Þjóðviljinn - 05.05.1961, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.05.1961, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. ma'í 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (5 framieiðsla r \ sósíaiískn ríkjunum Júr,í Gagarín, fyrsti maðurinn sem farið hefur úí í geinlinn, fér til Pra.g fyrir skömmu í boði télílcneska Kommúnistaflokksins. Var honum forkunnarvel fagnað. Mannfjöldinn var svo ólmur í að sjá og hylla fyrsta geimfarann að öll umferð stöðvaðist á götum sem hann fór um. Mynilin sýnir íbúa Pragborgar fagna Gagarín fyrir utan gamla ráðhúsið í borginni. ® & PARIS 4/5 — Það er haft eftir andstæðingam de Gaulle í liópi hægrimaiuia að Salan liershöfð- irigi kafi tekið við stjórn neðan- jarðarhreyfing/r sem ætlað er að lialda áfram baráítunui fyrir „frönsku Aisír“. Enn er ekkert vitað um hvar Salan og félagar hans, hershöfð- ingjarnir Jouhaud og Zeller, eru niður komnir, en talið er senni- legast að þeir fari enn. huldu höfði í Alsír. Þó er ekki loku fyrir það skotið að þeir hafi kom- izt úr landi og hugsanlegt að þeir hafi enn fengið griðastað á Spáni. Aðalforsprakki uppreisnarinn- ar, Maurice Challe, var í dag ieiddur fyrir rannsóknarrétt í °?rís og var þar yfirheyrður um þátt sinn í uppreisninni. Verjandi hans, Arrigni, einn írægasti lög- maður Frakka, var viðstaddur yf- irheyrsluna. Lögregla og herlið höíðu mik- inn viðbúnað í Algeirsborg í dag og barst út sá orðrómur að hægriöfgamenn ætluðu að reyna að ráða af dögum ýmsa menn sem hollir hafa reynzt stjórninni í París. Þar var þó sagt að hér hefði aðeins verið um æfingu að ræða. Eitn á að rcyna á Canaveralhöfða 4/5 — Á morgun stendur enn til að. reyna að skjóta Bandaríkja- manni upp í háloftin, en því hefur verið frestað þrívegis síðustu vikuna. Það verður þó ekki endar’.ega afráðið hvort tilraunin verður gerð eða ekki fyrr en á síðustu stundu og mun það fara eftir veðrinu. Veðurspá er hagstæð, léttskýj- að og skúrir. Sovétríkin og önnur sósí- ísk ríki í Evrópu, nema Austur-Þýzkaland, hafa aukiö' iönaðarframleiðslu sína um meira en 10 pró- sent á árinu 1960, segir 1 skýrslu efnahagsnefndar Sameinuöu þjóöanna fyrir Evrópu. FramleiÖsla Aust- ur-Þýzkalands var ekki al- veg eins mikil vegna skorts á stáli. Framleiðsla Sovétríkjanna á byggingarvörum, vélum og 'I efnaiðnaði jókst mjög mikið. 'Olíunotkun kemur í stöðugt ríkari mæli í stað kolanotkun- ar. Nýjar verksmiðjur iByggð voru y.fir 1000 ný iðti- aðarfyrirtæki’ í Sovétríkjunum , á síðasta ári, þar á meðal stærsti stálofn heims. Níu vatnsaflshreyflar voru bygg'ðir fyrir raforkuverið í Stalíngrad, og lagðar voru olíu- og gas- leiðslur, sem eru meira en 5000 km. á lengd. Rúmen'ia er fremst í flokki í hlutfallslegri aukningu í iðnað- arframleiðslunni. Rúmenar juku járnframleiðslu sína um 37 prósent, framleiðslu hrájárns um 20 prósemt, framleiðslu hrá- stáls um 27 prósent og fram- leiðslu á völsuðu stáli um 53 prósent. Framleiðsla Búlgara á niður- soðnum ávöxtum jókst um 50 prósent. 1 Ungverjalandi var ekki byrjað á eins mörgum ný- byggingum í iðnaði og oftast áður, en áherzla lögð á að Ijúka. fjölmörgum fyrirtækjum, csm vérið hafa í bygg'ngum. Hciárifssiiáli í denska þingÉRiy Framh. af 12. síðu isstjómin átt að ráðgast við stjórnmálaflokkana áður en frumvarpið var samið til að koma í v.eg fyrir þá misklíð sem nú hefði verið vakin. Fulltrúi Óháðra vinstri- manna lýsti sig andvígan frum- varpinu, og taldi að með því væri bæði gengið á eignarrétt- inn og h\ut þingsins. Fleiri þingmenn tóku til máls, þ.