Þjóðviljinn - 18.07.1961, Page 3

Þjóðviljinn - 18.07.1961, Page 3
Þriðjudagur 18. júlí 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Loftleiðir opna skrifstofu Síldarverksmiðjan á Seyöisfirði eftir stœkkunin 1957. vem a siidarverksmiðja á Au 1 27. tölublaði Austfirðings, cr út kom í Neskaupstað 14. þ.m., cr í ágætri forsíðugTein rætt um síldveiðarnar og þá sérstaklega þá staðreynd, að þegar mikil og góð síldveiði er fyrir Austur- landi, eru þar ekki ski'yrði fyr- ir hendi til þess að veita veið- inni móttöku. Rætt er einnig í greininni um þá lærdóma, scm draga megi af þeirri reynslu, er nú hefur fengizt svo áþreifan- lega. I greininni segir: ,.Þegar síldin kemur eru eng- in tök á að veita henni viðeig- andi móttöku. Bræðslumar á Austurlandi eru ahar litlar. Þær eru fimm talsins, en sólarhrings- afköst þeirra eru ekki nema um 10 þúsund mál. Þegar þess er gætt, að ef ekki liggja óeð!i- lega mörg skio í höfn í bið eftir löndun, má ætia að sólarhrings- Vitneskjan ekki frá Landsbank- anum í tilefni af ummælum í Þjóð- viljanum sl. laugardag um trún- aðarbrot af hálfu Landsbankans í sambandi við peningasendingu til Dagsbrúnar kom aðalbókari bankans að máli við blaðið í gær og kvaðst að vel athuguðu máli geta fullyrt, að Alþýðu- blaðinu hefði ekki borizt vitn- eskja um umrædda peningasend- íngu frá Landsbankanum eða starísmönnum hans. Hins vegar vildi hann engum getum að þvi leiða. hvaðan A'þýðublaðið hei'ði fengið fréttina. Bifreiðaslys í Súgandafirði ísafirði 17. júlí. — Á sunnu- daginn ók jeppabifreið frá Suð- ureyri út af veginum rétt innan við þorpið og valt niður i fjöru. Bílstjórinr var Bergþór Úifars- son lögregluþjónn á Selfossi en með honum í jeppanum voru kona hans. Vajgerður Jónsdóttir frá Suðureyri, systir hans og tengdamóðir, Guðjóna Alberts- dóttir frá Suðureyri. Bergþór meiddist í baki og brjóstkassa og Guðjóna fékk heilahristing og var flutt á sjúkrahúsið á ísafirði. Talið er að bilun í stýr- isútbúnaði hafi valdið slysinu. afli sé að ö’iu eðlilegu 50—701 þús. mál, er Ijóst hver óhemju verðmæti ganga sjómönnum. út- gerðarmönnum og þjóðarbúinu úr greipum. Og þó mörg skip haldi til Haufarhaínar dugir það ekki til, og í vandræðum sínum l'ara sum alla leið til Sig'.ufjarð- ar. Þó aðstaða til söltunar sé ó- v ða góð hér eystra, hefur hún þó mikið verið bætt að undan- förnu, en mikið vantar á að vel sé. Þó eru nú tunnubirgðir þrotnar hjá flestum. ekki aðeins hér eystra, heldur á öllum höfn- um, og ef satt er það sem sagt er að hinn litli tunnulager hér fyrir austan hafi að hluta verið fluttur norður á Raufarhöín, er það stórvitavert. Söltunarstöðvarnar hér fyrir austan eru flestar nýgræðingar og hal'a yfir litlu fjármagni að ráða. Þær geta því ekki birgt sig nógu vel upp af tunnum, en '(í lágmarkskröfu verður að gera til ráðamanna í þessum málum, að saltendur eigi jafnan kost á nægum tunnum og að Síldarútvegsnefnd hafi tunnulag- era á nokkrum höfnum“. Síðan heldur greinarhöfundur áíram: „Skyldu augu stjórnarvalda aldrei opnast fyrir því hverjir möguleikar eru til gjaldeyrisöfl- unar i sambandi við sildveiðarn- ar á Austurlandi? Skyldu þau aldrei sjá, að fátt er skynsam- legra i fjárfestingarmálum en að gera hagnýtingu sildarinnar mögulega? Væri ekki reynandi að leggja andvirði eins eða 'veggja þúsund tonna togara, eins og þess, sem Einar ríki á i skipakirkjugarðinum í Reykja- vík, í uppbyggingu sildariðnaðar á Austurlandi, í endurbætur þeirra verksmiðja, sem fyrir eru og byggingu nýrra, ef hag- kvæmt þykir. og í mannvirki til °ð efla síldarsöltun