem hver
einstakur verður að leitast
við að ná sem beztum braut-
artíma.
Efnalauginni Hjálp, Bergsstaðastræti 28 og Grenimel,-
Skóbúðinni, Álfheimum 6. ,
Skeifunni, Blönduhlíð, og Efnalaug Hafnarfjarðar. }
Sími 24866
Fast starf
Ungur maður getur fengið fast starf við lyfjagei'ð.,.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og ]
menntun sendist Lyfjaverzlun ríkisins, Hverfis-
götu 4—6, fyrir fimmtudag n.k.