á.m. fyrrverandi þingleiðtogi íhaidsflokksins, O’.e Björn Kraft, sem sagðist vera fylgj- andi því. að jslendingar fengju handritin, en hann harmaði einnig málsmeðferðina. Jörgen Jörgensen mennta- málaráðherra svaraði í'rarp- kominni gagnrýni, en tók jai'n- framt fram að umræðurnar hefðu sýnt að flestir þingmenn virtust vilja afhenda íslending- um handritin. Þingið aetti aðeins að taka ákvörðun um það meg- inatriði hvort handritum skyldi skilað eða ekki, en ekki hvaða handrítum. Sérfróðir menn myndu ganga frá því. Stúdentaráð Hafnarháskóla og Samráð danskra stúdenta boð- uðu í sameiningu til mótmæla- göngu í Kaupmannahöfn í dag gegn afhendingu handritanna. Um 700 stúdentar tóku þátt í göngunni, en 19.000 stúdentar munu heyra undir þessi ráð. Var gengið frá háskólanum til Kristjánsborgarhallar og þár haldinn fundur sem samþykkti mótmæii gegn afhendingu hand- ritanna. í samþykktinni er vísað til mótmæla sem borizt''- hafi frá stoínunum og vísindamönnum í Danmörku gegn frumvarpi stjórnarinnar og sagt að „vís- indastörf þay sem unnin eru á Árnasafni aí dönskum og er- lendum vísindamönnum muni ærða fyrir óbætanlegu tjóni ef handritin, eða hluti þeirra, verða flutt á brott“. Tekið er fram að afhending handritanna muni síður en svo verða til þess að efla norræna samvinnu. heldur ffemur draga úr henni. Það -er til dæmis um alvöru þá sem a.m.k. nokkur hluti göngumanna sýndi málefninu að i göngunni vor'u höfð á lofti spjöld þar sem á var letrað: „Látið íslend nga ekki fá liand- ritin, þeir munu íiota þau í skó- bætur!“ einn vinning til Moskvu 4/5 — Botvinnik þarf nú aðeins einn vinning til viðbótar ■til að tryggja sér aftur heims- meistaratitilinn í skák. Átjánda skákin fór í bið á miðvikudags- kvöld, en Tal gaf hana þegar halda átti áfram. Botvinnik hefur þá fengið HVz vinning, en Tal 61’2. Sex skákir eru ótefldar og verður sú 19. tefld á rnorgun, föstudag. Höföað verður niál gegn 11* þeldökkum mönnuin í Höfða- borg vegna þátttöku í ócirS* um í Pondolandi, að sögn fas» istastjómarinnar í S-Afríku. Samtals liafa 524 blölíku- inenn verið handteknir vegna óeinða í Pondolanöi.. Stjórn (S-Afríku virðist liafa ákveðið að herða enn kúgun blökku- fólks í landinu, en þeim er neltað um öll mannréttindi. Auk hinna 114 eru 122 áknrð* ir fyrir íkveikju. ★ Henrique . Galvao, einn af leiðtogum andstöðunnar gegn Salazar einræðisherra í Portú- gal, hefur verið neitað um að koma til Bandaríkjanna. Gal- vao, sem frægur varð fyrir að stjórna hinn ævintýralegu upp- reisn á skipinu Santa Maria. hugðist ferðast til USA, en bandarísk yfirvökl neifuðil honum um vegabréfsáritun. ★ I bandarískum miðskóla voru nemendur spurðir uni það hver Hómer væri. Meðal svaranna voru þessi: Skip- s.tjórinn á snekkju Onassis, krabbategund í Kyrrahafi, að- stoðarmaður Castros, og lang> hlaupari £ Evrópu. •k Vopuaðir glæpamenn hafa rænt 25 kg. af giftingarhring- mn í skartgripaverksmiðju í Marseille. Þýfið er metið á rúmar þrjár milljónir króna. • o í miklu úrvali. m hdin á Gannss Cannes 4/5 — Fjórtánda alþjóð- lega kvikmyndahátíðin nófst hér í gærkvöld. Við setningarathöfn- ina var sýnd bandaríska kvik- myndin Exodus, en það tekur 3 tíma og 20 mínútur að sýna hana. Hún tekur ekki þátt í keppninni um verðlaunin. Sýndar verða samtals 60 kvikmyndir. Barizl á |remur stöðum í Angála Lúanda 4/5 (NTB-AFP) — Níu portúgalskir hermcnn særðust þegar vel vopnaðir uppreisnar- menn réðust í gær á þrjá bæi í Angóla: Fjórir hermennirnir særðust hættulega. Um 100 km eru á milli bæjanna þriggja, Songo, Sanza og Pongo. — margar gerðir og stærðir. Slfflkar buxur — litaúrval og margar stærðir Drangjabuxur ®g drangjablúss- ur, nærföt, bindi og sekkcr í, verzlun, Laugavegi 99. — Sími 24925. Takið effir Verkstæði mitt og stofa verður lokuð vegua flutn* ings, dagana 5. til 10. maí. | Opnað aftur 10, maí að Laugavegi 85. Er til viðtals eins og áður alla virka daga frá kl. 14 til 16 á öðrum tímum eftir samkomulagi. j STEINAK S.jWAAGE, orthop. j skó- og innleggasmiður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.