og aðra nýt- íngu síldarinnar? Aðeins ein ríkisstjórn, þ.e. vinstri stjórnin, sem sat að völd- um 1956—1958, hefur sýnt nokk- urn skilning á bessum m,álum, og voru þá reistar þær verk- smiðjur, sem hér eru nú. Síðan hefur enginn áhugi verið á þess- um málum á hærri stöðum. Það hefur meira að segja verið mikl- um erfiðleikum bundið að fá fé til að ljúka því, sem ekki vannst tími til að fuilgera fyrir fall vinstri stjórnarinnar. Allar eru þessar bræðslur í eigu heimamanna. Rikið sjálft á mestan hluta norðlenzku bræðsl- anna. R kisstjórn og bankar mega ekki lengur horfa í aðgerðar- leysi á milljónirnar renna gegn- um greipar sér og út í sandinn vegna þess, að fullnægjandi að- staða er ekki fyrir hendi á Austurlandi til að hagnýta síld- Enskur togari með 2 veika menn til Neskaupstaðar Neskaupstað, 17. júlí. — Mikl- ar skipakomur eru hér nú. Tvö strandferðaskip komu í nólt og Dísarfell losar sement hér í dag. Enskur togari kom hing- að í dag með tvo veika menn, sem settir voru á sjúkrahúsið. Miðviki'dasrinn 12. þ. m. opn uðu Lcftie ðir nýja söluskrif-; stofu í Rockefoller Cer', er í New York. O'I stjórn Loftleiða var síödd í New York af því til- efni þernan dag og haí'ði bcð inni. M.éTa! gesía voru Thór Thórs ambassador, lréítaritarar frá ýmsum stórblöðum, forustu- menn á sviði flug- og ferðamála, svo og allmargir starfsmenn. Klukkan 4 um dag'nn var blaðamannafundur í hinum nýju húsakynnum en klukkutíma síð-; ar komu aðrir gestir og skoð- ‘ uðu húsnæðið en síðan voru veitingar fram bornar í Holland House. Nýja söluskrifstofan er í götu- hæð Rockefeller Center rétt við mikla ferðamanna- og umferða- miðstöð, þar sem skautasve'l er á vetrum en veitingastaður á sumrum. Öll stærstu flugfélögin hafa skrifstofur á þessum slóð- um og er þarna svo fjölfarið, að talið er, að um 15 milljónir manna eigi árlega leið framhjá hinum nýju skrifstofum Loft- leiða. Er þess vegna vandfund- inn ákjósanlegri staður en þessi. Allur búnaður skrifstofunnar er mjög nýtízkulegur en þó ís- lenzkur. Húsgögn eru dönsk, finnsk og norsk. Litmyndir eru á veggjum frá þeim Evrópulönd- um, þar sem Loftleiðir hafa bækistöðvar. Á aðalvegg eru 3 stór málverk eftir Ásgrím Jóns- son, allt frummyndir lánaðar að heiman. Vöktu þær mikla at- hygli. Hafa Loftleiðir í hyggju að fá síðar að heiman frum- myndir annarra listamanna til sýnis í skrifstofunni. Skrifstof- an er einnig prýdd sýningarmun- um frá leirmunagerðinni Glit í Reykjavík og fleira er þar góðra íslenzkra gripa. Fjórir afgreiðslumenn geta unnið samtímis í skrifstofunni en þar er e'nnig svæði, sem á- kveðið er að bjóða Ferðaskrif- stofu ríkisins til landkynningar og til að veita almennar upplýs- ðánægja á Siglufirði með framkvæmd síldarleitar Sislufirði, 17. júlí. — Æ fleiri óánægjuraddir heyrast. yfir framkvæmd síldarieitar- inuar fyrir Norðurlandi og halda sumir menn því fram, að þær framkvæmdir eða öllu heldur framkvæmdaleysi megi flokka undir skemmdarstarf- semi, a.m.k. má fullyrða, að þar sé óafsakanlega slælega að unnið, hver svo sem ber á því höfuðábyrgð. Eins og skýrt var frá í blöð- um fyrir nokkrum dögum, var síldarleitarskipið Ægir sent til Reykjavíkur strax og síld hafði fundizt fyrir Austurlandi og þar er það enn eftir því, sem bezt er vitað. IJitt leitarskipið, Fanney, var látið halda sig inn- an um síldarflotann fyrir aus(- an, þó þess væri þar engin þörf. Það var fyrst eftir þrá- látar kvartanir og háværar kröfur frá aðilum fyrir norðan, að skipinu var haldið norður á bóginn. Þá hafði verið prýð- isveður á norðurmiðunum í marga daga. Eanney var sl. laugardag komin á austurbrún Sléttugrunns og þaðan fcr hún til Raufarhafnar án þess að hafa leitað á miðunum við Kol- beinsey, þar sem síldveiði hafði verið mest meðan veðrið hélzt gott, en það var fyrst og fremst vegna veðurs en ekki aflabragða, sem síldarskipin á norðurmiðunum fluttu sig austur á bóginn. Þess vegna hefði auðvitað átt að hefja leit á þessum miðum samstundis og veður batnaði í stað þess að draga það þar til komin var bræla á nýjan leik. Eitt skip, Gjafar frá Vest- mannaeyjum, fór fram undir Kolbeinsey á laugardagskvöld- ið. Gjafar varð sírax var við síld og fékk um 150—200 tunnur, sem hann kom með til Siglufjarðar. Allar líkur benda til að þarna hafi verið síld all- an tímann, sem flotinn var á austurmiðunum, en ekki verður um það vitað með vissu, þar sem öll leit á þessu svæði hef- ur gjörsamlega verið vanrækt. Ýmislega fleira er það í starf- semi síldarleitarinnar, sem mönnum fellur ekki alls kostar, svo sem fréttaflutningur henn- ar, en ekki liirði ég að rekja það nánar að sinni. irjgar um ísþind, en fyrirspurnir um ferðalög hér á landi eru vaxand’. í skrifstofunni verður éinungis afgreiðs'a farbeiðna en önnur skrifstofuþjónusta verður innt af hendi í húsnæði á 6. hæð i Rockeíeller Center. í hófinu að Holland House fluttu ávörp og ræður Robert Delany. framkvæmdastjóri Loft- leiða í New York, Kristján Guð- laugsson hrl, formaður Loftleiða og Thór Thórs ambassador. Þá voru sýndar litskuggamyndir, er Bandaríkjamaðurinn Gallagher hafði tekið á íslandi, og einnig var sýnd hin nýja kvikmvnd Kjartans Ó. Bjarnasonar: This is Ice'and. Drukkinn öku- maður veldur miklu slysi Á laugardagskvöldið um kl. 8 varð injög: harður bifreiðaárekst- ur á Suðurgötu og slösuðust tvær konur, er voru í öðrum bilnum. Ökumaður liinnar bif- reiðarinnar meiddist einnig. Bifreið sú, er konurnar voru í var á leið suður Suðurgötu, er á móti kom bifreið, sem ekið var á öfugum vegarkanti. Konan sem ók stöðvaði þá bifreiðina en i sama bili varð árekstur svo harður að bifreið tkvennanna snerist alveg við á veginum. f henni voru þrjár konur, sátu tvær þeirra í framsætinu og slösuðust þær báðar. Voru það mæðgurnar Ragnheiður Hafstein Thorarensen lyfsalafrú og dótt- ir hennar frá Katrín Hhoraren- sen. Ragnheiður meiddist meira, hlaut mikinn áverka á höfði, en Katr.'n slasaðist einnig á höfði. Farið var með þær mæðgur báð- ar á slysavarðstofuna, þar sem þær voru undir læknishendi fram á sunnudagsmorgun. Ökumaður sá, er slysinu olli, meiddist einnig nokkuð. Hann var mjög drukkinn, hafði setið að drykkju með félaga sinum, tekið bíl hans traustataki með bessum afleiðingum. Báðar bif- reiðarnar stórskemmdust. Skíðamót „í síld- inni“ á Siglufirði Sigiufirði, 17. júlí. — Skíða- mótið, sem boðað hafði verið í gær fór fram í mjög góðu veðri og' skemmtilegu færi í Skarðsdalnum. Þar er nógur snjór og hægðarleikur að stunda driðaíþróttina enda stutt að fara frá veginum. Nokkrir af þeim, sem boðað höfðu þátttöku for- fölluðust, sumir vegna þess, að sö'tun stóð yfir. en þátttakend- ur urðu þó 15. í brautinni voru 10 hlið og hún var um 500 m 'öng. Hún var lögð af Hjálmari Stefánssyni. Sigurvegari varð Svanberg Þórðarson frá Revkjavík með samtals 86 sek., annar varð Árni Sigurðsson frá ísafirði á 86,3. Árni fékk lánaðan allan útbún- að hjá Jóhanni Vilbergssyni, sem ekki gat tekið þátt í mótinu sökum vinnu sinnar. Þriðji varð Bogi Nílsson frá SigÍufirði á 88.9, fjórði Hjálmar Stefánsson Siglufirði á 90,6.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.